Frúin - 01.03.1963, Qupperneq 21

Frúin - 01.03.1963, Qupperneq 21
Andlitsförðunin er dekkri á neðri hluta andlitsins, en í ljósari litbrigðum fyrir ofan augnlínuna. Munnur- inn málaður eftir sín- um réttu línum (en ekki út fyrir þær, eins og stundum sést), vara- liturinn skærrauður. Langþýðingarmest er þó augnförðunin. Fyrst er dregin mjó svört lína þétt við augnhár- in á efri augnlokunum, og ofan við hana er máluð önnur lína í „sanséruðum" gljáandi augnskugga, í sömu lit- brigðum og augnlitur- inn. Þetta gefur aug- unum meiri dýpt í daufri kvöldlýsingunni Francoise Dorleac twistar í svörtum flauelskjól, þökt- um svörtum perl- um að ofan. Catherine Deneuve, hin nýja eig- inkona Roger Vadim, með róman- tíska hárgreiðslu — hárið er greitt í þykka slöngulokka ofan á hvirfl- inum. Hún var í blússu úr drapp- litu krepefni, og brúnu, röndóttu pilsi. Rendur eru að færast meir og meir í tízku nú. Einna mesta eftirtekt vakti hár- greiðsla Audrey Hepburn. Hár- kambur (chignon) uppi á kollin- um, hárið greitt upp í hnakkan- um, en í vöngunum eru róman- tískir lokkar greiddir niður yfir eyrun. Hvít satínslaufa í hnakk- anum neðan við kambinn. Þessi greiðsla gerir hálsinn ennþá grennri og lengri. Það, sem einkenn- ir alveg sléttan þröngan kjól frá tízkuhúsinu Heim, er „sundbols“háIs- málið, með einni gríðarstórri skrautnælu í miðju. Sýningar- stúlka frá Heim ber kjólinn. Hið „geómetriska“ hálsmál (,,sundboIs“háIsmálið) á svartri flauelsblússu með plómulituðu pilsi. Stúlkan á myndinni er Florence Cras, 19 ára gömul auð- mannsdóttir frá Farís.

x

Frúin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frúin
https://timarit.is/publication/1084

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.