Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Side 31
Fréttir / Fimmtudagur 3. júlí 2003
31
Knattspyrna Visabikar kvenna: ÍBV 4 - KR 2
Stelpurnar stóðust prófið
HART var barist í leiknum.
Það er óhætt að segja að meistara-
llokkur kvenna ÍBV hafi staðist það
próf sem Heimir Hallgrímsson lagði
fyrir þær í bikarleiknum gegn KR á
Hásteinsvelli á föstudaginn. I samtali
við Fréttir í síðasta tölublaði sagði
Heimir að eftir tapið gegn KR á úti-
velli væri bikarleikurinn prófraun á
karakter liðsins. Það var einmitt
iiðsheildin sem skapaði sigurinn, allir
leikmenn voru að berjast og áttu KR-
ingar í raun aldrei möguleika gegn
ÍBV. Leiknum lyktaði með tveggja
marka sigri ÍBV, 4 - 2 og er liðið þar
með komið í undanúrslit bikarkeppn-
innar.
ÍBV byrjaði leikinn af miklum
krafti og vörðust stelpurnar framar-
lega. Þetta herbragð gekk upp hjá
Heimi þar sem öll pressan var sett á
vamarmenn KR-inga, sem er veikasti
hluti Iiðsins. Fyrir vikið náði Ást-
hildur Helgadóttir sér aldrei á strik
enda var hún í strangri gæslu Lindar
Hrafnsdóttur.
Heimir gerði einnig þær breytingar
að íris Sæmundsdóttir var færð niður í
miðvarðarstöðu, Sigríður Ása í bak-
vörðinn og Karen Burke fór inn á
miðjuna. Þetta gekk vel, íris og Sig-
ríður Ása spiluðu líklega sinn besta
leik í sumar og Karen var síógnandi
með hraða sínum á miðjunni.
ÍBV komst yfir strax á níundu
mínútu með marki Olgu Færseth en á
26. mínútu jöfnuðu KR-ingar. En
aðeins mínútu síðar kom Karen ÍBV
aftur yfir og var staðan 2 - 1 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var svo mjög ró-
legur, KR-ingar voru meira með
boltann en leikmenn ÍBV vörðust
skynsamlega. Þegar tólf mínúmr vom
til leiksloka léku þær Margrét Lára
Viðarsdóttir og Olga sér að vöm
gestanna sem endaði með því að Olga
skoraði þriðja mark IBV. Þegar tvær
mínútur voru eftir af venjulegum
leiktíma minnkuðu gestirnir muninn
en síðasta orði átti Olga Færseth þegar
hún bmnaði upp hálfan völlinn og
skoraði.
Ætlum í úrslitin
Heimir Hallgrímsson sagði eftir
leikinn að stelpurnar hefðu staðist
prófið og vel það. „Við breyttum
okkar leikstíl frá því í síðasta leik,
pressuðum þær ofarlega á vellinum og
það gekk upp. Stelpumar voru mjög
einbeittar fyrir leikinn og við ætluðum
okkur sigur. Við hefðum í raun getað
gert út um leikinn í fyrri hálfleik en
fómm illa með færin en í staðinn
fengu áhorfendur spennandi leik á
lokakaflanum."
Aðspurður um óskamótherja í
næstu umferð sagði Heimir að það
skipti ekki máli. „Við emm búin að
leggja KR af velli þannig að það
skiptir ekki máli hverjum við mætum
í næsta leik, við eigum að vinna þann
leik.“
En er ekki best að fá heimaleik? „Það
skipdr ekki máli, við ætlum í úrslita-
leikinn.“
Þakka stuðinsinn
Það var töluverður íjöldi áhorfenda á
leiknum og vildu forráðamenn liðsins
koma fram þakklæti til þeirra sem
studdu við liðið. Sérstakar þakkir fær
starfsfólk Rauðagerðis, sem studdi sitt
lið af miklum krafti.
ÍBV spilaði 4-4-2
Racliel Brown, Karitas Þórarinsdóttir,
Michelle Barr, Iris Sœmundsdóttir,
Sigriður Asa Friðriksdóttir, Mliairi
Gilmour, Lind Hrafnsdóttir, Karen
Burke, Elena Einisdóttir, Margrét
Lúra Viðarsdóttir, Olga Fœrseth.
Varamenn: Petra Bragadóttir, Sara
Sigurlásdóttir (kom inn á 74. mín),
Ertta Dögg Sigurjónsdóttir, Rakel Rut
Stefánsdóttir, Elfa Asdís Olafsdóttir.
Mörk ÍBV: Olga Færseth (3), Karen
Burke.
Visabikarinn: ÍBV 4 - Grindavík 5
Urslitin reðust i braðabana
Yngri flokkarnir:
Bágt
gensi í
bikarnum
Annar flokkur karla lék á mánu-
daginn gegn Keflavík í bikar-
keppninni og var leikurinn í
Bítlabænum. ÍBV leikur í B-deild
en Keflvíkingar í A-deild og var því
búist við erfiðum leik Eyjapeyja.
Lokatölur leiksins urðu 4-2 fyrir
Keflavík og er IBV því úr leik í
bikamum.
Annar flokkur kvenna lék á
mánudaginn gegn Stjömunni á
mánudaginn en leikurinn fór fram í
Garðabæ. Leikurinn endaði 3 - I
fyrir Stjömuna eftir að ÍBV komst
yfir 0-1.
Mark ÍBV: Karítas Þórarinsdóttir.
Þriðji flokkur karla lék tvívegis
gegn Þrótti um helgina en báðir
leikimir fóm fram í Eyjum. Fyrst
var leikið í bikarkeppninni og fór sá
leikur fram á laugardag. ÍBV
tapaði þeim leik, I -3 eftir að hafa
jafnað 1-1.
Mark ÍBV: Ellert Scheving Páls-
son.
Síðari leikurinn var svo í Is-
landsmótinu en hann fór fram dag-
inn eftir. Þá léku Eyjamenn mun
betur og sigmðu örugglega 7-3.
Mörk IBV: Ellert Scheving Páls-
son 2, Steingrímur A. Jónsson 2,
Egill Jóhannsson. Birkir Hlynsson
og Anton Bjamason 1 hver.
Þriðji flokkur kvenna tók á móti
Breiðabliki á dögunum og urðu
lokatölur leiksins 0-11. ÍBV hefur
nú leikið þrjá leiki og tapað þeim
öllum en Breiðablik er á toppi A-
riðils.
Eyjamenn tóku á móti Grindvfldngum
á þriðjudagskvöld í 16 liða úrslitum
bikarkeppninnar og fór leikurinn fram
á Hásteinsvelli. Ohætt er að segja að
um maraþonleik hafi verið að ræða
því eftir venjulegan leiktíma varð að
grípa til framlengingar þar sem
hvomgu liði tókst að skora.
Leikurinn var frekar bragðdaufur
og augljóst að hvomgt liðið ætlaði að
falla úr leik á eigin mistökum. Fyrir
vikið var leikurinn bragðdaufur og fá
færi litu dagsins Ijós. Reyndar fengu
bæði lið nokkur hálffæri en ávallt
vantaði herslumuninn. Hvomgu liði
tókst því að skora í venjulegum leik-
tíma og því varð að grípa til framleng-
ingar.
Ekki gekk liðunum betur í fram-
lengingunni enda vom leikmenn
Eldgos, nýr
gosdrykkur
Eldgos er nýr drykkur sem Olgerð
Egils Skallagrímssonar hefur hafið
framleiðslu á. Eldgos verður kynnt
um allt land en aðaláhersla verður
lögð á tvo stórviðburði í Eyjum,
goslokahátíðina og þjóðhátíðina.
Eldgos er sagður vera suðrænn og
seiðandi gosdrykkur enda Vest-
mannaeyjar syðsta byggð landsins.
Ölgerðin er einn aðalstyrktar-
aðili IBV-íþróttafélags og munu
þau sameinast um kynningu á
Eldgosinu. Meðal annars var upp-
ákoma við Hvalfjarðargöngin
liður í kynningunni. Þar bauð
Andrés Sigmundsson öllum
þjóðhátíðargestum 2010 frítt í
gegnum göngin til Eyja.
beggja liða orðnir mjög þreyttir sem
að sjálfsögðu kom niður á leiknum.
Hvomgu liði tókst að skora í
fremlengingu og því voru úrslitin
fengin með vítaspymukeppni. Þar
skomðu bæði lið úr fyrstu íjórum
spyrnum sínum og því var gripið til
bráðabana. Þar byijuðu Grindvfldngar
á því að skora úr sinni spymu en
Olafur Gottskálksson varði spyrnu
Bjama Geirs Viðarssonar og kom þar
með sínu liði áfram í átta liða úrslit.
Bjarnólfur Lámsson sagði eftir
leikinn: „Við höfum stillt okkur upp
að vegg í annað sinn í sumar með því
að tapa síðustu tveimur leikjum. Þá
brugðumst við þannig við að verjast
aftarlega og einbeita okkur að vamar-
leiknum. Það tókst vel, við héldum
hreinu en því miður tókst okkur ekki
í síðustu viku lék ÍBV gegn Þrótti og
fór leikurinn fram í Laugardalnum.
Með sigri gat IBV lyft sér upp í annað
sæti deildarinnar en það gátu
heimamenn líka þannig að búist var
við baráttuleik. Það fór hins vegar
Iítið fyrir baráttunni í liði ÍBV í fyrri
hálfleik en leikur liðsins var skárri í
þeim síðari. Það voru hins vegar
heimamenn sem sáu um að skora, eitt
mark í hvomm hálfleik og þar með
missti ÍBV af góðu tækifæri á að
blanda sér í toppbaráttuna.
Bræðumir Steingrímur og Hjalti
Jóhannessynir léku ekki með IBV í
leiknum, vonir stóðu reyndar til þess
að Hjalti gæti leikið en þegar á reyndi
var hann ekki orðinn góður af þeim
meiðslum sem hann á í. Þá meiddist
að skora. Mér fannst við reyndar spila
vel f dag, betur en í síðustu tveimur
leikjum þannig að við emm á réttri
leið. Við söknum Steingríms í
sókninni en svo lengi sem við höldum
hreinu þá eigum við möguleika á sigri.
Það er bara leiðinlegt að falla úr
bikamum, þetta er stemmningskeppni
og úrslitaleikurinn sá stærsti á
tímabilinu en ég var samt sem áður
mjög ánægður með Ieik liðsins í dag.“
ÍBV spilaði 4-4-2
Birkir Kristinsson, Hjalti Jóhannes-
son, Tryggvi Bjamason, Tom Betts,
Unnar Hólm Ólafsson, Atli
Jóhannsson, Bjarni Geir Viðarsson,
Bjamólfur Lárusson, Andri Ólafsson,
Bjarni Geir Viðarsson, Gunnar
Heiðar Þoivaldsson.
Ian Jeffs í leiknum og Bjamólfur
Lámsson fékk gult spjald í leiknum
sem þýðir að hann leikur ekki með
gegn KR á laugardag. Ian Jeffs mun
hins vegarekki leika með liðinu næstu
þijár vikumar.
IBV spilaði 4-4-2
Birkir Kristinsson, Hjalti Jónsson,
Tryggvi Bjamason, Tom Betts, Unnar
Hólm Ólafsson, Atli Jóhannsson,
Bjarnólfur Lárusson, Bjarni Geir
Viðarsson, lan Jeffs, Bjarni Rúnar
Einarsson, Gunnar Heiðar Þor-
valdsson.
Varamenn: Igor Kostic, Hjalti
Jóhannesson, Einar Hlöðver Sigurðs-
son, Andri Ólafsson (kom inn á 83.
mín), Pétur Runólfsson (kont inn á 73.
mín).
Knatts., Landsbankad.k: Þróttur 2
Glatað tækifæri
Óvænt úrslit fyrir norðan:
KFS tapaði
naumlesa
fyrir Völsunsi
KFS lagði land undir fót og hélt
norður í land þar sem liðið átti að
mæta Völsungi. Sem fyrr var keyrt
norður og var gist eina nótt á
Húsavík. Leikmannahópur KFS
var fámennur en þrettán leikmenn
vom á skýrslu ásamt þjálfara liðs-
ins.
En baráttan var í lagi hjá KFS og
þrátt fyrir að lenda undir strax í
byrjun leiks var leikurinn jafn og
spennandi. Um miðjan síðari
hálfleik jafnaði svo Óðinn Steins-
son metin meðþmmuskoti af stuttu
færi en undir lokin færði dómari
leiksins heimamönnum sigurinn
með þvf að dæma mjög vafasama
víti.
Húsvíkingar skomðu úr víta-
spymunni og em því enn með fullt
hús stiga þegar þegar sjö umferðum
er lokið en KFS er í sjöunda sæti
með sex stig, tveimur stigum frá
fallsæti.
Hjalti léns fer
út í ágúst
Enn aukast vandræði Magnúsar
Gylfasonar, þjálfara ÍBV, sem þarf
að glíma við meiðsli sem hafa nú
þegar sett strik í reikninginn auk
þess sem Bjamólfur Lámsson fer í
sitt annað bann á tímabilinu gegn
KR á laugardaginn.
Hjalti og Steingrímur Jóhannes-
synir hafa báðir verið meiddir auk
þess sem Ian Jeffs bættist í hóp
þeirra. Þá hefur Unnar Hólm verið
meiddur að undanfömu en nú sér
vonandi fyrir endann á því. Þá mun
Hjalti Jónsson yfírgefa liðið um
miðjan ágúst en þá heldur kappinn
til Danmerkur í nám.
Margrét Lára á
opna Norður-
landamótinu
Margrét Lára Viðarsdóttir, leik-
maður ÍBV, er um þessar mundir
stödd í Svíþjóð með U-17 ára
landsliði íslands þar sem liðið tekur
þátt í Opna Norðurlandamótinu.
Island tapaði fyrsta leiknum 4-2
gegn Frökkum og var Margrét Lára
fyrirliði íslenska liðsins.
Framundan
Föstudagur 4. júlí
Kl. 20.00 KFS-Létúr 2. deild karla.
Kl. 20.00 Selfoss-ÍBV 2. fl. karla.
Laugardagur 5. júlí
Kl. 13.30 ÍBV-KR Landsbanka-
deild karla.
Kl. 15.00 Víkingur-ÍBV 3. fl. karla
Sunnudagur 6. júlí
Kl. 13.OOHK-iBV3.fi. karla.
Mánudagur 7. júlí
Kl. 18.00 ÍBV-KR 3. fl. kvenna.
Þriðjudagur 8. júlí
Kl. 17.00 IBV-ÍA 4. fl. kv. ABC.
Miðvikudagur 9. júlí
Kl. 17.00 ÍBV-IA 5. fl. karla
ABCD
Kl. 20.00 ÍBV-Breiðablik 2. fl.
karla.
Kl. 20.00 Stjaman-ÍBV Lands-
bankadeild kvenna.