Fréttir - Eyjafréttir - 15.05.2003, Page 8
A
Fréttir
Fimmtudagur 15. maí 2003
Xé
ili'i
X*
Samfylking með fjóra af tíu
-Fijálslyndir lönduðu einum en Sjálfstæðisflokkur og Framsókn fengu skell
Það var mikil spenna í Suður-
kjördæmi á kosninganóttina
og raunar langt fram á
morgun daginn eftir en síðustu
tölur úr kjördæminu breyttu
landslagi stjómmálanna næstu
fjögur árin þar sem 500
utankjörfundaratkvæði gerðu
það að verkum að Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, forsætisráð-
herraefni Samfylkingarinnar,
datt út og Arni Magnússon
annar maður á lista Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík
norður náði inn. Fyrstu tölur úr
kjördæminu bárust um hálf
ellefu um kvöldið og var
Suðurkjördæmi síðast til að
birta fyrstu tölur um kvöldið.
Það voru talsverðar sveiflur um
nóttina en undir lokin náði Jón
Gunnarsson, fjórði maður á
lista Samfylkingar, inn sem
jöfnunarmaður og Samfylk-
ingin varð stærsti flokkurinn í
kjördæminu með 29,7%
atkvæða, alls 7.426 atkvæði.
Margrét Frímansdóttir er því
fyrsti þingmaður kjördæmisins,
Lúðvík Bergvinsson er fjórði,
Björgvin G. Sigurðsson sjöundi
og Jón Gunnarsson tíundi.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk
29,2% atkvæða, 7.307 og
þrjá menn kjörna og datt
Kjartan Olafsson út af þingi.
Arni Ragnar Arnason er annar
þingmaður kjördæmisins,
Drífa Hjartardóttir fimmti og
Guðjón Hjörleifsson áttundi.
Framsóknarflokkurinn tapaði
einnig manni, Isólfur Gylfi
Pálmason datt út á lokasprett-
inum ef svo má segja en lengi
vel leit út fyrir að hann myndi
ná kjöri. Framsókn fékk 23,7%
atkvæða, alls 5.935 og tvo
menn kjörna, Guðna Agústs-
son sem er þriðji þingmaður
kjördæmisins og Hjálmar
Arnason sem er sá sjötti.
Frjálslyndir náðu 8,7% kjöri,
eða 2.188 atkvæðum og
Magnús Þór Hafsteinsson
kjörinn sem níundi þingmaður
kjördæmisins. Vinstri grænir
náðu ekki inn manni en fengu
4,7% atkvæða, alls 1167.
Sérframboð Kristjáns Páls-
sonar náði aðeins 3,3%
atkvæða eða 848 og Nýtt afl
aðeins 0,7%, 166 atkvæðum.
MAGNÚS ÞÓR.
GUÐJÓN.
LÚÐVÍK
HJÁLMAR
Ríkisstjómin
fékk gula
spjaldið
Fijálslyndi flokkurinn verður að teljast
annar tveggja sigurvegara kosning-
anna í Suðurkjördæmi. Flokkurinn
fékk 8,74% fylgi í Suðurkjördæmi en
í síðustu kosningum fékk Frjálslyndi
flokkurinn rúmlega tveggja prósenta
fylgi í Suðurlandskjördæmi.
Magnús Þór Hafsteinsson, nýkjör-
inn þingmaður Suðurkjördæmis
sagðist ekki geta verið neitt annað en
sáttur við niðurstöðu kosninganna í
kjördæminu. „Það var aftur á móti
afleitt að Margrét Sverrisdóttir náði
ekki kjöri í Reykjavík. Mér skilst að
það muni aðeins þrettán atkvæðum og
því spurning hvort ekki verði farið
fram á endurtalningu."
Magnús sagðist þakklátur fyrir þann
góða stuðning sem Frjálslyndir fengu
í Suðurkjördæmi. „Ég er með ágætis
atkvæðamagn á bak við mig og hef
orðið gott bakland. Nú verða næstu
skref hjá mér að einhenda mér í að
fara um kjördæmið, kynna mig og
hitta forkólfa verkalýðsfélaga og
sveitarstjóma og mynda ákveðin
sambönd til þess að geta unnið betur
fyrir kjördæmið."
Magnús hafði orð á því í kosninga-
baráttunni að hann myndi flytja í
kjördæmið næði hann kjöri en hann
og fjölskylda hans eru nú búsett á
Akranesi. Er hann búinn að ákveða
hvert hann flytur? „Nei, það er ekkerl
farið að ræða það, fjölskyldan er að
hugsa um annað núna, það er barn á
leiðinni og það tekur hug okkur allan
þessa stundina. Annars væri nú
spennandi að búa í Eyjum, þ.e. af
samgöngumálin væru í lagi.“
Magnús sagði það alveg á hreinu í
sínum huga að menn ættu að halda
áfram baráttunni um göng og hann
myndi ekki liggja á sínu ef rannsóknir
verða jákvæðar í sumar. „Ég hef séð
vel hvaða áhrif Hvalfjarðargöngin
hafa haft á byggð á Akranesi og er
handviss um að göng myndu
gjörbreyta öllu í Eyjum.“
Magnús segir alveg ljóst, þegar
hann lítur á úrslit kosninganna, að
ríkisstjómin hafi fengið gula spjaldið í
kosningunum. „Það er bullandi ósam-
komulag um sjávarútveg, maður sá
það best þegar málið kom upp í
kosningabaráttunni. Ef núverandi
stjóm heldur áfram og hlustar ekki á
þjóðina í þessu máli verða þeir í
vondum málum þegar kosið verður
aftur eftir fjögur ár. Sjálfur hefði ég
viljað sjá ríkisstjórn Framsóknar-
flokks, Samfylkingar og Frjálslyndra.
Það þarf að gera grundvallarbreytingar
á sjávarútvegsstefnu stjómvalda og ég
er handviss um að þessir þrír flokkar
ntyndu ná samkomulagi um það.“
Hann sagði kosningabaráttuna hafa
verið rosalega skemmtilega en jafn-
framt erfiða. „Eg hef lært helling á
þessum tíma. Ég var óreyndur í póli-
tfk eins og svo margir aðrir frambjóð-
endur flokksins og ég er alveg viss um
það að þegar Frjálslyndir fara næst í
kosningar verðum við enn sterkari.
Frjálslyndi flokkurinn er kominn til að
vera, það er á hreinu. Við stefnum á í
næstu sveitastjómarkosningum að
bjóða fram á öllu landinu. Það er
mikill hugur í okkur og nú þegar haftn
vinna við þann undirbúning," sagði
Magnús og bætti við að það væri
eðlilegasta mál að annar hægri flokkur
væri til í íslenskum stjómmálum.
„Þetta er svoleiðis allt í kringum
okkur, t.d. í Noregi þar sem ég bjó
lengi. Þar em tveir flokkar hægra
megin við miðju.“
Magnús sagði að sjávarútvegsmálin
væm sá málaflokkur sem stæði upp úr
hjá sér. „Enda emm við svo upptekin
af byggðamálum og þar er sjávar-
útvegur svo mikilvægur. Ég hef verið
uppteknastur af því enda áhuginn
mikill. Ef við verðum í stjómarand-
stöðu munum við veita stjómar-
flokkunum mikið aðhald í fiskveiði-
stjómunarmálum, það er á hreinu.“
Magnús vildi að lokum koma á
ffamfæri þakklæti til allra sem studdu
flokkinn og unnu fyrir hann. „Úti í
Eyjum var hún Hanna Bima Jóhanns-
dóttir ómetanleg og ég vil þakka henni
og öllum öðrum sem lögðu hönd á
plóginn."
Gríðarlegur
styrkur í
Eyjum
Guðjón Hjörleifsson náði kjöri sem
áttundi þingmaður kjördæmisins en
hann sat í þriðja sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins. Hann sest því á þing
í haust, einn fjögurra nýliða í þing-
mannaliði Suðurkjördæmisins.
Guðjón sagði að Sjálfstæðismenn
gætu verið sæmilega sáttir við
útkomuna. „1 fyrsta lagi var mjög
mikilvægt að stjómin hélt velli. Hvað
varðar Suðurkjördæmi þá var
klofningsframboð úr okkar röðum þar
sem Kristján Pálsson, fyrrverandi
þingrnaður flokksins, bauð fram sér
lista. Ég er á því að við hefðum fengið
um níutíu prósent atkvæða sem fóm til
hans, á eðlilegum degi hefðum við
fengið 33-34% fylgi.“
Aðspurður um kosningabaráttuna
r fi
i '1 i
SJÁLFSTÆISMENN fagna fyrstu töluni úr Suðurkjördæmi en ekki náðu þeir settu marki, að ná inn fjórum mönnum.