Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Side 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 25. maí 2000
fréttir
Eínsetníngu frestað
Einsetning grunnskóla átti að
hefjast frá og með næsta skólaári.
Mörg sveitarfélög hafa ekki talið
sér fært að verða við því á þeim
tíma og hafa sótt um frest á þessu
ákvæði. Þar á meðal er Vest-
mannaeyjabær. A mánudag lá fyrir
bréf frá mennlamálaráðuneytinu
þar sem bænum er veiltur frestur til
að einsetja skólana til 1. september
2004.
Fleíri uilja malbík
í síðasta blaði var greint frá því að
íbúar við Litlagerði óskuðu þess að
galan yrði malbikuð í sumar. Nú
hafa íbúar við Goðahraun farið hins
sama á leit og hefur erindi þcirra
verið vísað lil gatnagerðaráætlunar
ársins 2001.
Erillumframveniu
Alls voru 200 færslur í dagbók
lögreglunnar síðastliðna viku sem
eru nokkuð tleiri færslur en undan-
i’arnai' vikur. Gafþessi umframerill
lögreglu töluveit að iðja.
Árekstur
Árekstur vaið á gatnamótum III-
ugagötu og Höfðavegar sem endaði
með því að önnur bifreiðin lenti
utan vegar. Ökumenn og farþegar í
bifreiðunum kvörtuðu allir yfir
eynrslum eftir óhappið en ekki mun
hat'a verið um alvarlega áverka að
ræða.
Aðsúguraðlögreglu
Lögregla stóð í ströngu um helgina
við að taka áfengi af unglingum og
var gerður aðsúgur að henni sem
endaði með því að tveir vom hand-
teknir og færðir í fangageymslu
lögreglu. hvar þeir fengu gistingu
þar til víman var af þeim runnin.
Tveir til viðbólar fengu að gista
fangageymslu lögreglu sökum
ölvunar á almannafæri.
Ökumenn kærulausir
Alls lágu fimmtán kærur vegna
umferðarlagabrota eflir síðastliðna
viku. Var þar aðalega um væn-
rækslu á að færa ökutæki til
skoðunar, hraðakstur, akstur gegn
einstefnu, viðhlítandi öryggis-
búnaður bifreiða hunsaður og
nagladekk undir bifreiðum án
heimildai'.
Snöggirdælumenn
Síðastliðinn laugardag var tilkynnt
um að bátur sem Keikósamtökin
eru með á leigu væri að sökkva við
Nausthamarsbryggju. Snöggum
dælumönnum tókst að dæla sjó úr
bátnum áður en hann sökk og hann
hífður á land. Ekki er Ijóst hversu
miklar skemmdir urðu á bátnum né
er vitað um orsök þess að sjór
konrsl í bátinn
Fálandsbyggðarmót
Athygli vekur að í mótaskrá GSI
fyrir öldungamót (LEK) í sumar er
ekkert opið mót í Vestmanna-
eyjum. Öllum LEK-mótum sum-
arsins er raðað innan 60 km radíuss
frá Reykjavík, að einu undanskildu
sem fram fer á Húsavík. Ein
ástæðan fyrir þessu staðavali mun
sú að forysta GSÍ telur þetta
minnka ferðakostnað þátttakenda.
Rcnnir það enn stoðum undir það
sem haldið hefur verið fram að
„alheimsgolfnaflinn" sé staðsettur
suðvestarlega á landinu.
Vélsmiðjan Þór:
Stærsta skilja í heimi
HEIMSINS stærsta skilja segja þeir í Þór.
Undanfarna daga hefur stærsta
loðnuskilja í heimi verið í smíðum
hjá Vélsmiðjunni Þór. Skiljan á að
fara í Ingunni AK sem verið er að
smíða í skipasmíðastöðinni
ASMAR í Chile.
Ingunn er væntanleg til landsins í
sumar, en verið er að smíða hana fyrir
HB á Akranesi. Jósúa Steinar, einn
eigenda Vélaverkstæðisins Þórs, sagði
að skiljuflötur þessarar risaskilju væri
um 24 fermetrar, en venjulega væru
þeir 14 til 16 fermetrar. Skiljan verður
á sérstakri braut um borð í skipinu og
þar af leiðandi færanleg. Hún er úr áli
og vegur um tvö til þijú tonn þegar allt
er talið, með festingum og stútum.
Jósúa sagði að Vélaverkstæðið Þór
hefði smíðað ljöldann allan af skiljum,
en aldrei í þvflíkri stærð sem þessari.
„Við stöndum við að þetta er stærsta
skilja í heimi á meðan ekki eru
heimildir um annað. Það var
ASMAR skipasmíðastöðin sem bað
Skipatækni um að hafa milligöngu um
smíðina og það varð úr að við tókum
að okkur verkið. ASMAR skipa-
smíðastöðin hafði meðal annrs leitað
til Noregs um smíðina, en einhverra
hluta vegna sáu þeir sér það ekki
fært.“
Jósúa bætti við að í sömu skipa-
smíðastöð væri verið að smíða Hugin
fyrir Berg-Huginn ehf. í Vestmanna-
eyjum og ákveðið væri að skiljan fyrir
Hugin yrði smíðuð hjá Vélaverk-
stæðinu Þór.
VINN SLU STÖÐIN HF.
HLUTHAFAFUNDUR
Hluthafafundur Vinnslustöðvarinnar hf., verður haldinn
í Kiwanishúsinu í Vestmannaeyjum,
föstudaginn 02. júní 2000 og hefst kl. 15.00.
DAGSKRÁ:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Tillaga stjórnar um samþykki hluthafafundar á samruna Gandí ehf. við
Vinnslustöðina hf.
3. Afgreiðsla á tillögu stjómar um breytingu á 4. gr. samþykkta félagsins.
4. Fundarhlé. Ný hlutaskrá tekin í notkun, ef fundurinn samþykkir tillögur
undir dagskrárliðum 2 og 3, og fyrrum hluthafar Gandí ehf. boðaðir til
fundarins.
5. Tillaga um kosningu stjórnar í sameinuðu félagi. Ef tillagan verður sam-
þykkt fer fram stjómarkjör. Óskað hefur verið eftir margfeldiskosningu ef til
kosningar kemur.
6. Önnurmál.
Tillaga stjórnar skv. 2. og 3. lið dagskrár, liggur frammi á skrifstofum
félagsins, Hafnargötu 2, Vestmannaeyjum.
VINNSLUSTÖÐIN HF.
Þessa dagana eru sex börn að
útskrifast frá lcikskólanum Betel
og af því tilefni fóru þau ásamt
kennurum í óvissuferð á
þriðjudaginn. Meðal annars litu
þau við á Fréttum þar sem þau
fengu að kynnast Ieyndardómum
prentiðninnar. Auk þess var farið í
sund svo eitthvað sé nefnt af
uppákomum dagsins.
Frá vinstri: Sigrún Gyða, Halldór
Páll, Hreiðar, Nökkvi, Sesseja og
Ármey.
Þorsteinn til
Stöðvar 2
Þorsteinn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri knattspyrnudeildar
IBV, hefur sagt upp störfum sem
framkvæmdastjóri knattspyrnu-
deildar í framhaldi af því að honum
bauðst staða íþróttafréttamanns
hjá Islenska útvarpsfélaginu, sem
rekur m.a. Stöð 2, Sýn og Bylgjuna.
Þorsteinn sagði í stuttu spjalli að
hann hefði fengið leyfi hjá stjórn
knattspyrnudeildar að hætta
störfum seinnipartinn í júní til að
hefja störf hjá Islenska útvarps-
félaginu og því væri Ijóst að hann
myndi ekki klára nýhafið leik-
tímabil með ÍBV.
Þorsteinn sagði að honum hefði
boðist starf á íþróttadeild Islenska
útvarpsfélagsins og hann hefði
ákveðið að þiggja boðið eftir að hafa
sest yfir málið rneð fjölskyldunni.
„Þetta var erfið ákvörðun enda starfið
hjá ÍBV skemmtilegt en það var hins
vegar aldrei hugsað til frambúðar.
Auk þess hefur þetta í för með sér
búferlaflutninga. En ég er menntaður
í fjölmiðlafræði og hef unnið lengst af
við prentmiðla. Það hefur blundað í
mér að vinna við útvarp og sjónvarp
og því ákvað ég í samráði við
tjölskylduna að grípa þetta tækifæri
sem bauðst enda íþróttadeildin hjá ís-
lenska útvarpsfélaginu sú langöfl-
ugasta á landinu." sagði Þorsteinn.
frettir
íbróttadagurá
laugardaginn
íþrótta- og Ólympíusamband fs-
lands hefur ákveðið að standa tyrir
íþróttahátíð á þessu ári. fþróttahátíð
af þessu tagi hefur verið haldin á
tíu ára fresti og er þetta í Ijórða sinn
sem hún er haldin. Megininntak
hátíðarinnar nú er - fþróttir og ljöl-
skyldan - og verður lögð sérstök
áhersla á að tengja sem flesta við-
burði á vegum héraðssambanda og
íþróttabandalaga við hátíðina.
Sem hluta af íþróttaliátíðinni
hefur verið ákveðið að vera með
sérstakan íþróttadag þann 27. maí
næstkomandi um allt land til þess
að hvetja fólk til hreyfingar og
almennrar útivistar. Um leið
verður hvatt til sérstaks átaks,
Skrefs 2000, sem hugsað er sem
upphafsskref í áttina að heilbrigði
og hreysti. Hugmyndin er að allir
landsmenn geti verið með í Skrefi
2000, en fyrirhugað er að skipu-
leggja sérstakt átak í nokkrum
stæni byggðarlögum.
Eitt þessara byggðarlaga er
Vestmannaeyjar, þar sem UMF
Óðinn og Fimleikafélgið Rán munu
sjá um íþróttadaginn næstkomandi
laugardag. Á dagskrá hátíðarinnar
vcrður Vestmannaeyjameistaramót
í fimleikum, útihlaup og göngur,
sem allir geta tekið þátt í, frítt
verður í sund og ýmislegt annað
gert til þess að gera daginn
skemmtilegan og fjölskylduvænan.
Fjórirbiófnaðir
Alls voru tjórir þjófnaðir kærðir til
lögreglu í síðustu viku. Tveimur
hjólum var stolið, öðru við Bama-
skólann en hinu við Hólagötu 24.
Pioneer bflútvarpstæki með inn-
byggðum geislaspilara viu* stolið úr
Ófeigi VE. og leðuijakka var stolið
á veitingastaðnum Lundanum.
Lögreglan óskar eftir upplýsingum
varðandi hugsanlega gerendur.
Rúðuböðlar
Tilkynnt var um tvö skemmdarv'erk
til Iögreglu. í báðum tilfellum var
um rúðubrot að ræða. Tvær rúður
vom brotnar í Bamaskólanum og er
sökudólgur ófundinn. Þá var rúða
brotin í húsi við Faxastíg, en lög-
regla hefur upplýsingar um hver
þar var að verki.
__ ,
Smáar
Bíll til sölu
Volvo Station ‘83 árg. Góður og
ódýr bíll. Verðhugmynd: 20 þús.
Uppl í síma 481 2930 og 897 9631
Glæsibifreið til sölu
Toyota Corolla 1300 með skotti.
Árg. ‘88. Sjálfsk., samlæsingar.
Ekinn 151 þús. Mikið endurnýjaður
- smurbók frá upphafi. Fæst á
góðum kjörum. Uppl. i síma 897
1135 og 481 1043.
Tapað - fundið
Grátt seðlaveski týndist á
þriðjudaginn. Skilist á Fréttir. Góð
fundarlaun ef allt skilar sér.
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481 -3310. Myndriti: 481 -
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/-frettir.
FRETTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.