Frúin - 01.03.1963, Blaðsíða 4

Frúin - 01.03.1963, Blaðsíða 4
Iljöria I»orsf eú EE SS49EI sagn- íræftingnr skrsf.ar grcinaílcttkk íyrir „Frúna44 nm vofid csg- assáu «rg cissin nicrlfustu * konu Islands íyrr og síöar. Björn Þors:vl.:sson. Loftsdóttir hin ríka og samtíð hennar II. RIDDARINN Á MÖÐRU- VÖLLUM. 1. Hálfskipt föt og ranaskór. löf var dóttir Lofts ríka Gutt- ormssonar á Möðruvöllum í Eyjafirði og konu hans, Ingibjargar Pálsdóttur frá Eiðum. Loftur er uppi um 1400 (d. 1432), þegar fyrirmenn ganga yfirleitt rakaðir, með hálfsítt hár og í hálfskiptum fötum, og í sokkabuxum, eins og kvenfólkið á okkar dögum, en konur ganga þá síðklæddar og buxnalausar eins og jafnan allt fram á 19 öld. Sokkabux- urnar voru með ýmsum lit, t. d. var annar leggurinn grár, en hinn rauð- ur, og svo báru menn rauðan skó á gráa fætinum, en hvítan á þeim rauða, báru ermastakk, grænan öðr- um megin, en bláfjólubláani á hitt borðið, og höfuðið var skrýtt nær barðalausum hattkúf eða strút með viðeigandi skotti. Litróf klæðanna var auðvitað með ýmsum öðrum hætti en hér greinir og fór eftir smekk og vali eiganda og klæðskera. Kvenmenn báru skikkjur, síða kyrtla, sem teknir voru saman með belti í mittið, en gátu verið með sömu ermavídd og karlmannsstakk- urinn, og nærskornar treyjur. Á höfði báru þær strúta, skuplur og húfur af ýmsum gerðum, en barða- lausar. Barðastóra kvenhatta hefur Ingibjörg Pálsdóttir aldrei séð; þeir ásamt slæðum og slörum komu fyrst til skjalanna á dögum dótturinnar. Loftur var kominn af hinni auð- ugu ætt, sem kennd er við Skarð á Skarðsströnd (Skarðverjum), og jók erfðahlut sinn stórum. Ríkar ekkjur hafa löngum þótt góðir kvenkostir, og Loftur gekk fyrst í þjónustu einn- ar slíkrar á Suðurlandi, og þá góðar gjafir í þjónustulaun. Frá ekkjunni fór hann utan og réðst til Eiríks kon- ungs af Pommem xneð fjóra sveina. Konungur mun hafa dubbað hann til riddara, tekið hann í tölu lágaðalsins, og veitti honum heimild til þess að bera skjaldarmerki, hvítan fálka á bláum feldi, en höggorm hafði Loft- ur í innsigli sínu. — Færði hann í feldi blá fálkann hvíta skildi á, hver mann af því hugsa má hans mun ekki ættin smá. — Svo var kveðið um einn afkomanda hans. Talið er að Loftur hafi verið ytra, þegar Svarti dauði geisaði hér og þannig sloppið við pláguna. 2. Þau unnust í líf og f jör. Loftur átti margt stórbýla um landið norðan og vestanvert, m. a. Skarð á Skarðsströnd, og reið milli búa sinna með 20 sveina að sögn, en „sinn einka hofgarð“ hélt hann að Möðruvöllum norður. Þar hélt hann eina kvenpersónu, er Kristín hét. „Þau unnust í líf og fjör, en máttu þó eigi eigast, því að þrímennings mein- bugir voru á með þeim.“ Sagt er, að hann hafi gift hana einum sveini sín- um, og gefið í skyn, að það hafi átt að vera sýndarhjónaband. Loftur á að hafa ort til hennar margar vísur og sent henni nokkrar í hvert sinn með allra handa bragarhætti og fund- ust þær í treyjuermi hans, þá hann var dauður. Um sannleiksgildi þessarar ástar- sögu er það helzt vitað, að Loftur átti börn nokkur með Kristínu Oddsdótt- ur lögmanns, sem kallaður var lepp- ur, og mun hafa búið með henni um skeið. Eigi er vitað, af hverju þau slitu samvistum, því að skyldleiki þeirra í milli er ókunnur. Handritin úr treyjuermi Lofts eru löngu glötuð, hafi þau nokkru sinni verið til, en afkomendur hans á 17. öld töldu hann skáld og eignuðu hon- á FRÚIN

x

Frúin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.