Frúin - 01.03.1963, Blaðsíða 47
rætur sínar að rekja til þess tíma er
áður er nefndur og iðnaðurinn var
á byrjunarstigi. Þessi skoðun á, sem
betur fer, ekki lengur við rök að
styðjast í langflestum tilfellum. ís-
lenzkar iðnvörur eru að verða full-
komlega samkeppnisfærar við er-
lendan iðnað. Er því leitt til þess að
vita ef gamlar syndir og það eðlileg-
*r syndir eiga að verða okkar unga
og efnilega iðnaði fjötur um fót.
„Frúin“ vill hvetja allar konur til
þess að ganga fullkomlega úr
skugga um það, er þær gera innkaup
á iðnaðarvörum, hvort íslenzka var-
an sé ekki sambærileg hvað verð og
gæði snertir. Þá á að vera sjálfsögð
þjóðhollusta hjá hverri konu og
manni að velja heldur heldur ís-
lenzka vöru en erlenda þegar um
engan mun er að ræða, sem er óhag-
stæður íslenzku framleiðslunni,
Forsíðumyndin á þessu tbl. „Frú-
arinnar“, sem Þorvaldur Ágústsson
hefur tekið, er af ungri stúlku,
Thelma Ingvarsdóttir. Hún hefur
getið sér góðan orðstír sem sýningar-
stúlka í ýmsum löndum Evrópu. —
Á þessari mynd er hún klædd í
peysu, sem framleidd er í klæða-
verksmiðjunni Heklu, sem er eign
Sambands ísl. samvinnufélaga og
staðsett er á Akureyri.
Þessi verksmiðja er ein af þeim
fáu íslenzku iðnfyrirtækjum, sem
unnið hefur sér álit og markaði er-
lendis. íslenzka ullin er úrvalsvara
ef hún er rétt meðhöndluð og hefur
mikið verið flutt út óunnin. Er gott
til þess að vita, að tekizt hefur að
vinna hér úrvalsvöru úr íslenzkum
hráefnum.
Eiga forsvarsmenn verksmiðjunn-
ar þakkir skilið fyrir vandaða og
smekklega framleiðslu.
V erðlaimagetraiin
AXMINSTERteppi eftir eigin vali
fyrir kr. 10.000,00.
Hér er síðasti þáttur verðlauna-
getraunarinnar. Tveir hinar fyrri
birtust í janúar- og febrúarhefti.
Þessi keppni er, eins og áður er
getið, aðeins fyrir áskrifendur. Allar
lausnirnar skulu sendar afgreiðslu
„Frúarinnar“, Grundarstíg 11 eða í
pósthólf 319, greinilega merkt nafni
og heimilisfangi sendanda. Vegna ó-
fyrirsjáanlegra atvika, svo sem
seinkun á pappír frá Finnlandi vegna
frosta og verkfalla þar, hefir útgáfu
blaðsins seinkað svo að nægilegt er
að senda lausnir fyrir 1. maí. Dregið
verður úr réttum ráðningum hjá
Borgarfógeta.
V erðlaunaget r aiin
Verðlaun: kr. 10.000,00
47