Fréttir - Eyjafréttir - 30.03.2000, Blaðsíða 1
-s-H
27. árgangur • Vestmannaeyjum 30. mars 2000 • 13.tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293
ANNAÐ Myndlistarvor íslandsbanka fór vel af stað síðastliðinn
laugardag, þegar Tolli Morthens opnaði fyrstu sýningu vorsins.
Góð mæting var á sýninguna alla síðustu helgi og fékk Tolli góðar
viðtökur sýningargesta. Á myndinni eru Börkur Grímsson
bankastjóri íslandsbanka, Tolli og Benedikt Gestsson sýningar-
stjóri, á opnuninni. Sýningunni lýkur nk. sunnudag, 2. apríl.
Bergur-Huginn og ísfélagið kaupa stóran
hlut í Vinnslustöðinni:
r
I hópi stærstu
hluthafanna
-Hlutur Eyjamanna nálgast 40%
í fyrradag keypti Kap hf., ný-
stofnað fjárfestingarfélag í Vest-
mannaeyjum, hlut Kaupþings í
Vinnslustöðinni eða 14,54%. Að
Kap hf. standa Bergur-Huginn hf.
og Isfélag Vestmannaeyja hf.
Hlutafé í Kap hf. er 100 milljónir
króna sem skiptist jafnt milli stofn-
enda félagsins en hugmyndir þeirra
eru að fá nýja hluthafa í félagið, sér í
lagi frá Vestmannaeyjum, og auka
hlutafé í 200 milljónir.
Hið nýja félag verður þriðji stærsti
hluthafinn í Vinnslustöðinni. Fjórir
stærstu hluthafamir em Olíufélagið
17,99%, Lífeyrissjóður Vestmanna-
eyja 14,74%, Kap hf. 14,54% og VÍS
11,02%. Með þessum kaupum eykst
vemlega hlutur Vestmannaeyinga í
Vinnslustöðinni. Ymsir aðilar í
Eyjum eiga minni hluti og samkvæmt
heimildum blaðsins mun hlutur
Vestmannaeyinga nú vera að nálgast
40%. Hlýtur það að vera gleðiefni
þeim sem óttast hafa um framtíð
fyrirtækisins eða sammna þess við
önnur á fastalandinu.
Magnús Kristinsson, hjá Berg-
Hugin, segir að Vinnslustöðin sé
öflugt fyrirtæki með góðar aflaheim-
ildir. „Við Sigurður emm einfaldlega
að taka höndum saman um að styrkja
stöðu Vestmannaeyja og teljum það
gott fyrir framtíðina að stór hluti
eigenda í Vinnslustöðinni sé Eyja-
menn,“ segir Magnús.
Sigurður Einarsson, forstjóri Isfé-
lagsins, segist telja að Vinnslustöðin
sé góður fjárfestingarkostur þegar til
lengri tíma sé litið. , J>ar sem við emm
stærstu útgerðaraðilamir í Eyjum þótti
okkur vænlegur kostur að kaupa hlut í
félaginu sameiginlega. Ég hef fulla
trú á fyrirtækinu og vænti þess að
rekstur þess verði arðbær í fram-
tíðinni,“ segir Sigurður að lokum.
Kaupþing hefur á undanfömum
mánuðum keypt hlutabréf í Vinnslu-
stöðinni og hafa margar tilgátur verið
uppi um hverjir stæðu á bak við
kaupin. Oft kom nafn Samherja upp á
borðið í þessu sambandi en aldrei
heyrðist að þar væm Vestmannaey-
ingar á ferð.
Þetta hlýtur að vekja athygli ásamt
því að nú em Magnús og Sigurður
famir að vinna saman á ný eftir upp úr
samstarfi þeirra slitnaði hjá Isfélaginu
1992. Akveðið er að Bergur-Huginn
og Isfélagið fari á Verðbréfaþing en
þá verða almenningshlutafélög orðin
þijú í Vestmannaeyjum.
Bæjarstjórn gefur grænt Ijós á skemmti- og veitingahús:
Nágranni segir stríðshanska kastað
Einsog sagt hefur verið frá í
Fréttum hafa aðilar í bænum haft
hug á því að reisa skemmti- og
veitingastað á vatnstankinum í
Löngulág. Hafa íbúar í nærliggj-
andi húsum lýst yfir vanþóknun
sinni á staðsetningu slíkrar starf-
semi og nokkrir íbúar sendu bréf til
skipuiagsyfirvalda og mótmæltu
staðsetningu skemmtistaðar á
tankinum. A fundi skipulags- og
bygginganefndar fimmtudaginn 23.
mars sl. var málið tekið fyrir. Lá
þar fyrir tillaga frá bæjarstjóm um
að framkvæmd verði „óveruleg
breyting“ á aðalskipulagi Vest-
mannaeyja á svæðinu í kringum
vatnstankinn. Nefndin samþykkti
breytinguna sem feist í því að
svæðið verði skilgreint sem svæði
„opinberra stofnana/félags-
heimili/verslunar- og þjónustu-
svæði“ Var breytingin samþykkt
samhljóða.
Friðbjöm Valtýsson býr við Smára-
götu 2, sem er það hús sem næst mun
standa fyrirhugaðri byggingu. Hann
segir að öll þessi afgreiðsla sé hin
undarlegasta. „Þegar við fréttum af
málinu vom íbúar næsta nágrennis
boðaðir til óformlegs fundar hjá
bygginga- og skipulagsnefnd. Þar
lýstu íbúamir yfir hörðum mótmælum
við því að reisa þennan skemmtistað,
enda töldum við ekki við hæfi að slik
bygging yrði reist í íbúðahverfi. Við
báðum um að ekki yrði farið í stríð við
íbúana vegna þessarar byggingar, en
það hefur greinilega ekki verið hlustað
á okkur.“
Friðbjöm segir að hin óvemlega
breyting sem talað sé um, sé að bætt
hafi verið við skilgreininguna „versl-
unar- og þjónustusvæði“. „Nú hefur
sem sé þessi óvemlega breyting verið
gerð og er ekkert annað en stríðs-
hanski framan í ibúana sem mótmæltu
fyrirhugaðri byggingu. Ég tala hér
fyrst og fremst í eigin nafni, en ekki
sem fulltrúi íbúanna. Hins vegar
mega menn vita að á meðan ég og
mín fjölskylda búum í okkar húsi mun
þessi bygging ekki rísa. Ég og fjöl-
skylda mín emm ekki á fömm hvorki
úr húsinu né af okkar ástsælu Heima-
ey og ég mun gera allt sem í mínu
valdi stendur til að stöðva þessar
vanhugsuðu framkvæmdir.“
Friðbjöm segir að bygging sem þessi
eigi heima í miðbænum þar sem skyld
starfsemi sé. „Þetta er hreint og klárt
umhverfisslys ef af verður, og van-
hugsuð framkvæmd. Að reisa slíkan
skemmtistað í friðsælu íbúðahverfi er
bæði dónaskapur og hreint og klárt
tillitsleysi, en það er nú ekki í fyrsta
sinn sem slíkt á sér stað í Vest-
mannaeyjum af hendi bæjaryfir-
valda.“
Friðbjöm vildi ítreka að mótmæli
hans beindust fyrst og fremst að
bæjaryfirvöldum. „Það em bæjar-
yfirvöld sem samþykkja bygginguna
og því beinast mótmælin að þeim en
ekki þeim sem fengu þessa hugmynd
að skemmtistað, sem er ágæt og
tímabær, en á bara alls ekki heima á
þessum stað.“
Ekki náðist í Guðjón Hjörleifsson,
bæjarstjóra, vegna þessa máls áður en
Fréttir fóra í prentun og Grímur
Gíslason, einn forsvarsmanna bygg-
ingarinnar vildi ekki tjá sig um málið
á þessu stigi.
Islandsflug hætt
Síðasta áætlunarferð
Islandsflugs til Vestmannaeyja
átti að vera sl. mánudag, 27.
mars en til þess kom ekki vegna
ófærðar. Þess í stað var síðasta
ferð félagsins í hádeginu á
sunnudaginn.
Þar með er lokið merkum kafla
í sögu flugsamgangna til
Vestmannaeyja þar sem tvö
félög kepptust um farþegana.
Það er víst að margir munu
sakna Islandsflugs sem hafði
staðið sig vel í samkeppninni.
Eftir að Islandsílug hættir hafa
þeir sem ætla að ferðast
flugleiðis til og frá Eyjum tvo
kosti að velja, Flugfélag
Vestmannaeyja sem m.a. býður
upp á leiguflug á Bakka og
Flugfélag Islands sem er eitt um
áætlunarflugið. Verður fróðlegt
að fylgjast með FÍ og sjá hvernig
þjónustan verður þegar félagið
situr eitt að áætlunarfluginu.
mi TM-ÖRYGGI
JgL FYRIR
ÖRVGGI FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll trygg.ngamálin
á óllum svtóum1 á einfaldan og
JJiiííTi
nm
Flötum 20 - Sími 481 1535
O'j oniiuoiöúi
Græðisbraut 1 - Sími 481
m.
Vetraráæflun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alla daga n/sun. kl. 08.15 kl. 12.00
Sunnudaga kl. 14.00 kl. 18.00
Aukaferð föstud. kl. 15.30 kl. 19.00
(<$>Herjólfur
Ath. tvær ferðir á föstudögum!
Sími 481 2800-Fax 481 2991