Frúin - 01.02.1963, Page 12
aldri. Fyrir nokkrum dögum gafst
mér einnig tækifæri til að sjá frú
Helgu á leiksviði í Iðnó, í leikritinu
„Hart í bak“ eftir Jökul Jakobsson,
og er það álit mitt að frúin hafi
sýnt þar mjög góðan leik í erfiðu hlut-
verki. Er það trú mín að frú Helga
eigi eftir að veita íslenzkum leiklist-
arunnendum margar ánægjustundir
með list sinni á ókomnum árum.
M. Th.
Leiðrétting.
f síðasta blaði „Frúarinnar“ var við-
tal við Valborgu Bentsdóttur. Nokk-
ur mistök urðu í viðtalinu sem hér
verða leiðrétt: Bent Bjarnason var
sonur Þóreyjar Pálsdóttur, dóttur
Jóhönnu á Grund, og Bjarna Þórðar-
sonar á Reykhólum, en ekki giftur
Þóreyju. Kona Bents hinsvegar Kar-
ólína Friðriksdóttir Zöbeck frá
Reykjarfirði í Strandasýslu. Eru
hlutaðeigendur beðnir afsökunar á
þessari rangfærslu. — M. Th.
Guðmundur Páls-
son og Helga Val-
týsd. í Tíminn og
við.
Móðir og dóttir.
Til „FRÚARINNAR". Ég vona að
þú getir hjálpað mér.
Við mamma erum alltaf að rífast.
Hún er alltaf að finna að við mig, og
ég get aldrei gert henni til hæfis.
Bræður mínir segja að þetta sé allt
mér að kenna, ég hugsi ekki um ann-
an en sjálfa mig, hirði ekki eftir
mig, og nenni engu. Stundum get ég
ekki sofnað á kvöldin út af þessu,
þá finnst mér þetta allt vera mér að
kenna, og mér finnst mamma svo
hrygg. Hún talar alltaf um erfiðan
aldur, hún er 45 ára. Mig langar
mest til að fara að heiman, en þá er
það skólinn. Annars langar mig mest
til að við verðum vinkonur, ég sakna
þess að geta ekki flúið til hennar
með mín vandamál, því ég treysti
henni bezt.
Ég er 15 ára og mér líður hræði-
lega illa. Blessuð.
Ingunn.
SVAR
Svona ósamkomulag milli móður
og dóttur, er því miður mjög algengt,
og er jafnerfitt fyrir báðar. Telpur
á þessum aldri lifa aðeins í sínum
eigin heimi. Móðirin er oft uppstökk
og mjög vansæl, jafnvel alveg niður
brotin á þessum aldri, og engin á
heimilinu, sem gefur því gaum, og
því ætlast til jafnmikils af henni,
sem heil væri. Þegar maður sér mæð-
ur með litlu börnin sín, sem þær
þráðu svo innilega að eignast, og enn
ekki skilja að um leið og börn fæð-
ast, eru þau engra eign, heldur sjálf-
stæðar verur. Við sjáum hversu böm
elska og virða föður og móður, með-
an þau eru lítil og svo getur allt
breytzt í óvináttu, það er sorglegt.
Reyndu að tala við mömmu þína
í einlægni, hugsaðu þér að þú ættir
enga mömmu. Mörg stúlkan hefur
fyrst séð hvað hún hefur gert móð-
ur sinni á þessum árum, eftir að hún
hefur sjálf eignazt börn, en þá hef-
ur það oft verið of seint. Gættu þess
að það sama hendi ekki þig. Varastu
að koma mömmu þinni í vont skap
með tillitslevsi og sjálfselsku. Og þar
sem þú finnur sök hjá sjálfri þér,
mun þér takast að færa birtu og yl
inn á þitt heimili á ný.
12
FRÚIN