Frúin - 01.03.1963, Page 37
Jafnvel fiskkökur úr leifum geta orðið spennandi réttur þegar þær eru
festar á tein með tómatsneið, harðsteiktu bacon, blómkálsvendi og ólífu.
Steiktar kartöflur bornar með.
„baði“, annað hvort í skúffunni
í ofninum eða í stórum potti ofan á
eldavélinni. Látið lok eða málm-
pappír yfir mótið. Fylgist með suð-
unni og bætið heitu vatni út í ef
þörf krefur. Rétturinn er borinn
fram í mótinu eða leirklukkunni og
steiktum bacon-bitum stráð ofan á
og baconfeitinni hellt yfir.
Tómatketchup heyrir til, og er
hentugast að láta flöskuna standa á
borðinu þannig, að hver fái sér eftir
smekk. Oft er tómatmaukið eða saf-
inn látinn saman við réttinn í ofn-
inum.
Fiskréttir bakaðir í ofni, í eldföstu
móti, eru ávallt ljúffengir og spara
líka tíma. Nýr fiskur er auðvitað allt-
af beztur, en frystu fiskflökin eru
líka mjög góð og tilvalið að eiga
pakka af þeim í ísskápnum, því að
oft er nýr fiskur ófáanlegur. Skerið
frysta fiskinn í bita með heitum hníf,
brúnið hann aðeins í smjörl. á pönnu
(betra að blanda saman smjörl. og
matarolíu — þá steikist fiskurinn
fyrr og verður fallegri), látið hann
síðan í smurt eldfast mót, hellið heitu
vatni á steikarpönnuna og hellið því
yfir fiskinn. Ef mótið er nógu stórt,
er tilvalið að sjóða kartöflurnar með
fiskinum. Flysjið þær, skerið þær í
sneiðar eða bita og raðið utan um
fiskinn. Látið 1—2 lárviðarlauf með.
Á sama hátt má sjóða lauk með
fiskinum. Alls konar bragðbæti má
svo hafa með fiskinum, t. d. strá
yfir hann rifnum osti eða hella yfir
hann tómatmauki eða sítrónusafa.
Ef fiskréttinn á ekki að nota fyrr
en eftir 1—2 daga, má geyma hann
í eldfasta mótinu eftir að hann hefur
verið tekinn af pönnunni, leggja
málmpappír yfir mótið og geyma í
ísskápnum. Daginn, sem fiskurinn er
borinn fram, má svo, ef menn vilja
heldur þykka sósu, gera fisksoðið
þykkt með eggjarauðu og rjóma, eða
taka bita af smjör- og hveitipylsunni,
sem geymd er í ísskápnum, Reynið
einhvern tíma að blanda pilsner og
vatni til helminga yfir fiskinn.
Fisk-gratín er ágætt að búa til úr
frystum flökum, og það drýgir rétt-
inn og gerir hann bragðbetri að hafa
með honum soðið makkaroní eða
spaghetti, og eins og allar húsmæð-
ur vita. er gratín eitthvað það bezta,
sem hægt er að nota fiskleifar í.
Ofannefndir kjöt- og fiskréttir
geymast ágætlega í ísskáp, og það
gefur húsmóðurinni öryggiskennd að
vita af þeim þar, ef matseðill dags-
ins skyldi brenglast til, og því meir,
sem hægt er að geyma í ísskápnum
af „fyrirfram-tilbúnum“ mat, því
betra.
Soðnar, kaldar kartöflur er t. d.
ágætt að eiga í ísskápnum. Stórar
soðnar kartöflur má t. d. láta inn í
heitan ofn og baka þær. Skerið kross
ofan í þær áður en þær eru látnar
inn í ofninn, kreistið þær og látið
smjörbita ofan á. Þær fylla upp í
máltíð úr matarleifum, hvort held-
ur þær eru útbúnar á þennan hátt,
eða steiktar í sneiðum eða hrærðar í
mús. Bökuðu kartöflurnar eru sér-
lega góðar með síld og vel á minnzt:
Hverjum finnst ekki góð síld! Kaup-
ið síldarflök, vefjið þau vel inn í
málmpappír og geymið í ísskápnum.
Notið hugmyndaflugið þegar þér
berið fram síldina, því að allt mögu-
legt fer vel með henni. Litið t. d.
löginn, sem þér leggið síldarbitana
í, með rauðrófusafa, og berið fram
rauðrófur, lauk og kartöflur með
henni. Þá er síld einnig ágæt með
tómatmauki, í karrymayonnaise, o.
fl. o. fl. Hér er svo uppskrift af vin-
sælum síldarrétti:
íSíld í eggjakremi
4 síldarflök (súrsíld) skorin í jafn-
stórar skáræmur og raðað á fat. Hrær-
ið vel 75 g af linu smjörl. eða smjöri
saman, og þeytið 4 eggjarauður sam-
an við, einni og einni í einu. Bætið
út í 1 súputeningi, 1 dl estragon-
ediki, 30 g sykri og 1 matsk. af
frönsku sinnepi. Látið í pott og hrær-
ið í því yfir mjög vægum eldi og
haldið sósunni rétt við suðumark.
Gætið þess að hún sé kekkjalaus. Lát-
in kólna, síðan hellt yfir síldarbit-
ana, og stráð yfir með kapers.
Annar síldarréttur, sem alltaf „ger-
ir lukku“: Heil síldarflök eða bitar
látin ofan á lag af þunnum lauk-
sneiðum. Þakið breiðu af mayonn-
aise blandaðri söxuðum harðsoðn-
um eggjum. Agúrku- og rauðrófu-
sneiðum raðað í kring.
Síldarauga er ljúffengur réttur úr
kryddsíld. Hringur af smátt saxaðri
síld er umgirtur söxuðum lauk, söx-
uðum rauðrófum og agúrkum. Inn-
an í síldarhringinn er látin hrá
eggjarauða, skreytt með kapers. —
Skammtað á hvern mann.
Enn einn tímasparnaðurinn er að
brúna stóran skammt af lauk og
geyma hann í lokuðu glasi í ísskápn-
um. Mjög ljúffenga sósu með síld
og fiski er hægt að búa til með því
að blanda saman lauknum og tóm-
atmaukinu, þynna mátulega mikið
með súpukrafti. Krydda með salti
og pipar. Eins og áður er sagt, er
heillaráð að hafa slíkan eldhúsdag
einu sinni í viku, bæði til þess að
létta fyrir matreiðslunni næstu daga
framundan, og til þess að fara yfir
FRÚIN
37