Fréttir - Eyjafréttir - 25.05.2000, Qupperneq 27
Fimmtudagur 25. maí 2000
Fréttir
27
Leikmenn ÍBV
og leikjaröðin
Markmenn:
Petra F. Bragadóttir 24 ára
Sigríður I. Kristmannsdóttir 22 ára
Varnarmenn:
Elfa Asdís Olafsdóttir 17 ára
Hanna Heiður Bjamadóttir 20 ára
Iris Sæmundsdóttir 26 ára
Sigríður Asa Friðriksdóttir 21 árs
Fanný Yngvadóttir 22 ára
Rakel Rut Stefánsdóttir 17 ára
Miðjunienn:
Elena Einisdóttir 22 ára
Eva Björk Omarsdóttir 17 ára
Hjördís Halldórsdóttir 18 ára
Hjördís Jóhannesdóttir 18 ára
Lára Dögg Konráðsdóttir 20 ára
Lind Hrafnsdóttir 18 ára
Samantha Britton
Karen Burke 29 ára
Sóknarmenn:
Kelly Shimmin 18 ára
Bryndís Jóhannesdóttir 19 ára
Þjálfarar:
Heimir Hallgrímsson aðalþjálfari
Stefanía Guðjónsdóttir aðst.þj.
Farnar: Hrefna Jóhannesar, íris
Sigurðardóttir og Jóna Sigurlásdóttir.
Nýjar eru: Samantha, Lisa Sandys
og Laufey Jóna Sveinsdóttir.
Heimaleikir
Fim. 1. jún 14.00 ÍBV - Breiðablik
Þri. 20. jún. 20.00 ÍBV - Þór/KA
Mán. 3. júl.20.00 ÍBV - FH
Þri. ll.júl 20.00 ÍBV-KR
Mán. 17 .júl. 20.00 ÍBV - Valur
Fös. 11. ágú. 19.00 ÍBV - ÍA
Mið. 30. ágú. 18.00 ÍBV - Stjaman
Útileikir
Þri. 23. maí 20.00 KR-ÍBV
Lau. 27. maí 14.00 Valur - ÍBV
Þri. 13. jún. 20.00 ÍA - ÍBV
Þri. 27. jún 20.00 Stjaman - ÍBV
Þri. 25. júl. 20.00 Breiðablik - ÍBV
Lau. 26. ágú. 14.00 Þór/KA - ÍBV
Sun. 3. sep. 14.00 FH - ÍBV
Fim. 3. ágú. 20.00 Keflavík - ÍBV
Sun.20. ágú. 18.00 Leiftur - ÍBV
Sun. 10. sep 14.00 KR - ÍBV
Knattspyrna: Landssímadeild kvenna
Tap í Frostaskjólinu
Kvennalið ÍBV spilaði sinn fyrsta
leik í Landsímadeildinni gegn KR á
útiveili á þriðjudagskvöld. Lauk
leiknum með 3-1 sigri gestgjaf-
anna.
IBV-stelpumar fóm upp á
Laugarvatn á mánudeginum og luku
þar undirbúningi sínum fyrir tímabilið
og héldu svo til Reykjavíkur til móts
við íslands- og bikarmeistarana.
Heppnin var þó ekki með ÍBV í
þetta skiptið, liðið fékk á sig frekar
ódýr mörk og náði aðeins að skora eitt
eftir laglega sókn ÍBV. Lokatölur
urðu 3-1 tap sem gefur ekki rétta
mynd af leiknum því Eyjastelpur vom
mun betri aðilinn í leiknum.
Heimir Jdallgrífnsson var þrátt fyrir
tapið nokkuð sáttur við leik liðsins á
þriðjudaginn. „Þetta var frábær leikur
fyrir áhorfendur. Það er kannski ljótt
að segja það en ég er bara nokkuð
ánægður með stelpumar enda vom
allar að spila mjög vel, sérstaklega
fannst mér ungu stelpumar eins og
Biddý, Elfa Asdís og Elva Dögg
koma sterkar til leiks. En maður er
náttúmlega aldrei ánægður með tap,
fótboltinn er bara stundum þannig að
betra liðið sigrar ekki og það átti svo
sannarlega við um þennan leik.“
Næsti leikur ÍBV er á laugardaginn
þegar liðið sækir Valsstúlkur heim að
Hlíðarenda og segist Heimir ekkert
banginn við að spila til sigurs. „Það
er náttúmlega ekkert varið í það að
horfa á lið sem liggur í vöm og vonar
að andstæðingurinn skori ekki. Við
ætlum að vera áfram á svipuðum
nótum og í KR leiknum og fömm í
leikinn til að vinna.“
Mark ÍBV: Karen Burke
um fótbolta
Haukum við góðar aðstæður og
höfum svo verið að æfa á eigin
spýtur. Heimir hefur svo fylgst
vel með okkur, fengið okkur
reglulega út í Eyjar og mælt
okkur og vigtað. Þannig að
okkur er veitt mikið aðhald þótt
við sjáum nánast sjálfar um að
halda okkur í þokkalegu formi.
Stelpurnar hérna virðast vera í
mjög góðu formi og ensku
stelpurnar hafa verið að spila úti
í vetur þannig að mér sýnist
hópurinn koma ágætlega undan
vetri. Æflngaferðirnar hjálpuðu
auðvitað mikið til. I lok febrúar
fórum við til Englands í fyrsta
skipti og það var ómetanlegt að
komast á gras svo snemma árs.
Svo fórum við að sjálfsögðu til
Portúgals þar sem við þekkjum
orðið nokkuð vel til aðstæðna.
Þessar ferðir hafa líka mikið að
segja upp á móralinn þar sem
allar stelpurnar hittust þarna og
voru saman lengur en í einn
leik.“
Er eitthvað sem fyrirliðinn vill
koma að, að lokum?
„Eg vil að sjálfsögðu hvetja alla
til að mæta á leikina okkar og
styðja við bakið á okkur.
Aðsóknin hefur verið að aukast
undanfarin ár en við viljum
endilega sjá fleiri áhorfendur á
Hásteinsvellinum enda lofum við
skemmtilegum fótbolta í sumar.
Við erum að selja ársmiða og
getur fólk t.d. komið í Isjakann
og keypt ársmiða af mér þar.“
JAKOBINA ásamt þremur vöskum konum í golfínu á árum áður,
þeim Kristínu Einarsd., Ágústu Guðmundsd. og Sjöfn Guðjónsd.
Kylfingur aldarinnar á íslandi valinn:
Jakobína með-
al átta bestu
-Hneyksli aldarinnar aó ganga fram hjá
Björgvin Þorsteinssyni, segir Jakobína
Fyrir skömmu tilkynnti Golfsam-
band íslands hver hefði verið
útnefndur kylfingur aldarinnar á
Islandi. GSI valdi átta kylfinga og
úr þeirra hópi völdu síðan íþrótta-
fréttamenn Ulfar Jónsson kylfing
aldarinnar.
Fimm karlar og þrjár konur hlutu
tilnefningu og var Vestmannaeying-
urinn Jakobína Guðlaugsdóttir ein
þeirra en hún var eini Vestmanna-
eyingurinn sem komst í átta manna
hópinn.
, Jú, auðvitað er það heiður að lenda
í þessum hópi,“ sagði Jakobína. „Ég
er hvað ánægðust íyrir hönd Golf-
klúbbs Vestmannaeyja með þetta.
Aftur á móti finnst mér það vera
hneyksli aldarinnar hver skyldi vera
valinn kylfingur aldarinnar. Það
gerðu íþróttafréttamenn, með Pál
Ketilsson, formann þeirra, í broddi
fylkingar. Hvemig í ósköpunum þeir
gátu gengið fram hjá Björgvin Þor-
steinssyni í því, skil ég ekki. Björgvin
hefur sex sinnum orðið Islands-
meistari og hann er eini Islending-
urinn sem getur státað af því að hafa
verið í landsliðinu í 30 ár. Hann er
enn á fullri ferð sem einn af okkar
bestu golfleikurum og með fullri
virðingu íyrir öllum öðrum, þá er mér
íyrirmunað að skilja hvernig unnt var
að ganga framhjá honum og finnst
það skandall. Þá finnst mér líka
furðulegt að maður á borð við
Þorbjöm Kjærbo skuli ekki hafa
komist inn á listann yfir þessa átta.
Hann hefði átt þar heima frekar en
sumir aðrir. Ég er mjög ósátt við þetta
val og það skyggir á ánægjuna yftr því
að ég skyldi vera valin í þennan hóp,“
sagði Jakobína að lokum.
Knattspyrna: Bikarkeppnin
Sigur hjá KFS
Sameinað lið Framherja og Smá-
stundar, KFS keppti á þriðju-
daginn gegn liði Barðastrandar í
undankeppni Coca Cola bikar-
keppninnar.
Barðstrendingar hafa aðsetur sitt í
Mosfellsbæ, er samansafn leikmanna
af Stór-Reykjavíkursvæðinu og var
því búist við jöfnum og skemmti-
legum leik. KFS byijaði betur og sótti
mikið en fyrsta mark leiksins skomðu
gestimir eftir vamarmistök KFS. En
áfram héldu Eyjamenn að sækja og
uppskám þrjú mörk fyrir leikhlé.
Seinni hálfleikur var svo áfram eign
KFS og sótti liðið nánast látlaust.
Liðið bætti þremur mörkum við og
var það síðasta einkar fallegt en þar
var að verki Þorsteinn Þorsteinsson,
varamaður sem negldi boltanum upp
við markvinkilinn.
Lokatölur urðu 6-1 og kemst KFS
því í seinni umferð bikarkeppninnar
þar sem liðið mætir Fjölni úr Grafar-
vogi mánudaginn 5. júní á Helga-
fellsvellinum. Þess má geta að Sindri
Grétarsson spilaði með liðinu en hann
hefur gengið frá félagsskiptum frá
IBV. Liðskynning verður á KFS í
næsta blaði Frétta.
Mörk KFS: Sindri Grétarsson 2,
Magnús Steindórsson 2, Stefán
Bragason 1 og Þorsteinn Þorsteins. 1.
Bingó
í Þórsheimilinu í kvöld kl. 20.30.
Aðalvinningur: Dagsferð fyrir tvo til Grænlands á vegum
Flugfélags íslands.
Þrjú Vestm.eyjamet
Ámi Óli Ólafsson úr UMF Óðni er
að gera góða hluti í Falun í Svíjtjóð
þar sent hann hefur stundað nám í
íþróttaskóla. Á laugardag keppti
hann á héraðsmóti í Falun. Aðeins
var keppt í einum karlaflokki, burt-
séð frá aldri, og var hann yngsti
keppandinn á mótinu. Varð hann
að keppa með áhöld, mun Jiyngri en
hans aldri eru ætluð en lét það ekki
á sig fá og setti þrjú Vestmanna-
eyjamet. Þessi varð árangur hans í
þeim þremur greinum sem hann
keppti í:
Spjót 800 gr. 50.44 m 4. sæti
Kringla 2 kg. 30,34 m 4-5.“
Kúla 7,2 kg. 9,84 m 6 “
Guóni Rúnar seldur
Guðni Rúnar Helgason hefur verið
seldur frá ÍBV til norska 1.
deildarliðsins Hönefoss. Guðni
Rúnar átti tæplega eitt ár eftir af
samningnum við ÍBV og hafði Jtað
mikið að segja um söluna. Guðni
sagði í samtali við Fréttir að eifitt
væri að fara frá ÍBV. liðið hefði
reynst honum vel en draumurinn er
náttúrulega alltaf að komast í at-
vinnumennskuna og því hafi hann
látið til skara skríða nú.
Framundan
Fimmtudagur 25. niaí
Kl. 20.00 ÍBV 23 - Keflavík 23
Laugardagur 27. maí
Kl. 14.00 Valur - ÍBV konur
Kl. 14.00 GG - KFS
Sunnudagur 28. maí
KJ. 20.00 Fram-ÍBVkarlar
Miðvikudagur 31. maí
Kl. 20.00 KFS - Hamar/Ægir
Elliði sigraði
Hið árlega Minningarmót um Svein
Arsælsson var á dagskrá GV sl.
laugardag. Þetla var punktakeppni
og tóku 52 þátt í mótinu. Þrír efstu
urðu þessir:
1. Elliði Aðalsteinss 42 p.
2. Leifur Jóhanness. 40 p.
3. Viktor P. Jónsson 40 p.
Holukeppnin
Nú stendur yfir 1. urnferð í
Holukeppni GV og Olís. 1. umferð
skal vera lokið í dag, fimmtudaginn
25. maí, fyrir miðnætti. Þeir sem
ekki hafa þá lokið leik falla úr
keppninni. 1. umferð í öld-
ungaflokki þarf hins vegar ekki að
vera lokið fyn' en 8. júní.
Mótaröðin um helgina
íslenska mótaröðin í golfi, eða
Toyota mótaröðin, verður á
golfvellinum í Eyjum um helgina.
Þetta er fyrsta stigamótið í ár og
gefrtr stig til landsliðs. Alls hafa 75
keppendur skráð sig til leiks, þeima
á meðal flestir af bestu golfleik-
urum landsins. Leiknar verða 54
holur, 36 á laugardag og 18 á
sunnudag.
Komst ekki í landsliðió
Islandsmeistari öldunga í golfi,
Vestmannaeyingurinn Jóhann Pétur
Andersen, sem sigraði á íslands-
ntóti öldunga í fyrra með glæsibrag,
er ekki valinn í landslið öldunga á
þessu ári. Þetta er einsdæmi, ís-
landsmeistarinn hefur fram til þessa
verið sjálfkjörinn í liðið en að þessu
sinni er brugðið út af því. Þeir sem
eru kunnugir málurn fullyrða að
„útkjálkafólk“ sé ekki í náðinni hjá
ráðamönnum landsliðsins, þar nái
radíusinn stutt út fyrir suðvestur-
honiið.