Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Síða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Síða 14
14 Fréttir / Fimmtudagur 3.júlí20Q3 Viktor, Haraldur, Magnús og Selma fæddust öll í ágúst 1972: Að sjá gosið í ævintýraljóma Einhvern veginn læðist sú hugsun að manni að gosið sé Ijómað ævintýrablæ í hugum margra sem ekki upplifðu þessa sögulegu nótt, 23. janúar 1973. Sögurnar sem hafa lifað hvað lengst eru allar þannig að þær minna ó vel skrifaða skóldsögu og líklega hefur ekkert verið dregið af í dramatíkinni og kannski örlitlu bætt við frekar en hitt. Við sem erum ó svipuðum aldri og Heima- eyjargosið höfum myndað okkur skoðanir ó gosinu í gegnum sögur ættingja, vina og það sem farið hefur ó prent. Nú er að vaxa úr grasi önnur kynslóð og verður það hlutverk foreldra þeirra sem margir hverjir upplifðu ekki gosið að miðla sögunni til barna sinna. Við töluðum við nokkra jafnaldra Heimaeyjar- gossins, eða þar um bil, um viðhorf þeirra til gossins og hvernig það hafi verið að alast upp í Eyjum. Margt athyglisvert kom fram í spjallinu, Þau eru sammóla um að það trufli þau ekkert að búa svona nólægt gos- stöðvum. Magnús Steindórs- son kaupmaður í Axel O. velti upp ansi athyglisverðri spurn- ingu, hvort nútímamaðurinn myndi leggja ó sig þó vinnu sem fólk lagði ó sig í kjölfar gossins. Hans svar er nei, nútímamaðurinn myndi lík- lega pakka saman og flytja. Viktor Ragnarsson hórskeri er eiginlega hundfúll að hafa verið ungur í gosinu, hann hefði viljað upplifa þetta og segir mikilvægt að kynslóðin sem hann tilheyrir haldi sögunni ó lofti. Hundsvekktur að hafa VERIÐ SVONA UNGUR 1973 Viktor Ragnarsson hárskeri var rétt rúmlega fimm mánaða þegar gosið hófst og fór fjölskyldan með Stíganda VE til Þorlákshafnar en Bergvin Oddsson, Beddi á Glófaxa, var þar skipstjóri. „Við vorum nýflutt upp í Hrauntún þegar ósköpin dundu yflr, reyndar bara búin að vera þar í nokkra rnánuði." Fjölskyldan taldi fjóra, auk Viktors var Helga systir hans níu ára og foreldrarnir, Ragnar Guðmundsson, Raggi rakari og Sigríður Þórodds- dóttir. „Við enduðum hjá föðurömmu og afa mínum í Reykjavík fyrstu nóttina en fengum fljótlega íbúð uppi í Stóragerði þar sem við bjuggum.“ Viktor sagði skýringuna hafa verið að afi hans hafl verið til sjós á Hofs- jökli og vélstjórinn þar um borð átti íbúð í Stóragerði sem hann leigði þeint. Sagði hann þau hafa verið mjög heppin miðað við marga aðra. Ragnar, VIKTOR: Safnið var pínulítið og í raun nauðaómerkilegt en ferða- mennirnir sem voru þarna á sama tíma og ég áttu ekki orð yfir sögunni og fannst þetta einn merkilegasti staðurinn. HARAEDUR: Mér fannst til dæmis hugmyndin hans Stjána Óskars góð, að mála Ijósastaurana eftir því hversu hátt vikurinn náði. faðir hans, fór fljótlega aftur til Eyja til að vinna en Sigríður varð eftir með börnin í Reykjavík. „Við snerum svo aftur um leið og við máttum og það var undir goslok." Amma hans og afi urðu aftur á móti lengur í Reykjavík en komu aftur rúmu ári seinna. Viktor sagði að mikið hafi verið talað um gosið á æskuárum hans. „Það var mikið talað um þetta og þó maður hafi ekki upplifað gosið sem slíkt þá fékk maður góða innsýn í það sem hér gerðist, enda var minningin svo fersk í huga fólksins í kringum mig.“ Hann sagði að þess vegna hafi hann upplifað gosið sem áhorfandi en sögumar hafi verið ljóslifandi og þegar menn voru að rifja upp það sem gerðist hér á gostímanum, þá hafi hann séð þetta fyrir sér sem eitt alls- herjarævintýri. „Eg man nú eftir öllu héma í vikri og slíku. Leikvöllurinn, gamla hraunið, var til dæmis á kafi í vikri.“ Viktor sagðist aldrei hafa fundið fyrir hræðslu við það að búa hér. „Ég get ekki sagt það, umræðan var alltaf þannig að þetta kæmi aldrei aftur,“ sagði Viktor og bætti við að hann hafi litið á þetta sem rosalegt ævintýri fyrir þá sem hér vom þó aldrei hafi slíku verið haldið að honum. „Maður er eiginlega hundsvekktur að hafa verið svona ungur á þessum tíma.“ Hann sagði þó að foreldrar sínir og margir aðrir vilji alls ekki upplifa þetta aftur. „Hjá þeim er ekki þessi ævintýraljómi yfir gostímanum eins og ég sé þetta.“ Eins og áður sagði var faðir hans við björgunarstörf í Eyjum í gosinu. „Upprifjunin í janúar sl. á gosinu varð til þess að ýmsar sögur rifjuðust upp og þegar þessir karlar sem hér vom sögðu manni sögurnar, þá var þetta eins og góð spennusaga. Þessa spennu upplifði ég svo aftur í janúar þegar ég horfði á þættina á Stöð 2.“ Það tmllar Viktor ekki neitt að búa á svæði sem gosið hefur á. „Ég hugsa aldrei um það og held að með tíð og tíma muni sú umræða hreinlega deyja út. Enda þegar krakkamir mínir verða orðnir stórir þá er þetta orðið svo langt MAGNÚS: -Ég hef nú engar sérstakar áhyggjur, þetta er óvirk eldstöð og sjáðu til dæniis Selfoss núna, það er iirugglega ekkert svakalega spennandi að búa þar vitandi af skjálftahættunni. SELMA: í rauninni var aldrci svo mikið talað um þessa athurði og það sem gekk á. Til dæmis mót-tökurnar upp á landi, Noregsfarana og fleira en eftir þessa stórgóðu þætti á Stöð 2 þá opnaðist umræðan og fólk fór að ræða þetta meira. í burtu í minningunni. Þetta verður eins og móðuharðindin em í okkar huga, það er allt í lagi að vita af þessu en þetta kemur mér ekkert við.“ Viktor segist þó segja börnunum sínum frá þessu og þá á þeim nótum að þetta hafi gerst þegar hann var minni en þau em núna. „Það er tekinn rúntur upp á hraun og Eldfellið og sagan sögð eins og ég sjálfur hef heyrt hana.“ Viktor hefur ákveðnar skoðanir þegar kemur að því að ræða hvemig gosminningunni hefur verið haldið á lofti. „Þetta verður að þróast eins og annað. Byrjunin var fín, þegar það rauk úr Eldfelli og hægt var að baka brauð í hrauninu, það virkaði. En sá tími er liðinn og við getum gert miklu meira en nú er gert með lítilli fyrir- höfn. Við höfum efnið í bakgarðinum og þurfum að nýta það betur. Við feðgamir viljum til dæmis sjá líkan af gantla bænum eins og hann var.“ Nú þegar hefur hópur manna í Eyjum byrjað á slíku verki og var Viktor mjög ánægður með það. „Svo þurfum við héma alvöru gosminja- safn. Ég fór unt páskana á þrjár eyjar f Karabíska hafinu og á einni þeirra sem heitir Martinique var pínulítið gosntinjasafn. Þau höfðu lent í gosi og þar fómst margir. Safnið var pínu- lítið og í raun nauðaómerkilegt en ferðamennimir sem vom þama á sama tíma og ég áttu ekki orð yfir sögunni og fannst þetta einn merkilegasti staðurinn. Við höfum nóg pláss hérna til að gera þetta myndarlega og eigum að kýla á það,“ sagði Viktor ákveðinn á svip og hélt áfram. „Líttu á myndina sem hann Guðgeir er að mála á ísfélagshúsið. Þetta er rosalega flott mynd hjá honum og við fórum þama um daginn að sýna dóttur okkar húsið sem amma hennar ólst upp í, sagan er okkur mikilvæg og við eigunt að vemda hana og nota." Viktor sagðist leggja áherslu á það að mikilvægasta verkefni sinnar kynslóðar væri að halda sögunni á lofti, tengja saman gömlu Vestmanna- eyjar og þær nýju. „Við verðum að sjá til þess að strengurinn slitni ekki.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.