Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2000, Page 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 19. október 2000
Gallerí Listakot opnað
Á sunnudag var opnað nýtt
listagallerí í Vestmannaeyjum,
að Bárustíg 9, við hliðina á
Gallerí Heimalist en Gallerí
Heimalist stendur einnig að
Listakoti eins og hið nýja gallerí
nefnist.
Að þessu sinni sýna þarna
verk sín fimm listamenn sem
allir eru búsettir í Eyjum. Það
eru Islendingarnir Alda
Björnsdóttir og Steinunn
Einarsdóttir, Englendingurinn
Michelle Gaskell, Króatinn
Nada Borosak og Frakkinn
Alain Garrabe. Alls eru 29
myndir á þessari sýningu og
nær allar til sölu. Verð þeirra
er mjög hófstillt.
Áætlað er að þarna verði opið
a.ni.k. fram að jólum og
sennilega lengur ef viðtökur
verða góðar. Á sunnudag,
þegar opnað var, komu yllr 80
manns í heimsókn. Opið er á
virkum dögum og sunnudögum
frá kl. 14 til 18 en á
laugardögum frá kl. 11 -14.
Þegar þessari sýningu lýkur er
ætlunin að gefa fleiri
listamönnum tækifæri á að
sýna verk sín, hvort sem er á
samsýningum eða
einkasýningum.
ÞAU Steinunn Einarsdóttir og Alain Garrabe voru mjög ánægð með viðtökur á opnuninni á sunnudag.
Á veggnum bak við þau eru myndir Alains á sýningunni.
Krabbavörn Vestmannaeyjum:
Gaf 300 þúsund í minningu Trausta Mar
Fyrir skömmu afhenti ritari
Krabbavarnar í Vestmannaeyjum,
Petra Ólafsdóttir, Krabbameins-
félagi íslands kr. 300 þúsund frá
Krabbavörn.
Féð var afhent á fundi á Selfossi og
sagði Petra að þetta fé væri gefið í
minningu Trausta Marinóssonar sem
lést 12. júlí sl. en Trausti var einn af
stofnendum Krabbavarnar og í stjórn
félagsins til dauðadags. Áhugamál
Trausta var að Krabbameinsfélag
íslands eignaðist íbúðir í Reykjavík
fyrir sjúklinga af landsbyggðinni og
aðstandendur þeirra.
Með gjöfinni fylgdi einnig mynd af
Vestmannaeyjum og sagði Petra að
ósk Krabbavamar væri að féð yrði
nýtt til íbúðarkaupa og myndin fengi
að vera í þeirri íbúð.
Merkjasala Krabbavamar var dagana
6.-9. sept. sl. og vill stjórn félagsins
senda sölufólkinu bestu þakkir, ásamt
bæjarbúum sem keyptu upp öll
merkin. Þá vill stjómin þakka starfs-
fólki Isfélags Vestmannaeyja fyrir
höfðinglegar peningagjafir til minn-
ingar um þá Trausta Marinósson og
Sigurð Einarsson.
Petra Ólafsdóttir vildi koma því á
framfæri að Krabbavöm vantar fleiri
styrktarfélaga. Engar kvaðir fylgja því
að gerast félagi, utan þess að greiða
félagsgjald sem er 1000 kr. áári. Þeir
sem hafa áhuga á að gerast styrktar-
félagar geta haft samband við Petm í
síma 481 2682 eða Ester í síma 481
2573.
FRÁ afhendingunni á Selfossi, Guðný Hilmisdóttir Vestmanna-
eyjum, Kristín frá Krabbameinsfélagi Islands og Petra.
Spurt er.
Kvíðir
þú vetr-
inum?
(Fyrsti vetrardagur er á
laugardag)
Gísli Eiríksson, vélstjóri:
„Nei, það held ég
ekki. Það er ekkert
til að kvíða fyrir."
Ólafur Guðjónsson frá Hvoli:
„Nei, og hef aldrei
gert, langt því frá.
Hann getur ekki
orðið ven i en síðasti
vetur var.“
Pétur Steingrímsson, lögga og
lundakarl:
„Nei, ég hef aldrei
kviðið vetrinum.
Mér líður vel í
Eyjum, hvort sem er
sumar eða velur."
Sigurbjiirg Guðnadóttir, frá
Vegamótum:
„Nei, það geri ég
ekki. En ég ætla
að vona að það
verði betra veður
en í fyrra."
Selma Guðjónsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur:
„Nei, en veturinn er
samt ekki eins
skemmtilegur og
suniarið."
Sigurgeir Jónsson
mmifa degi
Af nýjum
rekstraraðilum og gömlum
„Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur,“
segir einhvers staðar. Nú eru augu Vest-
mannaeyinga að opnast fyrir því að það forræði,
sem þeir hafa haft í samgöngum á sjó, eru þeir
að missa. Frá og með næstu áramótum verður
ferðum og rekstri Herjólfs ekki stjómað frá
Vestmannaeyjum heldur Reykjavík.
Skrifara þykir með ólíkindum hversu hljótt
hefur í raun og veru verið um þetta mál. Raunar
hefur nokkuð verið fjallað um þetta mál á síðum
Frétta en pólitíkusar hafa afskaplega lítið þurft
að tjá sig, hvort sem er í landsmálapólitík eða
bæjarpólitík. Þó með þeirri undantekningu að
báðir Eyjamennirnir, sem sitja á þingi, skrifuðu
greinar í sama tölublað Frétta, aðallega til að
skamma ritstjóra blaðsins fyrir að gera því skóna
að þeir hefðu ekki staðið sig nógu vel.
Kannski er skýringin á þessari þögn sú að langt
er til næstu kosninga, bæði alþingis- og bæjar-
stjómarkosninga. Skrifari þykist þess einhvem
veginn fullviss að ef kosningar væm á vori
komanda, þá væri miklu meira búið að fjalla um
þetta mál á opinbemm vettvangi. Og kannski
hefði málið aldrei komist á þetta stig ef
alþingiskosningar væm framundan.
Góður maður hafði orð á því við skrifara á
dögunum að í raun væri það alveg furðulegt að
þingmenn sem geta reddað nokkmm tugum
milljóna til bygginga á kirkjum og öðmm tugum
til rannsókna á gerð jarðganga, skuli ekki geta
reddað svona máli fyrir hom. Kannski stöndum
við bara frammi fyrir einhverju svipuðu og
þegar náttúmhamfarir á borð við jarðskjálfta og
eldgos dynja yfír, þetta sé eitthvað sem mann-
legur máttur ekki ræður við og þá væntanlega
ekki þingmenn heldur.
Ljósi punkturinn í þessu Herjólfsmáli er sá að
skipið heldur væntanlega áfram að sigla milli
Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Alla vega er
okkur sagt það á þessari stundu. En einhverjir
missa vinnuna sína, það liggur nokkuð ljóst
fyrir. Samskipsmenn hafa sagt að byijað verði á
að ræða við áhöfnina á Herjólfi um nýjan
samning. Einhvem veginn þykist skrifari þess
fullviss að í þeim samingum verði ekki boðin
betri kjör en em í núverandi samningum.
Skrifari hefur um það gmn að eitthvað eigi að
þrengja að kjömm mannskapsins og ef ekki
næst samkomulag um það þá sé spuming hve
lengi verður púkkað upp á það lið. Samskip
hefur fullt af fólki á sínum snæmm sem eflaust
gæti siglt Herjólfi milli lands og eyja. Þeir eru
nýhættir í fraktflutningum sjóleiðis innanlands
og eflaust enginn vandi fyrir þá að manna
Heijólf með fólki sem var í þeim siglingum.
Svo hefur talsvert af fólki í Vestmannaeyjum
haft af því atvinnu óbeint að Heijólfur hefur siglt
hér á milli. Spumingin er að hve miklu leyti
Samskip ætla sér að halda áfram að kaupa þá
þjónustu í Vestmannaeyjum. Annað atriði er að
Herjólfur hf. hefur verið styrktaraðili fjölda
félagasamtaka, t.a.m. í íþróttahreyfmgunni.
Skrifara er til efs að Samskip muni í sama mæli
leggja fram fé til þeirra aðila, a.m.k. bendir
upphæð tilboðs þeirra ekki beinlínis til þess. Og
auglýsingar frá Herjólfi hf. (sem sumar hveijar
að minnsta kosti hafa verið dulbúinn styrkur)
heyra væntanlega sögunni til. Skrifari fær ekki
betur séð en afkomu eins aðila að minnsta kostí,
sé stefnt í stórhættu þar sem auglýsingar frá
Herjólfi hafa numið nálægt 30 prósentum af
auglýsingatekjum hans.
Skrifari er sjálfur ekki í hópi þeirra sem koma
til með að tapa á því fjárhagslega að skipt er um
rekstraraðila á Heijólfi. Engu að síður líst
honum ekki vel á þau skipti. Skrifari er hluti af
þessu bæjarfélagi og það sem kemur bæjar-
félaginu illa hlýtur að koma við hann lrka.
Sigurg.