Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Síða 21
Fimmtudagur 25. maí 2000
Fréttir
21
ira ein setning
listarmaður sem á laugardaginn
anka 2000
kafi í fortíðinni, því að miðillinn
breytist alltaf, eftir því hvað hentar
hverju sinni. Sýningin er því hluti af
þessari veröld, en miðillinn nýr.“
Náttúran skiptir miklu máli
Hversu mikils virði er náttúran í þinni
myndhugsun og ef við höldum okkur
við líkinguna um bíóið má þá líta á
náttúruna sem hluta af sviðsmynd, því
í bíói er jú alltaf verið að skipta á milli
sviðsmynda, eins og í lífinu sjálfu, eða
hvað?
„Maður hefur allt þetta fallega sem
maður hefur alist upp við og náttúran
skiptir miklu máli í myndlist minni.
Ég er alin upp í Eyjum og hef séð
Eyjamar frá mörgum ólíkum hliðum
og slíku gleymir maður ekki Mig
langar til þess að bæta einhverju við,
sem er ekki sýnilegt, en hefur mikla
fegurð fyrir mér. Þannig breyti ég
sviðsmyndinni og bý til nýjar
tengingar. Það er líka einn kjarninn í
sýningunni.“
Það eru margir listamenn sem þú
hefur dálæti á og þar á meðal eru
Louisa Matthíasdóttir, Júlíana Sveins-
dóttir og Muggur. Eru sterk tengsl á
milli þín og þeirra?
„Louisa málaði alveg stórglæsilegar
uppstillingar, en hennar veröld er
mikið í þögninni, sem ég kann ágæt-
lega við. Þar ræður maður sér sjálfur
án þess að þurfa að tala um hlutina.
Mér finnst myndlistin skýra sig sjálf
og að hún eigi að gera það. Það þarf
ekki alltaf að vera að bulla eitthvað
um myndlist. Hlutimir breytast og
menn éta ofan í sig það sem þeir hafa
áður sagt. Til hvers? Mér finnst
Louisa falleg í sinni hugsun alveg eins
og Júlíana og Muggur. Þau em
hjartamálarar, fullir af einlægni, þrátt
fyrir að vera ólíkir. Þetta er líka
spuming um að gleðja aðra, ef
Muggur seldi mynd, þá var hann
fyrstur manna til þess að slá upp veislu
og kaupa gjafir, og lofa öðmm að taka
þátt í þeirri velgengni, þrátt fyrir að
hann var alltaf fátækur, ef út í það er
farið. Mér finnst þetta fallegt. Éinser
með Louisu, hún þarf enga heimspeki
á bak við sig til þess að tengjast ein-
hverju víðáttubrjálæði svo gagn-
rýnendur geti skoðað sýningar hennar.
List er ímyndun og ímyndunarafl,
ekki einhver fom heimspeki, sem þarf
endalaust að tengja einhveijum kenn-
ingum. I því samhengi er myndlistin
mín bara frá hjartanu; það sem ég les,
skoða og upplifi. Þess vegna finnst
mér vont að vera í viðtali og kann það
ekki. Annað hvort er maður mynd-
listarmaður eða ekki og þarf ekki
neinn heimspeking til þess að vima í
til þess að vera góður myndlistar-
maður. Það má gera allt í myndlist og
maður ræður hvað maður gerir og þarf
ekki alltaf að vera að skilgreina það.“
Hver er það sem ákvarðar það að
myndlistarmaður sé myndlistar-
maður?
„Helgi Þorgils sagði einhvem tíma
að þetta byrji þannig að manni finnst
gaman að teikna, þannig held ég líka
að þetta sé. Maður segir ekki einn
góðan veðurdag. „Jæja nú ætla ég að
verða myndlistarmaður“. Þetta byijar
bara þegar maður er bam og kannski
tekur maður öðm vísi eftir um-
hverfinu, eins og til dæmis vegg-
fóðrinu í eldhúsinu heima, eða
litunum á veggjunum. Ég var bara
inni í þessum litaheimi og hann var
veröld mín. Stundum full af gleði og
stundum ekki. Þessi veröld æskunnar
er mér jafn lifandi í dag og hún var
þá.“
Benedikt Gestsson
Guðmunda Hjörleifsdóttir skrifar:
Eru líknarfélög
að verða „liðin tíð?“
En alls staðar ber að sama brunni. Starfíð liggur á höndum
fárra kvenna því í dag virðast konur almennt ekki hafa tíma
til þess að sjá af nokkrum klukkustundum á ári við störf í
sínu félagi. Eða er ekkert hægt að gera nema fá greidd laun
fyrir það? Væri lausnin e.t.v. að sameina krafta þeirra
kvenna sem enn vilja vinna í sjálfboðavinnu og gera úr því
eitt öflugt félag?
Undanfamar
vikur hefur þessi
spuming verið
ofarlega j huga
mínum. Ég hef
starfað í Slysa-
vamadeildinni
Eykyndli í 25 ár
og hef alltaf haft
af því mikla
ánægju. En nú
spyr ég: -Hvað
er til ráða?
í dag em starfandi þijú kvenfélög hér
í bæ, þ.e. Svd. Eykyndill, Kvenfélagið
Líkn og Kvenfélag Landakirkju. 011
þessi félög hafa unnið mikið og gott
starf í gegnum árin með góðum og
dyggum stuðningi bæajrbúa.
En alls staðar ber að sama bmnni.
Starfið liggur á höndum fárra kvenna
því í dag virðast konur almennt ekki
hafa tíma til þess að sjá af nokkmm
klukkustundum á ári við störf í sínu
félagi. Eða er ekkert hægt að gera
nema fá greidd laun fyrir það? Væri
lausnin e.t.v. að sameina krafta þeirra
kvenna sem enn vilja vinna í sjálf-
boðavinnu og gera úr því eitt öflugt
félag?
Starfið felst fyrst og fremst í
fjáröflunum og höfum við leitað mikið
til einstaklinga og fyrirtækja í bænum
sem alltaf taka jafnvel á móti okkur.
En til þess að félögin leggist ekki af
þurfa konur að reyna að finna
smátíma til að sinna þessu starfi. Því
fleiri sem við emm, því léttara verður
starfið. Líður okkur ekki öllum pínu-
lítið betur þegar við höfum látið gott
af okkur leiða?
Þetta bréf er ekki skrifað sem ádeila
á einn eða neinn, heldur frekar til að fá
okkur aðeins til að hugsa. Ég vil
einnig taka það fram að þetta em
mínar hugsanir en ekki skrifaðar í
nafni félagsins.
Eyjakonur! Viljum við að þessi
félög heyri sögunni til? Stöndum
saman, sýnum hvað í okkur býr, eflum
félagsstarfið.
Með kveðju.
Guðmunda Hjörleifsdóttir
HÚSEY
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
FLUGFELAGISLANDS
Sumaráætlun tekur gildi 3. apríl
Fjórar ferðir á dag
Bókanir og upplýsingar um flug í s. 481 3300
www.flugfelag.is
Skólagarðar
Enn eru laus des í skólagörðunum fyrir börn sem voru í 5.
og 6. bekk í vetur.
Settar verða niður kartöflur föstudag 26. maí klukkan 17 en
starfsemin hefst svo af fullum krafti 5. júní.
Matjurtagarðar
eldri borgara
Eldri borgurum bæjarins gefst kostur á að setja niður
kartöflur og kálplöntur í tilbúin des í Löngulág. Starfsmenn
garðyrkjudeildar verða á staðnum föstudag 26. maí
klukkan 17. Kostnaður í lágmarki. Verkfæri á
staðnum.
Áhugasamir hringi í síma 4811533.
Garðyrkjustjóri.
‘66 ‘66 ‘66 ‘66 ‘66 ‘66 ‘66 ‘66 ‘66 ‘66 ‘66 66
Undirbúningsfundur
vegna,
árgangsmóts
‘66 1. og 2. sept. nk.
verður á morgun,
FÖSTUDAG kl.21.00
á MÁNABAR.
Nefndin
HEIMASÍÐAN: www.eyjar.is/model66
Eyjamenn athugið
ÍBV-kvennaráð vill vekja athygli á því
að allir þeir sem vilja vinna við
Vöruvals- og Shellmótið hafi samband
við Guðnýju ísíma 481 1897
Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa og langa-
langaafa
Haraldar Hannessonar,
skipstjóra og útgerðamanns,
Fagurlyst, Vestmannaeyjum
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir góða
umönnun.
Unnur Haraldsdóttir
Ásta Haraldsdóttir
Hannes Haraldsson
Sigurbjörg Haraldsdóttir
bamaböm, bamabamaböm
Magnús B. Jónsson
Magnea Magnúsdóttir
Friðrik Már Sigurðsson
og bamabamabamaböm.