Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2000, Side 15
Fimmtudagur 31. ágúst 2000
Fréttir
15
2001:
i milli
eftir í bænum. Kvóti Eyjabergs VE
var fluttur yftr á Þómnni Sveinsdóttur
eftir að Ós ehf. keypti Eyjabergið af
Utgerðarfélagi Vestmannaeyja. Það
sama gerðist með kvótann af Drífu
VE eftir að útgerð Ófeigs VE keypti
útgerð Drífu. Danski Pétur VE fór til
Þorlákshafnar með einhvem kvóta
þegar Vinnslustöðin stoínaði Frostfisk
með heimamönnum. Þá hefur
Gullfaxi VE verið seldur án kvóta en
þar er um að ræða gamla Gullbergið
en nýtt skip kom í stað þess á síðasta
ári.
Þá em nokkur skip sem ekki era
ára
gerð út, þar má nefna Eyjaberg VE,
Gandí VE, Guðjón VE, Adólf
Sigurjónsson VE og Gígju VE en
Harpa VE leysir hana af hólmi.
Það er því ljóst að umtalsverð breyting
hefur orðið á útgerð í Vest-
mannaeyjum síðasta árið. Skipum
hefur fækkað, kvóti í bolfiski hefur
minnkað, hlutdeild Eyjmanna í heildar
aflaúthlutuninni hefur dregist saman á
milli ára, þeir hafa styrkt stöðu sína í
uppsjávarfiski en lágt afurðaverð á
sfld og loðnu gerir það að verkum að
vægi þeirra er mun minna en á síðasta
fiskveiðári.
Munur á úthlutun í helstu fiskteg-
undum og heildarúthlutun nú og í
fyrra og hlutdeild Eyjaflotans
1999/2000
Tegund Heildarúthlutun Kvóti Hlutdeild
Þorskur 175.715 14.948 8,51%
Ýsa 26.909 4.890 18,20%
Ufsi 23.184 4.191 18,07%
Karfi 60.000 6.423 10,71%
Sfld 110.000 19.779 18.00%
Loðna 891.501 136.342 15.29%
Samtals 379.061 39.080 10,31%
2000/2001
Tegund Heildarúthlutun Kvóti Hlutdeild
Þorskur 154.583 11.574 7,49%
Ýsa 22.380 3.734 16.68%
Ufsi 24.060 3.749 15.58%
Karfi 56.999 5.407 9,49%
Sfld 99.992 21.758 21.76%
Loðna 417.754 84.561 20.24%
Samtals 315.942 27.242 8,62%
PÉTUR Steingrímsson stóð uppi sem sigurvegari í keppni um bestu
lundauppskriftina sem Fréttir og Magnús Bragason stóðu fyrir.
Verðlaunin voru myndarleg matarkarfa frá Heildverslun K.
Kristmanns. Hér er Magnús að afhenda Pétri verðlaunin.
SHELL-mótið í Vestmannaeyjum, (pollamótið) hefur verið haldið í 16 ár og er eitt fjölmennasta
íþróttamót landsins. Það hefur fengið mikið hrós fyrir góða skipulagningu þar sem drengirnir eru í
aðalhlutverki. Hróður mótsins hefur borist út fyrir Iandsteinana en hvort það er Guði þóknanlegt
eða ekki liggur ekki fyrir. Það sem gerðist í ár er að mótið fór fram um leið og Kristnihátíð og hefur
sennilega orðið til þess að 60.000 færri mættu á Þingvelli en ætlað var.
Halldór Blöndal forseti Alþingis á Hólahátíð:
Andkirkjulegur
fótbolti í Eyjum?
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
fetar í fótspor forseta Iýðveldisins
og forsætisráðherra þegar hann á
Hólahátíð þann 13. ágúst fer
mikinn í því að verja kirkjuna.
Báðir náðu þeir eyrum þjóðar-
innar með orðum sínum en það er
ástæða fyrir Eyjamenn að huga að
orðum Halldórs þegar hann tekur
fyrir kristnihátíðina og Iofar hana
í hástert. Til að hnykkja enn frekar
á ágæti hennar nefnir Halldór
uppákomur eins og pollamót í
Vestmannaeyjum sem honum
finnst heldur lágkúruleg tískubóla
og andstæður póll við dýrleika
kristnihátíðarínnar.
Tengsl kirkju og þjóðar
I ræðu sinni á Hólahátíð rekur
Halldór tengsl þjóðar og kristni allt
frá landnámi og jafnvel lengra aftur.
Nefnir hann nokkur dæmi úr íslend-
ingasögunum og Landnámu máli
sínu til staðfestingar og ekki efast
hann um trúverðugleika þeirra. „Eg
rifja þetta upp af því að mér þykir
vænt um Islendingasögumar og
gleðst, þegar nýjar rannsóknir stað-
festa það, sem ég hef viljað trúa, að
þær séu í grundvallaratriðum réttar að
því marki, sem þær gefa sig út fyrir
að vera réttar. Því að vitaskuld er
erfitt að höndla sannleikann og koma
honum til skila, það veitist a.m.k.
sumum fjölmiðlum fullerfitt í dag og
em þeir þó að skýra frá sam-
tímaatburðum og hafa blaðamann á
staðnum. Því að auðvitað er það svo,
að fréttin getur aldrei orðið þroskaðri
en blaðamaðurinn, sem á pennanum
heldur. Dagblaðið ber keim af rit-
stjóranum, eins og Heimskringla ber
svip Snorra Sturlusonar," segir
Halldór.
Næst snýr hann sér að kristnihátíð
sem hann segir hafa verið mjög af
hinu góða. „Það var ærið tilefni til og
svo er nauðsynlegt að halda hátíð
annað slagið til þess að minna sig á
sögu sína og uppruna, ef menn vilja
ekki verða rótlausir í landi sínu.
Menn þurfa á því að halda að vera
hátíðlegir á stundum. Við vitum ekki
nákvæmlega. hversu margir sóttu
kristnihátíð á Þingvelli og þaðan af
síður, hversu margir fylgdust með
henni í sjónvarpi eða útvarpi. En þeir
hafa skipt tugum þúsunda, það þori
ég að fullyrða eftir þeim viðbrögðum,
sem ég hef fundið.
Og hátíðin fór vel fram, var öllum
til sóma, sem að henni stóðu. Hún
gladdi menn og göfgaði og kallaði
fram hið góða í mönnum, af því að
þeir lögðu sig fram um að gera
hátíðina að hátíð þjóðarinnar," segir
Halldór sem telur að fijálslega hafi
verið farið með tölur um kostnað við
hátíðan."
Sætir Akureyringar
Sem dæmi um þá göfugmennsku
sem hátíðir og heimsóknir tigina
gesta kalla fram hjá fólki nefnir Hall-
dór heimsókn Danadrottningar til
Akureyrar fyrir um aldarfjórðungi.
„Eg man að sumir drifu í því að mála
húsin sín og bæjaryfirvöld lögðu
kapp á að ljúka nýrri vegargerð fram
á flugvöll inn íjömna til að gera
aðkomuna að bænum sem glæsi-
legasta. Akureyringar hentu gaman
að þessum framkvæmdum og
kölluðu veginn drottningarbraut til að
gera góðlátlegt grín að bæjarstjóm-
inni, sem svaraði fyrir sig með því að
láta það nafn festast við brautina.
Mér finnst þetta sæt saga,
Akureyringum líka,“ segir forseti
Alþingis um fólkið í kjördæminu
sínu.
Sætl, ekki satt en til að leita að því
gagnstæða leitar hann þvert yfir
landið og stoppar ekki íyrr en í Vest-
mannaeyjum.
„Menn kasta því á milli sín í blöð-
unum, að þjóðin hafi fellt áfellisdóm
yfir kirkjunni með því að ekki sóttu
fleiri hátíðahöldin á Þingvöllum en
raun ber vitni. Þeir vom þó 15
þúsund hefur mér verið sagt og sumir
nefna 20 þúsund á sunnudeginum.
Og maður spyr sjálfan sig, hvort
hægt hafi verið að búast við, að fleiri
sæklu hátíðina en þangað fóm.
Súrir Eyjamenn
Ég læt því ósvarað og jafnvel þó svo
hafi verið, held ég, að það hafi ekki
verið vegna andúðar á kirkjunni að
fleiri sóttu ekki kristnihátíð á Þing-
völlum. Kristin trú og kirkja er ekki
tískufyrirbæri eins og pollamót í
Vestmannaeyjum, úrslitaleikur í
knattspymu eða popptónleikar og
veldur ekki gervispennu í andar-
takinu, sem hverfur út í veður og
vind, áður en varir. Og það megum
við vera þakklát fyrir,“ segir Halldór
og honum finnst ástæða til að minna
á að íslenska kirkjan er frjálslynd en
af hverju minnist hann ekki á
pollamót á Akureyri. Em þau
kirkjunni þóknanlegri en pollamót í
Eyjum?
„Kirkjan er nær fólkinu en áður. Þá
settu kirkjunnar menn sig ofar alþýðu
manna og kenndu niður á við. Nú
tala prestamir við ungt fólk með allt
öðmm hætti og ekki í áminningarstíl
lengur. Og svo hefur kenning kirkj-
unnar öðlast meiri dýpt og breidd,
meiri þroska og reynslu, eftir að
konur bættust í hóp kennimanna, svo
að okkur er farið að þykja sem svo
hafi ávallt verið,“ segir Halldór.