Frúin - 01.02.1963, Blaðsíða 3
FRÚIN
Luenna UJ
2. ARG.
FEBRUAR 1963
2. TBL.
TIL LESENDA
Þegar liafin er útgáfa á nýjum blöðum, er oft allmikið vanda-
mál að gefa þeim nafn, sem er i senn létt í munni og gefur bend-
ingu um tilgang og efnisval. Er velja átti nafn á íslenzku kvenna-
blaði komu ýmis nöfn lil greina. Fgrir valinu varð þetta nafn:
„Frúin“. Nafnið er að vísu hvorki frumlegt né skáldlegt, en hefur
hina fyrrgreindu kosti. Flestir hafa tátið í tjósi áinægju sina yfir
nafninu en nokkrir talið það vera útlent. Það síðasttalda er alrangt.
Orðið frú er mjög gamalt i íslenzku máli, og á þar að auki við
um bæði ógiftar og giftar konur. Allar íslenzkar konur hafa sam-
kvæmt íslenzkum lögum rétt til að kalla sig f r ú. Ungfrú er að
vísu mikið notað um ógiftar konur og fröken þó öllu meira. Það
er þó aldanskt og á engan rétt á sér í íslenzkri tungu. Halldóra
Bjarnadóttir, sú merka kona, sem óþarfi er að kynna íslenzkum
konum, hefur skrifað „Frúnni“ bréf, þar sem hún segir frá því,
að hún hafi barizt fyrir því í 50 ár, að titillinn f r ú sé notaður um
allar konur. „Frúin" vill gjarnan leggja því máli lið og vill beina
því til íslenzkra lwenna, hvort þær telji ekki rétt að gefa þessu máli
gaum. Ekki er gerður greinarmunur á titli karlmanna, herra,
hvort þeir eru kvæntir eða ókvæntir, og því á ekki að gilda það
sama um konur? „Frúin“ telur sig eiga erindi við allar konur,
og miðar ekki efnisval sitt við giftar konur frekar en ógiftar.
Það má til sanns vegar færa, að dálítið hjákátlegt sé að segja
ungfrú um sjötuga konu þótt hún sé ógift. Orðið ungfrú er sam-
sett orð og á i raun og veru við um unga frú og segir þar af leið-
andi ekkert um það, hvort sú unga frú er gift eða ógift.
Láttu draumaljósið skína,
láttu opnast sálu þína
fyrir öllu fögru og háu,
fjarri öllu ljótu, smáu.
Einar Benediktsson.
r*----------------------------------
Efnisyfirlit: Bls
Til lescnda 3
Björn Þorsteinsson sagnfr.:
Ólöf Loftsdóttir hin ríka
og samtíð hennar 4
Grímur Thomsen:
Ólöf Loftsdóttir ríka, ljóð 9
Viðtal við Helgu Valtýsdótt-
ur, leikkonu 10
Spurning og svör 12
Bjargvættur mæðranna,
Ignaz Semmelweis 13
Litlu systur Jesú 17
Fyrsta tízkudrottningin,
Rose Bertin 20
Líkamsrækt 23
Frú Valborg Bentsdóttir:
Skrifað í sandinn, smásaga 24
Tízka 26
Matur er mannsins megin 30
Litið inn til gömlu skáldanna 33
Francois Sagan verður móðir 34
Anna Magnani 37
Fætur í húsnæðisvandræðum 38
Fegurð og snyrting 41
i Handavinna 42
, Hún verðskuldar betra 44
Hvíld og afslöppun 46
Snigillinn og Iitla húsið hans
barnasaga 27
Frá „Frúnni“ til frúarinnar 48
Verðlaunakrossgáta 49
Verðlaunagetraun, 10.000,00
króna verðlaun 50
___________________________________________________________________1
FRÚIN
3