Fréttir - Eyjafréttir - 24.08.2000, Side 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 24. ágúst 2000 * 34. tölublað * Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
VEÐRIÐ hefur leikið við Eyjamenn undanfarnar vikur og þó þokan hafi látið á sér
kræla alltaf af og til hefur sólin oftar en ekki haft sigur. Þessa skemmtilegu mynd af
átökum sólar og þoku tók Sigmar Þröstur Óskarsson þar sem þokan læddist yfir
hafflötinn en eyjar og land stóðu upp úr. Hér trónir Bjarnarey upp úr þokunni en
toppur hennar er baðaður kvöldsólinni.
Evrópukeppni félagsliða:
Erfiður leikur gegn
Hearts í kvöld
-Þrír lykilmenn sitja heima vegna meiðsla
ÍBV mætir í kvöld skoska liðinu
Hearts í Evrópukeppni félagsliða og
hefst leikurinn klukkan 18.45. Þetta
er seinni leikur liðanna en þeim
fyrri, sem fór fram á Laugardals-
vellinum, lauk með 0 - 2 sigri Skot-
anna.
Kristinn R. Jónsson, þjálfari IBV,
segir að Eyjamenn eigi þama erfitt
verkefni fyrir höndum. „Það er alveg
ljóst að þetta verður mjög erfiður
leikur fyrir okkur,“ sagði Kristinn.
„Við töpuðum 0 - 2 heima sem er ekki
gott veganesti í þessari keppni þar
sem mikilvægast er að tapa ekki
heimaleiknum. En fyrirfram er þetta
alls ekki búið. Við munum berjast
fyrir því að komast áfram allt þar til
leikurinn verður flautaður af.
Fótboltinn er nú einu sinni þannig að
það getur allt gerst á góðum degi.“
Hveijar verða áherslumar í leiknum?
„ Við megum náttúrulega alls ekki fá
á okkur mark, það er fyrir öllu. Það er
okkur ekki í hag að opna leikinn strax
og fá kannski á okkur mark strax í
byrjun. En mér fannst við sýna það í
fyrri hálfleik í heimaleiknum að við
getum alveg haft í fullu tré við þá.
Við ætlum fyrst og fremst að hafa
gaman af þessu og svo kemur bara í
ljós í lok leiksins hvar við stöndum."
sagði Kristinn að lokum.
Tryggvi Már Sæmundsson, útvarps-
maður, fylgir ÍBV til Skotlands og
sagði hann í gær að hópurinn hefði
lent í Glasgow um klukkan 11 í
gærmorgun að staðartíma. Æfing var
í gærkvöldi en leikurinn fer fram í
kvöld. Þrír fastamenn í liðinu sitja
heima vegna meiðsla, Hjalti Jóhann-
esson, Kjartan Antonsson og Tómas
Ingi Tómasson. Það kemur í hlut
yngri leikmanna að fylla þessi skörð.
Viðbótarskattur sem kemur harka
legast niður á landsbyggðarfólki
-segir Lúðvik Bergvinsson um flugleiðsögugjaldið sem hann mótmælti í samgöngunefnd
í vor samþykkti Alþingi breytingar
á loftferðalögum, en samfara þeim
var ákveðið að leggja á svonefnd
flugleiðsögugjöld, sem ráðgert var
að skilaði Flugmálastjórn um 30
milljónum í viðbótartekjur í ár og
allt að 200 milljónum á næsta ári.
Flugleiðsögugjaldið hefur valdið
megnri óánægju, ekki síst fyrir þá sök
að gjaldtakan leiddi til hækkunar far-
gjalda í innanlandsfluginu. Lúðvík
Bergvinsson, þingmaður Samfylking-
arinnar, sem sæti á í samgöngunefnd,
sagði að Samfylkingarmenn í nefnd-
inni hefðu mótmælt gjaldtökunni
harðlega. „Það varð mikil umræða í
samgöngunefnd um þetta mál, en allt
kom fyrir ekki. Rökin fyrir gjaldinu
voru að flugið fjármagni rekstur
Flugmálastjómar. Það segir sig hins
vegar sjálft að gjaldið er ekkert annað
en viðbótarskattur á neytendur og
kemur harkalegast niður á lands-
byggðarfólki.'1
^ Lúðvík sagði að Flugfélag Islands,
Islandsflug og Samtök ferðaþjón-
ustunnar hafi mótmælt þessu og talið
að tap á innanlandsfluginu væri nóg,
þó að ekki kæmi til slík gjaldtaka.
„Innanlandsflugið hefur verið rekið
með tapi og þolir ekki slíkar álögur.
Við bárum fram breytingartillögu í
nefndinni, um að hætt yrði við gjald-
tökuna. Hins vegar greiddi minni-
hlutinn atkvæði með einstökum
greinum frumvarpsins, en ekki frum-
varpinu í heild sinni.“
Lúðvík sagði málinu væri ekki þar
með lokið af hálfu minnihlutans.
„Við munum leggja fram tillögu í
haust um að gjaldið verði afnumið,"
sagði Lúðvík.
Ákvörðun stjómvalda
ÞorgeirPálsson, flugmálastjóri, sagði
flugleiðsögugjaldið ákvörðun sem
tekin væri af stjómvöldum og Flug-
málastjóm væri uppálagt að inn-
heimta. Þorgeir sagði þetta nýtt gjald
og algerlega nýjan tekjustofti sem ekki
hafi verið nýttur áður. „Flugleiðsögu-
gjald er innheimt í öllum löndum
Vestur Evrópu og að baki gjaldinu
liggja sömu útreikningar og tíðkast
þar,“ sagði Þorgeir. „Framlagið til
stofnunarinnar hefur verið lækkað í
samræmi við áætlaðar tekjur af þessu
nýja gjaldi. Stofnunin er því ekki að
græða neitt á þessu.“
Þorgeir sagðist ekki vilja leggja mat
á sanngimi gjaldtökunnar í ljósi
þeirrar gagnrýni sem uppi hefði verið
vegna hækkunar fargjalda. „Það er
kostnaður á móti því sem er innheimt.
Það er meginsjónarmið að gjöld séu
ekki innheimt nema kostnaður liggi að
baki öllum gjöldum sem eru innheimt
í samræmi við reglur Alþjóðaflug-
málastofnunarinnar," sagði Þorgeir
Pálsson flugmálastjóri.
Ekki náðist í Áma Johnsen, formann
samgöngunefndar, áður en blaðið fór í
prentun.
Skipstjóra-
vaktin
Víkingaskipið íslendingur er
væntanlegt á morgun til
Halifax í Kanada frá Ný-
fundnalandi. Móttökur hafa
verið stórkostlegar og langt
umfram það sem þeir áttu von
á sjálfir. Myndin er tekin á
þriðjudaginn eftir að lagt var af
stað til Halifax og er þetta
skipstjóravaktin, Elías
Jensson, Gunnar Marel
skipstjóri, Herjólfur Bárðarson
og Stefán Geir Gunnarsson.
ÍM.
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga. kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferðir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
4$Herjólfur
Sími 481 2800 - Fax 481 2991