Frúin - 01.02.1963, Side 37
varfærnislega. „Þér hafið séð hend-
urnar á honum, hvað þær eru falleg-
ar. Og nefið, það er fjölskyldunefið;
en hann hefur alveg sérstaklega
fallegar hendur, og þessar pínulitlu
neglur. Það er ótrúlegt, hvað þetta
er fallega skapað.“ Hún vaggar hon-
um ,stund, svo er kominn tíma til
að 'hann fái að drekka. Hún hefur
hann ekki á brjósti, hún hefur ekki
nóga mjólk.
EFTIR HVERJA FJARVERU
SÉ ÉG HANN STÆKKA.
Þannig er það miklu betra, í raun
og veru; návíst mín verður þá ekki
alltaf ómissandi, og þá get ég farið
við og við í frí á Miðjarðarhafsströnd-
ina, raunveruleg frí. Auðvitað hringi
ég heim á hverju kvöldi. Ég er líka
viss um, að ekki verður liðinn nema
mánuður, fyrr en mér finnst aðskiln-
aðurinn óbærilegur. En vitið þér
hvað! Þetta er nú alveg einstök til-
finning, að eiga allt í einu þessa litlu
mannveru, sem breytt getur öllu lífi
manns. Bók byggir maður upp og
fæðir af sér smám saman, en hvað
barnið snertir, þá er maður samtímis
nálægur og fjarlægur sköpun þess
og byggingu. Það lætur kjánalega
í eyrum, en samt sem áður finnst
mér ég vera miklu óvenjulegri fyrir
það, að 'hafa fætt af mér barn held-
ur en bók.
Nú ætla ég að sjá hann stækka
og hjálpa honum að mótast í sam-
ræmi við hæfileika sína og lyndis-
einkunn. Ég ætla sannarlega ekki að
hefta hann í fjötra. Sjálf naut ég
mjög góðs og frjálslegs uppeldis. Mitt
uppeldi og hans verða þó ekki hlið-
stæður, því að foreldrar mínir hafa
ávallt lifað ákaflega kyrrlátu lífi Ég
vil, að sonur minn hafi traust á mér,
og að hann geti alltaf fundið, að
ég stend á milli hans og lífsins. Ég
vona, að hann fái að lifa jafn glöðu
lífi, og ég hef átt. En ef hann lang-
ar til þess að verða verzlunarmað-
ur, sem verði tekið tillit til, þá er
það hans mál.
Sjálfsást er notuð í íslenzku máli
í þröngri og illri merkingu sjálfs-
elsku og eigingirni. En það er ekki
rétt. Hún er jafn guðdómleg sem
hún getur verið djöfulleg-mannleg
eins og dýrsleg
Fórn Signýar (Syginar) ásynju,
konu Loka lævísa, sýnir göfugri sál
norrænnar heiðni, en nokkur önnur
trúarbrögð hafa átt.
Hin fræga ítalska skapgerðarleikkona ANNA MAGNANI er mörg-
um íslenzkum kvikmyndahúsgestum vel kunn. Anna Magnani hefur
verið sett á bekk með fremstu Ieikkonum aldarinnar. Hún er mjög fjöl-
hæf leikkona og skaphita hennar er viðbrugðið. „Frúin“ mun seinna
veita lesendum sínum nánari upplýsingar um þessa miklu leikkonu
og lætur nægja í þetta sinn að birta mynd af leikkonunni, þar sem
hún er að dansa „twist“ í nýrri kvikmynd, sem nú er verið að gera
í Rómaborg.
_______________________________________________________________________J
FRÚIN
37