Fréttir - Eyjafréttir - 24.08.2000, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 24. ágúst 2000
Fréttir
17
aeyja tekinn tali um völlinn sem fengið hefur mikið hrós
II með aðeins 200 klúbbmeðlimum
enginn. Þá var ráðist í viðamikil
verkefni við tjamimar á vellinum í vor
og margir sem óttuðust að það yrði
okkur ofviða. Ekki síst þar sem slík
verkefni þarf að vinna að vori eða
hausti og þá em að jafnaði fáir
starfsmenn við völlinn. En félagar í
klúbbnum bmgðust ekki, þetta var
unnið í hópvinnu af fjölda sjálf-
boðaliða þar sem Haraldur Óskarsson
fór fremstur í flokki, þetta var klárað
með miklum sóma og án þess að það
kostaði stórfé. Ég efast um að þetta
hefði verið gerlegt annars staðar en í
Vestmannaeyjum. Hér em menn
þekktir fyrir að ganga í svona hluti
með oddi og egg og alveg frábært að
vinna með svona fólki.“
Hvaða vellir standa upp úrá Islandi?
„Það fer kannski svolítið eftir því
hvort verið er að tala um gæði
vallanna eða hve skemmtilegt er að
spila á þeim. Margir af nýju völlunum
lofa góðu en em dálítið hráir ennþá.
En ef ég ætti að taka einhverja tvo
velli sem sameina hvort tveggja þá er
það Korpúlfsstaðavöllurinn og svo
völlurinn í Eyjum. Ég hef alltaf verið
mjög hrifinn af vellinum hér, reyndar
var það ein ástæða þess að ég kom
hingað, ég hefði ekki gert það hefði
mér ekki líkað við völlinn. En þessir
tveir vellir sameina gæði og skemmt-
anagildi, báðir verðlauna þeir góð
högg og refsa fyrir slæm eins og góðir
vellir eiga að gera.“
Svo var ég lengi að ná mér neðar en í
dag er ég með 2,7 í forgjöf. Auðvitað
stefnir maður alltaf að því að lækka
sig enn frekar, alltaf er maður að læra
eitthvað og reyna að þróa sig til hins
betra, a.m.k. heldur maður það. Svo
er það spumingin hve miklum tíma er
hægt að verja í íþróttina, nú er
fjölskyldan að stækka og ekki má
maður gleyma henni þó að golfið sé
skemmtilegt.“
Hverjir eru skemmtilegustu vellir sem
þú hejur leikið á?
„Þeir eru báðir í Skotlandi, Loch
Lomond og Camoustie. Loch
Lomond sameinar bæði gæði og nátt-
úrufegurð, skógarvöllur með vötnum
og óendanlegir peningar sem búið er
að kosta til að gera hann sem best úr
garði. Aftur á móti er Camoustie
náttúrulegur völlur, með mikla sögu
að baki ekki síst British Open
keppnimar. Og hann er alveg svaka-
legur boli, óhemju erfiður, enda
sagðist Sergio Garcia aldrei myndu
spila aftur á þessum velli eftir British
Ópen í fyrra. Hann kallar völlinn eftir
það aldrei annað en „Camasty."
Ég er mjög hrifinn af trjám og
skógarvöllum, finnst mjög skemmti-
legt að leika á slrkum völlum. En mér
myndi seint detta í hug að fara að
planta tijám á vellinum í Vest-
mannaeyjum. Hann á að halda sínum
sérkennum, hann er sjávarvöllur og
nógu erfiður eins og hann er.“
Byrjaði sjálfur 17 ára
Víkjum þá aðeins að sjálfri tþróttinni,
hvenœr byrjaðir þú að stunda golf?
„Ég var orðinn 17 ára þegar ég
bytjaði. Faðir minn dró mig með sér á
völlinn en pabbi var og er enn ágætur
spilari. Meginástæða þess að ég
byrjaði ekki fyrr var sú að ég var
sendur í sveit á sumrin en þegar
þessum aldri var náð var því hætt. Ég
byijaði að spila á Nesinu, fékk strax
mikinn áhuga og um tvítugt var ég
kominn niður í átta eða tíu í forgjöf.
Kraftaverk að reka 18 holu
völl með 200 klúbbfélögum
Völlurinn hér hefur fengið mjög
jákvœða umfjöllun í sumar, ekki síst
eftir Norðurlandamótið. A þessi um-
fjöllun eftir að skila sér og laða að
golfleikara?
„Ég býst fastlega við því og vonandi
virkar þetta hvetjandi á hópa til að
koma hingað. Þetta er reyndar þegar
farið að skila sér, um síðustu helgi var
hér hópur af fjölmiðlafólki með golf-
rv-£K
TJÖRNIN á 18. braut hefur vakið athygli og setur mikinn svip á
völlinn. „Hér eru menn þekktir fyrir að ganga í svona hluti með oddi
og egg og alveg frábært að vinna með svona fólki,“ segir Aðalsteinn.
mót, án efa vegna áhrifa Norður-
landamótsins. Svo horfi ég bjartsýnn
til Landsmótsins fyrir 35 ára og eldri,
sem hér verður haldið í næstu viku og
virðist ætla að verða fjölsótt. Þar er á
ferðinni aldurshópur sem við ættum
að sýna áhuga, þar eru margir sem
búnir eru að koma sér vel fyrir, hafa
ekki áhyggjur af lífmu og stfla inn á að
spila golf.
I raun er það kraftaverk að reka 18
holu völl með aðeins 200 félögum og
á ekki að vera hægt. I framtíðinni
verður að reyna að laða til Eyja
kylfinga, bæði innlenda og erlenda,
dæmið gengur ekki upp öðruvísi.
I stóru klúbbunum á Reykja-
víkursvæðinu horfir þetta allt öðruvísi
við. Þegar félagatalan er komin á
annað þúsund, þá vænkast fjárhag-
urinn auðvitað. Aftur á móti eru það
ákveðin forréttindi við að vera í
Eyjum að geta labbað inn á golfvöll
hvenær sem er og spilað á góðum
velli. Það er ekki lengur hægt á
Reykjavíkursvæðinu, þar þarf orðið að
panta rástíma með nokkurra daga
fyrirvara, slík er ásóknin orðin í
íþróttina."
Þaif að bœta viðfleiri völlum?
„Ég held að það sé ekki spuming á
Reykjavíkursvæðinu, vellimir þar
anna ekki lengur eftirspuminni. Svo
er það spuming hvort ekki komi á
næstunni klúbbar þar sem árgjaldið
verður vemlega hærra en það sem við
þekkjum, hundrað til tvöhundmð-
þúsund krónur á ári. í dag kostar milli
200 og 300 milljónir að koma upp
golfvelli. Aftur á móti virðist mér
mikið ljármagn í gangi í þjóðfélaginu
í dag og kannski bara spuming um
hvenær farið verður að veita því í
þennan farveg. Þetta gerist úti um
allan heim og vafalaust verður þróunin
svipuð hér.“
Ég bý hér
Hvemig kann Reykvíkingur úr vestur-
bœnum við sig í Vestmannaeyjum?
„Mér líkar vel að búa hér. Það hefur
sína kosti og auðvitað sína galla líka.
Til dæmis finnst mér mjög gaman að
fara suður að hitta fjölskylduna. En ég
á heima hér.“
Sigurg.
SIGURÐUR Jónsson verkstjóri hjá bænum er nú senn að komast á aldur og hættir störfum í
desembermánuði. Margir ungir drengir hafa stigið sín fyrstu skref í atvinnulífinu undir stjórn Sigga
og hafa þeir lengi verið kallaðir Vallógengið. Fyrir skömmu héldu nokkrir þeirra karlinum smá hóf
til að minnast gamalla tíma. „Ég er mjög þakklátur fyrir það að drengirnir skuii minnast mín með
þessum hætti. Allt eru þetta öðlingspiltar sem eiga eftir að marka spor í íslensku þjóðlífi," sagði Siggi.
Myndin er frá hófinu, frá vinstri: Daníel Ásgeirsson, Hlynur Herjólfsson, Jón Helgi Gíslason, ívar
Róbertsson, Siggi, Andri Runólfsson og Friðberg Sigurðsson og fyrir framan er Jóhann Örn
Friðsteinsson. Á myndina vantar Einar Sigurmundsson, Sæþór Jóhannesson, Smára Jökul Jónsson.
FLUGFELAG ISLANDS
Sumaráætlun gildir til 1. október
Fjórar ferðir á dag
Bókanir og upplýsingar um flug í s. 481 3300
www.flugfelag.is
Eyjar
2010