Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2000, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 19. október 2000
Fréttir
19
Nissandeildin: ÍBV 35 - Stjarnan 33
Æsispennandi
Karlalið ÍBV tók á móti Stjörnunni
í fjórðu umferð Nissandeildar karla
á föstudagskvöldið. IBV hafði fyrir
leikinn ekki tapað í tíu heima-
leikjum í röð og reyndar aðeins
tapað tveimur heimaleikjum síð-
ustu tvö tímabil. Leikmenn IBV
lentu í vandræðum í leiknum og
jafnt var eftir venjulegann leiktíma,
en þar sigldi IBV loksins yfir
Stjörnuna og sigraði, 35-33.
Eyjamenn hafa verið þekktir fyrir
að spila nokkuð góðan vamarleik í
gegnum tíðina en síðustu tveir leikir
hafa ekki verið á þeim nótunum.
Liðið lék afar slaka vöm gegn Val
og svo virðist sem liðið hafi ekki enn
náð að stilla saman strengina í leik
sínum. Reyndar er mótið aðeins ný-
hafið þannig að þeir félagamir Boris
Bjami og Davíð Hallgríms hafa
nægan tíma til að slípa liðið. ÍBV
byijaði leikinn reyndar ágætlega,
komst í 7-3 en þá hmkku Eyja-
mennimir í liði Stjömunnar, þeir
Amar Pétursson, Björgvin Þór Rún-
arsson og Birkir Ivar Guðmundsson í
gang. Amar fór fyrir sínum mönnum
og var að spila mjög vel gegn sínum
gömlu félögum. Stjaman jeiddi mest-
an hluta fyrri hálfleiks en ÍBV náði að
jafna rétt fyrir leikhlé, í 13-13.
Seinni hálfleikur var ijömgur enda
fengu áhorfendur að sjá 32 mörk á 30
mínútum og lýsir það kannski einna
best vamarleik liðanna. Gestimir vom
yfir þar til um miðjan hálfleikinn, að
ÍBV náði aðjafna 20-20. ÍBV varyfir
út leikinn, liðið var tveimur mörkum
yfir þegar fjórar mínútur vom eftir en
náði að klúðra hveiju tækifærinu á
eftir öðm að tryggja sér sigurinn. IBV
fékk t.d. víti þegar leiktíminn var úti
og staðan jöfn en náði ekki að nýta
það heldur þannig að leikurinn var
framlengdur. Reyndar vom dómarar
leiksins ansi skrautlegir og undir lokin
mátti hver sókn ekki standa lengur en
í tíu sekúndur, þá var liðið komið í
hættu með að fá dæmda á sig leiktöf.
I framlengingunni náðu leikmenn IBV
loksins að sýna sínar bestu hliðar,
enda var Amar Pétursson farinn af
leikvelli með rautt spjald og við það
hrundi leikur gestanna. ÍB V sigraði í
leiknum með tveimur mörkum, 35-33
og er í fjórða sæti deildarinnar með
sex stig, þegar fjórar umferðir em
búnar.
Sú spurning vaknaði óhjákvæmi-
lega í leiknum gegn Stjömunni hvort
ÍBV væri ekki óvinnandi vígi ef fleiri
Eyjamenn léku með liðinu. Vest-
mannaeyingar eiga fulltrúa í nokkmm
liðum deildarinnar, með Stjömunni
leika þrír, samanlagt skomðu Amar og
Björgvin 18 mörk og Birkir Ivar varði
23 skot og vom þeir yfirburðamenn í
liðinu.
„Þetta var auðvitað góður sigur hjá
okkur, við emm ekki vanir að spila
svona úrslitaleiki sem fara í fram-
lengingu en líklega er mjög mikilvægt
að vinna fyrsta framlengda leikinn á
heimavelli. Við voru ekki á tánum
allan leikinn, spiluðum lélega vöm og
mér fannst dómaramir missa svolítið
tök á leiknum, þeir vom ekki sam-
kvæmir sjálfum sér og vom að reka
menn út af fyrir brot á einum tíma-
punkti í leiknum en ekki annars
staðar." sagði Erlingur Richardsson
fyrirliði IBV eftir leikinn.
Handknattleikur kvenna: KA/Þór 20 - ÍBV 21
Sluppu með skrekkinn
Kvennalið ÍBV mætti sameiginlegu
liði KA og Þórs á laugardaginn.
Stelpurnar höfðu leikið þrjá leiki
fyrir, tveir heimaleikir höfðu unnist
en útileikurinn tapaðist. Akureyr-
arliðið hefur ekki verið hátt skrifað
að undanförnu og því var búist við
öruggum sigri Islandsmeistaranna.
Annað kom á daginn og IBV náði
að merja eins marks sigur, 20-21.
ÍBV var þó betri aðilinn í leiknum
og var yfrr nánast allan tímann án þess
þó að ná að hrista heimastúlkur af sér.
IBV spilaði þó ekki vel í leiknum og
munaði kannski helst um það að
Amela Hegic náði sér ekki á strik í
leiknum og var í ofanálag tekin úr
umferð stóran hluta leiksins.
Staðan í hálfleik var 11-14 fyrir
ÍBV en heimastúlkur skomðu fyrstu
tvö mörk seinni hálfleiks og opnuðu
leikinn þar með upp á gátt. Undir
lokin náðu leikmenn KA/Þórs að jafna
leikinn 19-19 en IBV svaraði með
tveimur mörkum og tryggði sér
dýnnætan sigur í upphafi móts.
ÍBV er í þriðja sæti deildarinnar
með sex stig af átta mögulegum. __
Sigbjöm Oskarsson, þjálfari IBV,
sagði að þrátt fyrir aðeins eins marks
sigur þá haþ hann aldrei verið efins
um sigur IBV. „Við vomm yfir
nánast allan leikinn, þær jafna
nokkmm sinnum en komast aldrei yfir
INGIBJÖRG Ýr Jóhannsdóttir hefur komið eins og spútník inn í lið
IBV. Skennntilegur leikmaður sem geislar af leikgleði og krafti.
og mér fannst þetta aldrei vera spum-
ing. I seinni hálfleik lendum við í því
að vera áttatíu prósent af leiknum í
vöm, þær fengu að hanga á boltanum
og svo þegar við unnum hann þá
misstum við hann oftar en ekki aftur
til þeirra. Við ætluðum hins vegar
bara að ná í tvö stig fyrir norðan, það
tókst og fyrir vikið emm við ein í
þriðja sæú deildarinnar með sex stig af
átta mögulegum. Byrjunin er mjög
góð ef miðað er við hvað hefur
gengið á í leikmannamálum. Þriðja
sæti í deildinni, meistarar meistar-
annna og áframhald í Evrópukeppni er
vonandi til þess að ungu stelpumar
öðlist það sjálfstraust sem þær kannski
skortir. A föstudaginn er að mínu
mati úrslitaleikur upp á framhaldið, þá
mætum við Fram sem mér finnst vera
með mjög sterkt lið og því nauð-
synlegt fyrir okkur að klára þær á
heimavelli. Ég get alla vega lofað því
að ef áhorfendur mæta og styðja við
bakið á okkur þá munum við ekki
bregðast þeim.“ sagði Sibbi að lokum.
Mörk ÍBV: Ingibjörg Yr Jóhanns-
dóttir 6/1, Gunnleif Berg 4, Amela
Hegic 3, Eyrún Sigurjónsdóttir 3,
Edda B. Eggertsdóttir 3, Bjamý
Þorvarðardóttir 1, íris Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 11,
Lukrecija Bokan 4.
Körfuboltinn: Yngri flokkarnir
Héldu ótrauðir í íslandsmótið
eftir að hafa æft í tvær vikur
Óvíst
með Pál
Uppi hafa verið sögur um að Páll
Guðmundsson, bakvörðurinn
knái, sé á leiðinni frá ÍBV. Síð-
ustu fréttir segja að hann verði
aðstoðarþjálfari Leifturs.
Ásmundur Friðriksson sagði í
samtali við Fréttir að eftir því sem
hann best vissi þá yrði Páll kyrr hjá
ÍBV. „Við höfum að vísu verið í
vandræðum með að finna vinnu
fyrir Pál hér í Eyjum en emm að
vinna í þeim málum á fullu. Páll
hefur vinnu fýrir norðan en vill spila
með ÍBV næsta sumar.“
Af leikmannamálum ÍBV sagði
Ási að liðið væri í viðræðum við
nokkra leikmenn, m.a. Eyjapeyja, en
þau mál eru enn aðeins á viðræðu-
súgi.
Tveir yngri flokkar eru starfræktir
í körfunni í Eyjum í vetur en báðir
eru drengjaflokkar. Báðir flokk-
arnir hafa lokið við að keppa á
fyrstu fjölliðamótum vetrarins og
voru úrslit fremur óhagstæð lið-
unum.
Tíundi flokkur hefur aðeins æft í
tvær vikur en engu að síður héldu þeir
upp á fastalandið til að taka þátt í
fyrsta fjölliðamóti vetrarins um síð-
ustu helgi. Strákamir em flestir byrj-
endur í íþróttinni og töpuðu öllum
leikjunum. Þrátt fyrir það þá þóttu
þeir standa sig ágætlega og sýndu
ágætis framfarir á milli leikja. Flestir
strákanna vom að spila við eldri stráka
en áætlað er að færa liðið niður um
einn flokk svo að þeir geti spilað við
jafnaldra sína.
Sjöundi flokkur er skipaður
strákum á aldrinum ellefu til tólf ára.
Flokkurinn fór helgina 6.-8. október til
Reykjavíkur þar sem keppt var við
önnur lið í íslandsmótinu. Liðið mætti
í fyrsta leik Val/Fjölni og unnu
heimamenn ömggan sigur. í næsta
leik mætti liði Haukum úr Hafnarfirði
og úr varð mjög spennandi leikur. IV
tapaði reyndar með tíu stigum en
sýndi góðan Ieik. Þriðji leikur liðsins,
gegn Reyni Sandgerði vannst svo
þannig að liðið er greinilega í miklum
framfömm.
Annar flokkur
steinlá í fyrsta leik
Annar flokkur ÍBV í handbolta
karla lék sinn fyrsta leik í vetur á
sunnudaginn þegar liðið tók á móti
Víkingum. ÍBV var að spila þokka-
lega í fyrri hálfleik og staðan var
15-16 í leikhléi. En í seinni hálfleik
hmndi leikur liðsins nánast og urðu
lokatölur 26-36, tíu marka niður-
lægingáheimavelli.
Davíð Hallgrímsson, þjálfari liðs-
ins, sagði að þrátt fyrir að hafa
hangið í gestunum fram að leikhléi
þá hafi liðið ekki verið að spila vel.
„Að fá á sig sextán mörk í einum
hálfleik er mjög slæmt enda vorum
við að spila illa í vörninni. Ekki
ætla ég að segja að ástandið hafi
skánað í seinni hálfleik, við fengum
á okkur tuttugu mörk og stein-
lágum. Reyndar er hópurinn hjá
okkur að mestu skipaður strákum úr
þriðja og fjórða flokki, við erum
aðeins með einn leikmann sem
hefur aldur í annan flokk þannig að
veturinn verður líklega erfiður hjá
okkur.“
Flest mörk ÍBV: Sigurður Ari
Stefánsson 9.
Enn brottfall úr ÍBV
íslandsmeistarar ÍBV kvenna áttu í
miklum vandræðum með að manna
liðið fyrir Islandsmótið og sér ekki
fyrir endann á þeim. í síðustu viku
sögðum við frá því að Marina
Bakulina hefði verið send heim
enda stóð hún engan veginn undir
væntingum. Nú hefur Inga Falk-
vard Danberg, færeyska stórskyttan,
ákveðið að halda heim á ný.
Ástæður þess má rekja til þess að
Inga á börn og bú heima fyrir og
heimþráin náði fljótlega á henni
tökum. íslandsmeistaramir hafa því
misst tvo útileikmenn og ljóst að
liðið þarf að styrkja sig þar ef ekki á
illaaðfara.
Tippkeppnin í gang
um helgina - Stærri
vinningar í bingói
Hin margrómaða tippkeppni ÍBV
og Frétta mun hefjast laugardaginn
28. október næstkomandi í Týs-
heimilinu. Tipparar síðustu ára em
hvattir til að mæta og rilja upp
gamla takta. Einnig eru nýir
tipparar boðnir velkomnir en um
leið og tippað er, styðja menn við
unglingastarf ÍBV. Heitt er á könn-
unni og bakkelsi frá Vilberg er á
boðstólum.
Einnig vill unglingaráð IBV
minna á bingó félagsins, sem fer
fram á hverju fimmtudagskvöldi en
vinningar eru hver öðrum glæsilegri
og m.a. 35 þúsund króna peninga-
pottur.
Framundan
Föstudagur 20. október
Kl. 20.00 ÍBV-Fram Nissandeild
kvenna
Laugardagur 21. október
Kl. 17.00 Selfoss-ÍBV 2.fl.karla
Kl. 17.30 ÍV-Höttur (leikið f Haga-
skóla í Rvk.)
Sunnudagur 22. október
Kl. 12.00 Höttur-ÍV (leikið í Haga-
skóla í Rvk.)
Kl. 14.00 ÍR-ÍBV 2.fl. karla
Kl. 20.00 FH-ÍBV Nissandeild
kaiJa