Morgunblaðið - 15.11.2014, Síða 68
LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 319. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Fannst á lífi
2. Búnir að fá nóg af Breivik
3. Maðurinn fannst í gröfu
4. Sölubann á Galdrasett Einars Mikaels
Kammerhópurinn KÚBUS heldur
útgáfutónleika í Iðnó á morgun kl. 16
í tilefni af útgáfu hjómplötunnar
Gekk ég aleinn. Á henni eru sönglög
eftir Karl Ottó Runólfsson í nýjum út-
setningum Hjartar Ingva Jóhanns-
sonar. Hildigunnur Einarsdóttir
messósópran og Jón Svavar
Jósefsson barítón flytja lögin með
kammerhópnum.
KÚBUS leikur lög
Karls Ottós í Iðnó
Kór Akureyrar-
kirkju flytur
negrasálma í
kirkjunni á morg-
un kl. 20 ásamt
hljómsveit. Í kórn-
um eru 70-80 fé-
lagar og mun einn
þeirra, Haraldur
Hauksson, syngja
einsöng. Stjórnandi kórsins er Eyþór
Ingi Jónsson og hljómsveitina skipa
Daníel Þorsteinsson á píanó, Jón
Rafnsson á kontrabassa og Halldór
G. Hauksson á slagverk.
Flytja negrasálma
Málþing verður haldið í dag kl. 13-
15 í Útvarpshúsinu til heiðurs Mar-
gréti Indriðadóttur, fyrrverandi
fréttastjóra Útvarps. Yfirskrift mál-
þingsins er: „Í fréttum
er þetta helst …“ og
munu fyrirlesarar
fjalla um fréttir og
fjölmiðla fyrr og nú.
Margrét var fyrsta
konan á Norður-
löndum til að
gegna starfi
fréttastjóra
ríkisútvarps.
Málþing til heiðurs
Margréti Indriðadóttur
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
Á sunnudag Hæg suðaustlæg átt. Rigning á Austfjörðum og stöku skúrir suðaust-
anlands en skýjað með köflum og þurrt annars staðar. Hiti 2 til 7 stig, en vægt frost í inn-
sveitum fyrir norðan.
Körfuknattleikskonan Björg Guðrún
Einarsdóttir hefur þrisvar nefbrotnað
á stuttum ferli og tvisvar á þessu ári.
Hún ætlar þó ekki að láta það stöðva
sig og mun halda áfram ótrauð að
spila með KR-ingum en notar sér-
sniðna grímu til hlífðar. „Læknirinn
hló að mér þegar ég kom til hans í
annað skiptið á sama árinu,“ segir
Björg. »1
Björg nefbrotnaði
í þriðja skipti
KR-ingar halda sínu striki í
úrvalsdeild karla í körfu-
knattleik, Domino’s-
deildinni. Þeir unnu sjötta
sigur sinn í deildinni í gær-
kvöldi þegar þeir sóttu
Snæfell heim í Stykkishólm,
99:91. Tindastóll er nú einn
í öðru sæti eftir sigur á
Fjölni í Grafarvogi því Hauk-
ar töpuðu á sama tíma fyrir
Þór úr Þorlákshöfn á heima-
veli, 109:94. »2
KR áfram tap-
laust á toppnum
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu kom til Plzen í Tékklandi í gær
en þar mætir það Tékkum í und-
ankeppni Evrópumótsins annað
kvöld. Heimir Hallgrímsson segir að
allir leikmennirnir í hópnum séu til-
búnir í leik-
inn en eng-
um detti í
hug að
auðvelt
verkefni sé
fyrir höndum.
Ef liðin tvö eru skoð-
uð er lið Tékka helm-
ingi verðmætara en
það íslenska. »1, 4
Landsliðið er mætt
til leiks í Plzen
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta verður skemmtileg veisla
með yfir 100 gestum,“ segir Jóhanna
Guðrún Wilson, sem er 95 ára í dag
og fagnar tímamótunum í móttöku-
sal útfararstofu Neils Bardals í
Winnipeg í Kanada.
Jóhanna er vel þekkt í íslenska
samfélaginu í Manitoba auk þess
sem hún hefur haldið góðu sambandi
við skyldfólk og vini á Íslandi. Hún
hefur meðal annars heimsótt Ísland
13 sinnum, fyrst fyrir 50 árum og
síðast á 90 ára afmælisárinu. Það
vakti mikla kátínu viðstaddra 17.
júní 2006, þegar hún þakkaði Jóni
Karli Ólafssyni, þáverandi forstjóra
Icelandair, fyrir hátíðarræðu í
Winnipeg. Þá var töluvert hávær
umræða vestra um möguleika á
beinu flugi milli Íslands og Winnipeg
og Jóhanna notaði tækifærið til að
árétta mikilvægið. „Ég hef oft heim-
sótt Ísland og beint flug myndi
vissulega gera mér auðveldara fyr-
ir,“ sagði hún þá. „Það er slæmt að
þurfa fyrst að fljúga suður til Minn-
eapolis til þess að fljúga svo norður
til Íslands.“ Segir núna að hópur
kvenna sé að skipuleggja ferð til Ís-
lands næsta sumar og hún ætli með.
„Ég óska öllum vinum mínum á Ís-
landi gleðilegra jóla og hlakka til að
hitta þá. Beint flug myndi ekki
skemma fyrir,“ segir hún.
Kvenfélagið mikilvægt
Jóhanna Guðrún Símonardóttir
(Skaptason), móðir Jóhönnu, var
helsta hvatakonan að stofnun kven-
félagsins Jón Sigurðsson – kvenna-
deild IODE (Imperial Order
Daughters of the Empire) 1916 og
formaður þess fyrstu 17 árin. Jó-
hanna yngri hefur verið félagi í um
70 ár og tvisvar kjörin formaður. Fé-
lagið er henni mjög kært og hún seg-
ir að það hafi náð til fleiri kvenna að
undanförnu. Nefnir í því sambandi
að fjölgað hafi í félaginu, núverandi
formaður sé norsk og varaformað-
urinn dönsk. Allir um 60 félags-
mennirnir eru á gestalistanum í dag.
„Það þarf stórt húsnæði fyrir svona
fjölmennan hóp og þess vegna verð-
um við í útfararstofunni,“ segir hún.
Bætir við að gestir komi víða að og
margir taki þátt í undirbúningnum.
„Guðrún Ágústsdóttir og Sigrún
Steingrímsdóttir koma frá Íslandi
og Anna Birgis, sem er öflug í kven-
félaginu, er ein mín helsta stoð og
stytta.“
Jóhanna virðist alltaf vera eins.
„Ég er í góðu formi og þakka það ís-
lenska þorskalýsinu, sem ég hef tek-
ið um árabil,“ segir hún. Leggur
áherslu á að það hjálpi sér ekki síður
í bridsinu og að sjálfsögðu við bakst-
urinn. „Ég slæ enn í köku eða tvær,“
segir hún og nefnir að hún hafi bak-
að fjórar stórar vínartertur fyrir
veisluna, kleinur, pönnukökur,
brauð og ýmislegt annað góðgæti.
„Það verður vonandi nóg.“
Íslenska þorskalýsið virkar vel
Jóhanna Guðrún Wilson heldur upp
á 95 ára afmælið með yfir 100 gestum
Ljósmynd/Anna Birgis
Kræsingar Jóhanna Guðrún Wilson við hluta meðlætisins sem hún hefur bakað fyrir veisluna í dag. Vínarterturnar eru sex laga að þessu sinni.
Foreldrar Jóhönnu voru Jó-
hanna Guðrún Símonardóttir,
fædd á Gimli 1877, og Jósef
Björn Skaftason, fæddur á Ís-
landi. Hún er ættuð úr Húna-
vatnssýslu og af Snæfellsnesi.
Björn Skaftason og Margrét
Stefánsdóttir voru afi og amma
hennar í föðurætt. Símon Sím-
onarson og Valdís Guðmunds-
dóttir, afi og amma hennar í
móðurætt, voru í fyrsta hópnum
sem flutti til Kanada 1874. Val-
dís tók á móti fyrsta íslenska
barninu sem fæddist á Gimli við
Winnipegvatn. Eiginmaður Jó-
hönnu var Frank Wilson. Þau
eiga þrjú börn, fjögur barnabörn
og þrjú barnabarnabörn.
Fæddur á
Íslandi
ÍSLENSK Í BÁÐAR ÆTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 4-12 m/s. Bjart með köflum vestantil, annars skýjað
en rigning af og til suðaustan- og austantil. Dregur úr vindi og úrkomu upp úr hádegi,
fyrst vestanlands. Hiti 5 til 12 stig.
VEÐUR » 8 www.mbl.is