Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2000, Qupperneq 14
14
Frcttir
Miðvikudagur 19. október 2000
-sem koma fram í þætti á Stöð 2 næsta þriðjudagskvöld
Næsta þriðjudag, 24. október
klukkun 22 verður sýnd á Stöð 2
íslensk heimildamynd um líf sjó-
mannskvenna í fímm löndum og
þremur heimsálfum. Ein þeirra er
Þórunn Rúnarsdóttir, hárgreiðslu-
meistari á Hárhúsinu, en höfundur
og stjórnandi er Margrét Jónsdóttir
sagnfræðingur. Myndin heitir Haf-
meyjar á háum hælum, ástarsögur
og er framleidd af Magus.
Síðasti valsinn
Frumraun Margrétar í þáttagerð er
Síðasti valsinn, heimildarmynd í
þremur þáttum um þorskastríðin sem
sýnd var fyrr á þessu ári. Var þama
um mjög athyglisverða mynd að ræða
sem varpaði á ýmsan hátt nýrri sýn á
landhelgisstríð Islendinga og Breta
sem lauk með fullnaðarsigri Islend-
inga á 8. áratug síðustu aldar. Má
segja að hugmyndin að Hafmeyjunum
hafi kviknað í kjölfar Síðasta valsins. í
Hafmeyjunum er sagt frá lífi fimm
sjómannskvenna frá fímm löndum.
Þómnn er fulltrúi íslensku kvennanna
en hún er, ásamt konu frá Noregi,
fulltrúi yngri kynslóðarinnar. Kona frá
Japan er á miðjum aldri og konur frá
Hull á Englandi og Nova Scotia eru
fulltrúar eldri kynslóðarinnar. „Þær
síðasttöldu eiga það sameiginlegt að
hafa upplifað miklar breytingar á
sínum högum þegar gmndvellinum er
kippt undan ftskveiðunum," segir
Margrét í samtali við Fréttir.
Þegar hún er spurð um hvemig hug-
myndin að Hafmeyjunum hafi komið
til segist hún hafa verið að sækja um
að komast að í doktorsnámi í Englandi
þegar hún vann að Síðasta valsinum.
„Mig langaði til að halda áfram með
þorskastríðin og taka inn konur og
böm mannanna sem misstu vinnuna
þegar bresku togaramir gátu ekki
lengur sótt á Islandsmið. Mig langaði
líka til að taka fyrir annað samfélag
sem hlotið hafði sömu örlög. Þá lá
beinast við að kíkja til Kanada en þar
hafði þorskstofninn hmnið. Eg og
samstarfsfólk mitt vomm að tala um
hvað það gæti verið gaman að fá hlið
kvennanna og þá ekki síst hvaða áhrif
þessar breytingar hefðu haft á þær og
líf þeirra. Hugmyndin var svo þróuð
með dagskrárstjómm Stöðvar 2. Þetta
þróaðist upp í hugmynd um að gera
þátt um konur togarasjómanna og sjá
hvemig lífi þær lifðu. Við vildum
skoða nokkur lönd og beina athyglinni
að því hvað þær ættu sameiginlegt og
hvort lífsmynstrið væri það sama þó
þjóðfélögin væm ólik.“
Litlar heimildir um konumar
sem öllu stjómuðu í landi
Margrét segir mikið til af heimildum
um sjómenn en það sama væri ekki
hægt að segja um konur þeirra sem
stýrðu öllu í landi. „Þegar við vomm
að taka upp Síðasta valsinn kynntumst
við því hvað sjómannskonur hafa frá
miklu að segja og hvað margar þeirra
em sterkir persónuleikar. „Við höfð-
um strax mikinn áhuga á að ná til eldri
kvenna sem á sínum tíma vissu ósköp
lítið um það sem var að gerast út á sjó
HAFMEYJAN Þórunnog Margrét þáttagerðarmaður.
en niðurstaðan varð sú að fá konur á
mismunandi aldri og frá fleiru en einu
landi. Þá fómm við að velta fyrir
okkur hvað ungar sjómannskonur
hugsa. Þetta er í stuttu máli
hugmyndin að baki Hafmeyjanna,"
segir Margrét.
I íyrstu ætluðu þau að halda sig við
Norður-Atlantshafið og ræða við
íjórar konur en til að víkka hringinn
var ákveðið að tala við konu í Japan.
„Japan er gjörólíkt en byggir mikið á
fiskveiðum eins og við. Reyndar hefur
það breyst eins og annars staðar. Það
sýnir sig núna að þetta var rétt
ákvörðun því það gerir þáttinn betri að
hafa japönsku konuna með.“
Talaði við 35 konur
Þau byrjuðu að vinna í nóvember í
fyrra og byggðu á grunnrannsóknum
vegna Síðasta valsins. „Ég fór á alla
staðina og tók viðtöl við alls 35 konur
og valdi eina úr á hverjum stað. Ég
hagaði valinu þannig að sameiginlega
skila þær því sem ég tel að gefi góða
mynd af lífi sjómannskvenna. Um leið
gætti ég þess að þær héldu sínum ein-
kennum, sinni eigin sögu. Ég var mjög
spennt að sjá viðbrögð strákanna sem
vinna með mér á vali mínu. Þeir vom
mjög ánægðir og kolféllu fyrir öllum
konunum. Þeir sögðust hafa haft hug-
myndir um sjálfa sig sem ákveðna
töffara en það hmndi gjörsamlega
þegar þeir kynntust konunum.“
Eiga margt sameiginlegt
Hvað kom þér mest á óvart? „Það er
hvað þær eiga margt sameiginlegt, svo
stafaði frá þeim einhver ró og styrkur
sem maður finnur ekki dags daglega
hjá fólki. Hjá þeim em vandamál til að
leysa þau og þær hugsa ekki langt
fram í tímann heldur láta hveijum degi
nægja sína þjáningu. Þær em mjög
ólíkar en þetta sameinaði þær.“
Elsta konan er frá Kanada og var
hennar maður kominn í land. „En
hann dó á meðan við vomm að klippa
þáttinn. Hún sagði okkur frá við-
brögðum sínum þegar maðurinn hætti
á sjónum. Enska konan á sex böm, er
fráskilin en gift öðmm sjómanni.
Hann er reyndar ekki á togara þessa
stundina heldur á aðstoðarskipi fyrir
olíuborpalla. Maður japönsku kon-
unnar er tímabundið í landi sem
fulltrúi starfsmanna útgerðarinnar,
sem gerir út frá Chile, en oftast er
hann tíu til tólf mánuði á sjó og tvo í
landi. Þau eiga tvö böm. Sú norska er
borgarstúlka, fráskilin og býr með
öðmm sjómanni. Þau eru bamlaus.
Hún vinnur á diskóteki. Svo er það
hún Þómnn okkar sem á fjögur og
fimm ef ég er talin með,“ segir Mar-
grét og hlær.
Af hveiju varð Þómnn fyrir valinu?
„Ég var búin að skilgreina hvemig
ég vildi sjá íslensku konuna þegar
kona frá Vestmannaeyjum benti mér á
Þómnni. Um leið og ég hitti hana vissi
ég að hún var rétta manneskjan."
Afraksturinn var 36 klukkutímar af
efni og þar af vom viðtölin átta. Þetta
þurftu Margrét og hennar fólk að
klippa niður í 52 mínútna þátt sem við
fáum að sjá á Stöð tvö á þriðjudaginn.
Þórunn: Kom mér á óvart
Af þómnni er það að segja að hún er
33 ára hárgreiðslumeistari og rekur
hárhúsið í félagi við Maríu Péturs-
dóttur. Hún er gift Kristni Val-
geirssyni, skipverja á Vestmannaey,
og bömin em fjögur, Sveinn Agúst 12
ára, Daníel Andri 9 ára, Sigdór Yngvi
5 ára og Indíana Guðný sem verður 4
ára í dag.
Þórunn er Reykjavíkurmær og
þekkti ekkert til lífs sjómannskvenna
þegar þau Kristinn byrjuðu að mgla
saman reytum. „Það lá alltaf fyrir að
Kiddi færi á sjóinn og ég varð bara að
taka því. Nei, ég er ekki komin af
sjómannsíjölskyldu. Reyndar var
pabbi eitthvað á sjó en ég var þá það
lítil að ég man ekkert eftir því,“ segir
Þómnn.
Hún segist hafa verið fljót að
venjast aðstæðum. „Ég hef alveg nóg
að gera að reka heimili með fjómm
bömum og reka fyrirtækið en þetta
gengur mjög vel. Ég sé um allt í landi
og það eina sem hann þarf að gera er
að koma í land og búa til böm,“ segir
Þómnn og hlær. „Kannski er maður
ekki sáttur við þetta fyrirkomulag en
það þýðir ekkert að hugsa út í það.
Vilji maður aura verður að gefa eitt-
hvað á móti.“
Kom þér á óvart að vera valin í
þáttinn? „Já! Guð, því mér fannst ég
ekkert merkileg. Ég sagði samt já og
sé ekki eftir því. Ég hef kynnst mörgu
frábæm fólki í gegnum þetta. Kiddi er
mjög stoltur af mér og bömunum
finnst ég ofboðslega flott í myndinni.
Já, ég er að verða nokkuð spennt en ég
er búin að sjá þáttinn nokkmm sinnum
og ég verð að segja eins og er; mér
finnst ég hallærislegri því oftar sem ég
sé hann,“ sagði Þómnn að lokum.
Kiddi verður á sjó þegar þátturinn
verður sýndur en Þómnn ætlar að
horfa á hann með fjölskyldunni og
nánustu vinum. I Reykjavík verður
hann kynntur í sérstöku konuboði í
dag, fimmtudag, hvað annað? Við hin
verðum svo að bíða fram á þriðjudag
að sjá Hafmeyjar á háum hælum,
ástarsögur.
Þórunn Rúnarsdóttir hórgreiðslumeistari og sjómannskona:
Er ein fimm haf-
meyja á háum hælum