Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2000, Qupperneq 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 19. október 2000
Bygging veitinga- og ráðstefnuhússins á tankinum:
Málið í biðstöðu
eftir að úrskurðarnefnd skipulags og skipulagsmála stöðvaði framkvæmdir
ÞÓ svo að framkvæmdir við ráðstefnuhúsið hafi verið stöðvaðar vegna mótmæla, í bili a.m.k., eru þeir þó margir
sem eru því hlynntir að húsið rísi. Á mánudag voru afhentir undirskriftalistar með nöfnum 1379
Vestmannaeyinga sem lýstu því yfir að þeir væru hlynntir fyrirhugaðri byggingu. Þeir Ingi Sigurðsson,
byggingafulltrúi og Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri, tóku við listunum í Ráðhúsinu frá þeim Þórarni Ólasyni,
Aðalsteini Baldurssyni, Bjarneyju Pálsdóttur og Emilíu Guðgeirsdóttur en þau stóðu fyrir undirskriftunum.
Á fimmtudag í síðustu viku barst
úrskurður frá úrskurðarnefnd
skipulags- og byggingamála um að
stöðva skyldi framkvæmdir við
byggingu veitinga- og ráðstefnu-
hússins á vatnstankinum í Löngulág
meðan kærumál um lögmæti
byggingarleyfis fyrir húsinu sé til
meðferðar hjá nefndinni.
Nefndin, sem hefur aðsetur í
Reykjavík, er skipuð þeim Ingimundi
Einarssyni, varalögreglustjóra í
Reykjavík, Þorsteini Þorsteinssyni,
byggingaverkfræðingi og Hólmfríði
Snæbjömsdóttur, lögfræðingi. Nefnd-
in hélt fund á miðvikudag í síðustu
viku vegna kæru nokkurra íbúa og
eigenda íbúða við Fjólugötu og
Smáragötu í Vestmannaeyjum á
ákvörðun skjpulags- og bygginga-
nefndar Vestmannaeyja frá 5. sept. sl.
að veita leyfi til byggingar veitinga-
og ráðstefnuhúss á áðumefndum stað.
Var krafa kærendanna sú að ákvörðun
skipulags- og bygginganefndar Vest-
mannaeyja yrði felld úr gildi og
framkvæmdir við bygginguna stöðv-
aðar.
Hér verða birt helstu atriði úr
niðurstöðu og úrskurði úrskurðar-
nefndarinnar en þeir sem vilja sjá
úrskurðinn í heild sinni geta nálgast
hann á slóðinni: eyjafrettir.is
Málsrök kærenda
Helstu málsrök kærenda eru þau að
ekkert deiliskipulag liggi fyrir á
svæðinu og byggingaráformin ekki í
samræmi við gildandi aðalskipulag.
Þannig sé fyrirhuguð matvælafram-
leiðsla ekki í samræmi við skilgreinda
notkun en auk þess megi ráða af
gögnum að aðkoma að húsinu og
bílastæði séu að stómm hluta utan
þess reits sem byggingin eigi að rísa á
og séu á svæði sem sé tilgreint sem
útivistarsvæði. Þá er talið að grennd-
arkynningu hafi verið áfátt. Þá telja
kærendur að framkvæmdir hafi verið
hafnar á leyfis. Loks er talið í kæmnni
að fyrirhuguð bygging muni valda
verðrýmun fasteigna í nágrenninu.
Málsrök bæjaryfirvalda
Helstu málsrök skipulags- og bygg-
inganefndar og bæjarstjómar Vest-
mannaeyja em þau að unnið hafi verið
eftir heimildum og fullnægjandi
grenndarkynning hafi farið fram. Þá
er litið svo á að matvælaframleiðsla sé
gmnnþáttur í starfsemi veitinga og
ráðstefnuhúss. Aðkoma og bílastæði
séu á því svæði sem er til staðar og
samkvæmt þeirri breytingu á aðal-
skipulagi sem samþykkt hafi verið.
Bent er á að bæjaryfirvöld séu ábyrg
fyrir því tjóni sem einstakir aðilar
kunni að verða fyrir við skipulags-
breytinguna og eigi því kærendur ekki
að skaðast af breytingunni.
Málsrök byggingaleyfishafa
I málsrökum byggingaleyfishafa til
úrskurðarnefndarinnar er mótmælt
fullyrðingum kærenda um að ekki haft
verið staðið nægilega vel að undir-
búningi, svo og að lítið haft verið gert
úr því að matvælaframleiðsla væri
áformuð í húsinu. Þá er og bent á að
aðeins fáir af íbúum í nágrenninu
standi að kærunni, allmargir íbúar
hverfisins haft hvatt til framkvæmd-
anna og harmað þá neikvæðu afstöðu
sem orðið hafi um málið.
Niðurstaða úrskurðamefndar
í niðurstöðu úrskurðamefndarinnar
segir að ljóst sé að ýmsir annmarkar
séu á hinni kærðu ákvörðun. Ekki
liggi fyrir fullnægjandi umsögn heil-
brigðisyfirvalda um hvort mengun ifá
byggingunni geti borist í vatnstankinn
og telur nefndin að afla þurfi sér-
stakrar umsagnar hollustuvemdar
ríkisins um það áður en afstaða verði
tekin. Bflastæði og aðkomuleiðir séu
á svæði sem skilgreint sé sem
útivistarsvæði í aðalskipulagi. Vafi
leiki á um hvort byggingarleyfið sé í
samræmi við aðalskipulag og hefur
verið óskað eftir umsögn Skipulags-
stofnunar um það álitaefni. Þá séu
verulegir ágallar á aðaluppdráttum og
ekki sé gerð grein fyrir nýtingar-
hlutfalli hússins. Loks þykir orka
tvímælis að fullnægt sé kröfum um
fjölda bflastæða.
Framkvæmdir stöðvaðar
Samkvæmt þessu telur nefndin fjöl-
mörg vafaatriði í málinu sem leitt
gætu til ógildingar hinnar kærðu
ákvörðunar. Ekki verði þó úr því
skorið um lögmæti ákvörðunarinnar
íyrr en eftir frekari málsrannsókn. Því
telur úrskurðamefndin óhjákvæmilegt
að framkvæmdir verði stöðvaðar
meðan málið er til meðferðar á kæm-
stigi. Og í úrskurðarorðum segir að
framkvæmdir skuli stöðvaðar meðan
málið er til meðferðar hjá úrskurðar-
nefnd. Þess skuli gætt að gengið verði
þannig frá byggingarstað að fyllsta
öryggi sé tryggt og ekki hljótist óþarfa
tjón af stöðvun framkvæmdanna.
Heimilt að loka húsinu til
öryggis
Bæjarstjóm Vestmannaeyja er falið að
stöðva framkvæmdimar og á sér-
stökum fundi bæjarstjómar sl.
föstudag var samþykkt tillaga þess
efnis að heimila byggingaraðilum að
loka (klæða þak og veggi) veitinga- og
ráðstefnuhússins til þess að tryggja að
fyllsta öryggis sé gætt og ekki hljótiðst
tjón af stöðvun framkvæmda, en
óheimilt sé að fara í aðrar fram-
kvæmdir á meðan bráðabirgða-
úrskurður Urskurðamefndar skipu-
lags- ogbyggingamálaséígildi.
Gæti tekið nokkrar vikur
Hjalti Steinþórsson, framkvæmda-
stjóri úrskurðamefndar, segir að þessi
úrskurður, sem er til bráðabirgða, geti
þýtt stöðvun framkvæmda við
bygginguna í einhvem tíma, jafnvel
nokkrar vikur. Það sem legið hafi að
baki úrskurðinum hafi verið mörg
vafaatriði, svo sem ófullnægjandi
upplýsingar frá heilbrigðisfulltrúa um
atriði sem snerta vatnstankinn og
hvort hætta gæti verið á mengun
neysluvatns vegna þess. Þá standi
bflastæði hátt að ofanverðu, með tilliti
til vatnstanksins. Bflastæði séu á
útivistarsvæði og lóðarmörk ekki
tilgreind. Ymsir endar séu lausir í
þessu máli og ljóst sé að framkvæmdir
verði ekki hafnar á ný fyrr en þeir hafi
verið hnýttir. Eins og áður segir gæti
það tekið úrskurðamefnd nokkum
tíma að vinna úr því. Hjalti sagði
ennfremur að kærendur hefðu haft
samband og kvartað yfir því að enn
væru framkvæmdir í gangi. „Okkur
skilst að bæjarstjóm hafi gefið leyfi til
að húsinu yrði lokað og teljum ekki
ástæðu til að amast við því enda tekið
fram í úrskurðinum að ganga skuli
þannig frá að fyllsta öryggis sé gætt.
En um frekari framkvæmdir verður
ekki að ræða fyrr en úrskurðamefnd
hefur gefið sitt álit,“ sagði Hjalti.
Leysum þetta mál
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri, segir
að úrskurðurinn hafi komið sér á
óvart, ekki hvað síst það sem snýr að
mengunarþættinum. „Það er heil-
brigðiseftirlit Suðurlands og
heilbrigðisfulltrúi Vestmannaeyja sem
hafa með þessi mál að gera en ekki
hollustuvemd. Svo er það ágrein-
ingurinn um bflastæðin og fjölda
þeirra. Ákveðið var að taka tillit til
íbúanna og færa bflastæðin niður á
opið svæði. Ef á að breyta því, í
samræmi við úrskurðinn, verður að
færa þau á áður úthlutaða lóð, þau
þyrftu þá að fara austur fyrir og það
held ég að sé íbúunum ekki í hag. Þá
er nýtingarhlutfall hússins 0,2 sem er
mjög gott en í Eyjum má það vera að
hámarki 0,35 til 0,4. Það er unnið í
því á fullu að leysa þetta mál þannig
að það valdi sem minnstu tjóni, t.d.
reikna ég með að hollustuvemd gefi
sinn úrskurð fljótlega. Skipulags- og
bygginganefnd bæjarins fundaði í
fyrradag vegna ágreinings um
bflastæðin og von mín er sú að ekki
þurfi að líða langur tími þar til unnt
verður að halda áfram þessum
framkvæmdum,“ sagði Guðjón.
Minni mengunarhætta en
áður
Sigmar V. Hjartarson, heilbrigðis-
fulltrúi, segir að þegar farið hafi verið
fram á það á sínum tíma að hann gæfi
sína umsögn, hafi hann rætt við
hollustuvemd ríkisins og þeir ekki
talið ástæðu til að hafa sérstakar
áhyggjur af þessu máli. „Kannski var
ekki nægilega skýrt tekið fram í
umsögn þeirri er ég sendi frá mér um
þetta mál, varðandi hættu á mengun
vatnsins, og var hún þó unnin í
samráði við hollustuvemd. Ég
skoðaði fyrirliggjandi teikningar og
verð að segja að ég tel vatnið í
tankinum mun betur varðveitt eftir
þessar framkvæmdir en áður var.
Fram til þessa hefur regnvatn legið á
tankinum og engar drenlagnir til
staðar við tankinn til að taka við
yfirborðsvatni. Nú er búið að ganga
mjög vel frá öllu slíku auk þess sem
allt frárennsli er eins og best verður á
kosið. Ég tel því hverfandi hættu á
mengun frá húsinu og ekki ástæðu til
að stöðva framkvæmdir á þeim
grundvelli. Ég fullyrði að hætta á
mengun vamsins er minni eftir þessar
framkvæmdir en var áður,“ segir
Sigmar.
Frábær stuðningur bæjarbúa
„Ég á bara ekki til orð yfir það hvemig
menn geta látið,“ segir Grímur Þ.
Gíslason, annar byggingaraðila húss-
ins á vatnstankinum. „Að þrír aðilar
skuli geta stöðvað framkvæmdir sem
allir aðrir virðast vera sammála um,
finnst mér líka nokkuð sérstakt. En
við emm bjartsýnir. Okkur virðist
sem það sé lítilræði sem þetta strandar
á og því verður væntanlega kippt í
liðinn. Sumtafþvísemþamaerverið
að stoppa okkur á, era hlutir sem
yfirleitt er gengið frá á seinni stigum
framkvæmda en nú er þess krafist að
þeir séu klárir og það verður gert.“
Grímur segir að þegar verktakinn frá
Límtré hafi klárað að loka húsinu, sé
hans þætti lokið og aðrir verktakar taki
þá við. Því sé ekki um beint fjárhags-
legt tjón að ræða ennþá, aftur á móti
tapist dýrmætur tími ef þessi stöðvun
dregst eitthvað á langinn.
„En ég hef ekki miklar áhyggjur af
þessu. Höfum við ekki vitað það áður,
þá vitum við núna að við eram með
meginhluta bæjarbúa á bak við okkur
í þessu. Við höfum fengið frábæran
stuðning frá bæjarbúum á undan-
fömum dögum og fyrir það eram við
virkilega þakklátir. Það er stórkostlegt
að finna að við stöndum ekki einir í
þessu og það stappar enn frekar í
okkur stálinu að halda áfram ótrauðir,"
sagði Grímur.
Staðfesting á athugasemdum
okkar
„Þessi úrskurður gerir í raun ekkert
annað en að staðfesta þær athuga-
semdir sem við höfum bent á við
afgreiðslu þessa máls,“ segir Friðbjöm
Valtýsson sem er er einn þeirra sem
hefur haft uppi mótmæli gegn því að
byggingin rísi á vatnstankinum. „Ef
bæjaryfirvöld hefðu ekki hundsað
þær, sem raun ber vitni, væri þetta
leiðindamál ekki í þeirri sjálfheldu
sem það virðist komið í. Það er sem
betur fer enginn flokkspólitískur
ágreiningur innan bæjarkerfisins í
málinu, hér bera allir jafna ábyrgð.
Mér er það hulin ráðgáta hvemig
mál þetta rann í gegnum allt bæjar-
kerfið án þess að nokkur kæmi auga á
allar þær brotalamir sem úrskurðar-
nefndin bendir á. Sveitarfélög setja sér
reglugerðir og hafa lög til að fara eftir.
Það er því umhugsunarefni þegar þeir
hinir sömu þverbijóta allt þvers og
krass eftir hentugleikum.
í dag er málið í algjörri blindgötu,
húsið risið og trúlega komið til að
vera. Ég tel alls ekki fullreynt hvort
hægt sé að ná einhverri lendingu í
málinu. Hitt er dagljóst að sú lending
næst ekki ef enginn vill hlusta.
Það er í raun lágmarkskrafa að
bæjarstjóm komi með afsökunar-
beiðni til þeirra aðila sem hlut eiga að
máli, bæði nágranna og enn þá frekar
byggingaraðila. Það hafa margir orðið
fyrir óþægindum og kostnaðarauka
vegna alvarlegra mistaka af hálfu
bæjaryfirvalda í máli þessu,“ segir
Friðbjöm. Samantekt: Sigurg.