Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Blaðsíða 10
10
Frcttir
Fimmtudagur 25. maí 2000
r
Islandsmótið í mótocross: Heppnaðist vel í alla staði
Siggi Bjarni náði lengst af heimamönnum
-Ragnar Ingi Stefánsson stóð uppi sem sigurvegari eftir hörkukeppni
Á laugardaginn var haldin hér í
Eyjum fyrsta motocrosskeppnin af
fjórum í Islandsmótinu í þessari
íþróttagrein. Mótið fór að öllu leyti
fram uppi á Nýjahrauni þar sem
lappað hafði verið upp á gömlu
brautina sem þar var, en þetta er
stærsta motocrosskeppni sem fram
hefur farið hér á landi og alls voru
keppendur 34.
Mikil spenna fylgdi því að sex
Eyjamenn tóku nú þátt í mótinu og eru
sjö ár síðan Eyjamaður tók þátt í
keppninni. Skemmst er frá því að
segja að okkar menn stóðu sig með
prýði, en Sigurður Bjami Richardsson
komst þeirra lengst, alla leið í níunda
sæti sem þykir frábær árangur eftir sjö
ára hlé á keppni.
Tókst glimrandi
Sigurður sagði að mótið hefði tekisl í
alla staði frábærlega. „Þetta tókst
alveg glimrandi vel hjá okkur, bæði
mótið og svo okkar árangur en þetta er
stærsta motocrossmótið sem fram
hefur farið hér á landi. Það má segja
að allt hafi gengið upp, það var
reyndar smá vindur en hafði ekki
mikil áhrif á keppendur. Brautin er
talin vera mjög erfið, þar sem kepp-
endur þurfa að standa allan tímann því
brautin er svo laus í sér og fljótt að
grafast upp úr henni. Það gerir
keppnina bara meira spennandi og ég
vona að þeir tæplega 300 áhorfendur,
sem þama mættu, hafi skemmt sér
vel.“
Hvemig gekk okkar mönnum?
„Við vorum allir þarna í fyrsta skipti
í langan tíma. Reyndar vom tveir
þarna í fyrsta skipti, þeir Pétur og
Sæþór en við kláruðum allir keppnina
og það er bara afrek út af fyrir sig. Eg
lendi í níunda sæti og ég verð að segja
það að lenda á topp tíu er eitthvað sem
mann dreymdi bara um þannig að ég,
persónulega, er alveg í skýjunum.
Ómar lenti svo í 12. sæti, Símon í 14.
en aðrir neðar. Fjórir keppendur duttu
úr keppni en eins og ég sagði áðan þá
kiáruðum við allir keppnina en það er
aðalmálið að klára fyrstu keppnina."
Mikill kostnaður
Og ætla menn að fylgja eftir þessum
góða árangri?
„Já, við ætlum nokkrir í keppnina
sem verður á Akureyri 10. júní
næstkomandi. Maður verður að halda
áfram fyrst maður komst á topp tíu og
sjá svo til. En þetta kostar náttúmlega
mikinn pening. Eg get tekið sem
dæmi að bara mótsgjaldið var 11.500
krónur og við það bætist dekk, bensín
og allt sem kemur nálægt hjólinu og
manninum s.s. hlífar og annað. Svo
þegar maður þarf að ferðast eitthvað
þá eykst kostnaðurinn töluvert."
Hvemig likaði gestunum að koma til
Eyja að keppa?
„Þeim fannst þetta í einu orði sagt
alveg frábært. Gott dæmi um það að
fyrirhugaðar em tvær keppnir í
Reykjavík, en þeim fannst þetta svo
glæsilegt héma að þeir vilja endilega
koma aftur í vor. En við lögðum
mikið í það að gera þetta sem þægi-
legast fyrir keppendur, þeir fengu
aðstöðu í Sorpu og svo var gámur frá
Samskip á svæðinu þannig að menn
gátu geymt hjólin á staðnum."
Hvenær verður svo næsta mót í
Eyjum?
„Eg veit nú ekki hvort við leggjum í
að halda tvö mót héma á ári, það er
rosaleg vinna í kringum svona mót.
Við vomm að fram á nótt á
föstudeginum og er aldrei að vita, ef
við hefðum verið úthvíldir, hvort við
hefðum lent eitthvað ofar. En ég held
að það sé alveg pottþétt að á næsta ári
verður aftur haldið motocrossmót í
Eyjum. Eg vil bara þakka þeim
aðilum og fyrirtækjum sem styrktu
okkur, Gámaþjónustunni, Gauja í FES
og sérstaklega Guðna Gríms sem var
allt í öllu á keppnisdegi."
HART barist. Atgangurinn í
brautinni var mikill, ekki síst í
startinu þegar 34 keppendur
ruddust áfram af miklu harð-
fylgi til að ná sem fremst í
keppninni.
Eftir harðvítuga baráttu milli efstu
manna urðu úrslit þessi í fyrstu
motocrosskeppni ársins:
1. Ragnar Ingi Stefánsson
2. Reynir Jónsson
3. Viggó Viggósson
KEPPENDUR tóku
reglulega flugið í
keppninni.
Fimleikafélagið Rán: Trompfimleikar og Fantamótið
Stefnt að öflugu starfi í hópfimleikum á ný
-María sigurvegari á fjölmennu móti
Trompfímleikar
Fimleikafélagið Rán hefur ákveðið
að innleiða á ný hópfimleika. Fór
hópur frá félaginu á tvö mót fyrir
nokkru og stóðu stelpurnar sig
mjög vel, lentu í 3. sæti í bæði
skiptin.
Fyrst var farið á byrjendamót, þar
kepptu 12 lið en á seinna mólinu var
dæmt eftir reglum FSI og verður þessi
árangur því að teljast mjög góður.
Ljóst er að þetta er vettvangur sem
félagið á eftir að verða mjög sterkt á.
Félagið vill þakka öllum þeim sem
styrktu stelpurnar til þátttöku á mót-
unum.
Fantamótið
Fantamótið var haldið laugar-
daginn 29. aprfl sl. Þar kepptu
yngstu iðkendur Ránar, nær 70
talsins. Mótið tókst vel og stóðu
keppendur sig með prýði.
Keppt var í þremur gráðum. í 4.
Á myndinni eru frá vinstri: Annika, Erna Sif, Arna Hrund, Lilja Dröfn, Kristín, Tanja Björg, Margrét,
Anna Kristín, Stefanía, Arna Björg, Steina og Guðrún. Á myndina vantar Dorthy Lísu, Hafdísi, Ölmu
og Berglindi.
gráðu kepptu Fjörkálfarnir og
Stjömumar en það em yngstu
iðkendumir. I 3. gráðu kepptu Strút-
amir sem em framhaldsbyijendur og í
2. gráðu Englar og Álfadísir en það
ern nemendur sem em lengra komnir.
Allir þátttakendur fengu Hi-Ci, viður-
kenningarskjal og Fantabol. Veitt
vom verðlaun í 2. gráðu fyrir fyrstu
þrjú sætin á hverju áhaldi svo og
samanlagðan árangur og vom úrslit
samanlagt sem hér segir:
1. María R. Sigurbjömsd. 33,05
2. Rakel Hlynsdóttir 32,85
3. Halla Björk Jónsdóttir 32,80
ISLANDS
Á myndinni er strákahópurinn Fjörkálfar og þjálfarar þeirra, þeir
Hörður Orri og Ivar.