Fréttir - Eyjafréttir - 24.08.2000, Page 19
Fimmtudagur 24. ágúst 2000
Fréttir
19
Landssímadeild karla: Leiftur 0 - IBV 1
Eyjamcnn eiga enn von
-í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn en Fylkir 03 KR standa betur aö vísi
ÍBV lék á sunnudaginn gegn
Leiftursmönnum á Olafsfirði og var
um hörkuleik að ræða. Heima-
menn, sem sitja í neðsta sæti
deildarinnar, börðust vel á meðan
ÍBV náði sér ekki á strik. Það voru
þó gestirnir sem náðu að sigra og
héldu Eyjamenn heim með þrjú
dýrmæt stig sem halda þeim enn
inni í toppbaráttunni.
Eyjamenn hafa orðið fyrir nokkrum
skakkaföllum undanfarið. Kjartan
Antonsson er meiddur og Hjalti Jó-
hannesson líka. Vonast var til að
Tómas Ingi væri orðinn klár í slaginn
en svo var ekki og fór hann af leikvelli
eftir aðeins níu mínútna leik. Það kom
þó ekki að sök því ÍBV sigraði í
leiknum 0 -1.
Það var enginn glansleikur hjá ÍB V,
iiðið spilaði illa í leiknum á meðan
heimamenn sýndu mun betri leik. En
lukkudísimar virðast vera ganga í lið
með ÍBV og Goran Aleksic kom ÍBV
yfir þegar stutt var eftir af fyrri
hálfleik.
Seinni hálfleikur var keimlíkur
þeim fyrri en Eyjamenn héldu sínum
hlut og tryggðu sér nauðsynleg stig í
toppbaráttunni enda verður liðið að
sigra í þeim leikjum sem eftir eru ef
liðið ætlar sér efsta sætið.
Kristinn Jónsson sagði í samtali við
Fréttir að ÍBV hefði ekki spilað vel í
leiknum. „Við áttum ekki góðan leik
og vomm hreinlega að spila illa. Við
vorum í sendingavandræðum nánast
allan leikinn og gáfum þeim of mörg
færi. Eg heyrði eftir leikinn að Leiítur
hefði líklega verið að spila sinn besta
leik í sumar en heppnin var með okkur
í þetta skiptið. Þeir eru náttúrulega að
beijast fyrir lífi sínu í deildinni þannig
að við vissum vel að þessi leikur yrði
mjög erfiður. sem kom einmitt á
daginn. Við urðum fyrir áfalli þegar
Tómas Ingi þurfti að fara af leikvelli
en þessi meiðsli sem eru að plaga
IBV-liðið hefur verið að sækja í sig veðrið eftir því sem liðið hefur á mótið. Það á enn möguleika á
Islandsmeistaratitlinum og er enn inni í bikarkeppninni þar sem liðið mætir Fylki á Hásteinsvelli 5.
september nk. Er ekki ótrúlegt að sigurvegarinn í þeim leik standi uppi sem bikarmeistari 24. september
hann virðast ætla að gera honum lífið
leitt og mér sýnist að hann verði ekki
með í Evrópuleiknum gegn Hearts,"
sagði Kristinn."
Staða efstu liða
Gengi IBV í Landssímadeildinni hefur
verið hið besta að undanfomu en staða
efstu liða í deildinni er þessi að
loknum 15 umferðum nema hvað KR
áeinn leikáhin liðin.
1. Fylkir 29 stig
2. KR 27 stig
3. ÍBV 26 stig
4. Grindavík 24 stíg
I þeim þremur umferðum, sem eru
eftir á IBV heimaleiki gegn Breiða-
bliki í 16. umferð og Grindavík íl 8 og
síðustu umferð og útileik í 17. umferð
gegn KR.
KR á heimaleik gegn ÍBV og
útileiki gegn Grindavík og Stjömunni.
Fylkir á eftir útileiki gegn Grindavík
og heimaleiki gegn Keflavík og
Skagamönnum.
Grindvíkingar em í því erfiða
hlutverki að eiga eftir leiki gegn
þremur efstu liðunum en þeir em enn
inni í myndinni.
Leiftur - IBV 1
ÍBV lék 4-4-2: Birkir Kristinsson,
Páll Guðmundsson, Páll
Almarson, Hlynur Stefánsson,
Bjami Geir Viðarsson, Ingi
Sigurðsson, Baldur Bragason,
Momir Mileta, Goran Aleksic,
Tómas Ingi Tómasson,
Steingrímur Jóhannesson.
Varamenn sem komu inn á:
Jóhann Möller, Hjalti Jónsson.
Mark ÍBV: Goran á 38. mínútu,
fylgdi eftír skotí Steingríms.
Knattspyrna 3. deild B-riðill: KFS varð í 2. sæti og komst í 8 liða úrslit
Dréjust á móti Þrótti Neskaupsstað
-Heimaleikurinn veróur á laugardaginn
KFS mætti efsta liði riðilsins,
Haukum í hreinum úrslitaleik um
efsta sæti B-riðils þegar liðin
mættust á Asvöllum í Hafnarfirði.
KFS var lengst af í efsta sæti en
Haukamenn kærðu tapleik sinn við
Gróttu og unnu kæmna og var
dæmdur sigur í leiknum.
Þar með komust þeir einu stigi yfir
KFS og dugði því jafntefli í leiknum,
sem einmitt varð niðurstaðan, 1-1 þar
sem KFS var miklu betra liðið.
Það var strax Ijóst að Eyjamenn
ætluðu sér sigur í leiknum og þrátt
fyrir að í liðið vantaði nokkra af
fastamönnum þá var liðið mun betri
aðilinn í leiknum og eina sem heima-
menn gerðu var að negla boltanum
fram völlinn. Það var því algjörlega
gegn gangi leiksins að Haukar komust
yfir um miðjan hálfleikinn. Kári
Hrafnkelsson sá svo um að jafna
leikinn fyrir leikhlé með þmmuskoti
beint úr aukaspymu. Glæsilegt mark.
KFS sótti svo látlaust í seinni hálfleik
en svo virtíst sem æðri máttarvöld hafi
ákveðið að leikurinn myndi enda með
jafntefli. M.a. fengu Eyjamenn
vítaspymu sem var varin ásamt því að
eiga fjölmörg færi sem ekki náðist að
nýta.
Hjalti Kristjánsson sagði eftir
leikinn að hann gæti ekki annað en
verið ánægður með liðið. „Við vomm
miklu betra liðið í þessum leik og
sýndum það að við emm með sterk-
asta lið 3. deildar þegar við viljum. En
heppnin var hreinlega ekki með okkur
í leiknum og því fór sem fór. Annars
er þetta sumar búið að vera mjög gott
hjá KFS og líklega er þetta sterkasta
liðið sem ég hef þjálfað. En að sama
skapi er þetta erfitt fjárhagslega fyrir
klúbbinn, sérstaklega núna þegar við
mætum Þrótti frá Neskaupsstað í
úrslitum og þurfum að ferðast alla leið
austur. Við höfum því ákveðið að
selja inn á leikinn gegn þeim á
laugardaginn, 500 krónur en innifalið
í því verði er alvöru leikskrá. Við
vonum bara að fólk mæti á völlinn og
styðji við bakið á okkur," sagði Hjalti.
Bikarkeppni KSI undanúrslit: IBV - Fylkir 5. september
Krístinn 03 Bjarni
maetast á Hásteinsvelli
Dregið var í Coca Cola bikarkeppninni í síðustu viku
og varð þjálfurum, leikmönnum og forráðamönnum
IBV að ósk sinni en það var fyrst og fremst að fá
heimaleik.
En andstæðingurinn er líklega sá sterkasti sem var í
pottinum, Fylkismenn en þeir eru eins og er efstir í Lands-
símadeildinni. IBV hefur að vísu náð hagstæðum úrslitum
gegn Fylki í sumar, jafntefli hér heima og sigur í Arbænum
þannig að það er ljóst að Bjami Jóhannsson fyrrverandi
þjálfari ÍBV og núverandi þjálfari Fylkis þarf að brydda
upp á einhverjum nýjungum gegn ÍBV. Leikurinn mun
fara fram þriðjudaginn 5. september klukkan 17.30, en
úrslitaleikurinn fer svo fram sunnudaginn 24. september á
Laugardalsvellinum í Reykjavík.
Evrópu-
leikurinn
ó Netinu
I kvöld spilar ÍBV síðari leik sinn í
Evrópukeppni félagsliða við Hearts
frá Skotlandi. Leikurinn fer fram á
heimavelli Hearts, Tynecastle
Stadium. Fyrri leik þessara liða
lauk með 0-2 sigri Skotanna og því
verður róðurinn þungur fyrir Eyja-
menn en þrátt fyrir það ætla
strákamir að selja sig dýrt og beijast
til sigurs í þessum leik og komast
þannig í 2. umferð keppninnar.
Leikurinn hefst klukkan 19.45 að
staðartíma.
Leiknum verður lýst á Utvarpi
ÍBV FM 104,7 en einnig er hægt að
hlusta á útsendinguna í gegnum
Intemetið á heimsíðu ÍBV,
www.ibv.is.
Jón Viðar Stefánsson,
vefsíðustjóri Knattspyrnu-
deildar ÍBV.
Sparisjóðs-
mótið ó
laugardag
Á laugardag er Sparisjóðsmótíð á
dagskrá hjá GV en Sparisjóður
Vestmannaeyja er styrktaraðili þess
móts og gefur öll verðlaun. Leiknar
verða 18 holur með og án forgjafar
og er unnt að velja rástíma frá kl. 9
-13. Skráningu þarf að vera lokið
kl. 20 á föstudag.
Tvær
öldunga-
sveitir
fróGV
Nú um helgina fer fram sveita-
keppni öldunga og verður leikið á
golfvelli Kópavogs og Garðabæjar.
I öldungaflokki keppa þeir sem em
55 ára og eldri. Tvær karlasveitir
keppa fyrir GV, A-sveit sem keppir
án forgjafar og B-sveit með forgjöf.
Að þessu sinni fer ekki kvennasveit
fráGV.
Fram-
undan
Fimmtudagur 24. ágúst
Kl. 18.45 Hearts - ÍBV í Evrópu-
keppninni, leikið ytra.
Laugardagur 26. ágúst
Kl. 14.00 Þór/KA, Landssímadeild
Mánudagur 28. ágúst
Kl. 18.00 ÍBV - Breiðablik, Lands-
símadeild.
Kl. 18.00 KR - ÍBV 2. flokkur.
Miðvikudagur 30. ágúst
Kl. 18.00 IBV - Stjaman Lands-
símadeild kvenna.
Kl. 18.30 Þór A - ÍBV 3. flokkur
karla A.