Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 18
18 Fréttir / Fimmtudagur 3. júlí 2003 Garðar Arason: Stundum virðist veruleikinn svo óraunverulegur. Það á að opna verslun í tveggja kílómetra fjarlægð frá spú- andi eldfjalli. Þetta var raun- veruleiki í Vestmannaeyjum árið 1973. Eg ætla að segja hér í stuttu máli frá versluninni að Hólagötu 28 sem Kaupfélag Vestmannaeyja rak í eld- gosinu 1973. Þá var ég verslunarstjóri, afgreiðslu- maður, skúringatæknir og bílstjóri með meiru hjá Kaupfélaginu. í byrjun ársins 1973 rak Kaupfélag Vestmannaeyja þessar verslanir: Mat- vöruverslanir að Bárustíg 7, Hólagötu 28, Heimagötu 35 til 37 og Kirkjuvegi 21 (Brynjúlfsbúð), búsáhaldaverslun og vefnaðarvöruverslun að Bárustíg 6 og Timbursöluna við Garðaveg. Skrifstofur Kaupfélagsins voru að Bárustíg 6 á efri hæð. Þá voru starfs- menn KFV 26 talsins. Hinn 23. janúar 1973 var engin þessara verslana opnuð vegna eldgoss- ins og flestir starfsmanna KFV farnir fráEyjum. A fimmta degi í gosi (nýtt tímatal hófst með gosinu) voru öll bókhalds- gögn og skrifstofuvélar flutt til Reykjavíkur. Þá þurfti og að flytja allar vömr úr verslununum að Heima- götu og Brynjúlfsbúð en þær voru í mikilli hættu. Hluta af vömnum var komið fyrir í versluninni við Bárustíg en mikill hluti var sendur til Reykjavíkur. Þessi ráðstöfun vakti nokkum úlfaþyt meðal ráðamanna hér, í þessum yfirgefna bæ. Þrifið með strákústi og SKÓFLU Brátt lá fyrir beiðni frá Almanna- vamanefnd til stjómar KFV um að opna verslun í Eyjum til hagræðis fyrir björgunarfólk. Kaupfélagsstjóri var þá Ragnar Snorri Magnússon og fól hann mér að stjórna versluninni að Hólagötu 28. Þegar þetta gerðist hafði ég starfað í 16 ár hjá Kaupfélaginu. Ragnarhætti störfum hjá KFV um vorið en Bogi Þórðarson tók við prókúmumboði og stjórnaði KFV til áramóta. Skrifstofa KFV var í Reykjavík að Suðurlands- braut 32. Eg fékk til liðs við mig í verslunina Bjarna Bjarnason (rakara) sem verið hafði verslunarstjóri í Brynjúlfsbúð. Var nú hafist handa við að lagfæra og þrífa húsnæðið. Þrif vom þó ekki unnin með hefðbundnum hætti. Ekki þýddi að byrja með vatn, sápu og tusku eins og venjulegt er heldur þurfti að byrja með strákúst og malarskóflu sem voru þörfustu hjúlpartækin við þrilin. Svartir skaflar vom úti og inni, askan og vikurinn smugu um allt. Þegar þrifum var lokið þurfti að fylla allar hillur með nauðsynjavömm. Okkur var strax ljóst að allar hrein- lætisvömr svo og tóbak, vettlingar ðg sokkar vom efst á blaði en í grófum dráttum var hægt að skipta vörunum niður í fjóra aðalllokka: 1. tóbak, gosdrykkir, sælgæti, kex.... 2. vettlingar, sokkar, nærföt, stígvél, skór.... GARÐAR í Þorlaugargerði er liklega hvað Ijósasta dæmið um þá bjartsýni sem einkenndi Eyjamenn í gosinu. í maímánuði 1973 tók hann sig til og setti niður kartöflur í garðinum sínum, ásamt dóttur sinni og skipti engu máli þótt enn ryki af fullum krafti úr gígnum. 3. handklæði, sápur, sjampó, tann- krem.... 4. kafft, dósamatur.... Verslunin að Hólagötu 28 var opnuð í byrjun febrúar. Opið var alla daga vikunnar frá kl. 13 til 19 og gengu við- skiptin vel. Starfsmenn Viðlagasjóðs tóku vörur út í reikning en aðrir staðgreiddu sín viðskipti. Slit á vettlingum og sokkum var mikið því askan var beitt. Allt skótau slitnaði líka fljótt, bæði vegna öskunnar og einnig vegna hitans. Hvítu sokkarnir urðu GRÁIR Mesta furða var hversu vel fólk sætti sig við lítið vömúrval. Alltaf var þó einn og einn sem var með sérþarfir eins og alltaf er. Það getur verið afar skemmtilegt að sinna þeim þörfum. Eg man eftir einu slíku atviki. Maður nokkur kom og ætlaði að kaupa sér gráa ullarsokka en þeir voru þá upp- seldir og fengust aðeins hvítir sokkar. Hann fékkst ekki til að kaupa þá, vildi bara gráa. Ég sagði þá við hann: „Farðu bara í sokkana og ef þeir verða ekki orðnir gráir á morgun þá máttu eiga þá.“ Hann fór í sokkana, kom svo daginn eftir, tók upp budduna og borgaði því að sokkarnir voru auð- vitað orðnir gráir og það í dekkra lagi, askan sá um að lita hlutina. En báðir vom ánægðir með viðskiptir, kúnninn og kaupmaðurinn. Eitt sinn fékk ég sent skemmtilegt bréf. Það var frá Kristjáni Eyjólfssyni lækni sem starfaði í Éyjum í gosinu. En bréftð var svohljóðandi: Vestmannaeyjum 10. maí 1973 Hœstvirtur settur kaupfélagsstjóri. Þar eð mér, svo sem öðrum gosíbúum kaupstaðarins, er mjög vel og að góðu kunn lipurð yðar íhvívetna, svo og hin sterka löngun yðar til að þóknast viðskiptavinum yðar, vil ég vinsam- legastfara þess á leit við yður að þér sjáið um að verslunin haft til sölu tóbakstegund þá sem EDGEWORTH nefiiist og cetluð er til pípureykinga og er seld í bláum umbúðum. Með vinsemd ogfyrirfram þökk Kristján Eyjólfsson Auðvitað var þessi ósk uppfyllt enda var reynt að koma til móts við þarfir allra eins og mögulegt var. Þegar rafstrengurinn og vatnsleiðslan fóm í sundur var stranglega bannað að kynda með rafmagni. Allra nauðsyn- legustu ljós vom leyfð en bannað að elda mat, hita kaffi eða nota rafmagn við svipaðan óþarfa í heimahúsum. Eftir að þetta bann var sett, var hætt að selja allar vörar sem þurfti að hita eða sjóða. Ekki var talið hollt að vera margar vikur samfleytt í Eyjum vegna mikils álags og mengunar. Ég átti að vinna í tvær vikur og taka síðan þriggja vikna frí uppi á landi en erfiðlega gekk að vinna eftir því vinnuskipulagi. Bjami hætti störfuni eftir stuttan tíma og ekki var auð- hlaupið að fá menn í þessa vinnu. Margir voru lausráðnir og hlupu í skarðið í nokkra daga en svo kom Hlöðver Johnsen til starfa og var fastur starfsmaður hjá KFV um tíma. Fyrir hádegi var verslunin lokuð og notuðum við þann tíma til að panta og sækja vömr, þrífa verslunina og líta eftir öðrum eignum Kaupfélagsins. Bíl höfðum við til umráða allan tímann. Sannkallaður heragi Eftir að gaseitmnar varð vart, var lagt kapp á að koma öllum vömm, sem ekki var pláss fyrir hér, til Reykjavíkur. Þá þurfti að rýma bæði húsin við Bámstíg því að gas var komið þangað. Er kom að því að pakka lager bús- áhaldadeildarinnar, fékk ég um 20 hermenn af Kellavíkurflugvelli til að hjálpa okkur. Ekki brotnaði einn einasti hlutur sem þeir höfðu gengið frá. Þeir unnu öðmvísi en við. Flaut- að var til pásu með vissu millibili og umgengni var til mikillar iyrirmyndar. Þetta var sannkallaður heragi. Kaupfélagið fékk til umráða húsnæði BSI í Reykjavík þar sem nú er Esso í Hafnarstræti. Þar var lager KFV í Reykjavík. Tvær konur vom í vinnu þar við að hreinsa upp vömr, skila til heildsala því sem hægt var og senda vömr til Eyja eftir þörfum. Ef vömr, sem vantaði í verslunina, vom ekki til á lagemum í Reykjavík, voru þær pantaðar hjá heildsölum. Vel gekk að koma vörum hingað, bæði með flugi og eins með skipum, því að lítið var um flutninga hingað en aftur á móti mikið flutt héðan burtu. Kaupfélagið fékk til umráða fyrir starfsmenn sína í Eyjum herbergi á verbúðum ísfélagsins. Þetta var tjöguira manna herbergi og vomm við Bjami þar til húsa þar til gasið kom. Þá fluttum við að Illugagötu 33 og vorum þar nokkrar nætur. Um þetta leyti hætti Bjarni störfum og flutti ég þá að Bessastíg 12 eða Gosastöðum neðri. Ekki urðu nætumar þar margar því gasið rak okkur þaðan og að Stembugötu 17, efri Gosastöðum. Þar var svo heimili okkar „Gosastaða- bræðra" það sem eftir var af gosi Ibúar Gosastaða auk mín vom þeir Sigurgeir Jónasson, Andri Hrólfsson, Þorkell Þorkelsson, Jóhann I Guð- mundsson og bræðumir Áki og Torfi Haraldssynir. Mágur minn, Sigurgeir Jónsson frá Þorlaugargerði, var í hópnum um tíma eða þar til hann fór að kenna í Hveragerði. Síðar bættist svo Bragi Olafsson í hópinn. Þegar símstöðin var sett upp í Gagnfræðaskólanum komu frá Sím- anum í Reykjavík þær Binna Hlöð- versdóttir og Margrét Kjartansdóttir og bjuggu á Gosastöðum efri. Verslað í eldgosi

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.