Frúin - 01.02.1963, Blaðsíða 19
Anna Godelieve de Jesus og er belg-
isk. Hún hefur verið í reglunni í
5V2 ár. Og „Litla systir“ heitir: Litla
systir Francoise Joséphe de Jesus.
Hún er frönsk og hefur verið í regl-
unni í 4 ár.
Það er nauðsynlegt fyrir systurn-
ar að læra málið í því landi, sem þær
starfa. Það auðveldar þeim starfið
og gerir þeim kleift að samlagast
meðsystkinum sínum og hafa áhrif
til góðs.
— Rekið þið góðgerðarstarfsemi?
spyrjum við.
— Við gerum það ekki í stórum
stíl. Starf okkar er fólgið náungans-
kærleik og hjálpsemi eftir mætti.
Ef einhver ber að dyrum og bið-
ur okkur hjálpar, gefum við einu
sinni, máske tvisvar, en í þriðja sinn
verðum við að segja nei, við höfum
ekki meira. Þegar skattar og trygg-
ing hafa verið dregin frá ásamt öðr-
um nauðsynlegum útgjöldum, eigum
við eftir í sameiginlegum sjóði um
200 norskar krónur á viku. Það er
ekki mikið, sem við getum sent abba-
dísinni okkar. Smásysturnar eru all-
ar ein fjölskylda, hvar sem þær eru
í heiminum, þær styðja hver aðra
eftir mætti.
— Getið þið búið saman í svona
þröngum húsakynnum án þess að
verða leiðar hver á annarri?
— Við erum hér ekki sem vinkon-
ur heldur á guðs vegum. Það, sem
sameinar okkur er köllun okkar.
Bænin er það mikilvægasta. Við biðj-
um fyrir þeim, sem ekki hafa krafta
eða tíma sjálfir. Við biðjum um frið
milli stétta, ætta og þjóða, milli allra
manna og milli okkar þriggja inn-
byrðis.
— Setjum svo, að þið sæuð eftir
því að hafa gerzt nunnur, hvað þá?
spyrjum við.
— Sjá eftir? Ó, nei! En samt sem
áður, eftir átta ára reynslutíma, þá
eiaum við að gefa fullnaðarheitið
ævilangt. Sú elzta þeirra hefur ein
unnið heitið, hún hefur silfurhring
á hendi til merkis um það. Regla
þessi, sem er sú yngsta innan ka-
þólsku kirkjunnar, er hin merkileg-
asta á margan hátt. Meðlimir regl-
unnar eru úti á meðal fólksins og
vinna meðal þess og hafa þar af
leiðandi margfalda möguleika til að
útbreiða trú sína.
Af öllu því, sem við sáum í Osló
var heimsókn okkar til „Litlu systra
Jesú“, eitt það merkasta, mest hríf-
andi og minnst norskt, því að mark
beirra er að lifa í trú og fátækt alla
sína ævi.
f hvítri dragt
og með kross
á brjóstinu
vinnur „Litla
systir“ Anna
Godelieve í
súkkulaði-
verksmiðju.
„Ein dugleg-
asta og bezta
starfsstúlka,
sem við höf-
um haft,“ er
vitnisburður-
inn, sem hún
fær hjá vinnu-
veitendum sín-
um.
„Litlu systur
Jesú“ í litlu
dagstofunni að
loknu dags-
verki. Vegna
tungumála-
kunnáttu sinn-
ar m.a. myndu
þær geta feng-
ið vel launaða
vinnu, en þær
kjósa heldur
verksmiðju-
vinnu og
þvotta.
Systurnar
þrjár koma
allar til dyra
og bjóða okk-
ur inn.
FRÚIN
19'