Fréttir - Eyjafréttir - 30.03.2000, Qupperneq 15
Fimmtudagur 30. mars 2000
Fréttir
15
Jóhann Péturssson lögfræðingur skrifar:
Um fótboltadóminn
Fjármál á
f immtudegi
Eftir Bjarka Brynjarsson
Innlendur hluta-
bréfamarkaður
Jóhann Pétursson og Helgi Braga-
son, lögmenn Lögmannsstofunni
Bárustíg 15, niunu á næstunni
skrifa greinar um lögfræðileg efni í
Fréttir. Efnið gæti bæði tengst því
sem er að gerast í þjóðfélaginu
hverju sinni eða að þeir svöruðu
spurningum lesenda. Hægt verður
að senda spurningar á netfangið
frettir@eyjar.is eða á skrifstofuna
hjá þeim Jóhanni og Helga.
Jóhann ríður á vaðið og tekur
fyrir sýknudóm yfir markmanni
IBV í 2. flokki í knattspyrnu.
Undirritaður var verjandi ákærða
Gunnars Bergs Runólfssonar í máli
þessu og mun fjalla hér í stuttu máli
um helstu atriði dómsins.
Nú er fallinn dómur hjá Héraðs-
dómi Reykjaness í máli sem væntan-
lega í framtíðinni verður þekkt sem
„fótboltadómurinn“.
Þessi dómur kemur að sviði refsi-
og skaðabótaréttar sem fjallar um
áhættutöku tjónþola. Það er viður-
kennt að háttsemi tjónvalds geti verið
honum refsilaust eða án skaða-
bótaábyrgðar þar sem tjónþoli hafi
samþykkt ákveðna háttsemi fyrirfram
jafnvel þótt hann verði fyrir alvarlegu
tjóni. Iþróttaleikir eru eitt gleggsta
dæmið um slíka áhættutöku. í íþrótt-
um taka leikmenn þátt eftir ákveðnum
leikreglum og taka sjálfir áhættuna af
tjóni því sem hlýst af þátttökunni í
leiknum. Þetta er ekkert nýtt undir
sólinni og sem dæmið má nefna að í
Grágás og Jónsbók, sem eru lögbækur
sem fommenn sömdu og fóm eftir,
vom ákvæði þar sem tekið var fram að
leikmenn tækju sjálfir áhættuna af
meiðslum í leikjum.
I Jónsbók segir: „Nú gengr maðr til
leiks, fangs eða skinndráttar at vilja
sínum, þá ábyrgist hann sik sjálfr at
öllu, þó at hann fái mein eða skaða
af.“
I fótboltadóminum var ákært fyrir
brot gegn 218. gr. almennra hegn-
ingarlaga. Sú lagagrein tekur á
meiriháttar líkamsárás af ásetningi.
218. gr. er t.d. notuð ef maður lemur
annan mann til óbóta eða t.d. stingur
mann með hníf án þess að þó að sá
sem stunginn er deyi. Þannig að það
er ekkert léttvægt að vera ákærður
fyrir brot gegn 218. gr. alm.
hegningarlaga.
Mál vegna líkamsmeiðinga í
íþróttaleik hafa ekki komið áður fyrir
íslenska dómstóla þ.e. spumingin um
það hvort leikmaður hafi farið út fyrir
mörk eðlilegs leiks. Menn hafa verið
dæmdir á Islandi og erlendis fyrir
líkamsáras á leikvelli eða rétt eftir leik
en þá hefur háttsemin ekkert átt skylt
við leikinn, s.s. hefur maður verið
kýldur eftir leik eða í leik án þess að
það hafi nokkuð verið í tengslum við
leikinn sem slíkan. Slík hegðan er að
sjálfsögðu líkamsárás og er í engum
tengslum við íþróttina sem slíka.
Hins vegar hefur aldrei verið ákært
á íslandi eða í Evrópu yfirleitt fyrir
háttsemi sem tæklingu í leik. I
Danmörku kom 1948 til slíks máls
sem skaðabótamáls þar sem tæklað
var aftanfrá með þeim afleiðingum að
leikmaður tvíbrotnaði. Hæstiréttur
Danmerkur var skipaður 9 dómumm í
því máli (tveimur dómurum fleiri en í
Vatneyrarmálinu) og komust 7 dóm-
arar af þeim að þeirri niðurstöðu að
sýkna þæri tjónvald en 2 vildu dæma
sekt. I því máli var leitað umsagnar
KSI þeirra Dana um málið og var
niðurstaðan sú að tæklingin hefði
verið hættuleg og alvarleg en samt
sem áður í tengslum við leikinn.
Nokkuð var rætt um að tæklingin
hefði verið gerð aftanfrá og því minni
möguleikar fyrir tjónþola að sjá hana
fyrir en ef hún hefði komið að
framanverðu. Engu að síður var sýkn-
að í þessu máli og hafa slík mál ekki
aftur komið fyrir danska dómstóla.
Þegar að ákært er í slíku máli sem
þessu þá veltir maður fyrir sér hvort
hér sé á ferðinni stefnubreyting af
hálfu ákæruvalds, þ.e. að búast megi
við því að fleiri ákærur fylgi í
kjölfarið. Ég tel að svo sé ekki. Það
er margt sem bendir til þess að útgáfa
ákæru í máli þessu hafi verið van-
hugsuð af hálfu ákæruvaldsins. Málið
var ekki vel rannsakað, t.d. voru aldrei
teknar neinar lögregluskýrslur í
málinu af dómurum leiksins og
þjálfara HK heldur látið nægja að
styðjast við skýrslur þær sem þessir
aðilar sendu til aganefndar KSI. Þetta
eru ekki góð vinnubrögð og í raun brot
á lögum um meðferð opinberra mála.
Það var mjög fróðlegt að vera
viðstaddur vitnisburði í máli þessu
fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Ég átti
von á því að vitni myndi greina á um
brotið sjálft, þ.e. með hvaða hætti
brotið átti sér stað nákvæmlega. Og
vissulega gerðu vitni það. En vitnin
greindi á um nánast allt annað. Vitnin
greindi á um hvar brotið átti sér stað
svo munaði allt að 10 metrum, hlaupa-
leið tjónþola rétt fyrir brotið, fram-
kvæmd brotsins, stöðuna í leiknum og
jafnvel vissi eitt vitnið ekki hvar það
hefði verið statt þegar brotið átti sér
stað. Það var auðvitað liðið töluvert
frá því leikurinn átti sér stað eða
rúmlega eitt ár en samt sem áður voru
vitnin ótrúlega missaga. Maður fór að
velta því fyrir sér í alvörunni hvort
raunveruleikinn væri ekki einn heldur
sæju menn hann misjöfnum augum.
Þetta er líklega verkefni heimspek-
innar og fjalla ég ekki frekar um það
hér og nú.
Dómaramir báðu ákæruvaldið og
verjanda að fjalla um málið einnig frá
219 gr. alm. hgl. sem fjallar um
meiriháttar líkamsárás af gáleysi.
Þetta er í raun í hnotskum um það sem
málið fjallar. Það er auðvitað allt
vaðandi í gáleysi í íþróttum eins og
knattspymu og t.d. handbolta sem em
snertiíþróttir. Alls konar brot eiga sér
stað sem mörg hver geta auðveldlega
skaðað leikmann alvarlega og jafnvel
valdið dauða. Alvarlegar líkams-
meiðingar hafa oft gerst í þessum
íþróttum og jafnvel hafa leikmenn
dáið. En það em ekki afleiðingamar
sem segja til um það hvort líkamsárás
hafi verið um að ræða í íþróttum
heldur brotið sjálft. Þetta er annað
sjónarmið en almennt er í líkams-
árásarmálum þar sem afleiðingamar
ráða alvarleika brotsins. Þetta er
vegna þess að slagsmál em ólögleg en
íþróttir em löglegar, a.m.k. ennþá.
Gunnar Bergur hefur verið sýkn-
aður í máli þessu eins og nánttr er farið
í gegnum í annarri grein hér í blaðinu.
Ég tel í raun að það sé lítið hægt að
læra af þessu máli þar sem í mínum
huga var aldrei nálægt því að um
líkamsárás væri að ræða. Sams konar
leikbrot og sáust í þessum knatt-
spymuleik munu sjást oft í leikjum
eftir þennan dóm. Fyrst og fremst er
hægt að læra af þessu máli að fara eigi
miklu varlegar í ákæm í svona málum
og leita fljótlega eftir áliti hlutlauss
aðila, s.s. KSÍ í þessu tilviki þar sem
það er enginn akkur þeirra sem koma
að íþróttamálum að raunvemlegt
ofbeldi eigi sér stað í íþróttum.
Jóhann Pétursson hdl.
Margir þættir íslenska hagkerfisins
em mjög jákvæðir um þessar mundir
s.s. mikill hagvöxtur, góð afkoma
atvinnugreina og hátt raungengi
krónunnar, þótt aðeins hafi þrengl að
sumum greinum. Mikil þensla hefur
einkennt þjóðarbúskapinn síðastliðin
ár og hefur Seðlabankinn gripið til
aðhaldssamra aðgerða í peningamál-
um til að stemma stigu við verðbólgu.
Hann spáir nú 3,8% verðbólgu frá
upphafi til loka ársins 2000 en það er
tvöfalt meiri verðbólga en í helstu
viðskiptalöndum íslands.
Þrátt fyrir vaxtahækkanir varð verð-
bólga meiri á árinu 1999 en áætlað
var. Hagvöxtur hefur verið á bilinu 5
til 6% síðustu ár og spáir Seðla-
bankinn að hann verði um 3% í ár.
Búist er við 5% viðskiptahalla af
landsframleiðslu á árinu þriðja árið í
röð sem kallar á aukið fjármagns-
innstreymi. Auk þess em lífeyrissjóðir
að auka við íjárfestingar sínar erlendis
sem einnig kallar á aukið fjármagns-
innstreymi.
Almennt hefur afkoma fyrirtækja
verið góð og er hátt raungengi krón-
unnar ein skýring á því (hátt gengi
krónunnar hefur þó dregið niður
afkomu í einstökum greinum). Sé
horft á V/H hlutföll fyrirtækja á
íslenskum hlutabréfamarkaði em þau
nokkuð há í samanburði við erlend
hlutabréf. Erfitt er þó að segja til um
hvenær verð er orðið of hátt enda
byggist verð hlutabréfa að miklu leyti
á væntum framtíðarhagnaði fyrir-
tækjanna. Standist spár um þróun
efnahagslífsins á árinu má vænta þess
Að gefnu tilefni sér undirritaður
ástæðu til að stinga niður penna vegna
ákvörðunar íslandsflugs að leggja
niðurflug til Eyja.
Frá þeim tímapunkti, þegar Islands-
flug hóf að fljúga hingað til Eyja hafa
menn orðið varir við lægri fargjöld og
greinilegt er að Islandsflug með sínum
Domier-flugvélum eiga þess miklu
frekar kost að fljúga hingað heldur en
Flugfélagið þegar veður er umhleyp-
ingasamt. Sést það best af með-
fylgjandi grein í Morgunblaðinu.
Flugsamgöngur ganga brösulega:
„Flugsamgöngur hafa gengið brösu-
lega síðustu þrjá daga samkvæmt
upplýsingum hjá Flugféþagi íslands og
íslandsflugi. Flugfélag íslands hefur
ekkert flogið til Vestmannaeyja síð-
ustu tvo daga og þá hefur flug til
Grænlands legið niðri frá því á
föstudaginn. Hjá íslandsflugi var hins
vegar flogið tvisvar til Eyja á sunnu-
daginn og í gær var flogið þangað allt
þar til seinnipart dags, er flugi var
aflýst vegna veðurs.“
Það er von mín að þetta mál verði
tekið til endurskoðunar svo hindra
megi afturhvarf til fortíðar og lakari
samgangna.
Höfundur starfar hjcí ísfélaginu.
að afkoma félaganna geti orðið góð á
árinu.
Ahugi fjárfesta hefur fram að þessu
beinst að félögum í tækni- og Ijár-
málageiranum og eru líkur á því að
hann eigi eftir að aukast enn frekar og
þá sérstaklega eftir tækni- og fjar-
skiptafyrirtækjum. Hins vegar þyrstir
markaðinn í fleiri fyrirtæki í þessum
geirum og sést það t.a.m. af áhuga
manna á þeim félögum sem eru á gráa
markaðinum eins og OZ, fslandssími
og EJS svo einhver séu nefnd. Von er
á EJS á markað á árinu auk Kögunar,
Atlanta, Taugagreiningar og Teymis.
Einnig er mikil umræða um einka-
væðingu Landssímans.
Líftækniiðnaðurinn hefur laðað
marga íjárfesta að og hafa hækkanir á
mörgum félögum í þeim geira verið
stjamfræðilega háar. Til að mynda
hefur vísitala tæknifyrirtækja í
Bandaríkjunum hækkað um 50% frá
áramótum. Hér heima hefur mest
borið á DeCode í þeim geira og hafa
mikil viðskipti verið með félagið sl.
mánuð en fyrirtækið verður nú skráð á
markað í Bandaríkjunum innan
skamms.
Ljóst er að mörg íslensk fyrirtæki
em orðin nokkuð há í samanburði við
erlenda valkosti og meiri vinna felst
nú í því að finna áhugaverða fjár-
festingarkosti sem em þó klárlega
fyrir hendi.
Bjarki A. Brynjarsson
forstöðumaður
Kaupþings hf. á Suðurlandi
heimild: Greiningardeild Kaupþings
hf.
HÚSEV
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
Siggi Gúmm í gömlu smurstöðina Eins og sagt var frá í síðasta blaði hefur Fjölverk flutt
starfsemi sína að Græðisbraut 1, í gömlu smurstöðina, ein meinleg villa slæddist inn í fyrirsögn þar sem
sagt var að Græðisbrautin væri á Flötunum, slíkt er að sjálfsögðu reginfirra, þó Flatirnar séu miklar
lendur með fjölbreytta atvinnustarfsemi. Siggi Gúmm forstjóri og prímus mótor Fjölverks hélt
viðskiptavinum sínum dálitla móttöku sl. fóstudag í nýjum höfuðstöðvum. Fjöldi fólks lagði leið sína til
Sigga enda er hann mikill galdramaður þegar viðgerðir á bflum eru annars vegar og annálaður hrókur
í slíkum samkvæmum eins og myndin sýnir mæta vel. Svo vel tókst til á föstudag að ákveðið hefur verið
að efna til framhaldsmóttöku eins og getið er á öðrum stað í blaðinu í dag.
Guðjón Engilbertsson skrifar:
Hver er fram-
tíðin í fluginu?