Fréttir - Eyjafréttir - 31.08.2000, Blaðsíða 20
Frétta- og auglýsingasimi: 481-3310 • Fax 481-1293
Hrunhætta
úr fjöllum
Oðru hvoru hefur orðið vart við
hrun úr fjöllum, eftir jarð-
skjálftana í sumar og skemmst að
minnast lítillar gusu sem féll úr
Klifinu á dögunum.
Að gefnu tilefni eru Eyjamenn
beðnir um að hafa allan vara á sér
nú þegar haustar með auknu vot-
viðri og ekki síður þegar frysta fer.
Ármann Höskuldsson forstöðu-
maður Náttúrustofu Suðurlands
sagði að full ástæða væri til að vara
menn við hrunhættunni. „I rign-
ingartíð eykst hætta á grjóthruni og
hættan minnkar ekki þegar fer að
fijósa og þiðnar á milli. Við gemm
ráð fyrir því að framan af vetri verði
hmnhættan viðvarandi, sérstaklega
við áðumefnd skilyrði. Síðan má
ætla að sárin taki að gróa og
hlíðarnar öðlist fyrri stöðugleika,"
sagði Ármann.
Enn fækkar fólki
Samkvæmt upplýsingum úr Ráð-
húsinu var íbúafjöldi í Vest-
mannaeyja miðvikudaginn 30.
ágúst sl. kl. 13.30, 4.536 ein-
staklingar.
Þann l.desember 1999 var
íbúafjöldi 4.583. Hefur íbúum því
fækkað um 47 á tímabilinu. Brott-
fluttir á tímabilinu em 198, fæddir
46, látnir 22. Innfluttir á þessu
tímabili em 127 einstaklingar.
Fjöldi karla í Eyjum 1. desember
1999 var 2.416, en íjöldi kvenna
2.167. Fjöldi karla 30. ágúst kl.
13.30 var 2.385, en kvenna 2151.
Körlum hefur því fækkað um 31 og
konum um 16 á þessu tímabili, sem
er 1.0 prósent fækkun. Þess má geta
í framhjáhlaupi að á umræddu
tímabili flutti 451 einstaklingur á
milli húsa og eða hverfa í Eyjum.
Ofbeldisfull busavígsla?
Eins og venja er í framhaldskólum landsins, er
venjan að eldri nemendur skóianna bjóði
nýnema velkomna í skólann á hverju hausti með
því að busavígja þá. Á hverju hausti heyrast
fréttir um að slíkar vígsluathafnir séu meira en
lítið - verið velkomin í skólann -, heldur hreinar
og klárar misþyrmingar og einelti.
Á morgun föstudag er formleg busavígsa Fram-
haldskólans og trúlega þóknanleg skólayfirvöldum.
Hins vegar hafa miklar sögur af einhvers konar
forbusavígslu gengið fjöllunum hærra í bænum
þessa viku og ekki allir á eitt sáttir við aðfarimar.
Er þar nefnt dæmi um stúlku sem í þrígang var
keyrð út í Stórhöfða og gert að ganga þaðan í bæinn.
Einnig að stúlka haft verið þvinguð í sjóinn úti í
Klauf og látin ganga heim að loknu sjóbaðinu.
Olafur H. Siguijónsson skólameistari FÍV sagði að
honum væri ekki kunnugt um einstakar athafnir
nemenda sinna utan skólatíma. „Undanfarin ár
höfum við reynt að draga úr tilhneigingum til
ofbeldis við busavígslur, og reynt að koma þessu í
ákveðinn farveg, en það hefur gengið misjafnlega.
Busunin hér innan skólans hefur verið án vandræða
held ég megi segja. Hinu er ekki að leyna að eldri
nemendur og busar espa hverjir aðra upp í þessu,
svo úr verður hálfgerður bófahasar.“
Þegar ofantalin dæmi um busun vom nefnd við
Olaf sagðist hann ekki kannast við þau, né að
lögregla hafi haft afskipti af slíku „Það hefur gerst
áður að nemendur hafi verið keyrðir hingað og
þangað um eyjuna og látnir ganga heim. Hvorki
foreldrar nemenda í skólanum, né nemendur hafa
kvartað við mig. Það em hins vegar dæmi um að
krakkar sem ekki em í skólanum hafi verið að atast
í þessu. En það er erfitt að fylgjast með þessu. Ég
sé til dæmis ekki flöt á því að hætta þessu innan
skólans og að krakkamir fæm þá eingöngu niður í
bæ með busunina það yrði held ég hálfu verra.“
Tryggvi Olafsson, lögreglufulltrúi, sagði að engin
tilfelh sem tengdust busavígslum hefðu borist inn á
borð hjá lögreglu og engar færslur í dagbók hennar
af þeirra sökum. „Hins vegar emm við með aukið
eftirlit vegna þess að bamaskólamir em að byija og
sjálfsagt að skilja ekki nemendur Framhaldskólans
útundan í því eftirliti,“ sagði Tryggvi að lokum.
Rútuferðir - Bus tours
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
(3)481 1909 -896 6810-fax 4811927
Vilhjálmur Bergsteinsson
n 481-2943
» 897-1178
Umferðarskólinn var hér
á ferð í síðustu viku en
hann er ætlaður elstu
nemendum leikskólanna
og yngstu nemendum
grunnskólanna.
Fréttir litu við í tíma í
skólanum og fengu að
fylgjast með kennslunni.
Leiðbeinendur gátu ekki
kvartað yfir athyglinni
sem þeir fengu því ekki
eitt einasta orð sem þeir
sögðu fór fram hjá
krökkunum. Ævintýrið um
Rauðhettu og úlfinn var
fært til nútímans og notað
í kennslunni og að
sjálfsögðu fékk úlfurinn
að kenna á því að kuna
ekki umferðarreglurnar.
Daglegnr
jf ferðir mifli
U lands og Eyja
r/ Landflutningar
J W=\f
VlkutlLboðl
*vikuna 30. ágúst - 6. sept.
Cöte rl'Orlilakarmellur, 200gr.
189,- ðlur 268,- %"
McmiesMacakes
138,- ðtur16B,-
OeyktarAli smakótelettur
1098,- áður 1389,- pr. kg.
m
• r oj \t
Smjör, 500gr.
169,- áðir 212,-
IgilsKristallJ.SItr. LeS
Berioóliíuolia, 500ml. 79,- á#ur99.-
138,- álur 249,- 248. áSur 339,-
c
196,- áður 248,- Oeykt lolaláakjöt Irá Bautabúrinu, úrbeinaS 539,- áður 819,
pr.ka-J
Smjoryi
Srujörvi, 300gr.
139,- álur159,-
!9
!8
!8
'8