Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2000, Síða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 19. október 2000
Maggi og
Sjöfn á
Kletti án
leyfis í heil
26 ár
Þau Magnús Sveinsson og Katrín
Sjöfn Sigurbjömsdóttir hafa rekið
sjoppuna og bensínsöluna á Kletti
síðanárið 1974. Þarer veitinga- og
greiðasala eins og í öðrum sams
konar sjoppum. Fyrir skömmu fékk
Magnús bréf frá sýslumanni þar
sem honunr var gert að sækja um
leyfi fyrir þessum rekstri. Þar sem
Magnús er fádæma löghlýðinn
maður hlýddi hann því boði og sótti
um leylj til að reka sjoppuna á
Kletli. A fundi bæjarráðs á mánu-
dag lá iyrir bréf frá sýslumanni þar
sem leitað er umsagnar bæjarráðs á
umsókn Magnúsar vegna rekstrar
veitingastofu og greiðasölu á Kletti.
Þetta erindi vai' samþykkt sam-
hljóða í bæjarráði. „Eg held að
þetta hafi verið einhver misskiln-
ingur,“ sagði Magnús. „Kannski
hefur þetta verið kolólöglegt í
rúman aldaríjórðung hjá okkur þó
að ekki hafi nú verið kvartað yfir
því hingað til. En nú er leytið sem
sagt fengið og við getum því verið
róleg næsta aldarfjórðunginn að
minnsta kosti.“
Bærinn kaupir
Skólaveg 36
Gengið hefur verið frá kaupum
bæjarins á húsinu nr. 36 við
Skólaveg. Er kaupverð þess fjórar
milljónir króna. Gert verður ráð
fyrir þcitri upphæð í fjárhagsáætlun
ársins 2001 en þessi kaup em vegna
framtíðarskipulags skólalóðar
Barnaskólans. Áður var húsið
Kirkjuhóll keypt en bæði þessi hús
standa þétt við skólann og er
ætlunin að rífa þau og stækka þar
með skólalóðina, raunar er búið að
rífa Kirkjuhól, auk þess sem
aðgengi umferðar að skólanum
verður betra.
Ósóttar 1,8
milljónir í
Lottóinu
Á laugardag kom lottóvinningur til
Eyja. Einhver heppinn bæjarbúi,
sem keypti lottómiða í Skýlinu,
varð þar með 1,8 milljónum króna
ríkari. Altur á móti hefur sá heppni
ekki enn framvísað miðanum
sínum. Telja lottófróðir að þar sé
líklega frekar um að ræða að
viðkomandi hafi ekki gert sér grein
fyrir að hann hafi unnið, frekar en
að hann telji ekki ómaksins vert að
sækja aurana. Þess vegna birtum
við hér lottótölur kvöldsins sem em
3 - 13 - 21 - 32 - 33 og bendum
viðkomandi á að drífa sig í Skýlið
til að vitja auranna sinna.
Þá má geta þess að Eyjakona
krækti í hinn hlutann en hún keypti
miðann í Reykjavík.
SÆVAR Einarsson, markaðsstjóri 11-11 verslananna boðar aukna þjónustu.
KÁ heyrir senn sögunni til í Eyjum:
Nóatún og 11-11
koma í staðinn
Mikil uppstokkun á sér stað um
þessar mundir hjá Kaupási sem á
og rekur verslanir KA í Vest-
mannaeyjum. Auk þess á Kaupás
Nóatúnsverslanirnar, 11-11 búð-
irnar og stefnir að opnun lágvöru-
verslana undir nafninu Krónu-
búðir.
Vestmannaeyingar fara ekki var-
hluta af þessum breytingum því KÁ
Tanginn verður Nóatúnsverslun og
KA í Goðahrauni breytist í 11 - II
verslun. Nóatúnsverslunin tekur til
starfa í næsta mánuði en á morgun
verður komin 11-11 verslun í Goða-
hraunið.
Sævar Einarsson, markaðsstjóri hjá
11-11 búðunum, hefur verið hér
undanfama daga að undirbúa opnun
verslunarinnar í Goðahrauni. í samtali
við Fréttir sagði hann að saga 11-11
verslunarkeðjunnar næði allt aftur til
ársins 1991. Vom fyrstu verslanimar
með því nafni í Reykjavík.
„Þetta er því tiltöluega ungt fyrir-
Um síðustu helgi hittust á
Skuggabarnum í höfuðborginni
um 30 ungir brottfluttir Vest-
mannaeyingar sem flestir hafa
verið að vinna að framsögu
hópsins, „Horft heim til eyja“
fyrir ráðstefnuna Eyjar 2010.
Upphaflegt tilefni var að ræða
þau mál en líka að stofna ÁTVR
JR, sem verður hagsmuna- og
skemmtifélag ungra Vestmanna-
eyinga á höfuðborgarsvæðinu. Allt
tókst þetta vel þó stofndaginn haft
tæki sem fyrir tveimur ámm rak fimm
verslanir en eftir breytingamar verða
þær 21,“ segir Sævar. „Við emm á
öllu höfuðborgarsvæðinu og núna
teygja 11-11 verslanimar sig alla leið
austur til Homafjarðar og út til
Vestmannaeyja."
Sævar segir að Vestmannaeyingar
þurfi ekki að kvíða breytingunum.
„Við munum leitast við eins og alltaf
að bjóða viðskiptavinum hagstæð
verð og góð tilboð. Einnig munum við
bjóða viðskiptavinum 11-11 frían
klaka, 50% afslátt á nammibamum á
laugardögum svo höfum við verið
með hamborgara, fjögur stykki með
brauði á 289 krónur. Við munum og
leggja áherslu á gott úrval í skyndi-
réttum og verðum með örbylgjuofn í
versluninni þar sem fólk getur hitað
réttina. Frá morgni til kvölds verður
svo heitt á könnunni."
Opnunartíminn er frá 10 á morgn-
ana til 11 á kvöldin. „Það verður sami
starfsmannafjöldi til að byrja með
borið upp á föstudaginn 13.
október.
Nokkrar tillögur komu um annað
nafn og á eftir að koma á fót nafna-
nefnd. Tillögumar vom ÁTVR JR,
Átthagafélag Vestmannaeyinga á
Reykjavíkursvæðinu junior (yngri),
einnig VÍR, Vestmannaeyingar í
Reykjavík, eða VÍRUS, Vest-
mannaeyingar í Reykjavík ung-
mennasamtök.
Allir em meira en velkomnir í
félagið og er kominn svokallaður
a.m.k., erfitt að meta þörfina strax en
ef eitthvað er gætum við þurft að
fjölga fólki. Við höfum markaðssett
okkur sem verslun sem opin er alla
daga og öll kvöld og við vonum að
Vestmannaeyingar taki þjónustu,
vömm og tilboðum okkar vel. Við
bjóðum alla velkomna á föstudaginn
þar sem við munum bjóða upp á fín
opnunartilboð."
Hvað vömverð varðar segir Sævar
að Vestmannaeyingar þurfi engu að
kvíða þó Kaupás eigi bæði Nóatúns-
verslanimar og 11 -11 keðjuna. Víða
á höfuðborgarsvæðinu em Nóatún og
11 - 11 í mikilli nálægð og því í harðri
samkeppni. „Það er hver verslun rekin
sem sérstök eining og þeir sem þar
stjóma verða að standa sig. Það gerist
ekki öðm vísi en með hagstæðu
vömverði og góðri þjónustu. Einnig
vil ég koma því á framfæri að við
munum leggja áherslu á að kaupa þær
vömr og þá þjónustu sem býðst í
Vestmannaeyjum."
emil-listi í gagnið og til að skrá sig
þarf bara að senda emil ( póst) á
netfangið atvijr@hotmail.is og ertu
þá kominn á listann, tillögur til
nafnanefndar em vel þegnar.
Þetta sýnir að ráðstefnan Eyjar
2010 er strax farin að skila árangri.
Við vonum bara að þetta verði ekki
of skemmtilegt og allir flytji í
bæinn.
Undirbúningsnefndin.
Sömu blessuð
rólegheitin
Undanfamar vikur hafa verið mjög
rólegar hjá lögreglu og færslur í
dagbók ekki farið yfir 200 á viku.
Síðastliðin vika var þar engin
undantekning, aðeins 170 færslur
sem er enn minna en verið hefur.
Lögreglumenn em hæstánægðir
nreð þetta ástand og vona að það
vari sem lengst.
Óviljaverk
Eitt rúðubrot var tilkynnt lögreglu í
vikunni og átti það sér stað á
bílastæðinu við íslandsbanka. Þar
brotnaði rúða í bifreið er flösku var
sparkað í hana. Vitað er hver þama
var að verki og mun hafa verið um
óviljaverk að ræða.
Tveir stútar og
eitt umferðar-
óhapp
Svartasti bletturinn á annars rólegri
viku var að tveir ökumenn voru
teknir, gmnaðir um ölvun við
akstur. Alls lágu 14 kæmr eftir
vikuna vegna brota á umferðar-
lögum. Af þeirn vom 11 sem ekki
höfðu farið í skoðun með ökutæki
sín og einn sern var staðinn að
hraðakstri. Eitt umferðaróhapp var
tilkynnt lögreglu. Átti það sér stað
á Hilmisgötu á miðvikudag í
síðustu viku. Engin slys urðu á
fólki en minni háttar skemmdir á
bitfeiðum.
Féll þrjó metra
í vikunni var lögreglu tilkynnt um
vinnuslys við nýbygginguna á
tankinum í Löngulág. Maður, sem
var að vinna við að afferma tengi-
vagn, téll af vagninum og var fallið
um þrír metrar. Hann kvartaði yfir
eymslum í hálsi og baki og var
fluttur á Heilbrigðisstofnunina.
Ekki er vitað hvort um alvarleg
meiðsli var að ræða.
Umferðarótak
ó morgun
Á morgun, föstudag, verður lands-
átak í umferðarmálum og tekur
lögreglan í Vestmannaeyjum þátt í
því. Felst það einkum í því að
lögregla mun fylgjast með því að
ökumenn fari eftir umferðarlögum
og verða þeir sektaðir sem staðnir
verða að því að bijóta þau lög.
Ungir Eyjamenn á höfuð-
borgarsvæðinu stofna félag
FRETTIR
8
Utgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir
Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gfsli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum
Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránní, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttabiaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.