Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2000, Blaðsíða 1
27. árgangur * Vestmannaeyjum 31. ágúst 2000 * 35. tölublað * Verðkr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax:481 1293
UTSYNI til Smáeyja úr hellisskúta í Stórhöfða
Mynd: Addi í London
Meistaramót
35 óra og
eldri hafið
Meistaramót Islands í golfi, 35 ára
og eldri, hófst í gær á golfvellinum í
Vestmannaeyjum. Þetta er í fyrsta
sinn sem slíkt mót er haldið en
reglum hefur verið breytt um þátt-
töku í Islandsmóti og á næsta ári
verður hún takmörkuð við þá
bestu. Til mótvægis við það hefur
þessu móti verið komið á en auk
þess er keppt í öldungaflokki, 55
ára og eidri á hverju ári.
Fimmtíu manns taka þátt í mótinu,
langflestir ofan af landi, en búist hafði
verið við meiri þátttöku, t.d. er hlutur
heimamanna ekki stór. Mörg þekkt
nöfn eru í hópnum, m.a. tekur Akur-
eyringurinn Björgvin Þorsteinsson
þátt í því en hann er margfaldur fs-
landsmeistari. Af öðrum þekktum
nöfnum má nefna Vestmannaey-
inginn Jón Hauk Guðlaugsson. Kon-
ur em ekki fjölmennar í mótinu en þar
em þekktustu nöfnin Þórdís Geirs-
dóttir og Jakobína Guðlaugsdóttir.
Keppt er í einum flokki karla og
einum flokki kvenna, án forgjafar.
Samhliða er þó einnig punktakeppni
þannig að þeir sem em með hærri
forgjöf eiga jafna möguleika á að
sigra í henni.
Grunnskólarnir settir á morgun:
íbúum fækkar en nemendum fjölgar
Vel gekk að manna skólana en húsnæðisvandi stendur skólastarfi fyrir þriíum
Grunnskólarnir í Vestmannaeyjum
verða settir á morgun. I
Hamarsskóla verða um 360
nemendur í vetur en 456 í Barna-
skólanum, eða yfir 800 samtals. Er
þetta nánast sami nemcndaf jöldi og
var á síðasta hausti, ívið meira þó,
og vekur nokkra furðu þar sem
íbúum hefur fækkað í Vest-
mannaeyjum á tímabilinu. Helst er
að sjá að brottfluttir séu af
skólaskyldualdri, aðra skýringu er
vart að flnna.
Framhaldsskólinn var settur fyrir
viku og þar em nemendur um 240
þannig að skólanemendur í Eyjum á
þessu hausti telja ríflega hálft ellefta
hundrað.
Halldóra Magnúsdóttir, skólastjóri
Hamarsskóla er nýkomin úr náms-
leyfi, og segir að 38 kennarar starfi við
skólann í vetur, bæði í fullu starfi og
hlutastarfí, þar af þrír leiðbeinendur.
Húsnæðisvandi er það sem helst hijáir
skólastarfið. Nemendatímum hefur
fjölgað mikið á síðustu ámm sem
kallar á aukið húsnæði. Til að mynda
verður danskennsla í Þórsheimilinu og
stofu vantar fyrir tónmenntakennslu,
sem raunar hefst ekki fyrr en á næsta
ári. „Við búum við þröngan kost í
húsnæði, t.d. er þeim sífellt að fjölga
sem vilja borða í skólanum og við
höfum ekki húsnæði fyrir það annað
en kennslustofumar. Við emm að
reyna að reka nútíma skólastarf í of
litlu húsi. Að öðm leyti emm við
hress og kát og hlökkum til að byija,“
sagði Halldóra.
Hjálmffíður Sveinsdóttir, skólastjóri
Bamaskólans, tekur í sama streng, hjá
þeim sé ástand húsnæðismála heldur
bágt. „Okkur vantar kennslustofur og
því miður verðum við að tvísetja
flórar bekkjardeildir í vetur. Það þýðir
að ekki byija allir á sama tíma á
morgnana, við verðum að vera með
vaktaskipti á þessu,“ sagði Hjálm-
fríður sem sagðist að öðm leyti horfa
björtum augum fram á komandi
skólaár. Þessa viku hafa kennarar
beggja gmnnskólanna unnið að
undirbúningi skólastarfsins og setið
námskeið en á morgun hefst svo hið
eiginlega skólastarf þegar nemend-
umir mæta, væntanlega úthvíldir eftir
sumarleyfið.
Eiga von ó hörkuleik í bikarnum
ÍBV tekur á móti efsta liði Lands-
símadeildarinnar í undanúrslitum
bikarkeppninnar í ár. Leikurinn
fer fram á Hásteinsvelli þriðju-
daginn 5. september klukkan 17.30
en tímasetningin er miðuð við að
leikurinn gæti farið í framlengingu
og vítaspyrnukeppni. Fréttir
gengu á þjálfara liðanna og spurðu
þá út í leikinn.
Bjami Jóhannsson, sem fylgdist
með leik IBV og Breiðabliks á
mánudaginn, sagði að það væri
vissulega gaman að mæta ÍBV í
undanúrslitum bikarkeppninnar.
„Undanúrslitin em enginn leikur og
það er erfitt að sækja sigur til Eyja.
Það vita allir en við munum koma
hingað í góðu formi og verðum til í
slaginn. Ég á von á fjömgum leik,
það er búið að vera mikið álag á ÍB V
í Evrópukeppninni en nú er það búið.
Ég á ekkert frekar von á því að
leikurinn fari í framlengingu og býst
við að þetta klárist í venjulegum
leiktíma. Það er engin leið að spá um
úrslit leiksins, þetta getur dottið
beggja vegna.“
Kristinn Jónsson, þjálfari ÍBV tók
að mörgu leyti í sama streng. „Þetta
verður ömgglega alveg hörkuleikur
enda emm við að spila við liðið í
efsta sæti deildarinnar. Við höfum
mætt þeim tvisvar sinnum í sumar,
unnum þá í Árbænum en gerðum
jafntefli héma heima. Við vildum
númer eitt, tvö og þijú fá heimaleik,
það gekk eftir og þá er okkur alveg
sama hver mótheijinn er. En
undanúrslitin em alltaf erfið og það er
ekkert spurt um stöðu liðanna í
deildinni. Þetta er bara þessi eini
leikur," sagði Kristinn Jónsson, þjálf-
ari ÍBV.
Biaveiikstæðiðj Bragginn s.f.
Rettingar o,gj sprautun
Flötum 20 - Sími 4811535
Wm
Sumaráætlun
Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alladaga. kl. 08.15 kl. 12.00
Aukaferðir fimmtud., föstud. og sunnud.
kl. 15.30 kl. 19.00
Sími 481 2800 - Fax 481 2991