Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2000, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 19. október 2000
Bókvitið lg5konc,
Nýfæddir______ ?er
" Vestmannaeyingar
Það er allt í Biblíunni
Þegar Halldóra skoraði á mig varð ég
glöð því það eru margar bækur sem
mig langar til að segja ykkur frá.
Fyrsta skal telja bók bókanna;
Biblíuna. f henni les ég oft og sæki
þangað uppörvun, huggun og ekki
síst áminningu. Það er allt í Biblíunni.
í sumar, sem leið, lánaði séra Bára
mér bók eftir John L. Sherill. Hún
heitir Þau tala tungum. Eins og
nafnið bendir til er hún um tungutal.
John er bandarískur rithöfundur og
blaðamaður sem hóf að leita að sögu
tungutalsins og rannsaka það frá
mörgum hliðum. Hann var tortrygg-
inn í fyrstu, en Heilagur andi snerti
við honum og þessi saga er um
merkilega reynslu í trúmálum.
Nú í haust hef ég verið að lesa
Haustdreifar eftir Dr. Sigurbjöm
Einarsson biskup. Þetta em hugleið-
ingar og fyrirlestrar, allt ljúft og fal-
legt eins og honunt er lagið. Kaflamir
um sorgina og bænina em sérlega
góðir.
Eina bók langar mig að nefna sem
ég hef lesið mikið í í sambandi við
starf mitt við skólahjúkmn. Hún heitir
Þykirþér raunverulega vœnt um mig
eftir Ross Cambell, bama-og geð-
lækni frá Tennessee í Bandarfkjun-
um. Þessi bók er góð fyrir alla for-
eldra og kennir okkur hvernig við
getum með augnsambandi, snertingu,
aga og andlegri uppbyggingu sýnt
bömunum okkar kærleika í uppeld-
inu. Sérstaklega er merkilegt hve hlut-
verk feðra er mikilvægt í uppeldi
dætra sinna. Það er auðvelt að fara
eftir leiðbeiningunum og þetta virkar!
Þá að skáldsögunum. Herbjörg
Vera Björk Einarsdóttir
er bókaunnandi vikunnar
Wassmo er norsk skáldkona, hún
fékk bókmenntaverðlaun fyrir sagna-
bálk sinn um Þóm. Hann gerist eftir
stríð á eyju úti fyrir norður Noregi.
Bækumar em þrjár og heita: Húsið
með blindu glersvölunum, Þögla
herbergið og Dreyrahiminn. Þetta em
magnaðar bækur um sifjaspell og
áhrif þess á allt líf fómarlambsins.
Fyrir ykkur, sem lesið ensku, er
Wally Lamb góður bandarískur höf-
undur. Fyrsta bókin, sem ég las eftir
hann heitir She 's come undone og er
um stúlku, sem heitir Dolores Price.
Hún verður fyrir erfiðleikum í æsku
og ákveður að borða sig frá lífinu og
er orðin um 120 kg, þegar hún snýr
við blaðinu og leitar hjálpar. Höfund-
ur sýnir ótrúlegt innsæi í líf kvenna,
frábær saga. Onnur saga eftir sama
höfund og ekki síðri, enda varð sú
númer 1 „Bestseller" hjá New York
Times er 7 know this much is true.
Hún er um tvíburabræður í nútíma
Ameríku. Annar tvíburinn er með
geðklofa (schizophrenia) og er ótrú-
legt að lesa um aðstæður geðsjúkra í
Bandaríkjunum í dag. Inn í söguna
fléttast saga afa þeirra, sem var ítalsk-
ur innflytjandi. Sagan er margslungin
og frábærlega sögð. Hún er 897 bls. í
kiljuformi en ég gleymdi mér alveg
og átti erfitt með að slíta mig frá
henni. Eg bíð spennt eftir næstu bók
frá Valla.
Maeve Binchy er írsk skáldkona,
sem sem mér finnst vera vinkona
mín, skrifar yndislega raunsæjar sög-
ur af venjulegu fólki að gera venju-
lega hluti, en samt svo spennandi og
skemmtilegt eins og lífið er, ekki satt!
Hún er meistari í að flétta saman
sögur margra persóna. Gott dæmi um
það er bókin Evening class, sem er
um fólk í kvöldskóla að læra ítölsku.
Fleiri góðar eftir hana eru Circle of
friends sem hefur verið kvikmynduð,
og Tara road, sem er um konu, sem
verður fyrir því að maðurinn hennar
heldur framhjá henni, en henni tekst
að nota þá sáru reynslu sér í hag.
Þannig eru bækur Binchy, enda vel,
mjög góðar í ferðalagið og á nátt-
borðið.
Ég vona að einhver hafi haft gagn
og gaman af og skora næst á Helgu
Tryggvadóttur, námsráðgjafa.
Takk fyrir.
Vera Björk Einarsdóttir.
Það er okkar allra að nýta tækifærin
Fullt nafn? Þorsteinn Sverrisson.
Fæðingardagur og ár? 19. febrúar 1970.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? í sambúð með Kristínu
Gígju Einarsdóttur.
Menntun og starf? Einhverjar einingar eftir í
BS í viðskiptafræði og er framkvæmdastjóri
ÞV.
Laun? Viðunandi.
Bifreið? VW Fassat.
Helsti galli? Óþolinmæði og skapið.
Helsti kostur? Ég veitþað ekki.
Uppáhaldsmatur? Ekkert sérstakt.
Versti matur? Fiskilifur.
Uppáhaldsdrykkur? Mjólk.
Uppáhaldstónlist? Fiest annað en nútíma-
jazz.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir?
Vinna Árna Johnsen og Gauja bæjó í snóker.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir?
Tapa fyrir Árna Johnsen ogSigga stóra í
hverju sem er. Það gerist sem betur fer MJÖG sjaldan.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir milljón í happdrætti?
Grynnka á skuldum.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Þegar ég espi afa Dodda
upp erþað SteingrímurJ.
Uppáhaldsíþróttamaður? Haraldur „vippa,“ sem þvímiður
er hættur að leika með ÍBV.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Já.
Uppáhaldssjónvarpsefni? (þróttir, fræðsluþættir og frétta-
tengtefni.
Uppáhaldsbók? Jónatan Livingstone mávur.
Hvað metur þú mest i fari annarra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Frekja og
leti.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Ocho Rios á
Jamaíka og Eyjarað vori.
Hvernig gengur undirbúningur Eyjar2010? Hann geng-
ur bara nokkuð vel. Það er flest á iokastigi og bíð ég
spenntur eftir 28. október.
Hafa undirtektir fólks verið jákvæðar vegna þessarar
uppákomu? Það fólk sem ég hef hitt og fengið póst frá er
mjög jákvætt ígarð ráðstefnunnar. Það kom mér skemmti-
lega á óvart og er góð tilbreyting frá þeirri neikvæðu
umræðu, sem oft er í gangi samfélaginu.
Hvaða atriði heldur þú að verði þungamiðjan í
umræðum á ráðstefnunni? Þau þemu sem hóparnir fjalla
um verða þungamiðja umræðnanna, en af einstökum
málum hafa kannanir sýnt að atvinnumál brenna heitt á
fólki.
Áttu von á að árangur þessarar ráðstefnu komi til með
að verða bæjarfélaginu að gagni? Já, tvímælalaust.
Öllum er hollt að velta fyrir sér nútíð og framtíð bæjar-
félagsins og það er fólkið að gera sem tekur þátt í ráð-
stefnunni. Niðurstöður ráðstefnunnar leiða vonandi í Ijós
vonir og væntingar fólks til framtíðarinnar og þau tækifæri
sem Eyjarnar hafa upp á að bjóða. Það er svo okkar allra
að nýta þau bæjarfélaginu og okkur til heilla.
Eitthvað að lokum? Ég vil skora á sem flesta að mæta á
ráðstefnuna og taka þátt í henni. Einnig vil ég nota
tækifærið og þakka þeim er komið hafa að undirbúningi
hópavinnunnar kærlega fyrir samstarfið, sem hefur verið
gefandi og skemmtilegt.
Þorsteinn Sverrisson
er Eyjamaður vikunnar
Þann 28. júlí eignuðust stúlku Sonja Granz og Sigurður Ólafsson. Hún hefur
fengið nafnið Rut. Hún vó 18 merkur og var 54,5 sm á lengd. Með Rut á
myndinni er stóri bróðir Ágúst Óli. Fjölskyldan býr í Hafnarfirði.
Þann3. ágúst fæddist Kristleifur Óskar á Landsspítalanum. Foreldrar hans eru
Soffía Sigurðardóttir og Stefnir Snorrason. Kristleifur Óskar var 18 merkur og
54,5 sm. Á myndinni er Snorri með litla bróður. Fjölskyldan er búsett í
Reykjavrk.
Þann 31. ágúst eignuðust strák Guðbjörg Viðarsdóttir og Jón G. Valgeirsson.
Hann vó 17 Vi mörk og var 57 cm að lengd. Littli kútur hefur ekki verið nefndur
en með honum á myndinni eru frænkur hans. þær Bjarkey og Sunna Ottósdætur.
Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir. Fjölskyldan býr í Vestmannaeyjum.
Á döfímrí 4*
19. okt. ASalfundur Farsæls í kvöld í Sveinafélagshúsinu Heiðarvegi 7
19. okt. Vörukynning hjá Fnnell á vörum frá Sebastian
19. okt. Bjórhátíð á Mánabar, stendur i þrjá daga!
20. okt. ÍBV - Fram í kvennaboltanum kl. 20.00. Áfram stelpur!
20.-21 okt. Bílasýning frá Heklu í íþróttamiðstöðinni
23. okt. Astmadagur í Apótekinu, sérfræðingar á staðnum
26. okt. Skyggnilýsingalundur í Sveinafélagshúsinu HeiSarvegi 7, kl. 20.30
28. okt. Eyjar 2010, ráðstefna ungs fólks um framtíðarsýn sína
28. okl. Grillveisla ÍBV íþróttafélags við Þórsheimilið kl. 20.00
28. okt. Arshátíð járniðnaðrmanna í Fjörunni sem er opnuð kl. 19.30
29. okf. Lokahóf yngri flokka ÍBV í Týsheimilinu kl. 15.00
6. nóv. Arsþing IBV héraðssambands í Þórsheimilinu kl. 18.00