Fréttir - Eyjafréttir - 30.03.2000, Qupperneq 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 30. inars 2000
Kínverjar smíða tvö skip fyrir Eyjamenn:
Verða bæði afhent
um mitt þetta ár
Kínverjar eru að smíða tvö skip
fyrir Vestmannaeyinga og eiga
þau að afhendast eftir mitt ár. Um
er að ræða togara fyrir útgerð
Ofeigs VE, sem einnig er hægt að
útbúa á túnfiskveiðar og sérútbúið
línuskip fyrir Istún hf.
Hallgrímur Rögnvaldsson hefur
fylgst með smíðinni fyrir hönd Istúns
og lætur hann ekki illa af viðskiptum
við Kínverja. Skipasmíðastöðin heitir
Huang Pu Guangzhou og er á eyju
úti á Perlufljóti. Eyjan tilheyrir
borginni Guangzhou (Kanton) sem
er um 80 mílur inni í landi upp af
Hongkong. í skipasmíðastöðinni
vinna um 4000 manns og þar er verið
að smíða átta skip af ýmsum
stærðum fyrir Islendinga.
„Kínverjar eru að smíða fjóra 29
metra langa báta fyrir Islendinga,
kúftskveiðiskip fyrir Þórshafnarbúa,
71 metra langt skip fyrir Öm
Erlingsson sem gerir út Örn KE og
svo tvö skip fyrir Vestmannaeyinga.
Túnfiskveiðiskipið sem verið er að
smíða fyrir okkur í fstúni er 51,30 m
langt 12,20 m breitt og með þremur
þilförum. Nýr Ófeigur verður 42 m
langur og 11,20 m breiður og verður
mjög öflugur togari með möguleika á
að fara á túnfiskveiðar," segir Hall-
grímur.
Hann fór fyrst til Kína 11. janúar
og hefur hann samtals eytt þar
tveimur mánuðum það sem af er
þessu ári. „Ég kom til landsins á
fimmtudaginn og fer út aftur 6. apríl.
Auk mín er Eyjamaðurinn Gunnar
Steingrímsson þama. Hann verður
yfirvélstjóri á Öfeigi og fylgist nú
með smíðinni fyrir hönd útgerðar-
innar.“
Smíðin á Ófeigi er lengra komin
og segir Hallgrímur að allur
vélbúnaður sé kominn á staðinn,
vélar og frystivélar. „Ófeigur verður
afhentur í ágúst og okkar skip verður
tilbúið aðeins seinna. Siglingin heim
tekur um fimm vikur og er siglt í
gegnum Súesskurðinn. Við ættum
þvf að vera komnir heim með nýtt
skip í haust.“
Hallgrímur lætur ekki illa af
samskiptum sínum við Kínverjana.
Þeirra skipulag sé vissulega öðru vísi
en við eigum að venjast. „Kerfið er
þungt í vöfum hjá þeim en þeir eru
góðir skipasmiðir. En þeir verða að
sjálfsögðu að vita hvað við viljum til
að geta sinnt þörfum okkar,“ sagði
Hallgrímur að lokum.
TÚNFISKSKIP ístúns eins og það leit út fyrir tveimur vikum.
Þarna má sjá eitt af þremur þilförum skipsins.
SÉÐ framan á Ófeig. Smíði á honum er lengra komin og verður
hann afhentur í ágúst nk.
Ómar og Georg reka sprautu- og
réttingaverkstæðið Gljáann:
Fljót og góð þjónusta
Eins og fram hefur komið í Fréttum
eru miklar hrókeringar í bifreiða-
og viðgerðabransanum í Eyjum
þessa dagana. Hvar Fjölverk var
áður til ltúsa við Skildingaveg 8
beint á móti Áhaldaleigunni hefur
nú Bílasprautunin Gljáinn hatlð
starfsemi sína, en fyrirtækið mun
bjóða viðskiptavinum sínum rétt-
ingar og sprautun hvers kyns
eðalvagna.
Það eru Ómar Reynisson og Georg
Skæringsson sem reka Gljáann. Ómar
hefur starfað við bílasprautun í tuttugu
ár, en Georg segir sjálfur að hann sé
lærlingur og viðbót við þá skemmti-
legu mannslífsflóru verkstæða í
Eyjum, og að hann hlakki til að takast
á við ný verkefni á þessum sögufræga
stað. , já við ákváðum að yfirtaka efri
hæðina, og Georg kemur ferskur inn,“
segir Ómar. „En hér hafði Fjölverk
verið til húsa áður en reyndar leigði ég
aðstöðu hjá Sigga í þessu húsnæði.
Það var orðið nauðsynlegt að stækka
við sig og þetta var góður kostur, en
alls eru þetta um 240 fermetrar með
kaffiaðstöðunni, hvar margir andans
menn hafa látið gamminn geisa
gegnum árin En það kemur maður í
manns stað og það verður enginn
hörgull á mönnum í spjallið. Við
fiskuðum einn núna í dag sem átti leið
hjá og hann hefur tilkynnt að hann
muni verða fastur gestur hjá okkur í
framtíðinni."
Ómar segir að Siggi hafi verið
ágætur leigusali. „En eins og ég sagði
áðan þá var þetta orðin spuming um
að hrökkva eða stökkva, nú eða aldrei
og við tókum skárri kostinn. Þetta
verkstæði er á góðum stað og nú þegar
stærsta bílastæði í Eyjum verður héma
við hliðina á okkur, þá verða engin
vandræði með verkefnin. Við gætum
hæglega rétt ogsprautað á meðan fólk
skreppur í Áhaldaleiguna eða í
Hressó. Við sjáum öflug sóknarfæri á
þessum vettvangi."
Um framtíðaráform segja þeir fé-
lagamir að ýmislegt sé að mótast hjá
þeim. „Við sjáum ýmislegt í stöðunni,
Fjölverk rekur enn þá vélaverkstæðið
hérna á neðri hæðinni, en þegar við
höfum yfirtekið það, þá er ekkert því
til fyrirstöðu að yfirtaka eyjuna."
Þeir félagar segjast sinna öllum
tjónum sem upp geta komið og varða
réttingar og sprautun. „Við emm með
fullkomin tæki til þess og leigjum til
ÓLAFUR H. Sigurjónsson, skólameistari tekur við bókagjöflnni sem
Eyverjarnir Betsý Ágústsdóttir og Skapti Örn Ólafsson afhcntu fyrir
hönd gefenda.
Veglegar bókagjafir
Nýverið gáfu Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna, bókasafni
Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum veglega bókagjöf.
Tilefnið var að í desember sl. varð félagið 70 ára og vildu Eyverjar með því
láta gott af sér leiða á þennan hátt. Einnig var gefin bókagjöf á Bókasafn
Vestmannaeyja.
Fréttatilkynning.
Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins:
Skólinn verður settur
á morgun klukkan 4
Nám í Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins, sem fara átti fram um
síðastliðna helgi, mun fara fram núna um helgina.
Skólinn verður settur á morgun klukkan 4, en dagskrá fyrir skólann er að
finna í síðasta tölublaði Frétta.
Um er að ræða fjölda skemmtilegra, stuttra og hnitmiðaðra fyrirlestra um hin
ýmsustu málefni sem snerta okkur öll.
Meðal fyrirlesara í skólanum eru Árni Johnsen, Drífa Hjartardóttir, Ámi
Sigfússon, Jóhanna María Eyjólfsdóttir ásamt heimafólki.
Nánari upplýsingar gefur Skapti Öm Ólafsson í síma 899-2200.
Fjölmennum og látum okkur málefnið varða!
Eyverjar
GEORG og Ómar á verkstæðinu þar sem þeir bjóða jafnvel upp á
skveringu á bílnum meðan fólk skreppur á Hressó.
að mynda réttingabekk og svo emm
við með einn fullkomnasta spraut-
unarklefa á landinu. Við emm tilbúnir
í allt og bjóðum nýja viðskiptavini
velkomna," sögðu þeir félagar glað-
beittir og vildu að sjáfsögðu koma á
þakklæti til traustra viðskiptavina í
gegnum árin. Þeir ætla að taka á móti
velunnurum og aðdáendum sínum á
morgun föstudag milli kl. 17.00 og
19.00 í höfuðstöðvum fyrirtækisins
við Skildingaveg 8.