Fréttir - Eyjafréttir - 19.10.2000, Page 20
Rútuferðir - Bus tours
Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa
ÓDÝRASTIKOSTURINN í EYJUM
(J) 481 1909 - 896 6810 - fax 4811927
- innanbæjar
u
8
Vilhjálmur Bergsteinsson
481-2943 a*ill
* 897-1178
8
8
Stopp á
framkvæmdir
á tanknum
8
8
8
8
Á flmmtudag í síðustu viku voru
framkvæmdír við nýbygginguna á
vatnstankinum í Löngulág stöðv-
aðar. Urskurðarnefnd skipulags-
og byggingamála kvað upp þann
úrskurð að vegna margra vafamála
sem varða bygginguna skyldi
stöðva framkvæmdir við hana.
Urskurður nefndarinnar er til
bráðabirgða.
Þessi úrskurður er til kominn vegna
kæru sem nokkrir íbúar í nágrenni
hússins sendu nefndinni. Þó varð
samkomulag um að byggingaraðilar
fengju að loka húsinu, bæði til að
koma í veg fyrir slysahættu og til að
fyrirbyggja að óþarfa tjón hlytist af
stöðvun framkvæmdanna.
I úrskurði nefndarinnar er getið
nokkurra atriða sem ekki eru á hreinu.
Þar ber hvað hæst tvö atriði, hætta sé
á mengun neysluvatns í vatns-
tankinum vegna starfsemi í húsinu og
bílastæðamál séu ófrágengin. Sam-
kvæmt upplýsingum frá fram-
kvæmdastjóra úrskurðamefndar gæti
þetta þýtt drátt á framkvæmdum allt
að sex vikum.
Nánar erfjallað um þetta mál á bls.
8 í blaðinu í dag.
8
8
Vikutilboð
vikurta 19.-25. okt.
Federici pasta, 6 pk. saman
299 kr. - áður 386,-
Haribo sælgætispokar
49 kr. - áður 108,-
Hunts spaghettisósa
169 kr. - áður 199,-
Epla Brani, 11tr.
108kr.-áður138,-
Appelsínu Brazzi, l ltr.
98kr.-áður120,-
Mr.
468 kr. - áður 548,- Muscle hreinlætisvörur
21Skr.-áður260,-
„ , Mr. Muscle ofnhreinsir
HuntsUmgar 27«kr.-áíur319,
159 kr. - áður188,-
299 kr. - átnr 376,-
Völu Kókosbollur
228 kr. - ðður2B6,-
Vörukynningar
Oetker pizzur, fim. kl. 16-18.30 og fös. kl. 14-19
B.K.I. kaffi lau. kl. 11.30 -15.00
Pascaljógúrt 169f- áður 219,-
ÚTFÖR Sigurðar Einarssonar. Ungir drengir úr ÍBV mynduðu heiðursvörð frá kirkju
að kirkjugarði.
Fjölmennar jarðarfarir
Sigurðar og Kristins
Líklega hefur aldrei annar eins
fjöldi sótt Landakirkju á einum
degi og síðasta laugardag. Þá fóru
fram útfarir þriggja Vestmanna-
eyinga, þeirra Kristins Pálssonar,
Sigurðar Einarssonar og Jóhönnu
Kristínar Helgadóttur.
Halldór Haraldsson, staðarhaldari
Landakirkju telur að samtals hafi á
bilinu 1200 til 1300 manns verið við
þessar útfarir. Flestir voru við útför
Sigurðar Einarssonar, á sjöunda
hundrað manns, talsvert á fimmta
hundrað manns við útför Kristins
Pálssonar og hálft annað hundrað við
útför Jóhönnu Kristínar Helgadóttur.
Fjöldi manns kom hingað ofan af
landi, þeirra á meðal margir þjóð-
kunnir einstaklingar sem voru við
útfarir Sigurðar og Kristins. Ráð-
herramir Davíð Oddsson, Ámi
Mathiesen og Ingibjörg Pálmadóttir
vom meðal þeirra sem vom við útför
Sigurðar.
Fyrsta síldin
kom í nótt
Fyrsta sfldin til Vestmannaeyja á þessu hausti var væntanleg hingað í nótt.
Það var Antares sem fékk 350 tonn austur við Stokksnes en þetta er fyrsta
veiðiferð skipsins í haust en Antares fór út á mánudag. Skipverjar á
Antaresi sögðu þetta þokkalega sfld.
Sfld hefúr verið að veiðast talsvert norðar í haust og hefur henni verið landað
á Austijörðum. Isleifur VE hefur m.a. verið þar við veiðar og landað á
Neskaupstað. Antares er eina skipið sem hafið hefur sfldveiðar hjá ísfélaginu
en Gullberg mun einnig leggja afla sinn upp þar. Öll sfld sem kemur til vinnslu
hjá Isfélaginu verður flökuð og fryst en söltun heyrir sögunni til. Eins og áður
hefur verið getið í Fréttum er Sighvatur Bjamason VE væntanlegur hingað í
vikulokin eftir skveringu í Póllandi og mun fara til sfldveiða fljótlega eftir
heimkomu.
8