Fréttir - Eyjafréttir - 24.08.2000, Síða 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 24. ágúst 2000
Landa-
KIRKJA
- lifandi samfélag!
Fimmtudaginn 24. ágúst
Kl. 14.30 Helgistund á Heil-
brigðisstofnun Vestmannaeyja,
setustofu 3. hæð.
Heimsóknargestir hjartanlega
velkomnir.
Laugardagur 26. ágúst
Kl. 14.00 Útför Halldóru Úlfars-
dóttur
Sunnudagur 27. ágúst
Kl. 11.00 Messa að hætti Eyja-
klerks. Ungir sem aldnir velkomnir
að borði Drottins.
Kl. 13.00 Guðsþjónusta á Hraun-
búðum
Stafkirkjan verður opin og til sýnis
sunnudaginn 27. ágúst frá kl.
14 - 15. Ollum velkomið að sjá og
skoða á þessum tíma.
Prestar Landakirkju minna á nýtt
símanúmer kirkjunnar 488 1500.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblíulestur
Laugardagur
Kl. 20.30 Bænasamkoma
Sunnudagur
Kl. 11.00 Vakningarsamkoma,
ræðumaður Snorri Oskarsson.
Ræðuefni, -Mínir sauðir heyra
mína raust.
Ailir hjartanlcga velkomnir
Hvítasunnukirkjan
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 26. ágúst
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir hjnrtanlcga velkomnir.
Biblían
talar
sími
481-
Knattspyma: Yngri flokkar
Mjög misjafnt senji
Annar flokkur karla mætti sam-
eiginlegu liði Þórs, Leifturs og
Dalvíkur fyrir norðan í síðustu
viku. Fyrri leikur liðanna í Eyjum
endaði með stórsigri ÍBV 7-0 og því
áttu menn von á sigri.
Sú varð raunin, Eyjamenn völtuðu
yfir jafnaldra sína fyrir norðan og
lokatölur urðu 0-6 fyrir ÍBV. A
þriðjudag átti liðið svo að keppa við
Breiðablik en leiknum var frestað til 5.
september.
Mörk ÍBV: Pétur 2, Gunnar Heiðar 2,
Tómas 1 og Karvel 1.
Þriðji flokkur karla lék tvo útileiki
um helgina, fyrst gegn Fylki á laugar-
deginum og svo gegn ÍA á sunnu-
deginum. Fylkisleikurinn var ágæt-
lega leikinn af hálfu ÍBV en liðið var
að miklu leyti skipað leikmönnum úr
fjórða flokki og því átti ÍBV á brattann
að sækja. Fylkismenn sigruðu í
leiknum 2-0 sem verða að teljast
sanngjöm úrslit.
Skagaleikurinn var hinsvegar ekki
jafn góður og fyrri leikurinn en fyrri
leikur liðanna hér í Eyjum endaði með
2-2 jafntefli. Leikurinn endaði með
sjö marka tapi, 7-0 og er staða IBV
orðin ansi erfið í A-riðli en Uðið situr á
botninum með þrjú stig en Fylkis-
menn eru þar fyrir ofan með 5 stig og
Keflavík með 9 stig. ÍBV á eftir tvo
leiki og ljóst að liðið verður að sigra í
þeim báðum til að forðast fall.
Fjórði flokkur karla lék gegn
Stjömunni í Garðabæ, í A- og B-
liðum. Bæði lið töpuðu sínurn leikj-
um, A-liðið 6-0 og B-Iiðið tapaði 4-2.
Liðin sitja bæði á botni deildarinnar
og ljóst að fall blasir við þeim.
Þriðji flokkur kvenna lék gegn
Haukum á heimavelli á föstudaginn.
Haukar em næstneðsta liðið en þetta
var síðasti leikur liðanna í íslands-
mótinu og ljóst að ef IBV ætlaði sér í
úrslitakeppnina þá þurftu þær að
treysta á að Valur, sem var í öðm sæti
myndi tapa stigi í síðasta leik og
jafnframt sigra Haukana. Það síðar-
nefnda gekk eftir en Valur sigraði í
sínum leik og komst þar með í úrslit á
mun betri markatölu. ÍBV endaði
tímabilið í þriðja sæti með 21 stig, eða
jafnmörg stig og Valur. Sigurlás
Þorleifsson þjálfari stelpnanna sagðist
vera nokkuð sáttur við tímabilið.
„Við byrjuðum tímabilið vel og
urðum Islandsmeistarar innanhúss og
við vomm inni í myndinni allt þar til í
lokin. Við klúðmðum svo tækifærinu
á móti Stjömunni í næstsíðasta leik
þar sem við gerðum jafntefli en þrátt
fyrir það áttum við möguleika. En
það sem kannski varð okkur fyrst og
ffemst að falli í sumar var að sumar af
þeim stelpum sem em þama vom
hreinlega ekki tilbúnar að leggja nógu
mikið á sig til að ná árangri. Það má
því kannski segja að við höfum ekki
átt það skilið að komast í úrslit. Hitt er
svo annað mál að það er umhugs-
unarefni að aðeins tvö lið úr A-riðli
komast í úrslit þar sem klárlega þrjú
bestu liðin á landinu em.“
4. flokkur kvenna B lék í úrslitum
fslandsmótsins um helgina og var
leikið á Selfossi en ekki tókst að ná í
úrslit áður en blaðið fór í prentun.
Golf: íslandsmótið í sveitakeppni
Svcit GV í fjórða sæti
Um síðustu helgi tók karlasveit GV
þátt í íslandsmótinu í sveitakeppni
en GV lcikur í 2. deild. Leikið var á
Akranesi.
Sveitina skipuðu þeir Júlíus Hall-
grímsson, Aðalsteinn Ingvarsson,
Orlygur H. Grímsson, Karl Haralds-
son, Viktor P. Jónsson, Guðjón
Grétarsson og Gunnar G. Gústafsson.
Liðsstjóri var Haraldur Óskarsson og
aðstoðarliðsstjóri Óskar Haraldsson.
Keppt var í ljórleik, fjórmenningi og
einmenningi og lenti sveitin í 4. sæti.
Þessi varð lokaröðin:
1. Golfkl. Leynir Akranesi
2. Golfkl. Kjölur Mosfellsbæ
3. Golfkl. Suðumesja
4. Golfkl. Vestmannaeyja
5. Golfkl. Oddur
6. Golfkl. Sandgerðis
Leynir leikur í 1. deild á næsta ári en
Sandgerðingar falla í 3. deild.
SVEIT GV, neðri röð frá vinstri: Karl Haraldsson, Örlygur H Grímsson, Viktor P Jónsson, Gunnar G
Gústafsson. Efri röð: Haraldur Óskarsson liðsstjóri, Guðjón Grétarsson, Júlíus Hallgrímsson, Óskar
Haraldsson aðstoðarliðsstjóri og Aðalsteinn Ingvarsson.
Golf. ísfélagsmótið
Ásbjörn
og Sig-
urður
efstir
Agæt þátttaka var í ísfélagsmótinu
í golfi sem fram fór á laugardag,
eða 39 manns. Þessir urðu efstir án
forgjafar:
1. Asbjöm Garðarsson 73 h.
2. Jónas Þ Þorsteinsson 78 h.
3. Haraldur Júlíusson 78 h.
Með forgjöf:
1. Sigurður Þ Hafsteinsson 66 h.
2. Heimir Freyr Geirsson 67 h.
3. Pétur Kristjánsson 67 h.
Sami langafinn og langamman en þrjú félög. Þessir peyjar tóku þátt í Lottó-móti 7. flokks á Akranesi í
sumar. Þeir eru náfrændur og eiga sama langafann og langömmuna. Þeir eru Leó Snær Sigurjónsson
HK, Guðjón Orri Sigurjónsson IBV og Brynjar Darri Brynjarsson Stjörnunni. Eru þeir langafabörn
Baldurs Ólafssonar fyrrum bankastjóra í Eyjum og Jóhönnu Ágústsdóttur konu hans.