Fréttir - Eyjafréttir - 24.08.2000, Síða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 24. ágúst 2000
Nýr jarðskjálftamælir og GPS landmælingatæki tekin í notkun í Eyjum:
Samfellt eftirlit með
íarðskorpuhreyfingum
Búið er að setja niður nýjan
jarðskjálftamæli og GPS land-
mælingatæki í Eyjum, en þessi
búnaður leysir af hólmi jarð-
skjálftamælinn sem staðsettur
hefur verið austur á Nýjahrauni.
Tækin eru sett upp að frum-
kvæði Náttúrustofu Suðurlands,
en fjármögnuð af Viðlagatrygg-
ingu, Vestmannaeyjabæ, Veður-
stofunni og Náttúrustofu Suður-
lands. Jarðskjálftamælirinn er
staðsettur í hlíðinni fyrir ofan
Spröngu en GPS tækið er í
Helgafellshrauni, nánar tiltekið á
Brekkuhúsum og hófust mæl-
ingar með því þann 27. júlí sl.
Mjög viðkvæm tæki
Ármann Höskuldsson, eldfjalla-
fræðingur og forstöðumaður Náttúru-
stofu Suðurlands, sagði að með upp-
setningu þessara tækja væri öryggi
Eyjamanna mun tryggara, gagnvart
hreyfingum og breytingum á jarð-
skorpunni sem liugsanlega gætu verið
undanfari stærri hamfara. „Það eru
tvær vikur síðan jarðskjálftamælirinn
var settur upp, en GPS tækið var tekið
í notkun 27. júlí sl. Jarðskjálftamælir-
inn er í prufukeyrslu, en að henni lok-
inni verður opnuð vefsíða þar sem
frummæliniðurstöður verða gerðar að-
gengilegar í rauntíma. Það eru alltaf
einhverjar hreyfingar á jarðskorpunni,
en jarðskjálftamælirinn er viðkvæmur
gagnvart hreyfingum sem geta stafað
af umferð, bæði á láði, legi og í lofti."
Ármann sagði að GPS tækið væri
fúllkomnasta mælitæki sem völ væri á
í heiminum í dag. „Tæki sem þetta til
Ármann við jarðskjálftamælinn sem er staðsettur á móbergsklöpp
ofan við Sprönguna.
að fylgjast með hreyfingu jarðskorpu-
nnar gerist hvorki dýrara, né ná-
kvæmara. Auk þess er það mjög við-
kvæmt. Það má ekkert koma við það
og ég vil ítreka öryggisþáttinn í því
sambandi. Það eru mjög viðkvæmar
stillingar sem ekki má raska né verða
fyrir hnjaski. Þess vegna vil ég biðja
fólk sem er á gangi á svæðinu að láta
tækið í friði. Einnig er rétt að árétta að
tækið er á friðuðu landi svo að
búfénaður á ekki að geta nálgast
tækið, en það er að sama skapi
hættulegt ef að skepnur fæm að nudda
sér upp við það. Tækið er hluti af
sólarhrings vöktunarkerfi Veður-
stofunnar og mælir út hreyfingu jarð-
skorpunnar og er upplýsingum, sem
tækið safnar, komið áleiðis í gegnum
gervihnött til Veðurstofu íslands, en
það er dr. Þóra Ámadóttir sérfræð-
ingur Veðurstofunnar í GPS mæling-
um sem mun sjá um að túlka gögn
sem berast frá tækinu."
Ármann sagði að nákvæmni GPS
tækisins væri mjög mikil. „Gögn em
send sjálfvirkt til Veðurstofu Islands,
en tækið byggir á langtímamælingum
og nemur hreyfingu sem er innan við
sentimetra, en það er frávikið frá því
sem kalla má eðlilega hreyfingu jarð-
skorpunnar, sem segir vísinda-
mönnum hvað er að gerast,“ sagði
Ármann.
Samfelldar mælingar
Dr. Þóra Ámadóttir jarðeðlisfræðing-
ur, sem sér um að túlka gögn og
niðurstöður mælinga GPS tækisins,
sagði að nú væm átta GPS stöðvar á
landinu sem reknar séu af Veðurstofu
Islands og allar staðsettar sunnan-
lands. „Stöðvamar em á svæði sem
nær frá Reykjavík allt austur fyrir
Mýrdalsjökul. Fyrstu fjórar stöðv-
amar vom settar upp á Hengilssvæð-
inu í framhaldi af jarðskjálftum árið
1998 og hugsanlegu landrisi á því
svæði. Tvær stöðvar vom svo settar
upp á Kötlusvæðinu eftir umbrot á því
svæði og hlaup í Jökulsá á Sólheima-
sandi í fyrrasumar. I maí á þessu ári
var svo sett upp stöð suður af
Eyjafjallajökli og nú síðast í Vest-
mannaeyjum, en fýrirhugað er að setja
annað tæki upp á þessu ári á Skrokk-
öldu vestan Vatnajökuls."
Þóra sagði nákvæmni GPS mæling-
anna vel innan við einn sentimetra.
„Tækið nemur láréttar hreyfingar til
norðurs og austurs, auk lóðréttrar
hreyfingar jarðskorpunnar. Mæl-
ingamar em nú miðaðar við fastan
punkt í Reykjavik, en hægt er að bera
þær saman við aðrar stöðvar, ef
einhver óvenjuleg færsla á sér stað.
Tækið nemur merki frá gervihnöttum
sem em í 20.000 km hæð og skráir
þau á 15 sekúndna fresti. Síðan er
hringt í tækið frá Veðurstofunni á
tuttugu og fjögurra stunda fresti og
náð í gögn og þau sett í úrvinnslu.
Það hefur sýnt sig að til þess að geta
túlkað niðurstöður þurfa mælingar að
hafa staðið í amk eitt ár, meðal annars
til þess að geta útilokað tmflanir ffá
jónahvolfi og veðrahvolfi.“
Þóra sagði að GPS kerfið væri eftir-
litskerfi sem byggði á samfelldum
mælingum og skráningu. „Þetta er ný
tegund mælinga og aðeins um árs
gamalt hér á landi, en það sem við
höfum séð fram að þessu em meiri
hreyfingar en við áttum von á,
stundum þó án þess að um
skjálftavirkni sé að ræða,“ sagði Þóra.
Hægt er að sjá fyrstu niðurstöður GPS
mælinga á vefsíðu Veðurstofunnar:
http://www.vedur.is/ja/gps.html
Sumarstúlka
Eskimo-
models 2000
Sumarstúlka Eskimomodels er
valin einu sinni á ári. Lilja Nótt
Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri
Sumarstúlku Eskimomodcls 2000,
var stödd í Eyjum í síðustu viku að
undirbúa þá fjóra þátttakendur frá
Eyjum sem skráðu sig á námskeið
Eskimomodels, en þær eru:
Thelma Ýr Tómasdóttir, Ásta
Hrönn Guðmannsdóttir, Sigríður
Osk Jcnsdóttir og Valgerður Erla
Óskarsdóttir. Þátttakendurnir
fóru á námskeið og skiluðu inn Ijós-
myndum af sér, en ein stúlknanna
kemst svo áfram í aðalkeppnina,
sem haldin verður 1. september nk.
í Reykjavík.
Lilja Nótt segir að námskeiðið sé
haldið fyrir stelpur sem áhuga hafa á
módelstörfum og sem vilja auka
sjálfstraustið, en á námskeiðunum er
farið í tjáningu og framkomu. „í
sumar hafa líklega um hundrað
stelpur víðs vegar að af landinu komið
á námskeið hjá okkur,“ sagði Lilja
Nótt. „Vestmannaeyjar eru síðasti
staðurinn að þessu sinni þar sem
námskeið er haldið, en námskeiðin
voru haldin á Hressó. Námskeiðin
hafa verið helsta leiðin til þess að fá
nýjar stúlkur til liðs við okkur. Ein
stúlka af hverju námskeiði er svo
valin til þess að taka þátt í sumar-
stúlkunni 2000.“
Að lokinni ljósmyndatöku á föstu-
daginn var haldin tískusýning á Café
Maríu. „Stúlkumar sýndu nýju
vetrarlínuna frá versluninni Smart, en
Vala hjá Snyrtistofunni Anítu var með
fræðslu um förðun og umhirðu
húðarinnar."
Lilja Nótt á nokkum feril að baki
sem módel, en em módelstörfin í
samræmi við það sem þú bjóst við?
,£g starfaði bæði á íslandi og Mflanó
á Italíu. Það kom mér mest á óvart
Stúlkurnar fyrir framan Café Maríu ásamt Lilju Nótt. Fr.v. Ásta Hrönn Guðmannsdóttir, Thelma Ýr
Tómasdóttir, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Sigríður Ósk Jensdóttir og Valgerður Erla Óskarsdóttir.
hvað þetta var miklu meiri vinna en
ég hélt. Þegar maður er yngri sér
maður módelstörfin fyrir sér dálítið
sykurhúðuð, en ekki þar fyrir að ef
stúlkur hafa áhuga á módelstörfum er
um að gera að reyna, því þetta er mjög
skemmtilegt starf. Ef stúlkur hafa
áhuga á þessum bransa finnst mér að
þær ættu tvímælalaust að láta reyna á
það. Margar stúlkur sem prófa þetta
komast kannski að því síðar að starfið
sé ekki eins og þær áttu von á og detta
út. Það má eiginlega segja að viljinn
sé allt sem þarf, en auðvitað eru líka
gerðar ákveðnar grundvallarkröfur til
stúlknanna. En staðfestan í því að
vilja standa sig vel og vinna mikið er
grundvallaratriði. Hins vegar er
Island að koma mjög sterkt inn núna
með ungar stúlkur út um allan heim
og það hefur verið mikil uppsveifla
síðustu tvö til þtjú árin.“
Hvað er eftirminnilegast á þínum
ferli?
„Það er líklega þegar ég var að taka
upp sódavatnsauglýsingu á Ítalíu, því
ég þurfti að standa í polli í heilan dag
og ég var að frjósa úr kulda og fékk
kvef eftir þá þrekraun. Þrátt fýrir
fjörutíu stiga hita var ég að frjósa úr
kulda, en það var samt mjög gaman.“