Fréttir - Eyjafréttir - 24.08.2000, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 24. ágúst 2000
Enn hækka
flugfargjöld
-vegna mikilla kostnaðarhækkana og nýrra opinberra gjalda
-Lægsta fargjald milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja fór úr 7.730
krónum upp í 8.530 en hæsta fargjald fer úr 11.130 í 12.330 krónur
Innbrot
I síðustu viku voru 150 færslur í
dagbók lögreglu. Er það heldur
meira en í vikunni þar á undan.
Meðal þess sem tilkynnt var til
lögreglu var innbrot og þjófnaður
sem líkast til hefur átt sér stað á
þjóðhátíð. Farið hafði verið inn í
íbúð í bænum meðan eigandinn var
erlendis í fríi. Lítið var skemmt en
eitthvað hvarf af hlutum ur íbúð-
inni.
Skemmdarverk
Tvö skemmdarverk voru tilkynnt
lögreglu í vikunni. Farið vai' inn í
bifreið sem stóð við Birkihlíð 8 og
skemmdir unnar á henni. Þá var
brotin rúða að Hásteinsvegi 3. Ekki
er vitað hverjir þarna voru að verki
og biður lögregla þá sem geta gefið
upplýsingar um þessi skemmdar-
verk að hafa samband.
Bókanir og kærur
Alls vom 34 bókanir úr umferðinni
og 21 aðili lékk á sig kæru vegna
brota á umferðarlögum. Flestir
þeirra fengu kæru lyrir vanrækslu á
að færa ökutæki til skoðunar á
tilsettum tíma. Einn ökumaður var
stöðvaður fyrir að virða ekki
stöðvunarskyldu og annar fyrir brot
á biðskyldu og að gefa ekki stefnu-
merki. Einn var skrifaður niður
fyrir að leggja bifreið sinni öfugt
miðað við akstursstefnu og einn
kærður fyrir of hraðan akstur. Eitt
umferðaróhapp var tilkynnt lög-
reglu en það var minniháttar og
leystu ökumenn það sín á milli.
Ljós og hjólmar
Nú er tekið að dimma á kvöldin.
Vill lögregla minna á að þeir sem
eru á reiðhjólum, þegar birtu er
tekið að bregða, verða að hafa
sérstakan Ijósabúnað á reiðhjólinu
og hann verður að vera í lagi. Þá
skal enn og aftur minnt á að þeir
sent eru 15 ára og yngri verða að
hafa reiðhjólahjálm á höfði. Þó svo
að það sé ekki skylda hjá fólki sent
er 15 ára og eldra, mælir lögregla
þó með notkun hjálma vegna þess
öryggis sem í því felst.
Umferðarskólinn
Umferðarskólinn Ungir vegfar-
endur verður haldinn í Vest-
mannaeyjum í dag og á morgun,
(24. og 25. ágúst). Skólinn er fyrir
alla krakka á aldrinum fimm til sex
ára og verður að þessu sinni í
Bamaskólanum. Skólinn verður frá
kl. 11 -12, báðadagana, fyrirfimm
ára börn og kl. 14 - 15 fyrir sex ára
börn. Ef annar tíminn hentar betur
en hinn, má koma á þeim tíma þar
sent farið verður yfir sama efni.
Lögregla hvetur foreldra til að mæta
nteð böm sín í umferðarskólann og
gera þau með því að betri veg-
furendum.
Lok Golfskólans
Golfskóli GV hefur verið starf-
ræktur í suntar og aðsókn verið með
miklurn blóma enda golfíþróttin í
mikilli sókn. Nú er komið að
lokum og verður síðasti kennslu-
dagur á morgun, föstudag. Sunnu-
daginn 3. september er svo fyrir-
hugað að halda lokamót lýrir
nemendur skólans með aðstoð
foreldra.
Flugfélag íslands hækkar almenn
fargjöld sín í innanlandsfiugi að
meðaltali um tæplega 10% frá og
með 21. ágúst. Meginástæður
hækkunarinnar eru eldsneytisverð-
hækkanir sem hafa komið mjög illa
niður á afkomu innanlandsflugsins
og aukin skattheimta hins opinbera
nú á seinni hluta ársins. Velta
félagsins fyrstu sex mánuði ársins
var 30% meiri en á sama tíma í
fyrra.
Ami Gunnarsson, sölu- og mark-
aðsstjóri sagði að mikil áhersla hafi
verið lögð á að rétta af rekstur Flug-
félagsins með markaðssókn og hag-
ræðingaraðgerðum. „Eldsneytisverð-
hækkanir sem kostuðu félagið 45
milljónir króna á fyrri hluta ársins og
ný flugleiðsögugjöld í innanlandsflugi
sem kosta fyrirtækið 40 milljónir á ári
hljóta að koma fram í verðlagi. Af-
koma í innanlandsflugi á Islandi hefur
verið slæm og reksturinn ber ekki
auknar álögur af þessu tagi. Fyrir flug
til Vestmannaeyja, í krónum talið, var
lægsta fargjald milli Reykjavíkur og
Vestmannaeyja 7.730, en hækkar upp
í 8.530, en hæsta fargjald fer úr 11.130
112.330.“
Ami sagði ný llugleiðsögugjöld
hins opinbera nema 3-4% af innan-
landstekjum félagsins í innan-
landsflugi. „Þessi kostnaður leggst
hlutfallslega þyngst á rekstur smærri
flugvéla og gerir rekstur þeirra enn
erfiðari en ella, en jretta gjald er miðað
við fjölda ferða til hvers staðar.
Eldsneytisverð hefur áfram hækkað á
heimsmarkaði og þetta hefur að sjálf-
sögðu mikil áhrif á rekstur Flugfélags
íslands, eins og annarra flugfélaga.
Verð á flugvélaeldsneyti er nú
rúmlega helmingi hærra en á sama
tíma í fyrra.“
Ami benti á að vonir hafi staðið til
að verð á eldsneyti lækkaði, en litlar
líkur væru nú taldar á vemlegurn
lækkunum á næstunni. „Markaðssókn
Flugfélags Islands hefur skilað vem-
legum árangri síðustu mánuði. Velta
félagsins fyrstu sex mánuði ársins var
30% meiri en á sama tíma á síðasta
ári. Vonir stóðu því til að afkoma
fyrirtækisins myndi batna milli ára.
Eldsneytishækkanir hafa gert þær
vonir að engu og afkoman hefur farið
versnandi. Til viðbótar þarf félagið að
fást við miklar launahækkanir og
nýjar álögur hins opinbera. Því steftiir
í tap á árinu og félagið verður því að
grípa til þessara aðgerða til að rétta
stöðuna við,“ sagði Ami.
Fjögurra milljóna króna
skattur á Eyjamenn
Jón Karl Olafsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags Islands, sagði hvað varðar
nýálögð flugleiðsögugjöld að þau
næmu 4 til 5 prósentum af farþega-
tekjum , en eldsneytiskostnaður væri
um 15 prósent. „Það var gengið út frá
lækkun eldsneytiskostnaðar á þessu
ári, en fyrir viku síðan var elds-
neytiskostnaðurinn kominn í sögulegt
hámark. Þannig að við erum ekki að
sjá neina vemlega lækkun í þeim lið á
næstunni, en eldsneytiskostnaður er
helmingur af útlögðum kostnaði."
Jón Karl sagði að gjöld til hins
opinbera vegna innanlandsflugsins
næmu nú um 120 til 130 millljónum.
„Þetta em tíu prósent af rekstar-
kostnaði félagsins og nú las í ég í
Morgunblaðinu 1 gær grein eftir
Kristján Möller alþingismann þar sem
hann segir þessa upphæð um 200
milljónir, sem þýðir að gjöld til hins
opinbera nema um 10 prósent af
rekstarkostnaði félagsins.“
Um heildarupphæð flugleiðsögu-
gjalda vegna flugs til Vestmannaeyja,
sagði Jón Karl að erfítt væri að finna
ákveðna tölu. „Miðað við ljölda
ferða, hlutfalls vegalengdar og sæta-
nýtingar þá má mjög gróflega áætla
þessa upphæð um fjórar milljónir, sem
er um tíu prósent af af heildar-
upphæðinni sem rennur til ríkisins."
Rúmar 5,6
milljónir í
ágóðqhlut
frá EBÍ
Stjóm Eignarhaldsfélagsins Bruna-
bótafélag íslands hefur ákveðið á
gmndvelli samþykkta fulltrúaráðs
félagsins að greiða aðildar-
sveitarfélögum sínum samtals 140
milljónir króna 1 ágóðahlut í ár.
Greiðslan er í sanrræmi við eign-
araðild þeiira að Sameignarsjóði
EBI. Vestmannaeyjabær fær
greiddar rúrnar 5,6 milljónir króna
og önnur sveitarfélög á Suðurlandi
fá samtals greiddar rúmar 13
milljónir króna.
I samræmi við samþykktir fé-
lagsins mælast stjóm og fulltrúaráð
EBÍ til þess við sveitarfélögin að
þau verji framlaginu meðal annars
til forvarna. greiðslu iðgjalda af
tryggingum sveitarstjóma og
bmnavarna í sveitarfélaginu.
Ágóðalilutur aðildarsveitaifélag-
anna frá EBÍ hefur orðið til þess að
nokkur sveitarlelög munu endur-
nýja slökkvibifreiðar sínar á næst-
unni.
EBÍ hefur uin langt skeið greitt
aðikkirsveitarfélögum framlag til
ágóðahlutar af starfsemi sinni.
Slíkar greiðslur hófust árið 1934
með samningi Brunabótafélags
íslands við sveitarfélög um fjár-
mögnun slökkvitækja. Árið 1955
var gefin út sérstök reglugerð um
þessar greiðslur, og aftur árið 1985.
Á síðustu þremur árum hafa
aðildarsveitarfélögin fengið samtals
um 380 milljónir króna greiddar 1
ágóðahlut. Frá upphafi hefur EBÍ
því greitt hundmð milljóna króna til
aðildarsveitarfélaga, miðað við
verðlag í dag.
Gufumenn biðjast
velvirðingar
í viðtali við Gufuntenn í ÚVAFF
s.l. fimmtudag kom fram að Fréttir
hafi ekki haft rétt eftir Gufu-
mönnum yarðandi pistil út-
varpsstjóra ÚVAFF þar sem hann
sagði orðrétt „...ríki og bær bera
kostnaðinn en uppamir stinga af
með seðlana.*1
I grein Frétta í sl; viku kom fram
að Útvarpsstjóri Úvaff héldi því
fram að Gufutnenn fengju sendinn
frían (ríki og bær bera kostnaðinn)
og Gufumenn hagnast (...og
uppamir stinga af nteð seðlana)
Þetta er að sjálfsögðu engan
veginn rétt hjá honum þar sem
Gufan leigir útvarpssendinn af
Félagsnriðstöðinni sem og ber
kostnað af öllum rekstrinum.
Vilja Gufumenn biðjast velvirð-
ingar á þessum ummælum sínum í
viðtalinu og jafnframt þakka
Fréttunr velvilja í blaði sínu, ekki
stóð til að kasta rýrð á ritstjóm
Frétta.
Virðingarfyllst Tryggvi Már og
Ólafur Jóhann.
• j . ;
1 1
. ' * 1
♦ 0 • i '11
m
Á dögunum komu nokkrir afkomendur Þorsteins Jónssonar læknis til Eyja til þess að vitja uppruna síns.
Þorsteinn Jónsson bjó í Landlyst, en þessi mynd er tekin fyrir framan húsið þegar afkomendur Þorsteins
skoðuðu hið forna heimili hans, sem nú hefur verið endurreist á Skanssvæðinu. Fr.v. Kay Matlock fædd
í Bandaríkjunum og býr þar, Bogi Sigurðsson, Haukur Sigurðsson, Margrét Ólöf fædd í Bandaríkjunum
og býr í Texas, en hún hafði frumkvæðið að heimsókninni til Eyja, Ragnheiður Sigurðardóttir og Þórdís
Árnadóttir. Ungu stúlkurnar fremst á myndinni heita fr. v. íris Jensdóttir, sem býr í Noregi og
Alexandra Evudóttir sem býr í Eyjum
FRETTIR
Útgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í l_ausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar f 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið