Fréttir - Eyjafréttir - 24.08.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 24. ágúst 2000
Bókvitið
'askana
Orðaklósettpappír
Mig langar að byrja á að þakka
þessum klára ketti kærlega fyrir
áskorunina en held því miður að hann
hafi skotið sig í fótinn þegar hann
skoraði á mig. Pappírsbækur munu
hverfa af sjónarsviði okkar sem
daglegur hlutur í nánustu framtíð.
Engar bækur verða til nema þá
kannski á þjóðminjasafninu til
minningar um þá tíma þegar fella
þurfti mörg tré til að prenta eina bók.
Auðvitað mun texti bókanna lifa
áfram og rithöfundar munu ekki
hverfa, þó þar megi aðeins grisja. I
framtíðinni munu skjáir ýmiss konar
koma í stað pappírsbóka og ef þú eða
ég viljum lesa einhverja bók mun ég
tengjast netinu og sækja þessa bók á
litlu sætu tölvuna mína. Þessi þróun
er reyndar þegar haftn og nýlega gaf
Stephen King út bók sem einungis
var hægt að lesa á netinu, hún var
ekki prentuð. Eg spái því til dæmis að
eftir 20 ár munu Fréttir, Morgun-
blaðið og DV ekki koma út á
prentuðu formi.
En það var ekki þetta sem ég á að
skrifa um. Ég á væntanlega að skrifa
um það sem ég les og þar er nú ekki
um mjög auðugan garð að gresja. Þó
hef ég nú lesið ýmsar af frægari
bókmenntaverkum íslendinga eins og
Laxdælu og Brekkukotsannál. Þessar
bækur eru, eins og allir vita sem hafa
lesið þær, afbragðs vel skrifaðar og
mannbætandi lesning. Öðru máli
gegnir um svokallaðar afþreyingar-
bókmenntir en það eru ástarsögur og
glæpasögur sem eru ekkert betri en
sjónvarpsþættir á Stöð 2. Sem betur
fer hef ég ekki lesið mikið af þessum
ástarsögum en horfi því meira á
þættina sem gerðir eru eftir þeim.
Skör lægra en afþreyingarbókmennt-
imar sitja svo tímarit. Auðvitað
finnast inn á milli góð og gild tímarit
en þegar öllu er á botninn hvolft eru
þetta ekkert betri bókmenntir en
orðaklósettpappír. Ég verð þó að
viðurkenna að ég hef fallið í þá gröf
að kaupa tímarit en á aðeins öðrum
forsendum en margir aðrir. Ég kaupi
tímaritin aðallega til þess að skoða
þau, ekki til að lesa. Tímarit eins og
Wallpaper og Flaunt em glanstímarit
mynda og leturgerða sem mér finnst
mjög flottar en samkvæmt minni
reynslu þá em tímaritin efnisminni og
verr skrifaðri því flottari sem þau em.
Annað en ofantalið sem ég les er
heldur lítið utan skólabækumar sem
ég les nauðugur, þó inn á milli leynist
snilldar gullmoli. Auðvitað væri
hollast að lesa meiri texta, því að lesa
er virk afþreying, þ.e. lesandinn þarf
að ímynda sér myndir sem
rithöfundurinn hafði í huga þegar
hann skrifaði hana. Öðm máli gegnir
um sjónvarpsgláp og spil í tölvu-
leikjum þar sem neytandinn situr og
lætur algjörlega mata sig á ýmissi
vitleysu. Að lokum vil ég vitna í
heimspekinginn Schopenhauer: „Það
er aldrei lesið of lítið af hinu illa eða
of mikið af hinu góða. Vondar bækur
eitra lífið og skemma sálina. Lestur
hins góða hefur í för með sér að menn
lesa ekki hið illa. Lífið er stutt og
tíminn og kraftamir eru of takmark-
aðir til að sólunda í lestur hins illa.“
Ég skora á Erlend Jónsson því ég
veit ekki um nokkurn mann sem á
fleiri bækur en hann.
Góðhjartaður inn við beinið
Einn af sérstæðustu persónuleikum
bæjarins er að hætta störfum vegna
aidurs, þótt ekki sjái þess merki á
honum, vallavörðurinn Siggi í Húsavík.
Hann verður sjötugur í desember og á
þá lögum samkvæmt að hætta. Þó segir
hann að líkast til fái hann að halda áfram
fram í janúar til að koma nýjum manni
inn í starfið. Á árum áður var Siggi líka
mikil driffjöður í frjálsum íþróttum ÍEyjum.
Siggi í Húsavík er Eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn ? Sigurður Jónsson.
Fæðingardagur og ár? 22. desember
1930.
Fæðingarstaður? í Litla-Skálholti
Vestmannaeyjum
Fjölskylduhagir? Ég er einn eftir í
Eyjum en sex systkin í Reykjavík
Menntun og starf?
Þrautgenginn úrskóla
lífsins, byrjaðiað vinna
strax eftir barnaskóla.
Hef verið vallavörður í Eyjum frá
1965, tók við af Torfa Bryngeirs.
Laun? Nú fer að koma að
eftirlaununum.
Bifreið? Engin í eigin eigu, bærinn
hefurséð fyrir vinnutæki.
Helsti galli? Ætli það sé ekki
þvermóðskan.
Helsti kostur? Strákarnir í Valló-
genginu segja að ég sé góð-
hjartaður inni við beinið.
Uppáhaldsmatur? Sigin ýsa með
kartöflum og floti.
Versti matur? Mér þykir flestallur
maturgóður, kannski síst hænsna-
fóður á borð við pizzur.
Uppáhaldsdrykkur? Mér þykir
gott að fá mér smáhressingu
einstaka sinnum, koníakssnafs til
dæmis.
Uppáhaldstónlist? Ég hef alltaf
haldið upp á Benjamino Gigli og
Mario Lansa.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að hlaða veggi og svo er gaman
meðan sláttur stendur yfir.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Mér hefur
alltafþótt gaman að öllu.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Ég held ég tæki þvínú bara rólega.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Nei, þeir eru allir
horfnir.
Uppáhaldsíþróttamaður? Örn Clausen var topp-
maðurá sínum tíma.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Ég var og
tel mig enn vera í Knattspyrnufélaginu Tý.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fótboltinn.
Uppáhaldsbók? Éger frekar lélegur í bóklestri.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Dugnað og
vinnusemi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Leti
og sérhlífni.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Eyjan er alltaf falleg,
sérstaklega Heimaklettur sem ég
alltaf horfi á á sunnudags-
morgnum. Svo er líka fallegt inni í
Kaplagjótu.
Hvenær byrjaði áhugi þinn á
frjálsum íþróttum? A þjóðhátíð
1937, þá var ég sjö ára gamall, þá
setti Siggi í Húsunum íslandsmet,
nýkominn af Ólympíuleikum, stökk
13,76 íþrístökki.
í hvaða grein kepptir þú aðal-
lega? Ég varí flestöllu, mestþó í
kúlunni en hvatti menn til að æfa
frjálsar íþróttir.
Hvernig standa frjálsar íþróttir í
Eyjum í dag? Þær hafa verið
mjög slappar.
Hverju sérðu mest eftir, þegar
þú hættir í starfi? Ég á eftir að
sakna mannskapsins, þetta hafa
verið mjög góðir peyjar sem ég
kveð með söknuði og þakklæti.
Eitthvað að lokum? Áfram ÍBV.
Nýfæddir <?cf
Vestmannaeyingar
Þann 4. ágúst eignuðust Hulda Ástvaldsdóttir og ísleifur Arnar
Vignisson son. Hann vó 11 merkur og var 49 cm að lengd. Hann er
hér á mynd með móður sinni Hann fæddist á fæðingardeild
Landsspítalans í Reykjavík. Ljósmóðir var Edda Jóna Jónsdóttir.
Þann 6. ágúst eignuðust Bryndís Bogadóttir og Pétur Andersen son.
Hann vó 16 Vi mörk og var 55 cm að lengd. Ljósmóðir var Drífa
Bjömsdóttir
Orðspor___________________ jtr
- Mikið hefur verið fjallað um girðingamál og búfjárhald í Eyjum í sumar og reyndar
í fyrra líka. Virðist sem girðingar eigi hug manna allra nú um stundir. Þykir
mörgum girðingagleði Eyjamanna all undarleg sérstaklega í Ijósi þess að þegar litið
er til umheimsins hafa menn heldur viljað brjóta niður múra og girðingar. Á
meðan menn fagna til dæmis niðurbroti Berlínarmúrsins, þá girða menn í Eyjum
sem aldrei fyrr. Síðustu afrek á girðingarvettvangi áttu sér stað fyrir austan
flugvöllinn á móts við Dalabúið, sitt hvoru megin vegar upp á flugvöll. Það er
kannski að bera í bakkafullan lækinn að amast við gaddavír og neti á meðan ekki
er leitt rafmagn í móverkið, en mörgum finnst þó helst langt til gengið þegar
vegstikur gular að lit með rauðum toppi og endurskinsmerkki eru notaðar í
girðingarstaura. En ekki er annað að sjá en slíkar stikur hafi verið notaðar í téða
girðingu. Óttast menn nú slysahættu þegar bílstjórar í slæmu skyggni glepjast
hugsanlega á vegstikum og girðingarstaurum. Þykir jafnvel sumum að
girðingajöfrar þeir sem staðið hafa fyrir téðri girðingu hefðu kannski getað hengt
gaddavír og net beint á vegstikurnar.
Á döfinni 4*
24. ágúst Setning Framhaldsskólans
26. ágúst Sparísjóðsmótið í golfi
1. sept. Setning Bamaskóla Vestmannaeyja
1. sept. Setning Hamarsskóla
14. olct. Eyjar2010.