Fréttir - Eyjafréttir - 24.08.2000, Blaðsíða 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 24. ágúst 2000
Endurbætt
verslun í
Goðahrauni
Síðastliðinn föstudag opnaði
KÁ nýja og endurbætta
verslun í Goðahrauninu. Við
opnunina var ýmislegt til
gamans gert. Til að mynda
var grillað og hljómsveit lék
til að auka á stemmninguna
meðal viðskiptavina
verslunarinnar sem voru
fjölmargir þennan dag.
KA hefur verið stærsti
styrktaraðili ÍBV í
kvennakanttspyrnu og var
Elena Einisdóttir fyrirliði
meistaraflokks ÍBV því
fengin til þess að klippa á
borða og opna verslunina
formlega. Einnig voru
stelpurnar til aðstoðar í
versluninni opnunardaginn.
Sigurður Markússon,
framkvæmdastjóri KA, sagði
verulegar breytingar hafa
verið gerðar á versluninni.
„Öll tæki og tól, sem ekki var
skipt um fyrir ári, voru
endurnýjuð núna. Allar
innréttingar voru endur-
nýjaðar, enda orðnar nokkuð
gamlar. Um leið var allt
kælipláss aukið sem þýðir að
við getum aukið framboð á
ferskvöru. Það er þess vegna
mun meira pláss undir
kjötvöru og mjólkurafurðir
og verslunin mun rúmbetri
og þægilegra fyrir viðskipta-
vinina að versla hjá okkur.“
Sigurður sagði að aðkoma
að versluninni hefði einnig
verið endurbætt. „Það var
sett upp ný rafmagnsrenni-
hurð svo að viskiptavinurinn
getur farið með innkaupa-
kerruna út að bíl sínum án
þess að standa í brasi við að
opna hurðir sjálfur. Við hjá
KÁ erum sífellt að endur-
bæta verslanir okkar til
þæginda fyrir viðskipta-
vininn, en reyndar er
breytingin hér í Goða-
hrauninu töluvert mikil á
einu bretti miðað við það sem
gengur og gerist.“
Þegar Sigurður var
spurður að því hvort til stæði
að fara út í sambærilegar
breytingar á verslun KA á
Tanganum, sagði hann að
nokkur andlitslyfting hefði
verið gerð þar. „Við gerðum
töluvert miklar breytingar á
sérvörudeildinni. Við ein-
földuðum hana nokkuð um
leið og hún var efld mjög
mikið. Þeim breytingum
mun ljúka í þessari viku og
vonandi að fólki líki þær
breytingar.“
Nú er það vöruverðið sem
yfirleitt er efst í huga
Fjör hjá Á7VR
Hér gefur að líta nokkrar myndir sem Vignir Sigurðsson,
Heiðmerkurbóndi tók á sumargrilli ÁTVR sem haldið var
síðastliðinn laugardag. Grillið var að þessu sinni í Heiðmörk í
nýjum fjölskyldulundi og mættu milli 80 - 100 manns. Segir
Vignir að ekki hafi verið annað að heyra á fólki en að vel hafi
tekist til. Flestir ætluðu að grillinu loknu að fara í miðborgina
og taka þátt í menningarviðburðum menningarnætur.
EINS og alltaf þegar Eyjamenn koma saman var lagið tekið og hér
má sjá Hafstein Guðfinns með gítarinn.
KLIPPT á borðann. Lind Hrafnsdóttir og Elena Einisdóttir frá ÍBV og Sigurður Markússon
framkvæmdastjóri KA.
MIKIL örtröð var í verslun KA í Goðahrauninu þegar hún var opnuð eftir breytingarnar.
neytandans, hvað gerið þið
að halda vöruverði í
lágmarki? „Viðgerum
stöðugar verðkannanir og
fylgjumst með því sem gerist
á markaðnum um allt iand
og bregðumst við í samræmi
við það. KÁ er líka partur af
mjög stóru fyrirtæki sem
nýtur góðs af magninn-
kaupum,“ sagði Sigurður.