Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Side 19
Fimmtudagur 25. maí 2000
Fréttir
19
Þóranna Halldórsdóttir og Freydís Vigfúsdóttir:
Dýrmætar stundir
sem gleymast aldrei
ÞÓRANNA Halldórsdóttir og Freydís Vigfúsdóttir fluttu ávarp fyrir hönd nemenda. Á milli þeirra
stendur Anna Rós Hallgrímsdóttir sem var meðal nemenda sem fengu viðurkenningu fyrir frábæran
námsárangur.
Þóranna Halldórsdóttir og Freydís
Vigfúsdóttir ávörpuðu gesti fyrir
hönd stúdenta og komu þær víða
við. Þóranna byrjaði og vitnaði í orð
Kristjáns Albertssonar bókmennta-
gagnrýnanda sem skrifaði: „Loks-
ins, loksins“ um bók Halldórs
Laxness, Vefarann mikli frá
Kasmír. Þarna átti Krsitján við að
miklum árangri hafi verið náð og
sagði Þóranna að í tilefni dagsins
segði hún: „Loksins, Ioksins“.
„Þegir litið er yfir farinn veg skjóta
margar minningar upp kollinum en
margar af okkar bestu minningum
urðu einmitt til innan skólaveggjanna.
Þrátt fyrir oft æði stirðar samveru
stundir með kennumm leyfi ég mér að
fullyrða að vinskapurinn milli nem-
enda og kennara í þessum skóla er
alveg einstakur og getur skólinn verið
stoltur af þessum, einum af bestu
kostum skólans,“ sagði Þóranna.
„En tíminn fór nú ekki allur í að
spjalla og smjaðra við kennarana,
síður en svo. Við höfum einnig átt
prýðilegar samvemstundir með sam-
nemendum okkar bæði í leik og starfi.
Ég gerði mér ekki alveg grein fyrir því
og var ekki alveg tilbúin til að kaupa
það þegar skólameistari okkar sagði á
kynningarkvöldi skólans fyrir ljómm
ámm: „Hér eignast þú þína bestu vini
og þetta verður einn skemmtilegasti
tími ævi þinnar“.
Og viti menn, kallinn hafði bara rétt
fyrir sér. Allt firá okkar fyrsta busaballi
til mauralegrar dimmiteringar hefur
alltaf verið nóg fyrir stafni, til að líta
upp úr skólabókunum svona til til-
breytingar. Við munum horfa sakn-
aðaraugum til núna fyrrverandi sam-
nemenda okkar sem eiga enn eftir
dýrmætar stundir í skólanum. Þó
nemendur sem enn stunda nám við
Framhaldsskólann séu ekki með sömu
hugsun gagnvart okkur, því nú í dag er
engin afsökum að mæta of seint í tíma
eftir frímínútur þar sem stúdentamir
gáfu skólanum langþráða veggklukku,
langþráða af okkar hálfu. Við góðan
orðstír höfum við stúdentar einnig
rekið svona líka prýðis góða góð-
gætisverslun við góðar viðtökur bæði
nemenda og kennara. Já, rekstur
Stúdentafélagsins hefur aldrei verið
betri og arðbærari og á ein manneskja
mestan heiðurinn af því,“ sagði
Þóranna að lokum.
Þegar þama var komið sögu afhentu
þær stöllur Hörpu Sigmarsdóttur blóm
fyrir vel unnin störf í þágu Stú-
dentafélagsins.
„Já, það má því með sanni segja að
þær stundir, sem við höfum átt í
Framhalsskólanum í Vestmanna-
eyjum séu búnar að vera sérdeilis
prýðilegar," sagði Freydís. „Þó að við
munum ekki ganga lengur inn við
bjölluhringingu Framhaldsskólans,
alltof snemma í morgnana, þá taka
eflaust aðrar bjöllur við sem boða nýja
tíma og breytta og jafnframt minna
okkur á þær góðu stundir sem liðnar
em. Þær munu einnig minna okkur á
að skólinn verður alltaf hluti af okkur
og að okkur ber að halda heiðri
skólans uppi hvert sem við fömm því
það emm við sem setjum stefnu á
framtíð Vestmannaeyja og getum því
sagt að við emm stolt af því að vera
útskriftamemar úr Framhaldsskólan-
um í Vestmannaeyjum.
Já, hvert sem við fömm þá eigum
við bjarta framtíð fyrir höndum því
skólinn hefur gefið okkur góðan
bakgmnn. Og hvort sem okkar næsta
skref er áframhaldandi nám í æðri
menntastofnunum eða nám í skóla
lífsins þá mun það vera námið sem
byggir framtíðarstöðu okkar í þjóð-
félaginu.
Já, hvert sem við fömm munu
minningar skólans fylgja okkur og
vinátta jafnt kennara sem nemenda.
En ég held að það sé ekki hægt að
orða þetta betur en einn af okkar góðu
kennurum gerði,“ sagði Freydís og las
þar næst bréf sem Ragnar Óskarsson
hafði sent stúdentum:
„Ágæta stúdentsefni; Nú þegar þú
ert u.þ.b. að Ijúka námi við FIV langar
mig að þakka þér fyrir samvemna og
samstarfið. Vonandi hefur þú á
enhvem hátt haft gaman af kennslu
minni og vonandi reynist hún þér
veganesti til framtíðarinnar.
Þegar þú nú rærð á ný mið vildi ég
geta gefið þér ótal góð ráð. Hér ætla
ég þó að minna þig á að vináttan er
e.t.v. það mikilvægasta veganesti sem
nokkur maður getur átt. Sá sem á vini
þarf engu að kvíða og hann getur
óhikað tekist á við nánast öll heimsins
vandamál. Þess vegna er svo mikil-
vægt að rækta vináttuna.
I kvæðinum Hávamálum, sem er
ein af dýrmætustu perlum íslenskra
bókmennta, langt aftan úr grárri
fomeskju, er vakin sérstök athygli á
mikilvægi vináttunnar en þar segir:
Veistu, ef þú vin átt,
þann er þú vel trúir,
og vilt þú af honum gott geta,
geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
Þessi viska og þessi heimspeki á
jafn mikið erindi við okkur í
nútímanum eins og forfeðuma. Gangi
þér allt í haginn," sagði Ragnar Ósk-
arsson.
„Þá, geði skaltu við þann blanda,
líkt og við höfum gert hér dag. Fyrir
hönd stúdenta vil ég þakka kennurum,
starfsfólki og nemendum skólans kær-
lega fyrir þann skemmtilega tíma sem
við höfum átt saman. Og hvert sem
ferðinni er heitið munið þá að ganga
hægt inn um gleðinnar dyr og hafið í
huga að: „Dagurinn í dag gæti orðið
besti dagur ævi þinnar bara ef þú notar
hann rétt,“ sagði Freydís að lokum.
HARPA Sigmarsdóttir útskrif-
aðist af tveimur brautum,
félags- og náttúrufræðibraut.
Hér er hún ásamt dótturinni
Valdísi Báru og ciginmanninum
Baldvin Þ. Svavarssyni sem
samfagna henni.
—7--------------
Utskriftarnem-
ar vorið 2000
Grunndeild rafiðna:
Gylfi Bragason
Kristján Georgsson
Steingrímur Jóhannesson
Sjúkraliðabraut:
Asta Gústafsdóttir
Elsa Gunnarsdóttir
Jóhanna Svanborg Jónsdóttir
Sigríður Gísladóttir
Vélstjórnarbraut, 2. stig:
Haraldur Guðbrandsson
Ragnar Benediktsson
Stúdentsprófsbrautir:
Anna Rós Hallgrímsdóttir
náttúrufræðibraut.
Davíð Egilsson náttúmfræðibraut.
Elías Ingi Björgvinsson náttúm-
fræðibraut.
Ester Helga Sæmundsdóttir hag-
fræðibraut.
Freydís Vigfúsdóttir náttúrufræði-
braut.
Fríða Hrönn Halldórsdóttir félags-
fræðibraut.
Gunnar Steinn Magnússon nátt-
úmfræðibraut.
Hallína I. Hafliðadóttir félags-
fræðibraut.
Haipa Sigmarsdóttir félags- og
náttúmffæðibrautum.
Jóna Hildur Jósepsdóttir hag-
fræðibraut.
Lóa Baldvinsdóttir félags-
fræðibraut.
Ragnheiður G. Guðnadóttir nátt-
úmfræðibraut.
Richard Bjarki Guðmundsson
hagfræðibraut.
Þóranna Halldórsdóttir félags-
fræðibraut.
Þórhildur Ögn Jónsdóttir náttúra-
fræðibraut.
Viðurkenningar
Fyrir frábæra skólasókn:
Guðrún María Þorsteinsdóttir
Kristófer Alexandersson.
Fyrir frábæran árangur í
dönsku. Danska sendiráðið:
Eygló Egilsdótlir.
Vélstjóraúrið, sem gefið er af
Vélstjórafélagi Vestmannaeyja og
veitt þeim nemanda sem lýkur 2.
stigi vélstjórnar með bestum
árangri í vélstjórnargreinum.
Ragnar Benediktsson.
Stúdentar
Viðurkenning frá Máli og
Menningu fyrir góðan náms-
árangur í bókmenntaáföngum í
íslensku:
Davíð Egilsson
Viðurkenning frá Sparisjóði
Vestmannaeyja fyrir góðan
meðalnámsárangur í framhalds-
áföngum í íslensku:
Elías Ingi Björgvinsson
Viðurkenning frá Endurskoðun
Deloitte & Touche fyrir góðan
námsárangur í viðskiptagreinum
á stúdentsprófi:
Jóna Hildur Jósepsdóttir
Viðurkenning frá þýska sendi-
ráðinu fyrir góðan námsárangur
í þýsku:
Freydís Vigfúsdóttir
Davíð Egilsson
Viðurkenning frá Efnafræði-
félaginu fyrir góðan námsár-
angur í efnafræði:
Freydís Vigfúsdóttir
Viðurkenning frá FIV fyrir frá-
bæran námsárangur í stærð-
fræði:
Gunnar Steinn Magnússon
Viðurkenning frá FÍV fyrir
góðan námsárangur almennt á
stúdentsprófi:
Anna Rós Hallgrímsdóttir
Davíð Egilsson
Elías Ingi Björgvinsson
Freydís Vigfúsdóttir
Gunnar Steinn Magnússon.