Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Qupperneq 29

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Qupperneq 29
Frétlir / Fimmtudagur 3. júlí 2003 29 HLUTI af þeim búslóðum sem bjargað var fór beint í flug. Hér eru þeir Torfi Haraldsson og greinarhöfundur að koma búslóðinni hans Braga Olafssonar um borð í Fokkervél. GOSASTAÐAMENN minntust þess fyrir fímm árum að 25 ár voru liðin frá gosi. Að sjálfsögðu var greinarhöfundur mættur þar ásamt sínum betri helmingi, Katrínu Magnúsdóttur. eyða of löngum tíma í að bjarga eigin hlutum þegar aðrir biðu eftir aðstoð. Ef til vill eru aðrar skýringar til á þessu ástandi en mér finnst þessi ekki ólíkleg. Boðið til veislu í öskuhríð Jafnvel þegar svo virtist að allt væri að fara íjandans til, þá létu menn það ekki á sig fá og reyndu að slá á létta strengi. Um miðjan febrúar gerði dag einn vonskuveður af austri og öskuhríð buldi á bænum seinnihluta dags. Þegar þannig viðraði var ekki annað að gera en hætta störfum, bæði var hættulegt að vinna við slíkar kringum- stæður og auk þess fóru húsmunir illa í öskuregninu. Því hættum við störfum fyrr en ella og vomm komnir í hús að Gosastöðum um fimmleytið. Rétt um kl. sex hringdi síminn. I honum var frændi minn, Ami Johnsen og erindið var að bjóða mér og nafna mínum ljósmyndaranum í saltkjöts- veislu að Skólavegi 7. Ami var þá búinn að vera, ásamt Halldóm konu sinni. að pakka saman búslóð foreldra sinna. Því verki var nær lokið og nú fannst honum full ÞESSI mynd, sem tekin var af hænsnaslátruninni, olli miklu fjaðrafoki og munaði minnstu að málaferli yrðu vegna þessa athæfis. ástæða til að bjóða til fagnaðar. Hann tók sérstaklega fram að samkvæmis- klæðnaður væri áskilinn. Nú var slíkur klæðnaður ekki meðal þess sem llokkaðist undir helstu nauðsynjar í Vestmannaeyjum þessa dagana en eftir að við nafni höfðum fengið okkur jámskammtinn, tókum við til að leita í fataskápnum hans Áka. Þar fundum við m.a. það sem Iíklega hafa verið fermingarfötin hans Áka en pössuðu svona næstum því á nafna minn og svo forláta smóking sem ég fór í og var að vísu vel við vöxt. Skyrtur og slaufúr fundum við líka með þessu og til að kóróna búninginn fundunt við pípuhatt sem tilheyrt hafði búningnum hans Áka þegar hann söng í Meyja- skemmunni, tveimur árum fyrr. Þennan hatt setti ég upp, nafni minn lét hjáhninn sinn duga. Síðan héldum við til veislufagnaðar. Nú erekki löng leið frá Bessastígnum niður á Skólaveg 7 en sú ferð tók talsverðan tíma þar sem við urðum að sæta lagi milli öskubylja sem dundu yfir. Nú var um þessar mundir kom- inn til Eyja talsverður hópur björgunarmanna, einkum smiða ofan af fastalandinu sem voru í óðaönn að negla fyrir glugga. Nokkrir þeirra voru að störfum, bæði við Brekastíg og Skólaveg, kappklæddir í hlífðarföt og með hjálma. Hafi ég einhvem tíma séð mönnum fallast hendur þá var það þarna. Þessir ágætu björgunarmenn lögðu frá sér hamra sína og horfðu í forundran á tvo uppáklædda menn stika gegnum öskubylinn og annar meira að segja með pípuhatt. Sjálfsagt hafa þeir haldið að þarna væru illa bilaðir menn á ferð og sú ályktun kannski ekki svo fjarri lagi. En að Skólavegi 7 náðum við óskaddaðir og settumst, eða réttara sagt krupuni að veisluborði þar sem búið var að pakka saman öllum hús- búnaði og dýrindis saltkjöt með rófum var framreitt á dúk sem breiddur var á stofugólfið. Þarna var svo dvalið í dýrlegum fagnaði fram eftir kvöldi þar sem bjartsýnin réði ríkjum þrátt fyrir að vikur og aska byldi á þaki og stór hluti af austurbænum hefði hulist ösku þessa nótt. Eg er ekki í vafa um að þessi óbilandi bjartsýni Eyjamanna átti sinn þátt í því hve flestir hlutir gengu vel fyrir sig í gosinu og hve fljótt byggðarlagið rétti úr kútnum eftir að hamförunum lauk. Kannski var eitthvað um væl og harmagrát uppi á landi en það náði ekki út til Eyja. Þess vegna á ég stundum erfitt með að skilja þá svart- sýni sem stundum hefur að undan- förnu stungið upp kollinum í Eyjum hin síðari ár og er einkum vegna einhvers af manna völdum. Fyrst okkur tókst að bjóða náttúruöflunum birginn fyrir 30 árum, þá ætti ekki að vera ofverkið okkar að lagfæra mannanna verk núna. Jasshátíðin Litir og tónar: Impress þakkar fyrir sig Við í Impress-bandinu viljum þakka fyrir ævintýralega helgi sem kom skemmtilega á óvart og sem við höldum að hafi aldrei getað heppnast betur. Þar sem við emm ungir, 14 til 18 ára, vissum við ekki alveg hvemig hátíð þetta væri. Tónleikamir sjálfir heppnuðusl frábærlega, góðir áhorfendur, toppstemmingin og „fílingurinn“ á bak við þetta var ólýsanlegur. Það var svo vel tekið á móti okkur að við fundum okkur eins og stórstjömur. Hápunktur ferðarinnar var þó þegar við fengum að djamma með gömlu refunum, landsliðinu í jazz- inum. Við hvetjum aðstandendur hátíðarinnar lil að halda áfram þessu fína starfi og Eyjamenn jafnt sem aðra landsmenn að styðja hátíðina. Impress-bandið Rukkað inn allan leikinn Undanfarin ár hefur ekki verið rukkað inn eftir hálfleik hjá karla- liði ÍBV í knattspyrnu en knatt- spyrnuráð hefur nú tekið þá ákvörðun að halda innmkkun áfram eftir hálfleik. Þetta er gert til þess að mæta auknum útgjöldum liðsins en töluverður fjöldi fólks hefur ávallt mætt í hálfleik. Ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um hvort rukkað verður fullt gjald eða jafnvel bara hálft en miðaverð fyrir fullorðna er eitt þúsund krónur en þrjú hundruð fyrir böm. Þá hefur einnig verið tekið á bíla- vandamáli Hásteinsvallar og nú er óheimilt að leggja bfium fyrir aftan mörk Hásteinsvallar og vona knattspymuráðsmenn að fólk komi sér fyrir í stúkunni og styðji karlaliðið af ráð og dáð. Gunnar Heiðar bestur KSI hefur undanfarin ár staðið fyrir kosningum yfir tímabilið, bæði í karla- og kvennaboltanum, þar sem kosið er um bestu leikmennina, þjálfara og dómara. Kosið er þrívegis hjá körlunum, eftir fyrstu sex umferðimarog svo koll af kolli. í kvennaboltanum er hins vegar kosið þrívegis, eftir fyrri umferð íslandsmótsins og svo eftir að móti lýkur. Gunnar Heiðar Þorvaldsson varð fyrir valinu hjá körlunum enda er hann vel að titlinum kominn. er markahæstur í efstu deild og hefur verið að spila mjög vel með ÍBV- liðinu. I kvennaboltanum var það svo Ásthildur Helgadóttir sem var valin best, Ólafur Jóhannesson, rjálfari FH var valinn besti þjálfari í karlaboltanum og Vanda Sigur- geirsdóttir, þjálfari KR hjá konunum. Þá var Kristinn Jakobsson valinn besti dómarinn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.