Fréttir - Eyjafréttir - 30.03.2000, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 30. mars 2000
Fréttir
13
Héraðsdómur Reykjaness sýknar markvörð ÍBV:
Ekkert bendir til ásetnings
Á fostudaginn var Gunnar Bergur
Runólfsson, markniaður ÍBV í 2.
flokki í knattspyrnu, sýknaður af
ákæru um líkamsárás vegna atviks
í leik í Kópavogi gegn HK þar sem
Villý Þór Olafsson fótbrotnaði eftir
tæklingu við Gunnar Berg. I ákær-
unni var Gunnar Bergur sakaður
um að hafa hlaupið sex til níu metra
út frá markinu að Villý Þór sem lék
í átt að markinu. Átti Gunnar að
hafa rennt sér harkalega í fæturna
á Villý Þór og komið höggi á miðjan
hægri sköflung með þeim afleið-
ingum að fótleggurinn brotnaði.
Þess var krafist að Gunnar Bergur
yrði dæmdur til refsingar auk þess
sem hann var krafinn skaðabóta að
upphæð 1.099.944 krónur auk
vaxta. Krafist var sýknu af hálfu
ákærða og að málsvarnarlaun yrðu
greidd úr ríkissjóði.
Fyrsta mál sinnar tegundar
hér á landi
Málið, sem er fyrsta mál sinnar
tegundar hér á landi, var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjaness, skipuðu
dómari og tveir meðdómendur hann
og var Guðmundur Haraldsson fyrr-
verandi milliríkjadómari í knattspymu
annar þeirra.
Leikurinn, sem fram fór laugar-
daginn 30. janúar, var Iiður í Islands-
mótinu í innanhússknattspymu og var
staðan 3-5 fyrir HK og skammt til
leiksloka þegar umrætt atvik átti sér
stað. Fjöldi vitna var kallaður til og
einnig var stuðst við skýrslur dóm-
aranna Liljars Heiðarssonar og Huga
Sævarssonar.
Samkvæmt skýrslu dómaranna var
brotið alvarlegt og fékk Gunnar
Bergur umsvifalaust að sjá rauða
spjaldið og var vikið af leikvelli. Liljar
sagðist aldrei hafa séð eins gróft brot
og Hugi sagði að um grimmilega
tæklingu hafi verið að ræða. Báðir
vom dómaramir sammála um að um
ásetning hefði verið um að ræða. Á
gmndvelli þessa var Gunnar Bergur
dærndur í fimm leikja bann af
aganefnd KSÍ.
Vitnisburður Gunnars Bergs
I lögregluskýrslu sagði Gunnar Bergur
að Villý Þór hefði fengið boltann um
miðjan völl og leikið í átt að marki
IBV. Hann hafi hlaupið út úr markinu
til þess að verja markið og stokkið á
móti Villy Þór, eins og markmenn
gera, með alla anga úti, þegar Villy
Þór nálgast vftateigslínu handbolta-
vallarins. Gunnar Bergur segist hafa
fyrst komið við boltann en síðan farið
með sólann í fótlegg Villys Þórs, sem
fallið hefði í gólfíð. Ekld vissi hann
fyrr en eftir á að Villy Þór var
fótbrotinn. Þá sagðist hann hafa
fagnað því að hafa náð boltanum af
Villy en ekki því að hafa meitt hann.
Vitnisburður Villys Þórs
Villy Þór segir í lögregluskýrslu að
hann hafi náð að leika á tvo leikmenn
ÍBV og haldið áfram í átt að marki
ÍBV. Hann hefði þá séð markmann
IBV koma á móti sér og því leikið
boltanum til hægri. Markmaðurinn
hefði þá hent sér með báða sóla á
undan sér og skollið á innanverðum
hægri fæti hans. Villy Þór segist strax
hafa gert sér grein fyrir því að hann
var fótbrotinn og hann kvaðst muna
að markmaðurinn hefði strax staðið
upp og sagt, „yes, mér tókst það“, en
síðan gengið rakleitt af vellinum án
þess að búið væri að reka hann út af.
Villy Þór kvað markmanninn hafa
ekki átt nokkum möguleika á að ná til
boltans og sjálfur hefði hann átt
GUNNAR Bergur í tölvutíma í
Framhaldsskólanum: -Þá fannst
mér eins og ég væri orðinn
glæpamaður. Eg þoldi álagið en
ég verð að viðurkenna að ég er
feginn að þetta er afstaðið, segir
hann um þessa reynslu.
auðvelt með að senda boltann í autt
markið hefði markmaðurinn ekki
komið í veg fyrir það með þessari árás
sem Villy Þór fullyrti væri ekki
óviljaverk.
Með og móti
Fjöldi vitna var kallaður fyrir dóminn
og samkvæmt vitnisburði þeirra er
óumdeilt að Gunnar Bergur fór í
tæklinguna en að öðm leyti er vitnis-
burðurinn með eða á móti og þar
skiptast menn í tvær fylkingar, HK-
vitni, og í þeirra hópi eru dómarar
leiksins og IBV-vitni þar sem Bjami
Jóhannsson, þá þjálfari meistara-
flokks, var meðal áhorfenda á leiknum
og bar hann vitni fyrir dómi. Einnig
vom læknar kallaðir fyrir dóminn.
Eins og áður hefur komið fram er
þetta mál einstakt í knattspymu hér á
landi. Dómarar málsins fóra á
vettvang í íþróttahúsinu í Digranesi
eftir málflutning og kynntu sér
aðstæður og ástand og áferð vallar-
gólfs.
Forsendur og niðurstaða
í forsendum og niðurstöðu dómsins
segir að málið sé sprottið af því að
Villy Þór hafi leikið í átt að marki ÍBV
þar sem Gunnar Bergur var einn til
vamar. „Þegar tveir til þrír metrar vom
á milli Gunnars Bergs og Villys Þórs,
sem var með knötdnn fyrir framan sig,
fór ákærði í tæklingu, en í sömu andrá
lék Villy knettinum til vinstri og stóð í
hægri fót en leikmennimir skullu
saman með þeim afleiðingum að
fótleggur Villys Þórs þverbrotnaði,“
segir í dómsforsendu.
Þar segir einnig að eftir því sem
ráða má af framburði Gunnars Bergs
og vitna hafi atvikið gerst við
punktalínu handboltavallarins. „Með
framburði vitna þykir í ljós leitt að
ákærði (Gunnar Bergur) hafi haft fulla
stjóm á tæklingunni, en það leiðir til
þess að sú staðhæfing í ákæm, að
ákærði hafi hlaupið sex til mu metra út
frá marki sínu að Villy Þór, fær ekki
staðist. Að hafa fulla stjóm á tæklingu
merkir á knattspymumáli að við-
komandi leikmaður sé með fætur sína
á vellinum en ekki lofti.“
Dómurinn telur sannað að boltinn
hafi verið í leikfæri þegar atvikið átti
sér stað sem merkir að ákærði hafi átt
möguleika á að ná til knattarins. „í
ljósi framburðar flestra vitna og í
reynd framburðar ákærða sjálfs, telur
dómurinn að tækling ákærða hafí
verið það sem á knattspymumáli
kallast skriðtækling eða með öðmm
orðum rennitækling. Hún felst í því að
leikmaður kastar sér niður og rennir
sér með fætuma á undan sér á vell-
inum í því skyni að ná til knattarins.
Dómurinn telur sannað að ákærði hafi
verið of seinn í tæklinguna og það hafi
orðið til þess að Villy Þór slasaðist. Á
hinn bóginn er ekkert fram komið sem
bendir til þess að ákærði hafi rennt sér
fyrir Villy Þór í þeim ásetningi að
valda honum líkamstjóni. Verður því
fráleitt talið að háttsemi ákærða varði
við brot almennra hegningalaga eins
og í ákæm er talið."
Dómurinn telur að vegna eðlis
knattspymu sé leikmönnum talið
heimilt að beita nokkurri hörku til að
stöðva mótheija og ná af honum knetti
þótt því fylgi iðulega nokkur hætta
fyrir hann. Þá er vísað til reglna í
knattspymu sem afdráttarlaust banna
skriðtæklingar í innanhússknatt-
spymu. Fyrir slik brot eigi að vísa
leikmanni tafarlaust af leikvelli eins
og gert var í þessu tilviki.
Með hliðsjón af öllu því sem fram
kom telur dómurinn að brotið feli ekki
í sér refsiábyrgð þó um hafi verið að
ræða brot samkvæmt knattspymu-
reglum. Og að mati dómsins fól
háttsemi ákærða ekki í sér beina árás á
Villy Þór, heldur rangt mat á hættunni
sem af háttseminni kynni að stafa,“
segir í dómnum. Er niðurstaða hans sú
að sýkna beri ákærða af öllum kröfum
ákæmvaldsins.
Veijandinn sáttur
Jóhann Pétursson, lögfræðingur í
Vestmannaeyjum, veijandi Gunnars
Bergs, var að vonum ánægður með
niðurstöðu dómsins. „Eg er mjög
sáttur og finnst dómarar taka vel á
málinu. Reyndar sleppa þeir ýmsum
atriðum sem koma fram í vitna-
leiðslum og sýna hvað illa ígmnduð
ákæran er. Vitnisburður var með þeim
hætti að engu líkara var en að menn
hefðu ekki verið á sama leiknum.
Staðsetning sumra gat ekki staðist og
aðrir vissu ekki hvar þeir vom í húsinu
á umræddum leik,“ sagði Jóhann.
Ekki á hann von á að málinu verði
áfrýjað en ákæmvaldið ætlar sér
góðan tíma til að ákveða hvort áfrýjað
verður eða ekki.
Leið eins og glæpamanni
Gunnar Bergur segir í samtali við
Fréttir að hann sé mjög ánægður með
þessi málalok. „Þetta er líka í sam-
ræmi við það sem við héldum fram
allan tímann,“ segir Gunnar Bergur.
Hann segist ekki gert sér grein fyrir
alvöm málsins fyrr en hann var allt í
einu kominn í dómssal í hlutverki hins
ákærða. „Þá fannst mér eins og ég
væri orðinn glæpamaður. Ég þoldi
álagið en ég verð að viðurkenna að ég
er feginn að þetta er afstaðið."
Gunnar Bergur stefnir ótrauður á að
halda áfram í fótboltanum. „Ég vona
að þetta skemmi ekki fyrir mér. Villy
Þór er byijaður að spila á fullu en við
höfum eklci mæst á vellinum ennþá.
Væntanlega eigum við eftir að hittast
þar og er í góðu lagi þó hann skori
mörk hjá mér svo framarlega sem við
skomm fleiri,“ segir Gunnar Bergur
að lokum.
SVO í lokin, tvær
myndir sem sýna að
flestir skemmtu sér vel
um helgina þó víða hafi
verið þriing á þingi.
ÞRONG a dansgolliiui hja Skítanióral á Fjðrunni. Hljómsveitii
fékk góð einkunn gesta enda þekktir fyrir gott stuð.
LENGI lifir i gömluni glæðum, Bjöggi, Sigga Beinteins og Grétar
Örvars tættu og trylltu á Höfðanum.
FLUGFELAG ISLANDS
Gerum öllum fært að fljúga
Upplýsingar og pantanir, 481 3300
www.flugfelag.is
Uti a lmnu,
NÆRRI lætur að 600 til 700 manns liafi farið út á lífið í
Vestmannaeyjum sl. laugardagskvöld. 300 manns voru á
Fjörunni þar sem Skítamórall fór mikinn, 200 manns sáu og
heyrðu Bjögga, Siggu og Grétar á Höfðanum og um 200 manns
hcimsóttu Gogga í Klöpp fimmtugan í Kivvanishúsið.
AI)DA með tengdapabbann, Adda Palla, upp á arminn og ekki
að sjá að þeim leiðist.