Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2000, Page 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 31. ágúst 2000
Útboð Vegagerðarinnar á rekstri Herjc
Klæðskerasniðið fyrir hei
UM aðstöðuna í landi, sem nauðsynleg er skipinu og talin hefur verið sterkasta vopn Herjólfs hf. sem alla tíð hefur mótmælt útboðinu,
meðal annars á þeirri forsendu að hagsmunir Evjamanna verði ekki tryggðir, nema heimamenn sjái um reksturinn. Það hefur verið
úrskurðað af löglærðum manni, Baldri Guðlaugssyni, að réttur Herjólfs hf. til afgreiðslumannvirkjanna standist ekki og auðvelt fyrir
Vegagerðina, sem er ríkisfyrirtæki, að taka mannvirkin eignar- eða leigunámi.
Útboð ferjusiglinga Herjólfs milli
Vestmannaeyja og Þorlákshafnar
hefur verið ofarlega í umræðunni í
Vcstmannaeyjum undanfarna
mánuði og ekki allir á eitt sáttir um
ágæti útboðsins. Staðreyndin er
hins vegar sú að útboð er orðið að
veruleika og samgönguhaukar velta
nú fyrir sér útboðsgögnum, en síð-
ast þegar vitað var höfðu fimm
aðilar sótt sér útboðsgögnin til
Vegagerðarinnar sem er cigandi
ferjunnar Herjólfs og sér um fram-
kvæmd útboðsins fyrir hönd
rfldssjóðs. Samningstíminn er þrjú
ár, frá 1. janúar 2001 til 31. des-
ember 2003, en verkkaupi og
verktaki geta framlengt samningin
um tvö ár, ef um það næst
samkomulag. Tilboðum í verkið á
að skila til Vegagerðarinnar fyrir
kl. 14.00, mánudaginn 11. sept-
ember nk. og verða tilhoðin opnuð á
sama stað 15 mínútum síðar.
Fréttir glugguðu í útboðsgögnin. I
fljótu bragði virðist ekkert geta
hindrað Herjólf hf. sem er nú-
verandi rekstraraðili skipsins í að
halda rekstrinum áfram og jafnvel
lítt fýsilegt fyrir aðra aðila að bjóða
í verkið, þar sem ýmis skilyrði og
þjónustustigið er njörvað í óbreytt
ástand, (sem einhverra hluta vegna
er talið fullnægjandi nú). Harðir
stuðningsmenn óbreytts rekstrar-
forms telja þó illmögulegt að sjá
hvort áhugsamir finni einhverja
fleti til þess að lækka núverandi
kostnað við rcksturinn, eða gera
hann hagkvæmari á einhvcrn hátt
án þess að þjónustustigið lækki.
Aðrir benda þó á að það hafi sýnt
sig að útboð lækka yfirleitt kostnað
og benda á þá miklu lækkun húf-
trygginga sem Ríkiskaup bauð út á
dögunum fyrir ferjur sem eru í eigu
rfldsins.
Að sitja báðum megin við
borðið
Herjólfur hf. er í eigu Vestmanna-
eyjabæjar með 51,4% eignarhlut, ríkið
46,3% og aðrir eignarhlutir eru svo í
eigu einstaklinga. Hefur þess vegna
mörgum þótt kynlegt að ríkið skuli
sitja báðum megin borðs, þ.e. að útbúa
útboðsgögnin, setja fram kosti og
skilyrði fyrir hugsanlega nýja
rekstraraðila, en vera á sama tíma
fullgildur aðili til þess að bjóða í
verkið sem hluthafí í Herjólfi hf. Því
þykir gagnrýnendum útboðsins vand-
séð hverra hagsmuna er verið að gæta,
Vestmannaeyinga, ríkisins eða fyrir-
tækja í frjálsu markaðshagkerfi. Svo
eru aðrir sem vilja meina að Vest-
mannaeyjabær sé ekki síður báðum
megin borðsins, þar sem hann fékk
einn aðila að fara yfir útboðsgögnin og
koma með athugasemdir, auk þess að
vera meirihlutaeigandi í Herjólfi hf.,
sem lýst hefur yfir opinberlega að
hann muni bjóða í verkið.
Þjóðvegur númer ??
Það hefur verið talað um að Herjófur
væri hluti af vegakerfinu og hann oft
kallaður þjóðvegur eitt til Vest-
mannaeyja. Samkvæmt því segja þeir
er mótmæla útboðinu að ekki tíðkist
að vegir á Islandi séu reknir af öðrum
en ríkinu og að vegakerfið sé eign
þjóðarinnar. Hins vegar er því ekki að
neita að nánast öll vegamannvirki í
landinu eru byggð eftir útboð. Minn-
ast menn oft á fordæmið Hval-
íjarðargöng sem séu rekin af einka-
aðilum. Grímseyjarferjan Sæfari var
boðin út og ekkert bendir til annars en
að sá rekstur gangi vel, almenningi til
hreinnar ánægju, þó ýmsum þyki litur
hennar Ijótur, hví skyldi útboð
Herjólfs ekki lfka, sem hluti þjóðvega-
kerfisins verða almenningi til sömu
ánægju og heilla. Samkvæmt vega-
lögum er ferjurekstur hluti af þjóð-
vegakerfi landsins og kostnaður af
rekstri Herjólfs bundinn í vega- og
Ijárlögum. „Hvað þetta varðar er
engin fyrirsjáanleg breyting," sagði
samgönguráðherra í viðtali við Fréttir
9. september í fyrra.
Sama ferðatíðni
í útboðslýsingunni þar sem talað er
um ferðatíðni skal til dæmis í engu
víkja frá þeirri áætlun sem nú er í
gildi. Það vill segja að ekki er hægt að
fækka fóstum áætlunarferðum, sem er
kannski líka vandséð að leiði til
spamaðar, að láta slíkan farkost, sem
Herjólfur er, liggja við bryggju. Það
er gefinn möguleiki á breytingu ef allir
aðilar eru sammála, þar með talin
bæjarstjóm Vestmannaeyja Hins
vegar er ekkert sem segir að ekki megi
nýta skipið til annars, svo fremi sem
það kemur ekki niður á téðri fastri
óhagganlegri áætlun. Einnig er tryggt
að fjórar til fímm aukaferðir verði
famar á ári í kringum föst íþróttastór-
mót, sem haldin em í Eyjum, eða af
öðm tilefni ef bæjarstjóm Vestmanna-
eyja óskar þess. Jafnframt er heimilt
að breyta tímaáætlun af sérstökum
ástæðum að minnsta kosti sex sinnum
á ári. Ef hins vegar varanlegar
breytingar verða gerðar á áætlun
verður það einungis gert um mánaða-
mót ágúst - september hvers árs, sem
þýðir væntanlega að engar breytingar
á áætlun nást inn fyrr en að ári, ef
nýjum aðilum hugnast svo. Hvort hér
er átt við breytingar á tíðni ferða eða
tímasetningar er hins vegar vandséð,
af útboðslýsingunni nema hvort
tveggja sé.
Um aðstöðuna í landi, sem nauð-
synleg er skipinu og talin hefur verið
sterkasta vopn Heijólfs hf. sem alla tíð
hefur mótmælt útboðinu, meðal
annars á þeirri forsendu að hagsmunir
Eyjamanna verði ekki tryggðir, nema
heimamenn sjái um reksturinn. Það
hefur verið úrskurðað af löglærðum
manni, Baldri Guðlaugssyni, að réttur
Herjólfs hf. til afgreiðslumannvirkj-
anna standist ekki og auðvelt fyrir
Vegagerðina, sem er ríkisfyrirtæki, að
taka mannvirkin eignar- eða leigu-
námi. Hins vegar eru ekki allir á eitt
sáttir með niðurstöðu lögmannsins og
telja að ekki hefði verið óeðlilegt að fá
álit annars löglærðs manns, sem
hugsanlega sæi aðra fleti á málinu,
þrátt fyrir að Baldur var samþykktur af
öllum aðilum málsins. Menn velta því
þess vegna fyrir sér hvort ekki hefði
verið rétt að fá óvilhalla löglærða
menn til þess að kveða upp um það
hvort Herjólfur hf. mætti yfirleitt
bjóða í verkið. Heijólfur hf. á öll af-
greiðslumannvirki, hús og rana fyrir
farþega, bæði í Vestmannaeyjum og
Þorlákshöfn og því hafa Heijólfsmenn
staðið á því að ekki kæmi til álita að
leigja eða selja aðstöðuna til annars
aðila, ef svo ólíklega færi að þeir
fengju ekki reksturinn áfram. í
útboðslýsingunni segir að verkkaupi,
þ.e. Vegagerðin „leggur til aðstöðu