Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2000, Síða 17
Fimmtudagur31. ágúst 2000
Fréttir
17
mamenn?
fyrir móttöku og rana (landgöngubrú)
bæði í Vestmannaeyjum og Þorláks-
höfn gegn ákveðnu leigugjaldi. Verk-
taki, skal sjá um rekstur þessara
mannvirkja, þ.e. rekstur húsnæðis, s.s.
rafmagns, hita og venjulegt viðhald.
Einnig sér verktaki um rekstur þjón-
ustunnar.“
Herjólfur hf. leigir
hafnarmannvirkin
Að sögn Magnúsar Jónassonar, fram-
kvæmdastjóra Heijólfs hf., eiga Hafh-
arsjóður Vestmannaeyja og Hafnar-
sjóður Þorlákshafnar bflabrúna og
leigir Herjólfur hf. þau mannvirki af
viðkomandi aðilum. Veitingasala og
þrif um borð í Heijólfi á meðan á
siglingu stendur er í höndum Herjólfs
hf., sem og sér um launagreiðslur til
þess starfsfólks. Hins vegar er sinn
hvor verktaki sem sér um þrif í
Þorlákshöfn og þegar skipið liggur við
bryggju í Vestmannaeyjum.
Áhöld um hver borgaði
brúsann
Gunnar Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri stjómsýslusviðs Vegagerðar-
innar, sagði að Vegagerðinni hafi
verið falin umsjón með ferjumálum af
hálfu ríkisins frá 1993 og í gegnum
tíðina hefði ríkið borgað mismuninn á
gjöldum og tekjum Heijólfs hf. og
talað um að uppsafnað tap Heijólfs sé
um 120 milljónir króna. „Gengið var
írá kaupunum á Heijólfi í árslok 1995.
Þegar ríkið keypti Herjólf af Heijólfi
hf. fylgdu fasteignir Herjólfs hf. ekki
með í kaupunum. Eftir því sem ég
best veit eru þessar eignir Herjólfs hf.
án áhvflandi skulda. Hins vegar má
benda á, að ríkið kostaði byggingu
þessara fasteigna á sínum tíma,“ sagði
Gunnar.
Magnús Jónasson segir hins vegar
að þegar gamli Herjólfur, það er
skipið sem var í siglingum milli lands
og Eyja á undan núverandi skipi, var
seldur, hafi andvirði sölu hans, um 60
milljónir á þávirði gengið upp í kaup á
núverandi skipi sem kostaði milli 12
til 13 hundmð milljónir. „Hins vegar
vom afgreiðslumannvirki reist fyrir
ágóða af sölu eigna Heijólfs hf., sem
þá vom húseign, auk tækja og tóla
sem nauðsynleg em til hvers kyns
manúveringa við fraktflutninga.“
I áður ívitnuðu viðtali hér að
framan við Fréttir 9. september, sagði
Smrla Böðvarsson samgönguráðherra
um afgreiðslumannvirkin í landi:
„Ríkið á skipið og veitir styrk í
hafnarmannvirki. þannig að ég geri
ekki ráð fyrir öðm en að fullt
samkomulag yrði um nýtingu á öllum
þessum þáttum; skipinu, afgreiðslu-
mannvirkjum og rampinum, þannig
að ég tel að slíkt ætti ekki að valda
neinum vandræðum. Þama þarf að ná
samkomulagi." Varkár, bjartsýnn og
diplómatískur samgönguráðherra að
ekki sé meira sagt.
Ekki er heimilt að breyta gjaldskrá
án samþykkis verkkaupa og með sam-
komulagi við bæjarstjóm Vestmanna-
eyja. Auk þess skal verktaki veita
þjónustu um borð við farþega á
siglingaleið. Allur slíkur rekstur skal
vera í umsjá verktaka og án
skuldbindinga fyrir verkkaupa á
nokkum hátt.
Gert er ráð fyrir að verktaki taki
ferjuna Heijólf á þurrleigu af verk-
kaupa. Leiguverð skipsins er þrjár
milljónirá verðlagi l.janúar2001 og
verðbætist árlega 1. janúar ár hvert.
Þurrleigusamningurinn fylgir útboðs-
gögnunum og skal hann fylgja
undirritaður ásamt tilboðinu.
Verktaki er að fullu ábyrgur fyrir
rekstri skipsins og alls þess sem þarf
til þjónustu samkvæmt útboðinu.
Hins vegar er breyting á frá því sem
áður var að nú húftryggir verkkaupi
skipið en verktaki skal setja rekstrar-
tryggingu sem svarar til 2,5% af
samningsupphæð.
Hagstætt útboð á
tryggingum
Gunnar Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri stjómsýslusviðs Vegagerðarinn-
ar, sagði að feijufélög á landinu hefðu
séð um allar tryggingar á feijum, sem
þau reka, fram til þessa. „Nú á ríkið
feijumar Baldur, Sæfara, Sævar og
Herjólf og ákvað að Ríkiskaup skyldi
bjóða út húftryggingar fyrir öll þessi
skip í einum pakka. Húftrygging er
því ekki inni í útboðinu á Heijólfi.
Heildampphæð þessara trygginga í
allar ferjumar kom frá Anglo Nordic
og hljóðaði upp á 5,9 milljónir króna.
Húftryggingargjöld á Herjólfi vom 8
milljónir en em samkvæmt tilboði
Anglo Nordic 3,2 milljónir króna.
Menn verða samt að hafa það í huga
að áhætta er metin öðm vísi þegar
tryggingar em boðnar út á þessum
gmnni, heldur en ef hvert og eitt skip
yrði boðið út sérstaklega."
Þegar talað er um forræði feijunnar
Heijólfs vilja margir meina að um sé
að ræða harða valdabaráttu sem
endurspeglast jafnt í litlabróður-
pólitíkinni heima í héraði, sem og í
stórabróðurpólitíkinni í Reykjavflc.
Þegar allt er undir einum hatti, þá er
betra að hafa þann hatt barðastóran,
bæði til þess að ekki sjáist í augu þess
sem heima er í héraði og ekki síður að
heimamaðurinn þurfi ekki að horfa á
annað en naflann á sjálfum sér, sem er
eðlilega besti nafli í heimi. Hvað
verður um Heijólf hf. ef hann fær ekki
að stunda siglingar á þjóðveginum
áffam, eins og hingað til? Margir
segja að rekstrargmndvöllur Heijólfs
hf. hljóti að brotna og hann heyra
sögunni til, með tilheyrandi upp-
sögnum starfsfólks. Hins vegar eru
heimildir fyrir því að engum verði
sagt upp fyrir útboðið og að Vega-
gerðin muni tryggja laun á upp-
sagnarfresti, þeirra sem ekki yrðu
endurráðnir hjá nýju fyrirtæki, ef svo
ólíklega vildi til. Þó er ekki örgrannt
um að sama áhöfn gæti hugsanlega
verið áfram á skipinu, að minnsta
kosti í ljósi þess að heimahöfn
skipsins og náttstaður verður áfram
Vestmannaeyjar samkvæmt skilyrð-
um útboðsins. En að sama skapi er
ekki ólfklegt að nýir rekstraraðilar
myndu vilja endurskoða núgildandi
samninga milli Herjólfs hf. og
áhafnarinnar og ekki sjálfgefið að þeir
verði hinir sömu.
Annað mál er olíukostnaður, kunna
að vera einhveijar forsendur fyrir betri
innkaupum á eldsneyti hjá öðmm
rekstraraðilum, sem hugsanlega hafa
áhuga á að spreyta sig á feiju-
siglingum milli lands og Eyja. Eins
og verðlag á olíu hefur þróast
undanfarið á heimsmarkaði kunna það
að vera pípudraumar. Eyjamenn bíða
því nú í ofvæni eftir niðurstöðu
útboðsins og hvomm megin hryggjar
lífæðin til Eyja kemur til með að
liggja og undir hvaða gunnfána
Herjólfur siglir í framtíðinni.
Samantekt: Benedikt GesLsson
Allir í sund!
-Fréttir frá Sundfélagi ÍBV
Þá er æfinga- og keppnistímabilið
byrjað aftur. Æfingar hjá Sund-
félagi ÍBV fyrir alla aldurshópa
hefjast mánudaginn 4. september.
Keppnishópurinn tók forskot á
sæluna og byrjaði æflngar á mánu-
daginn í síðustu viku. Astæða þess
að þau byrja fyrr er sú að þau
þurfa að komast í gott form fyrir
Bikarkeppni Sundsambandsins
sem verður í nóvember.
Við höfum breytt æfingatímum og
vonumst til þess að þeir verði hentugri
fyrir alla sem æfa sund nú þegar eða
vilja byija að æfa. Sundfélagið skiptist
í 4 hópa A, B, C og D.
D-hópur 7-9 ára
Þeir sem æfa með D-hóp em 7-9 ára
krakkar sem em orðnir syndir. Þau
koma til með að læra baksund,
bringusund og skriðsund, auk þess
sem stór hluti æfinganna er nýttur í
leiki og fjörhvatningu. Þessi hópur
verður tvískiptur og æfir annar
hópurinn á mánudögum og fimmtu-
dögum, og hinn hópurinn á þriðju-
dögum og föstudögum. Æfingamar
em allarfrá 17.15 til 18.00.
D-hópur tekur þátt í 4 sundmótum á
tímabilinu. Eftir að hafa stundað æf-
ingar í eitt ár geta flest þeirra synt
sundin þrjú og sum þeirra færast upp í
C-hóp. í hvorum hóp verða ekki fleiri
en 12 krakkar.
C-hópur 9-13 ára
C-hópurinn æfir ljómm sinnum í
viku, auk þess sem það sundfólk sem
er lengst komið í sundinu fær tækifæri
til að mæta á eina æfingu á viku með
keppnishópnum. Æfingamar verða frá
kl. 16.00-17.00 alla virka daga nema
miðvikudaga. C-hópurinn tekur þátt í
fleiri sundmótum en D-hópurinn, auk
þess sem farið verður á 2-3 mót utan
Eyjanna. Unnið er áfram með
tækniatriði í bak-, bringu- og
skriðsundi og sundfólkið byrjar að
læra flugsund. Æfingamar em
fjölbreyttar og eftir 1-2 ár em sumir
tilbúnir til að hefja æfingar með
keppnishópi.
A og B- hópur. Keppnishópur
Æfingar verða 6 sinnum í viku í
lauginni, auk þess tvo daga í viku í
þreksalnum. Sundmenn sem vilja ná
sem bestum árangri mæta einnig tvo
morgna á viku á æfingu. Segja má að
þessi hópur sé fullmannaður og aðeins
góðir sundmenn fá tækifæri til að
stunda þessar æfingar.
Sundskóli
Við munum halda áfram með sund-
skólann okkar sem sló í gegn síiðasta
vetur. Þar er unnið með bömum á
aldrinum 3 til 7 ára. Þar taka bömin
fyrstu „skrefin" í vatninu með elsta og
reyndasta sundfólki Sundfélagsins
sem vinnur með bömunum.
Sundmót
Keppnisáætlun fyrir komandi tímabil
er tilbúin og verða sundmennimir
þátttakendur í 16 sundmótum. Sex
þeirra verða í Vestmannaeyjum og 10
uppi á landi. Fyrsta mótið verður hér,
Sprettsundmót IBV þann 7. og 8.
október. Þetta mót verður sífellt vin-
sælla og von er á góðum gestum af
fastalandinu til að keppa í okkar hröðu
sundlaug.
Að lokum: Velkomin í sund! Sund er
góð íþrótt fyrir böm. Þú getur orðið
góður og sterkur sundmaður! Auk
þess sem sund er einstaklega gott fyrir
heilsuna og lítið er um meiðsli. Svo er
líka gaman að æfa sund!
Nánari upplýsingar er að fá í síma 699
5790.
ÞESSIR ungu frændur voru kynntir til sögunnar í síðasta blaði en
því miður varð ruglingur á nöfnum. Þeir heita Leó Snær Pétursson,
Guðjón Orri Sigurjónsson og Brynjar Darri Baldursson.
Spurt er
heldur þú að
bikarleikurinn
gegn Fylki á
þriðjudaginn
fari?
Auróra Friðriksdóttir, ferða-
málafulltrúi:
,.Ég segi að ÍBV
vinni, 1-0 en það
I verður erfitt. Ég
\ reikna með að
Steingrímur verði í
gæslu í leiknum og
IXy^ það verður Hlynur
sem skorar.“
Jósúa Steinar
Hólsari:
Óskarsson,
„Eg spái IBV aldrei
tapi, það er ekki til í
mínum þykk:
haus, og ég held að
vinnum2-0. Eigum
við ekki að segja að
þeir Steingrímur og
Mileta sjái um þau
Þórarinn Sigurðsson, rafvirki:
1 „Ég veit það ekki
og er alveg sama.“
Grétar Þorgilsson, frá Grund:
— „Eg er nú ósköp
m lítið inni í fót-
''lý hollanum. En þeir
i vinna þetta 3-2.“
Marinó Sigursteinsson, pípari:
—„Við vinnum hann
t. að sjálfsögðu, 3-2.
Mileta, Steingrímur
t og Ingi sjá um að
skora."
Guðbjörg Karlsdóttir, 'frygg
ingamiðstöðinni:
,ÍBV vinnur 2-1.“
Georg Þór Kristjánsson,
svæðisstjóri:
„Ekki spurning, 3-
1 fyrir IBV. Stein-
grímur skorar tvii
MijEC. og Hlynur eitt.
PPf* Frændi minn.
vW ~ ■ Gylfi Einarsson.
SK skorar svo þetta
eina mark Fylkis,
hann liefur þetta í genunum.“