Frúin - 01.03.1963, Síða 20

Frúin - 01.03.1963, Síða 20
SVIPMYNDIR ÚR TÍZKUHEIMINUM Á einum af hinum viðhafnarmiklu heldri manna dansleikjum, sem haldnir eru í Par- ís um þessar mundir, mátti m. a. sjá þess- ar ungu og fögru leikkonur og tízkukon- ur5 sem jafnframt því að vera orðnar fræg- ar í starfi sínu, eru allar þekktar fyrir glæsilegan og smekklegan klæðaburð. Veizluklæðnað þeirra og snyrtingu má því líta á sem fyrirmyndar glæsileika í þess- um efnum. Eins og sjá má, eru kvöld- greiðslurnar að mestu leyti háar, og virð- ist konan því hærri um allt frá 5 upp í 20 cm. Ef eigið hár dugar ekki til, eru not- aðar hárkollur, falskir hnútar, toppar eða fléttur. í meiri háttar samkvæmum eru síðir kjólar ennþá aðaltízkan; pilsin eru þröng og smávíkkandi niður, og oft fylgja kjólunum litlir jakkar saumaðir steinum eða perlum. Hvað andlitssnyrtinguna snertir, er langmest áherzla lögð á augun. Til þess a3 konan geti talizt hafa fegurS, þarf hún að hafa yndis- þokka og eitthvað dularfullt yfir sér, og sterkan persónuleika. „Þetta eru einkunnarorðin í vetur," segir LAN- COME, hinn frœgi fegurðarsérfrœð- ingur í París. Irina Dehick, sem leikur aðalhlut- verkið í kvikmyndinni „Lengsti dag- urinn“, í hvítum, síðum satínkjól, með jakka ísaumuðum steinum. Franska kvikmyndaleikkonan Dany Saval. Hárgreiðsla hennar er töluvert sérkennileg. Hárið er túberað í mörgum styttum í vöng- um og á kollinum, og síður ennistoppur dreg- ur athyglina að augunum. Augnaumbúnað- urinn er mjög mikið farðaður eins og sjá má. Audrey Hepburn í kjól frá eftirlætis tízkuhúsi sínu, Givenchy. Blússan er úr glitrandi efni, mjög lítið flegin, og pilsið úr þykku satíni, er alsett steinum.

x

Frúin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.