Fréttir - Eyjafréttir - 15.06.2000, Page 13
Fimmtudagur 15.júní2000
Fréttir
13
Arlegt hvítasunnumót SJOVE
Gott fiskirí í góðu veðri
-Kona sló körlunum við og dró stærsta fiskinn
Hvítasunnumót SJÓVE fór fram
laugardag og sunnudag í frábæru
verði. Samtals drógu keppendur
tíu tonn og 726 kíló sem þykir
þokkalegur afrakstur. Sveit Ólafs
Tryggvasonar SJÓVE var
atlahæst karlasveitanna og sveit
Sigfríðar Valdimarsdóttur dró
mestan afla af kvennasveitunum.
Mótið hófst eldsnemma á
laugardagsmorguninn þegar
haldið var á miðin í ágætu veðri.
Komið var að landi um klukkan
tvö eftir hádegi og landað. Veðrið
var ekki síðra seinni mótsdaginn
og voru það þreyttir en ánægðir
keppendur sem mættu til
lokahófsins í Kiwanishúsinu á
sunnudagskvöldið. Þar voru
verðlaun afhent og stóð
skemmtunin langt fram á nótt.
Verðlaun eru mörg og eru veitt
fyrir stærsta fisk, mestan afla,
flesta fiska, stærsta fisk í hverri
tegund og svo framvegis.
Arnþór Sigurðsson dró átta
tegundir og hafði vinninginn á því
sviði, Halla Ingólfsdóttir dró
stærsta fiskinn og var það langa
upp á 16,55 kg. og Pétur
Sigurðsson dró flesta fiska eða 290.
Sævaldur VE undir stjórn
Kjartans Más Ivarssonar var
atlahæsti báturinn með 905,565
kg. eða 301,855 kg. að meðaltali á
stöng.
I sveitakeppninni varð sveit
Sigfríðar Valdimarsdóttur
SJÓAK sigursælust
kvennasveitanna með 895 kg.
Ólafur Tryggvason SJÓVE fór
fyrir aflahæstu karlasveitinni sem
dró 1033,3 kg. Guðrún
Halldórsdóttir SJÓAK var
aflahæsta konan og Pétur
Sigurðsson SJÓAK dró mest
karlanna, 350,6 kg. og var hann
jafnframt aflahæsti cinstaklingur
mótsins. Aflahæsti Eyjamaður var
Ólafur Tryggvason sem dró 348,4
kg-
ÞREYTTUR en ánægður
keppandi.
sjóstönginni.
TAKK fyrir daginn!!