Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2000, Síða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 31. ágúst 2000
Loka vegna
bikarleiks
Flestar ef ekki allar verslanir í bænum verða lokaðar þegar IBV
mætir Fylki í undarúrslitum bikarkeppninnar á þriðjudaginn
Breyftar reglur
Alls voru 198 færslur í dagbók
lögreglu í síðustu viku. Er það
talsvert meira en í vikunni þar á
undan. Ekki er þó allt sem sýnist í
Jressu og skýrist mestur hluti þess af
breyttum reglum um færslur í
dagbók.
Eignaspjöll af
gáleysi?
Það sem áður nefndist skemmd-
arverk er nú í lögregluskýrslum
kallað eignaspjöll. Nokkuð sérstætt
atvik af þeint toga átti sér stað um
helgina. Tveir menn vom á gangi í
bænum eftir heimsókn á öldurhús
og kom til einhvers ósættis milli
þeirra. Endaði það með því að
annar þeirra datt utan í bifreið og
skemmdist hún nokkuð af þeim
sökum. Spuming er hvort atvík á
borð við þelta flokkist ekki undir
ómeðvituð eignaspjöll eða þá
eignaspjöll af gáleysi.
Sýnið aðgát við
skólana
Lögregla vill benda ökumönnum á
að nú em gmnnskólarnir að byrja.
Eru ökumenn hvattir til að aka
varlega í nágrenni skólanna og
Iþróttamiðstöðvar. Sérstaklega eru
ökumenn minntir á að sýna aðgát
við gangbrautir og stöðva þar
þannig að börnin eiga greiða leið
yftr akbrautirnar.
Útivistartími breytist
1. september
Foreldmm og forráðamönnum
bama og unglinga er bent á að þann
1. septenrber breytist útivistartími.
Börn. yngri en 12 ára, mega ekki
vera á almannafæri eftir kl. 20 nema
í l'ylgd með fullorðnum. Ung-
menni, á aldrinum 13 til 16 ára,
mega ekki vera á almannafæri eftir
kl. 22 nema í fylgd með fullorðnum
eða að urn sé að ræða beina heim-
ferð frá viðttrkenndri skóla-, íþrótta-
eða æskulýðsstarfsemi.
Hörmulegur
viðskilnaður?
í fundargerð umhverirsnefndar frá
23. ágúst sl. stendur orðrétt:
„Nefndin harmar viðskilnað þjóðh-
átíðamefndar í Dalnum.1'
Engar skýringar fylgja með þess-
ari bókun. „Nefndin hefur ekki haft
samband við mig vegna þessa og ég
er að heyra þetta fyrst núna," sagði
Birgir Guðjónsson, formaður þjóð-
hátíðarnefndar, þegar rætt var við
hann í gær. „Það tekur um mánuð
að koma þessu upp fyrir þjóðhátíð
og ekki óeðlilegt að það taki líka
sinn tfma að ganga lirá því á ný. Við
erum enn að taka saman en ég
vonast til að við náum að ljúka því
um helgina," sagði Birgir og bætti
því við að sér vitanlega hefðu aldrei
verið sett ákveðin tímatakmörk
vegna frágangs þjóðhátíðarmann-
virkja.
Náðst hefur samkomulag milli
knattspyrnudeildar ÍBV og tlestra
verslana í bænum um að þær loki
fyrr en venjulega á þriðjudaginn
þegar ÍBV mætir Fylki í undan-
úrslitum Coca Cola-bikarsins.
Leikurinn hefst kl. 17.30 og er þetta
einn mikilvægasti leikur sumarsins hjá
ÍBV. „Við sáum fram á að hluti af
okkar stuðningsmönnum kæmist ekki
á leikinn vegna vinnu sinnar og þess
vegna fórum við fram á það við
kaupmenn að þeir lokuðu verslunum
sínum fyrr á þriðjudaginn. Flestir tóku
þessu mjög vel og er það von okkar að
fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið," sagði
Ásmundur Friðriksson formaður
knattspymudeildar.
Eftirtaldar verslanir ætla að gera
starfsfólki sínu kleift að mæta á
völlinn og loka því kl. 17.30: KÁ-
Tanginn, KÁ Goðahrauni sem opnar
svo að leik loknum kl. 19.30, Vöruval,
Reynistaður, Metró, Miðstöðin, H.
Sigurmundsson, 66° verslun, Eyjabúð,
Miðbær, Eyjablóm, Foto, G. Þórar-
insson, Brimnes, Bókabúðin-Penninn,
Axel Ó, Gullbúðin, Prýði, Tölvun,
Róma og Húsey. „Forráðamenn þess-
ara verslana ætla að loka og emm við
þeim mjög þakklátir fyrir stuðninginn.
Við erum í viðræðum við fleiri kaup-
menn og vonumst eftir jákvæðum
undirtektum. Þessar verslanir verða
sérstaklega merktar af okkur."
Bikarleikurinn er með erfiðari verk-
efnum IBV-liðsins í sumar því Fylkir
er sýnd veiði en ekki gefin og trónir á
toppi Landssímadeildarinnar. „Það er
okkur mjög mikils virði að ná upp
góðri stemmningu og við þurfum að
fá sem flesta á völlinn. Hásteinsvöllur
getur verið sterkasti heimavöllur
Á laugardaginn kl. 15.00 boða Árni
Johnsen, Tryggvi Sigurðsson og
Sigtryggur Helgason til stofnfundar
félags til að gera upp Blátind VE og
verður fundurinn haldinn við
bátinn þar sem hann stendur í
Austurslippnum.
Þremenningamir hafa fengið jákvætt
svar frá menningarmálanefnd um
leyfi til að stofna félagið og halda
áfram því verki sem nokkrir áhuga-
menn um varðveislu Blátinds eru
landsins og nú þurfum við á öllu að
halda. Við höfum ekki tapað leik þar
síðan í júní 1997 og við ætlum okkur
að halda áfram á sömu braut og
stefnum á Laugardalsvöllinn 24.
september í bikarúrslitin," sagði
Ásmundur.
Búast má við góðri stemmningu á
leiknum og gert er ráð fyrir að
stuðningsmenn Fylkis fjölmenni á
leikinn. Hefur heyrst að von sé á
þremur Fokkerum að minnsta kosti
þannig að það er eins gott fyrir
Eyjamenn að íjölmenna á völlinn.
byrjaðir á. Er tilgangurinn að koma
Blátindi í sýningarhæft form sem
eintaki af heimasmíðuðum bát. Fyrst
er að setja yfir hann segldúk til að
skapa vinnuaðstöðu og til vamar.
„Við vonumst til að sjá sem flesta
því þó menn hafi misjafnlega mikinn
tíma skiptir máli að leggja okkur lið.
Ekki væri verra að fólk kæmi í
vinnugöllum því við ætlum að setja
dúkinn yfir en það er létt verk ef
margir mæta," sagði Ámi.
Ekkert múnistamál
Blaðið hefur fyrir satt að á
þjóðhátíðinni í sumar hafi tveir
menn verið teknir úr umferð fyrir
það lítt sæmilega athæfi að bera á
sér afturendana á miðjum degi eða
„rnúna" sem kallað er. Nú er slíkt
þekkt þegar menn þurfa að sinna
kalli náttúrunnar en sjaldnast fram-
kvæmt í íjölmenni. Var talið að
einhverjar aðrar hvatir hefðu legið
að baki þessum gjömingi tvímenn-
inganna, t.a.m. mikil athyglisþörf.
Lögreglumaður, sem blaðið ræddi
við, kannaðist ekki við umrætt mál,
lögregla hefði ekki haft afskipti af
afturendaberunum. svo að sér væri
kunnugt unt og þótt væntanlega
hefðu margir framið slíkt athæfi á
þjóðhátíð, hefði það trúlega verið af
öðmm og eðlilegri ástæðum.
Áfengi í
Alþýðuhúsið
Á fundi bæjarráðs á þriðjudag lá
fyrir urnsókn frá Elíasi Bjömssyni
um leyfi til áfengisveitinga í
Alþýðuhúsinu. Umsóknin var
samþykkt til eins árs enda uppfyllir
umsækjandinn skilyrði um veitingu
slíks leyfis.
Bætt aðkoma fyrir
hjólastóla
Fulltrúar minnihluta bæjarstjómar,
þau Guðrún Erlingsdóttir, Ragnar
Óskarsson og Þorgerður Jóhanns-
dóttir, hafa lagt fratn tillögu til
bæjarráðs. Hún tjallar um að
gerðar verði ráðstafanir til að laga
aðkomu fyrir hjólastóla, bama-
vagna og kerrnr við helstu mót
gangstétta og gatna bæjarins.
Verkinu verði fiýtt svo sem kostur
er. Þessari tillögu var vísað til
tæknideildar.
Þrír skólaverðir
ráðnir
Auglýst var í sumar eftir fólki í
störf skólavarða við Bamaskólann.
Fimmtán umsóknir bámst en ráðið
var í þrjár stöður. Nýir skólaverðir
em öuðriín Linda Antonsdóttir í
80% stöðu og Líney Benedikts-
dóttir og Olga Khaevna Akbasheva
í 50% stöður.
Leiðbeinendur við
Hamarsskóla
Þijú sóttu um starf leiðbeinenda við
Hamarsskóla í haust og vom öll
ráðin. Þau em Magnús Matthías-
son í 100% stöðu og þær Amdís M.
Kjartansdóttir og íris Róbertsdóttir
í 67% stöður.
f
Oánægja með
seinagang
Á fundi skólamálaráðs á ntið-
vikudag í síðustu viku var lýst yfir
óánægju með seinagang á
viðhaldsvinnu við leikskólana
rneðan þeir voru lokaðir í sumar.
Hækkun á gjaldskrá
Samþykkt hefur verið í skólamálaráði hækkun á
gjaldskrá leikskóla bæjarins. Frá 1. sept. verður
gjaldskráin þessi:
Alm. gjald f. 1 klst. á mán. kr. 2.087
Fullt fæði pr. mán. kr. 3.795
Morgun/síðd.hressing " kr. 1.301
Léttur hádegisverður " kr. 1.747
Hækkunin á fæðisgjöldum nemur 2,15% en 4,06% fyrir
vistun.
/V\ Vetrartími frá l.sept.
Almennir tímar í sundlauginni eru: virka daga
laugardaga
sunnudaga
. kl. 7.00-8.30
kl. 12.00-13.00
kl. 17.00-21.00
kl. 9.00-16.00
kl. 9.00-15.00
Opið er í sólarlampa, líkamsræktarsal og potta allan daginn.
Bæjarbúar nýtið ykkur þessa frábæru aðstöðu
Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum
Heitt um helgar
Um helgar er hitastig laugar
hækkað í 32°C sem er ein-
staklega notalegt fyrir ung börn
og alla sem vilja bara slaka á og
hafa það notalegt.
sundlaug - heitir pottar - líkamsræktarsalur - sauna - sólarlampar
FRETTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Július Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Frið_arhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Stofnfundur Blátindsfélags