Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2000, Blaðsíða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 19. október 2000
Vestmannaeyingar fylgdust með Formúlu 1 á Monzabrautinn á Ítalíu:
Varð eins og barn
-segir Sigurður Bjarni Richardsson sem þarna upplifði eitt af stóru andartökum lífs síns
Áhugi á bfla- og mótorhjóla-
íþróttum hefur vaxið mikið
undanfarin ár hér á landi
eins og annars staðar.
Fyrirmyndimar eru sóttar
erlendis frá eins og
bflarallýin og motocross-
keppnir þar sem þeyst er á
sérstökum torfæruhjólum
upp og niður brekkur af
miklum móð. Formúla 1
nýtur vaxandi vinsælda hér á
landi eftir að RÚV fór að
sýna beint frá keppninni.
Þrátt fyrir alla heimsvæð-
ingu hefur orðið til ein grein
bflaíþrótta á íslandi, það er
torfæran sem nú er að ná
athygli út fyrir landsteinana.
Flestir láta sér nægja að
fylgjast með slagnum í
gegnum sjónvarpið heima í
stofu en til eru þeir sem ekki
finnst það ekki nóg og vilja fá
hávaðann og bensínlyktina
beint í æð. I þeim hópi eru
starfsmenn Gámaþjón-
ustunnar og áhöfn Dranga-
víkur VE sem létu sig ekki
muna um að fljúga til Ítalíu,
keyra heila nótt í rútu til að
fylgjast með keppni í
Formúlu 1 á Monzabrautinni
við Mflanó. Keppnin varð sú
sögulegasta á árinu því stór
hluti bflannan skemmdist
strax á annarri beygju,
starfsmaður lést í atgangi og í
þriðja og síðasta lagi þá lagði
Þjóðverjinn Michael
Schumacher drög að
heimsmeistaratitlinum með
sigri í keppninni.
Tek allan pakkann næst
Sigurður Bjami Richardsson, starfs-
maður Gámaþjónustunnar, er með
bensín í blóðinu, keppir í motocrossi
og missir ekki af útsendingu frá
Formúlunni. Hann átti sér þann draum
heitastan að komast á keppni í
Formúlunni og hann rættist á Ítalíu
sunnudaginn 10. september. Þá var
hann mættur á Monzabrautina ásamt
um 20 Eyjamönnum og konum.
„Við flugum út laugardaginn 9.
september þannig að við misstum af
tímatökunni sem fram fór daginn sem
við komum út,“ segir Siggi Bjami
þegar hann riíjar upp ævintýrið mikla
með Fréttum. „En allur pakkinn
verður tekinn næst þegar við förum,“
bætir hann við hlæjandi.
Þau flugu til Rimini og fengu inni í
litlu hóteli og voru Vestmannaeying-
amir 20 einu gestimir á hótelinu.
„Eftir að við höfðum komið okkur
fyrir var farið út að borða en strax að
því loknu fómm við að leggja okkur.
Náðum við tveimur tímum fram að
miðnætti en þá fór rútan frá Rimini til
HÓPURINN, F.v. Sigurður Alfreðsson, Ófeigur Hallgrímsson, Símon Eðvarðsson, Siggi Bjarni, Kristófer Jónsson, Selma Ragnarsdóttir,
Ólöf Klemensdóttir, Elína Sigríður Björnsdóttir, Ásdís Sveinsjónsdóttir, Margrét Elísabet Kristjánsdóttir.
Monza sem er rétt hjá Mílanó. Við
fómm öll, konur og karlar og komum
við á keppnisstað um klukkan hálf sjö
um morguninn.“
Eins og þjóðhátíð
Þá tók við löng ganga inn á sjálft
keppnissvæðið. „Þama var allt fullt af
sölubúðum sem buðu bæði mat og
drykk og alls konar vaming. Þetta var
löng ganga og það þýddi ekkert annað
en að taka daginn snemma því
mannmergðin var óskapleg og sætin í
stúkunni okkar vom ekki númerið.
Við gengum meðfram girðingum og
alls staðar lá fólk sofandi í svefn-
pokum, steinrotað. Monzakeppnin er
sérstök að því leyti að sjálf keppnin er
ekki nema hluti af íjörinu sem stendur
í heila þrjá daga. Þetta minnir að
mörgu leyti á þjóðhátíðina með sínum
tjaldstæðum og fjöri,“ segir Siggi
Bjami.
I allt vomm við 50 Islendingar
þama á vegum Samvinnuferða-Land-
sýnar og segir Siggi Bjami að
mannfjöldinn hafi verið slíkur að
ómögulegt var að halda hópinn og
varð hver að bjarga sér. „Það var ekki
smuga fyrir allan hópinn að ætla að
vera saman. Þetta sáum við best þegar
við komum að stúkunni því hún var
full af sofandi fólki. Við urðum því að
bíða eftir að fólk vaknaði og smeygja
okkur ofan í sætin. Þegar leið á morg-
uninn gerðust menn frekir og ræstu
fólkið en það verður að segjast eins og
er að sumir vom heppnari en aðrir. Til
dæmis sá Símon ekkert af keppninni
og varð að sætta sig að fylgjast með
henni í gegnum síma. Akvað hann
þess í stað að skoða sig um á svæðinu
auk þess sem hann gat eitthvað fylgst
með á stómm skjám sem vom með-
fram brautinni. Þama var nóg að
skoða, verslanir, matsölustaðir og bflar
af öllum gerðum og stærðum. Það fór
ekkert illa um okkur því allan tímann
var verið að bera í okkur, mat, bjór og
ís.“
Margra klukkutíma bið
Eftir því sem nálgaðist keppnina óx
spennan og troðningurinn en í 30 stiga
hita biðu þau frá því klukkan 7 um
morguninn til klukkan 2 eftir hádegi
þegar sjálf keppnin byrjaði en ýmis-
legt var að skoða og fylgjast með.
„Það byrjaði með æfingu hjá For-
múlubflunum frá hálf tíu til tíu og þar
var Hakkinen að sjálfsögðu bestur.
Þegar fyrsti bfllinn kom sagði konan
að ég hefði orðið eins og lítill krakki.
Svo var annar kappakstur með bflum
ffá Ferrari og fannst manni þeir ekkert
komast áfram eftir að maður var búinn
að sjá hina. Það heyrðist heldur ekkert
í þeim.“
Hápunkturinn, sjálf keppnin, fór nú
að nálgast og klukkan eitt stóðu allir
upp og stóðu alla keppnina. Stemmn-
ingin var eins og á bikarleik þar sem
Ferrari með Schumacher var á
heimavelli. „Það var nánast allt rautt
nema við vorum þama nokkrir með
Hakkinenhúfur frá Maclaren. Við
urðum ekki fyrir aðkasti af nokkru
tagi. Það bara gert grín að okkur og ef
einhver kom með Mclarenfána varð
allt vitlaust og ítalamir sungu eins og
röddin þoldi. Þetta var í einu orði sagt
alveg frábært og það varð m.a.s. allt
bijálað þegar dráttarvélamar komu inn
á brautina til að blása af henni rykinu.“
Alvarlegt slys
Svo hófst sjálf keppnin og hún varð í
meira lagi söguleg eins og sjónvarps-
áhorfendur muna. „Strax á fyrsta hring
í annarri beygja lentu sjö bflar í
árekstri og Dela Rosa, sem keyrir
Arrows-bfl fór fleiri hringi í loftinu og
mátti þakka fyrir að drepa sig ekki. En
það er talið að dekk úr bflnum hafi lent
á einum starfsmanna sem lést. Fyrir
keppnina vom miklar umræður um að
fyrstu beygjumar væm mjög
hættulegar og það kom í ljós þama.
Keppnin var ekki blásin af heldur fór
öryggisbfll fyrir kappakstursbílunum
fyrstu til til tólf hringina og hélt niðri
hraðanum. Þegar öryggisbíllinn var að
yfirgefa brautina bremsaði Schumach-
er skyndilega með þeim afleiðingum
að Button missti bflinn út af og þar
með var 8. bfllinn úr leik. Schumacher
gerði þetta viljandi til að nýta sér
kraftinn í eigin bfl,“ segir Siggi Bjami
og er hann greinilega ekki yfir sig
hrifinn af Þjóðveijanum.
„Þama byijaði fjörið fyrir alvöm en
það skyggði svolítið á að þeir sem
vom að beijast um 3. til 6. sætið voru
allir fallnir úr keppninni. Þetta vom
þeir Chultart, Barrichello, Trulli og
Frenchen og fyrir vikið myndaðst bil á
milli Schumachers og Hakkinen sem
börðust um toppinn og hinna bflanna.
Hávaðinn og lætin náðu alltaf hámarki
þegar Schumacher keyrði fram hjá,
það varð hreinlega allt vitlaust enda
maðurinn á heimavelli."
Miklu áhrifameira en hann
hafði gert sér í hugarlund
Siggi Bjami segist fyrirfram hafa verið
búinn að ímynda sér hávaðann og
lætin sem fylgja Formúlunni en hon-
„OKKAR“ maður Hakkinen á Monzabrautinni.