Fréttir - Eyjafréttir - 24.08.2000, Page 15
Fimmtudagur 24. ágúst 2000
Fréttir
15
íslendingur til Halifaxá morgun
Alls staðar konunglegar móttökur
24 daga þjóðhátíð
Víkingaskipið íslendingur er
væntanlegt á morgun til Halifax í
Kanada eftir að hafa siglt milli
hafna á Nýfundnalandi síðasta
mánuðinn. Móttökur, sem skip-
verjar hafa fengið í hverri höfn, eru
að þeirra sögn stórkostlegar og
langt umfram það sem þeir áttu
von á sjálfir. Stór hópur aðstoðar-
fólks og ein vinsælasta hljómsveit
landsins hefur fylgt íslendingi eftir
og haft veg og vanda af uppá-
komum sem verið hafa í hverri
einustu höfn sem skipið hefur
komið til. Siglingin hefur vakið
mikla athygli fjölmiðla vestra og
hafa blöð, tímarit, sjónvarps- og
útvarpsstöðvar í Kanada og Banda-
ríkjunum gert henni mikil og góð
skil.
Þegar rætt var við Stefán Geir
Gunnarsson, í áhöfn íslendings, á
þriðjudaginn voru þau stödd suður af
Nýfundnalandi á leið til Halifax í
Kanada. Veður var gott og reiknaði
hann með að koma til Halifax á
morgun, föstudag, þar sem verður
umfangsmikil móttökuathöfn. „Við
erum orðnir illa tamaðir,“ sagði Stefán
í samtali við Fréttir. „Við vorum 24
daga á Nýfundnalandi og þetta er búið
að vera eins og 24 daga þjóðhátíð. Við
erum því hvíldinni fegnir og það er
kærkomin afslöppun að vera kominn
á sjó aftur. Við erum að koma frá Port
De Grave á Nýfundnalandi og þar
eins og annars staðar voru móttök-
umar glæsilegar og þegar við fómm
fylgdu okkur 98 skip og þegar þau
flautuðu var hávaðinn það mikill að
ekki heyrðist mannsins mál.“
Frábærar móttökur
Stefán Geir segir að móttökumar hafi
alls staðar verið frábærar en
hápunkturinn hafi verið í St. Johm þar
sem athöfnin var stórkostlegt sjónar-
spil með með flugeldasýningu.
„Maður átti von á góðum móttökum
en ekki neinu þessu líkt eins og verið
hefur í hverri höfn. Alls staðar hafa
ráðherrar verið í móttökunefndum,
kanadískir og íslenskir og þegar Einar
Benediktsson sendiherra kom til St.
John lét hann hafa eftir sér að hann
hefði aldrei átt von á þessum mót-
tökum. Við emm spurðir spjömnum
úr um land og þjóð og svo fær áhöfhin
stanslaust klapp á bakið og hrós fyrir
framtakið. Ég hef enga tölu á boðum
og grillveislum sem við höfum lent í.
Við höfum orðið að velja og stundum
hefur þetta gengið það langt að okkur
hefur verið kippt til hliðar og á stað
þar sem við gátum verið óáreittir. Sem
dæmi um þetta má geta þess að
umboðsmaður Eimskips í St. John
hélt grillveislu fyrir okkur og þar
fengum við örlítinn frið frá fólkinu."
Stefán Geir segist ekki getað neitað
því að hann hafi gaman af öllu til-
standinu en 24 daga skemmtun á
þjóðhátíðarskala sé kannski einum of
mikið. „Fjölmiðlar hafa gert ferðinni
mjög góð skil, bæði í Kanada og
Bandaríkjunum og fólk telur ekki efth-
sér löng ferðalög til þess eins að hitta
okkur. Ég hef til dæmis rætt við fólk
frá Los Angeles, Vancouver og fleiri
borgum í báðum löndum sem hafði
annaðhvort lesið um siglingu ís-
lendings eða séð fréttir af okkur í
sjónvarpi. Mér skilst lfka að það sé
mikil eftirvænting fyrir komu okkar til
New York 5. október."
Kvaddir með tárum
íbúar Nýfundnalands hafa undirbúið
komu Islendings mjög vel og sem
dæmi má nefna að 44 manna hópur
fylgdi þeim eftir og undirbjó móttöku
í hverri höfn og sama hljómsveitin var
með í för. „Það var sett upp stórt svið
og hefði Biggi Gauja (formaður
þjóðhátíðamefndar) orðið grænn af
öfund ef hann hefði séð það. Hljóm-
sveitin er ein sú vinsælasta í landinu,
hörku stuðgrúbba sem hefði sómt sér
vel á þjóðhátíð. Síðasta daginn í St.
John reyndum við að endurgjalda
greiðann og buðum við öllum hópn-
um í siglingu. Það var þéttsetinn
bekkurinn því um borð voru 95 en
þrátt fyrir þrengslin tókst okkur að
draga upp seglin. Um kvöldið leigð-
um við sal og buðum til veislu með
íslenskum mat, sviðakjömmum og
fleira góðgæti. Þetta mæltist mjög vel
fyrir en það var ekki laust við að
söknuður segði til sín þegar við
kvöddum fólkið og nokkur tár féllu,“
sagði Stefán Geir.
Sjónvarpað var beint frá móttök-
unni í St. John og sagði Stefán Geir að
það sama yrði uppi á teningnum í
Halifax á morgun. „Við verðum búnir
að safna kröftum í nýja töm þegar
þangað kemur. Veður hefur verið gott,
stundum of gott því víkingabún-
ingurinn er ekki beint heppilegur í 26
til 27 stiga hita. Núna látum við fara
vel um okkur. Veðrið á leiðinni frá
Halifax hefur verið helst til gott. I
morgun var logn en núna blæs hann á
móti og gengur Islendingur einar 7 til
8 mílur.“
Að lokum vildi Stefán Geir koma á
framfæri kveðjum frá áhöfninni til
ættingja og vina í Vestmannaeyjum
og annars staðar á landinu.
ÞESSI mynd var tekin á sunnudaginn þegar ríkisstjórn
Nýfundnalands og Labrador hélt áhöfninni veislu.
Hljómleikar og skemmtun voru í hverri höfn. Áætlað er að allt 100
þúsund manns hafi verið við móttöku íslendings í allt.
FJÖLDI manns á bryggjunni til að taka á móti íslendingu og áhöfn hans.
EYJAR 2010
Spurt er.
Ertu
búin(n)
að fara í
sumarfrí?
Sigurður Þór Sveinsson, Olís:
„Já, ég var í sumar-
| Grímsnesi. Það vai
fWHpL'f. J hafði ég heimsins
N M besta kokk með
Ágústa Guðnadóttir, snyrti-
fræðingur:
~„Nei, en ég fer í
. p næsta mánuði til
I Flórens á Ítalíu. Þar
ájJpjKJ verður haldið þing
snyrtifræðinga og
maður sameinar
r __ starfið og suamifríið
með því."
Þorsteinsdóttir,
Anna
Laufási:
3 „Eg fór í vikuferð
I með Félagi eldri
1 borgara um Snæ-
' fellsnes. Við gistum
á Ólafsvík í blíð-
>, skaparveðri. Þetta
fí var mjög ánægjuleg
ferð enda er alltaf
gaman hjá eldi i borgurum."
Ingibergur Einarsson, Ilug-
vallarstarfsmaður:
V V „Nei, enda búinn að
^ vera í veikindafríi og
Stefán Jónasson, Bæjarveitum:
r——-------1 „Nei."
Marý Njálsdóttir, í Mozart:
—-------;--- „Já, ég var í Ölfus-
borgum í heila viku
og það var mjög
|xegilegt, gott veður
allan tímann."
! Sverrir Unnarsson, Samskipum:
WCC. „Að hluta til. Við
fórurrt austur á
Hérað þar sem við
j vorum í flottu veðri.
" Ég veit ekki hvað ég
geri við það sem
j eftir er af sumar-
fríinu, ætli ég verði
ekki bara heima."