Málfríður - 15.10.2005, Page 17

Málfríður - 15.10.2005, Page 17
MÁLFRÍÐUR 17 að við viðurkennum að nemendur þurfa mislangan tíma til að ná tökum bæði á námi og efni. Evrópska tungumálamappan er ein af nýju áhersl- unum í tungumálakennslu sem stutt gæti við slíkt nám, því með henni er sjónum beint meira að nem- andanum sem sjálfstæðum og ábyrgum einstaklingi sem tekur þátt í að skipuleggja eigið nám með mark- miðssetningu og sjálfsmati. Einn hluti möppunnar er samræmd skráning á færniviðmiðum sem er ætlað að auka og auðvelda hreyfanleika Evrópubúa innan álfunnar og þar með aðgengi þeirra að námi og störfum. Árið 2003 tóku þrír grunnskólar og tveir fram- haldsskólar þátt í tilraun um íslenska útgáfu af evr- ópsku tungumálamöppunni fyrir bæði skólastigin. Sú útgáfa sem unnin var í þessari tilraun hefur verið lögð fyrir Evrópuráðið og bíður blessunar. Hver er svo reynsla þeirra kennara sem nota tung- umálamöppu? Áhersla er lögð á að nemendur geti strax notað það sem þeir læra til nokkuð eðlilegra tjáskipta á hinu erlenda tungumáli en þurfi ekki að gera enda- lausar málfræðiæfingar áður en þeim er treyst til að semja eitthvað sjálfir. Nemendur sjá þannig fljótt notagildi tungumálsins og venjast því að nota það á eðlilegan máta í nokkuð raunhæfum verkefnum, t.d. samtali hjá lækni eða á veitingahúsi, við umsókn um störf og margt fleira. Þar sem nemendum er gert að halda möppu yfir vinnu sína, verða þeir að safna saman á skipulegan hátt því sem þeir hafa unnið með og eru í raun að byggja upp sína eigin handbók. Þeir halda utan um námið, ábyrgðin er þeirra. Eftir því sem nemendur komast lengra í námi kemst heillegri mynd á efni sýnismöppunnar og á ferilsöguna. Nemendur eru ekki eins og reköld sem ekkert vita og ekkert skilja. Í stað þess að námsmat sé alfarið hjá kennara og þá oftar en ekki byggt að mestu á skriflegum próf- um, þá leggur nemandi fram möppuna og hefur þar með þó nokkur áhrif á matið. Nemandinn er metinn á grundvelli þess sem hann kann og getur en er ekki refsað fyrir það sem hann kann ekki. Allir færniþættir eru lagðir að jöfnu í stað ofuráherslu á skrifleg próf eins og tíðkast hefur. Evrópska tungumálamappan er jákvæð viðbót við aðrar nýjar áherslur eins og aukna í tölvunotk- un, hvort sem um er að ræða blogg, skreppa með nemendur til einhvers lands á netinu, skoða metróið í París eða panta sér miða með þýsku járnbrautun- um. En erfitt er að ræða nýjar áherslur í tungumála- kennslu þegar fyrir liggja tillögur frá menntamála- ráðuneytinu um að kennsla í ensku og dönsku verði færð að hluta til niður í grunnskólann og við vitum ekki til þess að þar sé tryggður aukinn kennslutími fyrir aukið efni. Kennslu 3. tungumáls á að skerða stórlega. Í kjarna málabrautar verða 12 einingar í stað 15, í kjarna fé lagsfræðibrautar 9 í stað 12 og í kjarna nátt- úru fræðibrautar verða 6 einingar í stað 12. Að vísu bæt ast við 5 dagar í kennslu en það dugir engan veg- inn til að bæta upp það sem skorið er í burtu. Einingum til stúdentsprófs á að fækka úr 140 í 111. Í kjarna eiga að vera 78 einingar, 24 á kjörsviði og svo 9 í vali. Þó nemendum sé frjálst að bæta við sig í tungumálum, þá eru þeim líka settar skorður með fækkun um hátt í 30 einingar. Æ meiri kröfur eru gerðar um ákveðna sérhæfingu vilji nemendur fara í framhaldsnám. Styttri námstími leyfir ekki að nem- endur afli sér sem fjölbreytilegastrar menntunar. Áhyggjur kennara 3. tungumála beinast ekki síst að styttingu á náttúrufræðibraut. Að læra tungumál í einn vetur í tveimur 3ja eininga áföngum eða einn og hálfan í tveggja eininga námi þar sem byrjað er frá núlli er hvorki fugl né fiskur. Slíkt er ekki vel fallið til að laða nemendur að tungumálanámi, heldur er hætt við að þeir muni líta á þetta sem tímaeyðslu. Tungumálanám er þess eðlis að það tekur tíma. Það er hægfara ferli í eðli sínu, nemendur þurfa tíma til að meðtaka innlagnir, fara yfir mismunandi þætti námsins, þróa með sér málvitund og þjálfa upp færni í ýmsum þáttum málakunnáttu. Því teljum við varhugavert að stytta tungumálanám í framhalds- skólum enn meira en orðið er. Niðurlag Tungumál opna dyr en það gerist ekki fyrirhafn- arlaust – eða án þess að menntamálayfirvöld sýni málinu skilning. Ef þetta er ekki gert almennilega þá er betur heima setið en af stað farið. Á sama tíma og samskipti milli þjóða aukast og verða mikilvægari og Evrópuráðið hvetur til auk- ins tungumálanáms er ætlunin að draga úr kennslu erlendra tungumála á framhaldsskólastigi. Kennarar viðkomandi greina þurfa að vera á verði og spyrna fótum við þessari þróun. Hefjum tungu- málanám til vegs og virðingar.

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.