Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Blaðsíða 24
24
Fréttir
Fimmtudagur 25. maí 2000
Vor í Eyjum 2000 - Vor í Eyjum 2000 - Vor í Eyjum 2000 - Vor í Eyjum 2000
Atvinnu- og þjónustu-
sýningin Vor í Eyjum
2000, sem haldin var í
Iþróttamiðstöðinni um
helgina þótti takast vel og
áætla aðstandendur að um
4000 manns hafi sótt
sýninguna þá þrjá daga
sem hún var opin.
Sigmar Georgsson, framkvæmda-
stjóri sýningarinnar, segir að aðsóknin
hafi verið jöfn og góð alla sýning-
ardagana. „Það hjálpaði til að veður
var gott alla dagana og mikið af
gestum í bænum. Er mér efst í huga
þakklæti til sýnenda og þeirra sem litu
inn á sýninguna," sagði Sigmar.
Það var handknattleiksráð karla
IBV-íþróttafélag í samstarfi við at-
vinnumálanefnd Vestmannaeyjabæjar
sem hafði veg og vanda af Vori í
Eyjum 2000. Hefur Vor í Eyjum verið
haldið annað hvert ár síðan 1990 og er
þetta í fimmta sinn sem sýningin er
haldin.
Sýnendur hafa trú á okkur
Alls sýndu 36 aðilar í 42 básum og
hefur það ekki gerst áður að allt
sýningarplássið er nýtt. Helmingur
sýnenda kom úr Reykjavík en hinn
helmingurinn úr Eyjum. Margt var til
skemmtunar gert sem var bæði við
hæfi bama og fullorðinna.
„Við getum ekki verið annað en
ánægðir,“ sagði Magnús Bragason
formaður handknattleiksráðs karla.
„Vor í Eyjum hefur verið að þróast hjá
okkur og það er greinilegt að
sýnendur hafa orðið trú á framtakinu
því þeir hafa aldrei verið fleiri en
núna. Eg held líka að aðsókn hafi
aldrei verið betri og lætur nærri að
4000 gestir hafi heimsótt sýninguna,"
sagði Magnús.
Jóhann Pétursson í handknatt-
leiksráði var líka ánægður með
sýninguna. „Mér er efst í huga
þakklæti til bæði gesta og sýnenda.
Þeir lögðu sko sitt af mörkum til að
gera Vor í Eyjum eins stórkostlega og
raunin varð á. Þá er mér ekki síður
þakklæti í hjarta til skólayfirvalda ;em
sýndu okkur skilning og hnikuðu til
kennslu til að við kæmumst inn í
íþróttasalinn. Þá má ekki gleyma
Vestmannaeyjabæ því án styrks frá
bænum væri Vor í Eyjum hvorki fugl
né fiskur,“ sagði Jóhann.
Þátttaka skilar sér
Geisli var mjög áberandi á sýningunni
og náði sýningarsvæði þeirra yfir þrjá
bása. „Eg er mjög ánægður með
hvemig til tókst,“ sagði Pétur
Jóhannsson í Geisla. „Það var mikil
umferð, sérstaklega á sunnudaginn en
þá heimsólti okkur mikið af fólki sem
spjallaði við okkur og var virkilega að
skoða það sem við buðum upp á. Við
buðum 15% afslátt á öllum vörum
sem við sýndum. Þetta kom mjög vel
út fyrir okkur og tókum við niður
mikið af pöntunum.“
Geisli sýndi hljómtæki og sjónvörp
frá Bræðrunum Ormsson, heimilis-
tæki frá Siemens og Jóhanni Rönning
og einnig var þama maður sem kynnti
Metabo-verkfæri.
Miðstöðin sýndi m.a. rafrænan
klósettkassa sem sturtar niður ef hendi
er veifað yfir hann og tveggja manna
baðkar með þrýstiloftsbúnaði. Þeir
Miðstöðvarmenn vöktu líka athygli á
því að Gísli J. Johnsen kom með
fyrsta vatnssalemið til Islands. Þetta
var árið 1908 og var fyrsta alvöru
atlagan sem gerð var að kömrunum
sem þóttu nauðsynlegir við hvert hús
langt fram á 20. öldina.
Draumarnir rætast í Húsey
Þór Valtýsson var yfir sig hrifmn með
sýninguna og árangurinn. „Vor í
Eyjum 2000 var mjög vel heppað og
flott. Mun metnaðarfyllri en ég hef
séð áður. Það em samt ótrúlega mörg
fyrirtæki sem sitja heima. Ég skil það
ekki því þátttaka í Vori í Eyjum er að
skila árangri. Það kom gomma af fólki
og það var mikið gaman. Sem dæmi
um árangurinn þá seldi ég tíu garðhús
fyrir böm en svo er þátttaka í
sýningunni að skila sér til lengri tíma.
Hingað kemur fólk sem á sér drauma,
skoðar og veltir hlutunum fyrir sér og
svo þegar það ákveður að láta
drauminn rætast kemur það í Húsey,"
sagði Þór.
GEISLAMENN voru mjög ánægðir með hvernig til tókst á Vori í Eyjum. F.v. Pétur, Grétar Bergsson
frá Bílanausti, Þórarinn Sigurðsson framkvæmdastjóri og Jóhann Sigurður sonur hans.
^JOTUN
JOTUN
IOTUN ^JOTUN
XJTUN A jotun
^JOTUN
ATSSnSi
JOTUN ^JOTUI
JOTUN ^JOIUN -^JUIUN
^JOTUN ^JOTUN ^JOTUN
ÞÓR og hans menn í Húsey segja að þátttaka í Vori í Eyjum skili sér, ekki síst þegar til lengri tíma er litið.
F.v. Einar Erlendsson, Þór, fulltrúi Dynjanda, fulltrúi Sólargluggat jalda, Tómas Jóhannesson og fulltrúi
Vírnets.
SÆÞÓR og Bjössi í KÁ reyna að sannfæra Drífu um ágæti litlu ryksugunnar, sem var meðal þess sem
þeir sýndu á Vorinu.
SILLA hjá Samvinnuferðum bauð ferðaþyrstum fjölbreytt úrval af
utanlandsferðum. Var það ekki síst sólin sem freistaði.